Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1907, Blaðsíða 2

Eimreiðin - 01.09.1907, Blaðsíða 2
Kína-lífs-elixír. Heilbrigði er bezta hnossið? Fyrirsögn lína þessara er alkunn. Hver er sá, sem þekkir ekki þennan óviðjafnanlega bitter? Heilan mannsaldur iietir elixírinn verið óbætanlegt heimilismeðal, sem mörg heimili hafa leitað til. Frá fyrsta degi tilveru sinnar ávann hann sér þann orðstír að vera bezta lyfið, sem til er, til að styrkja og laga meltinguna og vekja matarlystina. Þessu áliti hefir elixírinn ávalt haldið og gagnleg áhrif hans á heilbrigðina hafa alstaðar vakið mætur á honum. Læknislist vor stendur nú í fylsta blóma. Það er því fróðlegt að taka eftir því, að ýmist þessi eða hinn frægur læknir leitar til þessa eða hins heimilislyfs. Orsökin til þess er sú, að þekking læknisins hefir mörgum sinnum ekki gert nokkurt gagn, en á hinn bóginn hefir þá heimilislyfið, sem svo er nefnt, veitt fróun og bata. Læknirinn er of greindur til þess að fara í kringum staðreyndina og virða hana að vettugi, heldur fléttar hann hana inn í lækningar (praksis) sínar. Það er sönnun þess, að gömul og góð ráð, gefin af vitsmunum og hygg- indum, skuli eigi fyrirlitin. Vísindamenn og leikmenn hafa látið upp skoðun sína um Kína- lífs-elixír. Dr. med. i. C. Luciani skrifar 3/í 1905 frá Caracas (Venezuela): Eg hefi notað Kíná-lífs-elixír við sjúklinga mína og í ýmsu tilliti orðið var við læknandi áhrif hans. Með því að ég þekki samsetning hans, get ég lýst yfir því, að jurtaefnin í honum eru for- takslaust gagnleg fyrir heilsuna. Stórkaupm. C. P. Perrin í París skrifar 12/5 1906: Eg hefi sam- kvæmt ráðlegging notað Kína-lífs-elixír gegn uppsölu og verkjum millum brjósts og maga og hefi á þann hátt losast við þennan kvilla. Emil Westergaard í Lemvig skrifar 6/ia 1906: Mér er ánægja í að skýra yður frá, að ég, sem frá því ég var á 15. árinu hefi þjáðst af uppsölum og árangurslaust leitað læknishjálpar, hefi nú fengið fullan bata með því að brúka Kína-lífs-elixír. Halldór Jónsson í Hlíðarhúsum í Reykjavík skrifar 20/s 1906: Eg hefi í mörg ár þjáðst af magaveiki og lystarleysi og reynt margs konar meðul við því, en ekkert dugað. Síðan ég fékk að vita um Kína-lífs-elixírinn, brúka ég hann stöðugt og hann reynist ágætismeðal við sjúkdómi mínum. Eg get þvi' mælt með honum við alla, sem þjást af þessum sjúkdómum. Frá Lambakoti við Eyrarbakka skrifar Jóhanna Sveinsdóttir 17/5 — 1905 : I 14 ár hefi ég verið þungt lialdin af nýrnatæringu og kvilium þeim, sem henni fylgja. Eg hefi oft legið rúmföst. En þegar ég hefi verið á fótum, hefi ég neytt Kína-lífs-elixír, sem mér hefir fundist styrkja mig. Og síðustu árin hefi ég getað bugað sjúknaðinn með því að neyta bitters þessa reglulega, svo það er von mín, að ég mun fá fullan bata, er stundir líða. K í n a -1 í f s - e I i x í r. er þvf að eins ekta, að á einkunnarmiðanum standi vörumerkið: Kínverji með glas í hendi og neðanundir honum nafn verksmiðju- eigandans: Waldemar Petersen, P'rederikshavn — Koben- havn, og sömleiðis innsiglið v- p- í grænu lakki á flöskustútnum. F. Varið yður á eftirlikingum.

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.