Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1913, Side 9

Eimreiðin - 01.05.1913, Side 9
»3 eða á hverskonar öðrum alríkisskatti skal takmarkast samkvæmt. ákvæðum þessara laga; (c) vald alþingis Ira til að breyta alríkisskatti skal ekki ná til þeirra stimpilgjalda, sem talin eru í 2. viðbæti þessara laga; (d) alþingi Ira skal ekki breyta neinum tollum né framleiðslu- sköttum þannig, að tollur á samskonar vörum og framleiddar eru á Irlandi nemi meiru en framleiðsluskatturinn, nema sem svarar hæfilegum kosnaðarmismun við eftirlit og innheimtu. 22. gr. (i) Til þess að framkvæma fjárhagsákvæði þessara laga, skal stofnuð stjórnarnefnd, sem kallast samsjóðsstjórn, og eru í henni 2 menn skipaðir af fjárhagsstjórn Breta, 2 af fjár- hagsstjórn Ira og formaður skipaður af konungi. (2)Samsjóðsstjórnin skal úrskurða öll þau fjárhagsspursmál, sem lög þessi skylda hana til, og hverskonar önnur spursmál viðvíkj- andi sérmálatillaginu eða tekjum og útgjöldum Ira, eða kostnaði við undanskilin stjórnarmál (sbr. 4. gr., 6), sem kann að verða skot- ið til hennar af fjárhagsstjórn Breta og Ira í sameiningu, og skal úrskurður hennar vera fullnaðarúrskurður. 26. gr. (1) Ef samsjóðsstjórninni virðist, að einhver 3 ár í röð hafi tekjur af alríkissköttum og sérsköttum á Irlandi, ásamt hlutdeild þeirri, er írum kann að bera í ýmsum tekjum Breta, verið meiri hvert þessara ára, en sérmálatillagið og kostnaður við undanskilin stjórnarmál, skal hún um það senda skýrslu til fjárhagsstjórnarinnar og landstjórans, og skal afrit af þeirri skýrslu lagt bæði fyrir alþingi Breta og Ira. (2) Framkoma slíkrar skýrslu skal tekin gild ástæða til, að alþingi Breta endurskoði fjármálaákvæði þessara laga, til þess að tryggja hæfilegt tillag af tekjum íra til sameiginlegra útgjalda Breta, og til þess að rýmka um vald alþingis Ira og stjórnar þeirra til álögu og innheimtu skatta. (3) Til þess að gera slíka endurskoðun skal kalla til neðri- deildar Breta svo marga neðrideildar-þingmenn Ira, að jafnt hlut- fall verði milli fulltrúafjölda Ira og Breta í neðrideild alþingis Breta miðað við fólksfjölda, og skulu neðrideildar-þingmenn Ira við slíka endurskoðun hafa fullrétti sem neðrideildar-þingmenn Breta.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.