Vísir - 11.09.1962, Qupperneq 10
70
VISIR
lækning
Hálfur maður
Á þingi bandarfskra lækna í
síðustu viku var skýrt frá ein-
hverri furðulegustu skurðað-
gerð, sem nokkurn tíma hefur
verið framkvæmd. Hópur skurð-
lækna við læknadeild háskólans
í Minnesota skýrði frá því, að
þeir hefðu blátt áfram helming-
að 29 ára gamlan mann til þess
að losa hann við allan neðri
hluta líkama síns, sem var altek-
inn krabbameini. Sjúklingurinn
hafði ekki aðeins lifað áf skurð-
aðgerðina, sem gerð var í októ-
ber síðastliðnum, heldur var
tilkynnt, að hann væri að ná
fullri heilsu eftir nákvæma og
vandlega skipulagða þjálfun.
Sjúklingurinn var fæddur með
meinsemd í hryggnum, sem
gerði að verkum, að hann hafði
alla sína ævi verið lamaður fyrir
neðan mitti, og hann hafði eytt
mestum hluta ævi sinnar í rúm-
inu eða hjólastól vegna fátækt-
ar aðstandenda sinna. Hann
kunni hvorki að lesa né skrifa.
Vegna langvarandi hreyfingar-
leysis mannsins hafði smám
saman myndazt gapandi sár á
mjóhryggnum. Er hann var lagð
ur inn á sjúkrahús háskólans í
Minnesota í september síðast-
liðnum, var sárið orðið lífs-
hættulegt.
Við rannsókn kom í ljós, að
krabbameinið hefði að öllum
líkindum ekki náð að sýkja þýð-
ingarmikil innri líffæri manns-
ins, en augljóst var, að hann
mundi deyja innan árs, nema
tekin yrði burt mjaðmagrind
mannsins og fætur. „Við sögð-
um honum, að slík aðgerð hefði
ald ei áður tekizt," sagði dr. J.
Bradley Aust á læknaþinginu,
„og létum hann um að taka á-
kvörðunina". Skurðaðgerð sem
þessi hafði aðeins einu sinni
verið framkvæmd áður, svo að
vitað sé. Læknahópur undir
stjóm dr. Elmer B. Miller fjar-
lægði neðri hluta líkama roskins
manns, sem þjáðist af krabba-
beini árið 1960, en sjúklingur-
inn dó ellefu dögum síðar úr
hjartaslagi. Þrátt fyrir þessar
upplýsingar valdi ungi maður-
inn skurðaðgerð. „Mig Iangar
til að lifa," sagði hapn.
Aðgerðin tók fjórar og hálfa
klukkustund. Dr. Aust og fjórir
aðrir skurðlæknar skáru sundur
hrygginn og kviðarholið neðan
við nafla og námu burt mjaðma-
grind hans og fóleggi. Þvag-
blaðran var tengd við op á
kviðnum til þess að hægt yrði
að losna við þvag. Áður hafði
endaþarmurinn einnig verið
tengdur við svipað op, til þess
að maðurinn gæti losnað við
saur. Loks saumuðu læknamir
kviðarholið saman.
Eftir mánuð þóttust læknarn-
ir vissir um, að sjúklingurinn
mundi geta náð sér aftur eftir
þessa geysilegu skurðaðgerð.
Hann lærði að lyfta sér upp í
rúminu með sérstökum tækjum,
sem komið var fyrir í Ioftinu,
en mesta vandamálið var að
koma manninum I slíka stöðu,
að hann gæti að einhverju leyti
hjálpað sér sjálfur með brýnustu
nauðsynjar. Þá kom læknunum
í hug ráð til þess að gera sjúk-
lingnum kleift að fara um i
hjólastól. Það var tekið mót af
brjóstkassa sjúklingsins og fest
á hjólastól. Með aðstoð hreyf-
ingartækjanna uppi yfir rúminu
lærði sjúklingurinn fljótlega að
sveifla sér upp í mótið og
spenna það á sig. Nú getur hann
verið nokkrar klukkustundir í
hjólastólnum og farið á milli
herbergja i sjúkrahúsinu. Sjúk-
lingurinn hefur náð fullu and-
Iegu heilbrigði og virðist ekki
hafa þörf fyrir sérstaka læknis-
hjálp sérfræðinga.
Læknarnir segja, að enn sé
ekki loku fyrir það skotið, að
Dr. Aust og sjúklingur hans:
— Hann langaði til að lifa.
krabbameinið geti tekið sig upp
að nýju. En sjúklingurinn er nú \
sem óðast að búa sig undir betra
líf en hann hefur nokkur sinni
búið yið áður, hann er að læra
að lesa og skrifa, lærir stærð-
fræði og vinnur 'á trésmíða- og
leðurvöruverkstæði sjúkrahúss-
ins. Þegar hann verður útskrif-
aður frá sjúkrahúsinu, ef til vill
innan árs, vonast hann til að
geta fengið fasta atvinnu.
\,Það er harla lítið gagn að
starfi okkar sem skurðlækna,"
sagði dr. Kottke, einn úr lækna-
hópnum, „ef við getum aðeins
limað manninn sundur, en ekki
gefið honum neina möguleika á
sjálfstæðu, persónulegu lífi. En
vonir standa til, að þessi maður
geti lifað næstum sjálfstæðu lífi,
— lífi, sem h: - ■ i hafði aldrei
tækifæri til að n-.jta iður.“
Karen Blixen -
Framhald af bls. 8.
boðar í sögum sínum er að
menn geti verið meira lifandi
og þess vegna þjáðst meir ef
Ieikreglumar eru í heiðri hafð-
ar heldur en ef öllu er kastað
fyrir borð. Það er kynleg spenna
í sögum hennar vegna þes að
ástríðuþungi þeir: og ólga bylt
ist ekki upp á yfirborðið heldur
leiftrar langt neðan úr mann-
legu djúpi sem er miklu nakt-
ara og meira sannfærandi hjá
persónum hennar heldur en
þeim mönnum, sem sífellt kenna
í brjóst um sjálfan sig og standa
í röðum frammi fyrir skrifta-
stóli Freuds. Karen Blixen er
ekki tilfinningasamur höfundur,
hún er miklu fremur grimmlynd
ef hún á þann hátt getur skerpt
eðlismynd mannsins og forðazt
væmnina.
Nú er frásagan búin, sú frá-
saga sem stendur ofar öllum
skáldskap. Karen Blixen hefur
nú sett punkt aftan við sína
eigin sögu. Endir sögunnar gef-
ur ekkert svar við spurning-
unni miklu. Leit mannsins held-
ur áfram. Aðrir munu halda
henni áfram. Þvf enn hljómar
neyðarópið út í myrkrið: Hver
er ég?
N. P. N.
Viðtal dagsins -
Framhald at bls. 4.
Við höfum fréttaritara i ýms-
um helztu íslendingabyggðum
vestan hafs, og fréttir þaðan
virðast einkar kærkomið lestrar
efni. En þvi miður hefur blaðið
ekki efni á að borga fréttaritur
um sínum. Það er allt sjálfboða
starf.
Okkur er öllum annt um að
Vestur-fslendingar haldi áfram
að skrifa íslenzku í blaðið okkar
og teljum að það sé ein megin
undirstaðan að tilveru þess í
framtíðinni.
En hvað oðru starfsliði blaðs-
ins viðkemur, heldur en blaða-
mönnunum sjálfum, þá fæ ég
stúlku öðru hvoru til aðstoðar
við bókhaldið og sérstakur mað-
ur annast auglýsingar' þegar um
hátíðaútgáfur af blaðinu er að
ræða. Annað er starfslið blaðs-
ins ekki.
Skólantdl -
Framhald af bls. 9.
vandamál elztu nemendanna orð
in mjög 'rábrugðin hinna nem-
enda skólans.
Visir spurði Gunnar einnig að
því, hvort honum fyndist skipt
ingin milli barna- og unglinga-
stigsins vera á réttum stað. Því
svaraði Gunnar á þessa leið:
— Þetta er mörgum umhugs-
unarefni og ýmislegt, sem bendir
til þess, að hún mætti vera einu
ári síðar. Börnin eru þá enn á
því þroskastigi, að það kemur
fyllilega til álita, hvort þau ættu
ekki að hafa einn kennara eins
og er í barnadeildum. Einnig er
vafamál, hvort þeir nemendur,
sem nú eru látnir vera í fyrsta
bekk gegnfræðastigsins, hafa
félagslega samstöðu með eldri
nemendum þessa stigs.
V
-----------Þriðjudagur 11. september 1962.
Stjörnuspárnar
í VISI
Ég hefi annazt um nokkurt
skeið vikulegar stjörnuspár fyrir
lesendur Vísis, sem birzt hafa á
laugardögum. Mjög margir hafa
komizt upp á lag með að notfæra
sér þessar spár á réttan hátt. —
Með þessu á ég við að
ekki hefur reynzt mögulegt að
setja þessar spár fram eins og
venjulegar veðurspár sakir þess að
mjög fáir bera næg kennsl á
stjörnuspáfræði. Því hefur það ráð
verið tekið að miða spárnar við
fólk almennt eða manninn á göt-
unni. Það er vissulega ekki það
sama að spá fyrir manneskju sem
liggur í sjúkrahúsi og manneskju
sem er í fullu fjöri, þrátt fyrir að
þær væru fæddar undir sama
merki. Hins vegar ættu báðar
manneskjurnar að hafa nokkuri
gagn af spánum, því með tímanum
komast þær upp á lagið með að
skilja þá strauma, sem verið er
að túlka fyrir þeim. Til að útskýra
mál mitt á einfaldan hátt þá skul-
um við taka sólina sem þurrkar
hey bóndans. Eins er það með aðra
þætti mannlegs lífs að þeir koma
undir viss plánetuáhrif, en flest
kunnum við ekki að notfæra okkur
þessi áhrif á réttan hátt, eins og
bóndinn þurrkinn og því hefur á
öllum öldum verið starfandi nópur
manna sem nefndur hefur verið
stjörnuspámenn, stjörnulesarar eða
eitthvað í þá átt. Það hefur fallið
í hlut þessara manna að segja fólki
hvenær „sólskin" væri í fjármál-
um, ástarmálunum, atvinnumálun-
um, ferðalögum, skemmtunum svo
að fátt eitt sé nefnt. Spámar f
Vísi eru miðaðar við fólk á hin-
Stjörnuspá
dagsins
Hrúturinn, 21. marz til 20. apríi:
Þú gætir orðið fyrir einhverjum
vandræðum sakir lélegrar heilsu
vinnufélaga þíns eða jafnvel vin
ar. Þetta mun þó lagast fyrr held-
ur en á horfðist.
Nautið, 21. apríl til 21. maí: Hætt'
er við að þú komist í deilur við
ástvin þinn út af vinfengi þínu
við aðra. Deilan ætti ekki að
standa lengi yfir, en getur komið
skyndilega og óvænt.
Tvíburamir, 22. maí tii 21 .júní:
Þú getur átt gott kvöld í kvöld á
heimili þínu, en sá friður gæti
rofnað ef þú ferð eitthvað að
ympra á atvinnu þinni, því álíta
mætti að þú sinntir heimilinu
minna en skyldi.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlí:
Frétt langt að eða bréf gæti kom-
ið þér úr jafnvægi í kvöld Þér er
því nauðsynlegt að taka málin
réttum tökum, sem fyrst til að
kippa þessu í lag.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst:
Vertu varkár varðandi félögum
þínum eða maka í dag, því deilur
geta risið út af fjármálunum
Annars er þetta ekkert alvarlegt
og lagast jafnskyndilega og það
fór af stað.
Meyjan, 24. júlí til 23. ágúst: Þú
ættir að gæta matarneyzlu þinnar
í dag, því þér hættir við melting
artruflunum og slappleika. Geng-
ið getur á ýmsu á vinnustað en
þú þarft að taka öllu með j^fnað
argeði.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.: Á-
um starfssömu aldursskeiðum.
Hins vegar ættu allir að geta haft
not af þeim á einhvern hátt. Ef
t.d. í spánni stæði einhvern dag
fyrir eitthvað merki að heppilegar
afstöður væru til ásta fyrir þá sem
ekki hafa fest ráð sitt í þeim efn-
um, þá þýðir það einnig að gift
fólk mundi njóta sambandsins við
makann betur heldur en endra-
ner, þrátt fyrir að það væri ekki
nauðsynlega tekið fram I spánni.
Þannig verður fólk að beita ímynd
unaraflinu að nokkru leyti til að
notfæra sér til fullnustu þær upp-
lýsingar sem gefnar eru um „skin
eða skúri“ í stjörnuspánni fyrir
hvern dag.
Hin daglega stjörnuspá sem ég
skrifa fyrir dagblaðið Vísir mun
vera eina stjörnuspáin hérlendis,
sem gerð er eftir útreikningum,
sem sérstaklega eru miðaðir við
legu og hnattstöðu íslands.
Að endingu vildi ég svo segja
þetta: „Það er von mín að sem
allra flestir komist upp á Iag með
að notfæra sér stjörnuspárnar, þvi
þar verður að finna margar upp-
lýsingar, sem geta komið sér vel“.
Skúli Skúlason.
herzlan er nú á vinnustað hjá þér
og þar gæti margt óvænt hent,
sem ekki er svo auðvelt að, sjá
fyrir eða ráða við. Hins vegar
getur góð dómgreind haldið þessu
á réttum kili.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.: Þú
ættir ekki að vera á ferli í kvöld
ef þú hefur undanfarið verið I
rómantiskum hugleiðingum, því
allt gæti nú lent upp í loft og
vinaslit orðið. ,
Bogamaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Mér þykir sennilegt að þú
verðir að velja milli heimilisins
og félagslífsins nú seinni partinn
í dag. Annars mundi geta orðið
talsvert ánægjulegt kvöld heima
nú.
Steingeitin, 22. des. til 20. jan.:
Þú ættir ekki að leita eftir að-
ferðum til að verða ríkur á skjót-
an hátt í dag, en ættir öllu öðru
fremur að halda þig að viður-
kenndum öruggum aðferðum í
þeim efnum.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr.:
Verá má að fjármálaáætlanir þín-
ar upp á framtíðina raskist eitt-
hvað nú, en hins 'vegar ætturðu
að bíða átekta með að gera eitt-
hvað ákveðið 1 málunum.
Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz:
Persónuleg málefni þín sæta
nokkrum mótbárum sakir hug-
mynda félaga þíns eða maka. Auð
vitað getur, verið að þú hafir
alveg á réttu að standa, en hins
vegar ættirðu ekki að vera of
fljótfær eða óþolinmóður.
i