Skólablaðið - 01.04.1911, Blaðsíða 15
SKOLABLAÐIÐ
79
Lelðrétting.
I ritgerðinni »Úr Skaftafellssýslu hinni vestri« í 2. tölublaði Skólabl.
þar sem nm kenslufyrirkomulagið í Leiðvallarhreppi forna er að ræða,
er svo að orði komist: >Síðan farið var að vinna að kenslumálunum.
hefur helst á þessu svæði verið völ á óhæfum kennurum«; —. á að vera:
óæfðum kennurum. — Kennararnir í þessum héruðum hafa flestir verið
viðvaningar, en - sumir víst alls ekki »óhæfir« til starfa síns.
Þessa leiðréttingu verð eg að biðja yður, hr. ritstjóri, að birta í
því tölubl. Skólablaðsins, sein næst keniur út.
Skafffellingur.
Smælki.
Kennarastarfið er verk framtíðarinnar. Vér erum ekki
að uppala börn aðeins fyrir öldina, sem er að líða, heldur
fyrir ókomnar aldir. Úað er háleit hugsun þetta: þeir sem
starfa að því verki, hafa áhrif á huga ókominna kynslóða.
* *
*
Sá kennari, sem er hættur að auka þekkingu sína og
víðsýni, hefur mist megin-mátt sinn. Úr óákveðinni þekk-
ingu verður óákveðin kensla; en af henni stafar mörg villan
og mörg mistökin á kenslunni.
* * 0
*
Að segja það, að sá sem hefur fengið góða kenslu,
hljóti að vera góður kennari, er svipað og sagt væri, að sá
sem hefur fengið góða lækning, hljóti að vera góður lækn-
'r- Enginn getur samt sem áður verið góður kennari, nema
hann liafi fengið góða kenslu og nægilega mentun.
Nýir kaupendur fá IV. árg. í kaupbæti. Eldri ár-
gangar fást t'yrir hálfvirði (= I kr.)
Útsölumenn fá 20°/0 í sölulaun af 5 eintökum og
Þar yfir.