Alþýðublaðið - 06.06.1964, Side 5

Alþýðublaðið - 06.06.1964, Side 5
1 Aöalfundur Sambands veit- inga 09 gistihúsaeigenda AÐALFUNDUR Sambands veit- inga- og gistiSÚsaeigenda var hald inn aS Hó„el Sögu 25. maí sl. FormaSur S.V.G. Lúðvíg Hjálm týsson flutti skýrslu stjórnarinn- ar og skýrði frá þeim helztu við- fangsefnum, sem stjórnin og skrif stofa S. V. G. haíði með að gera á liðnu kjörtímabili. Skýrði formaðurinn í upphafi frá samningaviðræðum og samn- ingum sem Samband veitinga- og gistihúsaeigenda stóðu í frá því, að seinas.i aða.fundur fór fram, en samningar við þau félög, sem S.V.G. semur við hafa yfirledt ver ið stór liður í starfsemi S.V.G. Fram kom á fundinum einróma og mikil óánægja með þá ráðstöf un borgaryfirvalda Reykjavíkur- að svipta veitingamenn rétti, sem þeir í skjóli síns veitingaleyfis hafa haff um tugi ára og er hér átt við sölu sælgætis á veitinga- stöðum og hótelum, en slíkt bann var látið ganga í gi di, er breyting arnar um kvöldsöluna náðu fram að ganga. Á fundinum var einróma sam- þykkt ef.irfarandi tillaga: „Aðalfundur S.V.G. haldinn að Hótel Sögu 25. maí 1&34 mótmæl ir eindregið þeim breytingum, er gerðar hafa verið á afgreiðsluhátt um í veitinga- og gistihúsum með tilkomu nýrra ákvæða í 79, gr. lögreglusamþykktar Reykjavíkur, sem tók gildi 1. apríl sl. Fundur inn lítur svo á að þessi ákvæði skerði verulega rétt, sem veitinga . og gistihúsaeigendur hafa átt um áratuga skeið. Framangreind ákvæði hafa haft það í för með sér, að veitinga- og gistihúsin hafa venð svipt rédi til sölu á sælgæti o. fl., sem inn telur að sé liður í sjáifsagðri þjónustu við viðskiptamenn, enda eru aðrar kröfur gerðar til veit- inga- og gistdiúsa en almennt er gert um sölubúðir. Með tilvrsun til framanritaðs og þeirrar al- mennu óánægju, sem S. V. G. hafa orðið varir við gestum sínum, skorar fundurinn á I háttvirta borgarstjórn að færa til ' fyrra forms 79. gr. lögreglusam- þykktar Rcykjavíkur". Er formaðurinn hafði skýrt frá starfseminni á liðnu kjörtímabili, ræddi hann um tvenn merk lög, sem Alþingi hefur samþykkt og gengið hafa igildi á þessu ári. Lög þessi eru hin nýju lög um veitinga- og gististaðahald o. fl., j sem gengu í gildi 1. jan, sl., en I gömlu lögin um þetta efni, sem j mjög voru orðin úrelt, voru frá | ár.nu 1926. Áttu veitingamenn 2 ^fulhrúa í nefnd, er samdi lög þessi. í undirbúningi er og reglugerð á þessum lögum og verður hún í 70 greinum og hin narlegasta m. a. að því er varðar aðbúnað á hó- telum. Veitinga- og hótelmenn hafa Frá affalfundi Sambands vei .mga- og gistihúsaeigenda. átt mikihn þátt í að semja þessa reglugerð. Einnig ræddi formaðurinn um gagnmerka löggjöf, sem nýlega er gengin í gildi og er það hin nýja löggjöf um ferðamál. Hótel og veitingamenn vænta mikils af þessari nýju löggjöf og þá ekki hvað sízt þeim nýmælum laganna, sem kveður á um siofn- un ferðamálasjóðs, en hlutverk hans á að vera að stuðla að bygg- ingu gistihúsa og veitingastaða í landinu og með því móti bæta móttöku og þjónustu við innlenda og erlenda ferðamenn, en á slíkt skordr verulega, einkum út á landsbyggðinni. Formaðurinn lýsti f. h. veitinga og gistihúsaeigenda þakklæti fyrir þann skilning, sem samgöngumála stjórnin í heild hafa sýnt veitinga- ráðherra Ingólfur Jónsson og ríkis og gistihúsastarfseminni í.landinu með því að hrinda í framkvæmd framangreindum lagabálkum. Að lokinni skýrslu formanns las Jón Magnússon framkvæmdastjóri S. V. G. upp reikninga sambands- ins og skýrði þá, en fjárhagsaf- koma S. V. G. varð góð á liðnu ári. Síðan fóru fram frjálsar umræð- ur um ýmis mál og loks stjórnar- kjör. Hma nýju sijórn skipa nú, Lúðvíg Hjálmtýsson, formaður, e» meðstjórnendur þeir Pjetur Dan- íelsson, Friðsteinn Jónsson, Sig- ursæll Magnússon, Þorvaldur Gu& mundsson, Ragnar Guðlaugsson, og Konráð Guðmundsson. ALÞÝÐUBLAÐIÐ Kostar aðeieis kr. 80.0Q á mánuöl. Gerist áskrifendur. Sími 14-900. í STÓRA eldhúsinu á Rigs- hosp.talet si.ja þrjár, íslenzkar skátastúlkur og skræla kartöfl ur í óða önn. Þær ætla sér að kynnast dönsku vori, landi og og þar eð fjórráðin eru ekki ýkja mikil, þá er ekki um annað að gera en að vinna fyrir sér þá þrjá mánuði, sem þær ætla að dveljast hér í Danmörku. Stú.kurnar þrjár sitja andspænis mér. Fyrst í stað voru þær dálítið fámæltar. íslenzkar stúlkur kasta sér ekki út í suðrænt málæði þegar í stað, en með hægðinni tókst að fá þær til að leysa frá skjóð- unni. Stúlkurnar þrjár heita: Fjóla Hermannsdóttir, Kolbrún Ág- ústsdóttir, kölluð Ko la og Val- gerður Jensdóttir, kölluð Vally — Hvaðan eruð þið af ís- landi? — Við erum allar þrjór frá Reykjavík, segir Vally. Við er- run 18 ára og skátaforingjar heima. Við höfum þekkzt í mörg ár, og við Kolla erum bekkjarsystur. Við Kolla erum með gagn- fræðapróf. Það er átta ára skólaskylda heima. Eftir þessi átta ár er unnt að fara I lands próf, sem veitir réttindi til inn göngu í ^nenntaskóla. En það tekur tvö ór til viðbótar við átta að taka gagnfræða- próf. — Það er líka hægt að fara úr skólanum eftir 7 ár, segir Fjóla. Eg gerði það, því að ég fékk nógu háar einkunnir til að fara beint í verzlunarskóla. Verzlunarskólinn er fjögurra ára dagskóli. Eftir tvö ár til viðbóiar er hægt að taka stúd .entspróf. Eg var fjögur ár í verzlunarskólanum og fór þáð an til vinnu í banka. — Og ég hef verið á skrif- stofu, og Kolla hefur verið að- stooarstúlka hjá tann.ækni, lieldur Vally áfram. — Og eruð þið allar orðnar útlærðar til þessara starfa? — Það er ekki sami háttur á heima og hér. Við þurfum eklíi að ganga á sérsiaka skóla til að fá þessi störf, — við byrj um aðeins á byrjunariaunum en svo aukast launin eftir því sem þekking og reyns.a vex. Launin eru ágæt. Eg byrjaði fyrir tveim árum með sem svar ar 650 kr. dönskum á mánuði — Sama hjá mér, segir Kolla — Hvað gerir íslenzkt æsku- fólk í tómstundum sínum? Vally: — Víð höfum alltaf verið á kafi í skátas.arfinu. Við förum í smáferðir með flokkana okkar — sláum upp tjöldum og kveikjum eld. Það eru engir skógar á ísiandi, svo að við verðum að hafa brenni með okkur að heiman. Yfir- leitt er það kassafjalir eða eitt hvað siíkt. Kolla: — Á íslandi eru skáta flokkarnir blandaðir; — þar eru bæði strákar og stelpur Hér eru strákar sér í flokki og stelpur ,sér. Heima eru engir KFUK-skátar, — en aðeins ein hreyfing. Strákarnir bera gula, én steipurnar bláa einkennis- búninga. Vally: — Eg held, að það séu 3-4000 skátar á íslandi. Á 50 ára afmælishátíðinni slógum Við upp miklum alþjóðlegum tjaldbúðum á Þingvöllum. Þáð urðu stærstu skótatjaldbúðir, sem sézc höfðu á íslandi, og margir erlendir skáiar komu til ísiands til þess að taka þátt í 50 ára afmælishátíð íslenzku skátahátíðarinnar. Hraunið frá Heklu teygir sig alla leið niður til Þingvaila, og niðri í gjánum héldum við guðs þjónustur og kveikcum elda á kvöldin. Fjóla: — Síðasta fimmtudag inn í apríl höldum við hátíðleg an sem fyrsta sumardag, og á þeim degi er sérstök barna- hátíð. Við skátarnir hittumst um morguninn og göngum saman til kirkju. Svo ganga börnin í skrúðgöngum, og bæði leikhús in í Reykjavik sýna barnaleik- rit á þessum degi. — Er eitthvað fleira á ís- landi öðru vísi en í Danmörku í siðum eða lífsháttum? — Við byrjum snemma að vinna á íslandi. Við fáum fjög íslenzku stúlkurnar þrjár, Valiy, Fjóla og Kolla. urra mánaða frí úr skólanum 1. júní, og þá vinna flestir skóla nemendur, Margir fá vinnu í fiski. Vally vann í fiski, þegar hún var í skólanum. — Eg var ahtaf barnapía á-sumrin. — Og ég hef verið í sveit, segir Kolla. Á íslandi eru ekki akrar eins og hér, —• en það er nóg að gera í kringum skepn urnar í heyvinnu. Vally: — En íslendingar byrja seinna á morgnana en þið hérna. Iðnaðarmenn og verksmiðjufólk byrjar ekki að vinna fyrr en klukkan átta á morgnana, — en vinnu er ekki heldur lokið fyrr en klukkan 5—6 á kvöldin. — Hvernig komuð þið hing að til Danmerkur? — Við komum með Drottn ingunni. Hún leggst að við „Larsens Plads“ svo Amalien- borg var það fyrsta, sein við sáum af Danmörku. Það er undursamleg höll. — Hvaða áætlanir hafið þið nú gert um dvöl ykkar hér? Kolla: — Við ætlum að fara á söfnin, og undir lokin ætlum við að hætta að vinna og leggja upp í ferff um landið. Við höf um hafc samband Við danska skáta, sem ætla að hjálpa okk ur við að skipuleggja ferðina. —• Og svo eftir þessa þrjá mánuði? — Fjóla: Eg fer á húsmæðra ■skóla, og svo liggur leiðin lík- lega aftur í bankann. Kolla: — Okkur Valiy lang ar til að verða hjúkrunarkon- ur. Margar bækur í hjúkrunar skólanum eru á dönsku Framhald á 10. síffu. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 6. júní 1964 5 /

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.