Alþýðublaðið - 06.06.1964, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 06.06.1964, Blaðsíða 15
I Hann horfSi á mennina tvo og beið eftir svari. Kramer starði á móti, og kringluleitt andlit hans var gjörsamlega sviplaust. Eftir andartaks hik sneri hann sér að hinum unga ættingja sín- um og sagði: — Henry, herra •Wessler er að tala við þig. — Nei, nei, herra Wessler, ég hef aldrei verið í Vín, stamaði Henry. Mér fannst eins og Kramer hefði af ásettu ráði snúið þ'essu til Henrys. En svo fóru þeir, ög ég gleymdi þessu þar til kom að því að allt, sem skeði á þess ari fyrstu æfingu í Dagonet, stóð óþægilega ljóslifandi fyrir hug- skotssjónum mínum. Þrátt fyrir truflunina, sem Ge- org frændi olli og áhrifamikla innkomu stórrar rottu inn á leik sviðið, Héldum við jafn stórkost lega vel áfram með fyrsta þátt. Það er að segja, alveg þangað til Cromstock birtist á sviðinu. Cromstock lék ríkan kaupsýslu- mann, sem h.afði boðið Cleonie með sér í vafsama helgarferð, og orðið fyrir flóðinu eins og hún. Hlutverk hans samanstóð ekki af öðru en því að láta bjarga sér til að deyja síðan og vera lagð- ur fyrir í kistu, sem hin svart- i sýna fjölskylda á búgarðinum hafði af mikilli fyrirliyggju standandi hjá sér í eldhúginu. Kistan var enn þá ekki komin, svo að Cromstock hafði þetta kvöld ekkert að gera og þurfti aðeins að segja tvær setningar. En það gerði hann ömurlega illa. Ég vildi ekki rífast í lionum. Ég skildi, að hann óttaðist eitt- hvað hér í Dagonet, þó liann þver neitaði því. Ég vissi líka, að hann var veikur. Þar að auki vildi.ég ekki hætta á fleiri móður- sýkisköst, sem gætu æst leikar- ana upp aftur. Eftir viðeigandi dauða Crom- stocks hélt æfingin áfram án frek ari truflana, þar til kom að öðr- tim þætti. Þá tóku að heyrast ’ undarleg, taktföst hljóð aftan úr áhorféndasalnum. Ég sneri mér við og sá tvær verur fikra sig hægt áfram eftir hliðargangin- um. Þetta voru tveir, þrekvaxn ir negrar í samfestingum. Og milíi sín báru þeir stóra, svarta kistu. Þeir gengu framhjá mér og upp á leiksviðið án þess að taka tillit til æfingarinnar. Þeir settu kistuna virðulega á gólfið og stóðu -svo og störðu á Eddie. Hann sagði „allt í lagi“, og.þeir hurfu á brott. Meðan ég var að ná mér eftir Þetta, gekk leiksviðsstjórinn minn. að kistunni og rannsakaði hana nákvæmlega. Hann sagði að sér fyndist við þurfa á henni að halda strax, þó æfíngarnar væru ekki komnar lengra. Hon- um hafði tekizt að ná í ekta Pennsylvaniu-þýzka kistu gegn- um aðila, er hann bekkti í Lan- caster. Hann útskýrði hina ótal mörgu kosti kistunnar fyrir hin um áhyggjufulla Cromstock. Hann vakti athygli okkar á 'því hversu vel hún var bólstruð á gamaldagshátt, látúnsbúnaðinum og hrósaði hinu virðulega útliti hennar. Hann fullvissaði líka ! gamla leikarann um að búið væri ann þrátt fyrir skapstyggð hans og þröngsýni. Þau eru maður og , kona. Hefur hann kjark til að bjóða flóðöflunum byrginn á- samt henni? Um leið og tjaldið er dregið hægt fyrir, ganga þau saman til dyra — út til hinna ófæru vatna og öryggislausrar' framtíðar. að bora loftgöt á kistuna, sem ættu að nægja honum þann tima, er hann þurfti að liggja í henni lokaðri. Eddie stakk upp á að við end urtækjum kistuatriðið. En ég bannaði það. Cromstock hafði orðið fyrir nógu miklum óþæg- indum þetta kvöld. Kistan stóð í skugga á sviðinu meðan við lukum við annan þátt og byrjuð um á þriðja. Skömmu seinna tók ég eftir dr, Lenz. Hann gekk til mín, al- varlegur á svip. Hann hafði ver ið svo örlátur að láta af hendi án andartaks hiks allt það fé, 9 er við þurftum til sýningarinn ar, en hann hafði aldrei fyrr ver ið viðstaddv æfingu. Hann var einn af þekkstustu læknum Ame ríku, og eyddi öllum tima sínum á lækningastofu sinni og hælinu, sem hann rak. Sjúklingar hans voru yfirleitt jafn þekktar per- sónur og hann var sjálfur. Hann settist, og þegar hann sá að ég hafði orðið hans var, lyfti hann hendinni til merkis um að hann vildi ekki að nær- vera hans truflaði æfinguna: Svo hallaði hann sér aftur að slitnu stólbakinu og horfði með athygli á það, sem fram fór á leiksvið- inu. Ég vonaði að honum myndi geðjast að sviðsetningu minni á þessu leikriti, er hann liafði orð ið mjög hrifinn af við fyrsta lestur. Dr. Lenz var einn af þeim fáu mönnum hér í heimi, er ég bar svo mikla virðingu fyrir, að það nálgaðist dýrkun. Hrósyrði hans voru mér mjög mikils virði. Þess vegna horfði ég nú meira á andlit hans en leiksviðið. Ég var bæði stoltur og órólegur. En svo hætti mér að vera órótt. Hann brosti, og ánægjuhrukkur mynduðust við augnkrókana. Það lék enginn vafi á því, að honum geðjaðist að uppfærsl- unni. Við þetta varð ég svo ör af gleði, að ég tók í fyrstunni ekki eftir, að Eddie Troth sat ekki á sínum stað að tjaldabaki. Leik sviðsstjórinn minn hafði senni- lega ályktað, að það væri óþarfi að hvísla meira og læðzt út til að-fá sér dx-ykk. Síðasta þætti var að verða lok ið: Theo sagði síðustu setninjg- una sína og yfirgaf leiksviðið á- samt Gerald. — Allt í lagi, hrópaði ég til þeirra. — Þið þurfið ekki að bíða eftir okkur, ef ykkur langar ekki til þess. Við gerum ekki meira í kvöld. Við byrjum aftur klukk an hálf tólf á morgun. Gerald renndi greiðu f gegn- um gljáandi svart hárið og gekk að dyrunum. Theo bældi niður í sér hósta, hneppti að sér tvveedjakkanum og fór á eftir honum. Þau liurfu bæði út. — Ef þér þurfið ekki meira á mér að lialda, heldi ég að ég fari líka. Mér fannst rödd Crom stocks gamla loðin " og ógreini- leg. — Mig langar til að líta á búningsklefann. Það er svo langt síðan . . . óra langt síðan. Það var alvörusvipur á mögru andliti lians. Ég tautaði „allt í lagi, Lionel“, og hann staulaðist af stað. Við Lenz urðum einir eftir í áhorfendasalnum. Á leiksyiðinu gerðu Wessler og Mirabella upp sakimar í síð- asta skipti, en íris beið að tjalda baki. Ástareldurinn hafði logað glatt í „Ólgandi vötnum“, og haft í för með sér sorg og eyði- leggingu. Konurnar tvær í Kir- chnerfjölskyldunni, Theo og íris, höfðu krafizt þess að Cleonie væri varpað á dyr, þó að flóðun- um væri ekki lokið. Alveg óvænt tekur Kirchner málstað ókunnu konunnar, þó honum bæri frem- ur að hata hana fyrir að eyði- leggja heimilisfriðinn. Hann verð ur að velja milli hins þekkta og óþekkta. Þegar þau eru orðin tvö ein, segir hann henni að hann vonist til að geta bjargað ódauð legri sál hennar, og að hann sé tilbúinn til að fó.ma heimilis- liamingju sinni hennar vegna. í áhrifamiklu lokaatriðinu tekst Cleonie að opna augu hans fyrir þeirri staðreynd, að það er lik- ami hennar, sem hann vill fá, en ekki sálin. Og hún hefur í raun- inni líka girnzt hann allan tim- SUIVSAR- KJÓLAEFNI mikið úrval. Einnig Terylene- efni, slétt og plíseruð, í bama og fullorðins kjóla. Verzlunin Snót Vesturgötu 17. SÆNGUR ■Vj,' vs Endxxmýjum gömlu sængumar. Seljum dún- og fiðurheld vwr. NÝ.IA FTnTTRHREINSUNDf. Hverfisgötu 57 A Simi 16T38. — Nei, takk. Mamma segir að ég megi ekki borða annars staðar en heima og alls ekki saltfisk. — Þér getið kailað mig það, sem þér vilj- ið, en ekki drenginn minn. — Ég læt starf mitt hjá yður löng og leið. — Summcr! — Ef ÓIi litli væri ekki týndur, mundi ég horfa á þetta ofan af svölunum og takia ; 0 noklcrar myndir. — Það er allt henni að kena, að Óli er týndur. — Þetta er nóg, Summer. Þú er hætt. — Nei, hún er sko hætt að vinna hjá mér. Það lxættir enginn lxjá mér. Hún er rétt að byrja að vinna. i ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 6, júní 1964 |,5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.