Tölvumál - 01.02.1995, Blaðsíða 31

Tölvumál - 01.02.1995, Blaðsíða 31
Febrúar 1995 Á flakki mínu um daginn fór ég á safn við Þjóðarháskólann í Ástr- alíu. Þar var hægt að skoða 8500 myndir frá ýmsum tíma. EXPO er annað safn á netinu. Þegar komið er inn í safnið blasir við manni (þ.e. þeim sem hafa Mosaic) yfirlitsmynd um sali safnsins. Þeir eru sex, þ.e. bóka- safn Vatíkansins og kúltúr endur- reisnartímabilsins, stjórnkerfi sovétsins, 1492 sýningin, Dauða- hafshandritin, steingervinga- sýningin í Berkeley og rómverska borgin Spalato. Fyrir þá, sem leiðist að ramba um sýningarsali, er boðið m.a. upp á veitingastað með sérréttamatseðli fyrir hvern dag vikunnar. Sýndarveruleikinn er sem stendur kominn lengst í leikjum. Nýlega var haldin hér á landi fundur sölufulltrúa þekktrar áfengistegundar og af því tilefni var settur upp tækjabúnaður fyrir sýndarveruleikaleik. Þetta var kannski ekki svo merkilegur tækja- búnaður eða leikur, en gefur okkur forsmekk að því sem koma skal. Ég fékk að prófa þetta og fannst nú ekki mikið til leiksins koma, en tæknin var æði skemmtileg. Gísli Helgason kynnti á ráð- stefnunni talgervil, sem hann sagði byltingu í samskiptum og skýrslu- gerð. Talgervillinn hjálpar meðal annars blindum og sjónskertum til að notfæra sér gögn á tölvutæku formi. Við erum flest blind eða að minnsta kosti skilningssljó á margan máta. Fáir “eðlilegir” ein- staklingar hafa lagt á sig það “ómak” að læra táknmál þeirra sem eru ekki eins lánsamir og þeir. (Og ég tek það fram að svo er líka um mig). Táknmál heyrnarlausra eða ritmál blindra er í fáu frá- brugðið erlendum tungumálum. Því er það oft að við erum bæði blind og heyrnarlaus þegar við ferðumst til fjarlægra landa. Fyrr í haust sá ég hugbúnað sem “þýddi” talað mál yfir á ritmál. Þ.e. hann hlustaði á þann sem talaði og skrifaði niður eftir honum. Svona búnaður væri meiriháttar bylting fyrir heyrnarlaus. Með því að horfa aðeins lengra gætum við hugsað okkur að þann möguleika að þýða frá einu tungumáli yfir á annað. Stefán Hrafnkellsson fjallar annarsstaðar í blaðinu um rafræn viðskipti í nýju ljósi. Ekki ómerkari maðuren William Henry Gates III, öðru nafni Bill Gates, setti fram fyrir nokkrum árum sína fram- tíðarsýn. Hann nefndi hana “Infor- mation at Your Fingertips” eða “Upplýsingar við hendina”. Þar talar hann um margntiðlun, texta- varp með öflugum gagnabanka, hlutbundin stýrikerfi og veskis- tölvur (ekki reiknivélar heldur tölvur). Markmið hans er ekki að umbreyta Microsoft eða tölvu- iðnaðinum, heldur hvernig fólk nær í upplýsingar. Fyrir tveimur árum leit út fyrir að hluti af framtíðarsýn hans yrði varla að veruleika fyrr en eftir ein til tvo áratugi. Það gæti verið fullmikil svartsýni. Gates segir hugmyndina vera fulla af metnaði. “Þær upplýsingar, sem maður þarf, ættu að vera við hendina.” Ekki á að skipta máli hvort gögnin eru geymd í gagna- safni, töflureiknisskjali, ritvinnslu- skjali eða í minnisskjali. Notandi á að geta kallað upplýsingarnar fram með orðunum einum. Þær eru síðan birtar sem sjónvarpsmynd með tali og tónum, sem gerir tölv- una meira að samskiptatæki en talnavinnslutæki. Bill Gates vill að sjálfsögðu byggja allt í kringum hugbúnað frá Microsoft. Windows verður notað á einu eða öðru formi í alls konar tækjum af öllum stærðum og gerð- um: tölvur, sem skilja ritað mál og talað, lófatölvur, fistölvur, borð- tölvur, sjónvarpstölvur og vegg- tölvur. Hvort þetta rætist getur fram- tíðin ein skorið úr, en ljóst er að gjörbreytt framsetning upplýsinga er kjarni þeirrar miklu breytinga, sem verður. Ég hef reynt að rýna í kristal- kúlu tölvutækninnar. Ég hef passað mig á að endurtaka sem minnst af því sem lesa hefur mátt eftir mig á síðum Morgunblaðsins undanfarna mánuði. Dæmin sem ég tók voru valin með myndbandið góða í huga, en ég hefði gjarnan vilja hafa brot úr SeaQuest þáttum Stöðvar 2, Grímunni, Júragarðinum, Ter- minator II, Death Becomes Her eða hvað þær nú heita allar þessar bíómyndir, þar sem margmiðlunar- búnaður hefur verið notaður til að breyta eða afskræma hluti. Ég hef lengi haft það fyrir sið þegar ég horfi á myndir, sem gerast eiga í framtíðinni, að skoða tækn- ina sem þar er notuð. Sama gildir um vísindaskáldsögur. Æði oft skipa upplýsingar og úrvinnsla þeirra veglegan sess. Að nálgast þær upplýsingar, sem mann vantar, á því formi sem kemur manni að notum er lykillinn að velgegni. Eða eins og ég hafði áðan eftir Bill Gates: “Þær upplýsingar, sem maður þarf, ættu að vera við hendina.” Erum við loksins að komast inn í upplýsingaöldina langþráðu. Um aldaraðir var mannkyninu haldið í járngreipum fávísinnar. Undan- gengnar kynslóðir brutust undan þessu oki og viti menn það rofaði til. Okkar kynslóð hefur tækifæri til að njóta ljóssins með réttri nýtingu tækninnar. Marinó G. Njálsson er tölvunarfræðingur. Tölvumál - 31

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.