Vísir - 24.09.1962, Page 7
Mánudagur 24. september 1962. -
VISIR
Minningarorö:
Arngrímur Fr. Bjarnason
. ÍSAFIRÐI
skeið kennt sjúkdóms þess, sem að
lokum dró hann til bana. Hin
margherta víkingslund hans gaf sig
þó aldrei til hinztu stundar.
Það er mikil eftirsjá í mönnum
eins og Arngrími Fr. Bjarnasyni, en
huggun er það harmi gegn, að þar
fer mikill mannkostamaður, sem
skal virtur vel fyrir sitt ágæta lffs-
starf.
Arngrímur lézt í Sjúkrahúsi ísa-
fjarðar 17. sept. s. 1. Útför hans
er gerð frá ísafjarðarkirkju í dag.
Sverrir Hermannsson.
Hver af öðrum hverfa þeir af
sjónarsviðinu framámenn ísfirðinga
hina sfðari áratugi. Nú síðast hvarf
fyrir ætternisstapa hinn gagnmerki
og ótrauði lífsbaráttumaður, Arn-
grímur Fr. Bjarnason. Með honum
er genginn einn gáfaðasti og um
margt einn sérkennilegasti persónu-
leiki á Vestfjörðum.
Fyrir þá, sem kynna sér ævi og
starf Arngríms, er það mikill fróð-
leikur og um leið mikill lærdómur.
Þar geta menn séð hvernig gáfuð-
um manni tekst með áræði og
dugnaði að brjótast úr fátækt til
bjargálna og mikils félagslegs
frama, því að heita má, að Arn-
grímur hafi verið allt f öllu á ísa-
firðu um árabil, svo sem stuttlega
mun verða rakið.
Amgrímur Friðrik, eins og hann
hét fullu nafni, fæddist 2. október
1886 að Hafrafelli í Skutulsfirði, og
var því tæpra 76 ára að aldri, er
hann lézt. Foreldrar hans voru
Mikkelína Friðriksdóttir og Bjarni
Helgason, sjómaður. Að Arngrími
stóðu traustar bænda- og sjómanns
ættir við Djúp. Ungur að árum hóf
Arngrímur nám í prehtiðn á ísa-
firði, enda mun hugur hans snemma
hafa hneigzt til hins skrifaða og
prentaða orðs. Iðn sína stundaði
hann síðan um árabil, jafnframt því
sem hann stundaði margháttuð önn-
ur störf og komst snemma til mann
virðinga. í bæjarstjórn ísafjarðar
var hann fyrst kosinn 1912 og sat
til 1917.Þá flyzt hanntilBolungarv.
Oddviti Hólshrepps vai) hann 1924
—’28 og póstafgreiðslumaður í
Bolungarvík. Frá Bolungarvík
fiuttist Arngrímur til Dýrafjarðar,
og bjó á árunum 1930 — 1935 á
Mýrum, en flyzt þaðan til ísa-
fjarðar, þar sem hann átti heima
Minningarorð:
Friðrik V. Ólafsson
Skólastjóri
Nú er hann látinn, hinn mæti
maður, 67 ára að aldri.
Friðrik Valdimar hét hann fullu
nafni. Hann fæddist á Vopnafirði
19. febrúar 1895. Faðir hans var
Ólafur Friðrik Davíðsson verzlun-
arstjóri þar. En móðir hans, og
kona Ólafs var Stefanía Þorvarðs-
dóttir Gíslasonar bónda á Fagur-
hólsmýri.
Friðrik fluttist 9 ára gamall með
foreldrum sínum til Reykjavíltur.
Þá varð faðir hans bókari Lands-
bankans. Barnaskólaár Friðriks
Friðrik aftur til Kaupmannahafnar
til þess að nema sjómælingar og
sjókortagerð. Hann lauk prófi í
Sökort — Arkivet í Kbh. árið 1931
og varð nú skipherra á varðskip- fjölmörgum þingum félags-
inu Ægi. En jafnframt forstjóri ,ns; Formaður iðnráðs Isafjarðar i
1M7 moi
voru því í Reykjavik. En árið 1908
varð Ól. Davíðsson verzlunarstjóri
Tangsverzlunar á Isafirði. Þangað
fluttist Friðrik því 13 ára gamall.
Þar Iifði hann unglingsár sín.
Hann fór í Stýrimannaskólann i
Reykjavík, þegar liann hafði aldur
til og siglingaréttindi, og lauk þar
hinu meira prófi árið 1914. Þá varð
hann stýrimaður á fyrsta varðskipi
landsins, Þór í Vestmannaeyjum.
Síðan fór hann í foringjaskóla í
Kaupmannahöfn og lauk þar prófi
árið 1925. Og sama ár varð hann
skipherra á varðskipinu Þór. Eftir
fimm ára skipherrastarf á Þór fór
sjómælinga ríkisins. Árið 1937
var Friðrik skipaður skólastjóri
Sjómannaskólans í Reykjavík, og
gegndi því starfi til dauðadags.
Hér hafa aðeins verið talin
helztu atriði æviferils og starfsfer-
ils Friðriks Ólafssonar. En skiljan-
legt er, að á slíkan mann hlóðust
mörg störf, þó ekki séu talin hér.
Hann var forseti Slysavarnafélags
íslands, bæjarfulltrúi Reykjavíkur
um skeið og gæzlustjóri Sam-
ábyrgðar Isl. á fiskiskipum frá
1940 til dauðadags. Sýnir þetta,
þótt fátt sé talið, að hann átti veg-
legan og athafnaríkan æviferil að
j baki, og að honum hefir verið trú-
að fyrir miklu. Um hitt er þó mest
| vert, að hvert hans spor og hvert
i hans handtak varð ávinningur
i landi hans og þjóðfélagi.
Þótt ævi Friðriks yrði skemmri,
i en líklegt mátti teljast, var hann
])ó hamingjusamur maður.
Hann hlaut í vöggugjöf Iíkam-
legt atgjörvi, gáfur og ættborið
skapgöfgi. Hann átti fágætlega ást-
úðugt æskuheimili hjá foreldrum
og systkinum. Og hans eigið heim-
ili varð fullkomið framhald af því.
Og gæfan fylgdi honum einnig í
öllum hans störfum.
Ekki var Friðrik auðugur maður,
kunni þó vel með fé að fara og
hafði ekki fjárhagsáhyggjur hin
síðari ár. En hann tók aldrei þátt
í auðsöfnunarfyrirtækjum. Vár
hvort tveggja, að hann hafðj ekki
tóm til þess frá skyldustörfum og
að þ?ð var ekki hans 'eðli. Hann
vissi, að auður er valtastur vina.
En orðstír deyr aldrei.
Kona Friðriks Ólafssonar er
Lára Sigurðardóttir Pálssonar hér-
aðslæknis á Sauðárkróki. Börn
þeirra eru þrjú. ÖII upp komin:
Sigurður, ókvæntur, Þórunn, gift
Indriða Þorsteinssyni rithöfundi
og Þóra, gift Jóni Sigurbjörnssyni
leikara.
E...íamein Friðriks Ólafssonar
var hjartabilun.
Sigurður Kristjánsson.
til dauðadags, og stundaði lengst
af verzlun og útgerð.
Arngrímur sat í bæjarstjórn Isa-
fjarðar á nýjan leik 1934 — 1942.
Ritstjóri blaðsins „Vesturland” á
ísafirði var Arngrímur 1933—1942.
Auk þess, sem nú hefur verið talið,
starfaði Arngrímur um árabil í fjöl-
mörgum félögum, ráðum og nefnd-
um. Hann var forseti Fjórðungs-
deildar Fiskifélags Vestfjarða frá
1918 — 1958 og varaforseti Fiski-
félags íslands 1922 — 1930 og átti
rg ár. Formaður Sjálfstæðisfé-
lags Isafjarðar og aðaldriffjöðrin í
starfi Sjálfstæðisflokksins á I’safirði
um áratuga skeið, enda trúði hann
staðfastlega á þá þjóðmálastefnu.
Arngrímur var mikill áhugamað-
ur um slysavarnamál. Enn fremur
búnaðarmál og starfaði í Búnaðar-
sambandi Vestfjarða og Slysavarna
félagi íslands í fjölda ára.
Arngrímur var frumkvöðull að
stofnun ýmissa fyrirtækja á ísa-
firði, og mátti segja að hann hefði
alla tíð opin augu fyrir öllu því,
sem til framfara horfði.
Arngrímur var áhugamaður um'
bindindismál og góður liðsmaðúr í
sveit ísfirzkra bindindismanna.
Arngrímur ritaði fjölda greina
um hin margvíslegustu efni, enda
má segja að áhugamál hans hafi
verið óteljandi. Auk þess gaf hann
út nokkur rit, og eru þessi hin
helztu: Prentsmiðjusaga Vestfjarða
— Gullkistan — Vestfirzkar þjóð-
sögúr og sagnir, sem er mikill bálk-
ur. Hann var ágætlega ritfær.
Mælskur vel og heitfengur ákafa-
maður í því sem öðru. Arngrímur
var fréttnæmur með afbrigðum og
fylgdist betur með en aðrir menn,
sem ég hef þekkt til, öllu því, sem
fram fór í kringum hann, enda lét
hann sér ekkert mannlegt óvið--
komandi. Hann var lengi frétta-
ritari Vísis vestra og gegndi því
starfi með prýði.
Arngrímur Fr. var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Guðríður
Jónsdóttir frá Stóra-Laugardal á
Skógarströnd. Hún lézt árið 1921.
Þau áttu saman átta börn, og eru
fimm þeirra á lífi.
Árið 1923 giftist hann eftirlifandi
konu sinni, Ástu Eggertsdóttur
Fjeldsted, frá Skálavík, Eignuðust
þau 11 börn, sem öll eru á lífi.
Öllum börnum sínum kom Arn-
grímur vél til manns. Sá, sem 'petta
ritar, þekkti ekki til fyrri konu
Arngríms, en síðari kona hans er
hin mesta mannkostakona.
Arngrímur hafði um nokkurt
DANSSKÓLI
Eddu Scheving
tekur til starfa í byrjun
október.
Kennt verður: Ballett
(2 tímar í viku),
barnadansar og sam-
kvæmisdansar.
Byrjendur, framhalds-
i flokkar og hjónaflokk-
ar. Kennsla fer fram í
Félagsheimili Kópavogs
Innritun í síma 23500 daglega frá kl. 1—5 e. h.
Ath.: Kenni eingöngu í Kópavogi í vetur.
Nýr Simca Ariane
til sölu Höfum til ráðstöfunar nú þegar nýjan Simca Ariane
6 manna. Upplýsingar í Simca-umboðinu Brautarholti 22
Sími 17379.
BALLETSKÓLINN
Laugaveg 31
(áður Tjarnargötu 4). -
Kennsla hefst í byrjun
október. — Barnaflokkar
fyrir og eftir hádegi. Eft-
irmiðdags- og kvöldstím-
ar fyrir konur.
Upplýsingar og innritun
daglega kl. 3—6 í síma
24934.
Dansskóli EHý Þorláksson tekur til starfa í
október í Keflavík og Hafnarfirði. — Kennslu-
greinar: Ballet- og akrobatik fyrir börn og
unglinga. Plastik fyrir konur.
Upplýsingar í síma 18952 daglega kl. 12-3.
Saumastúlkur
Saumastúlkur, helst vanar karlmannafata-
saum óskast strax. Upplýsingar á verkstæð-
inu Vesturgötu 17.
Andersen & Lauth h.f.
Sendisveinn
Röskur piltur óskast til sendiferða sem fyrst
Vélsmiðjan Héðinn h.f.