Vísir - 24.09.1962, Qupperneq 13
ivxánudagur 24. september 1962.
13
Búrfeii —
Framhald af bls. 9.
er Guðmundur Sigurðsson. —
Framkvæmdar hafa verið leka-
prófanir, þ. e. a. s. athuguð
vatnsheldni jarðvegsins.
Brátt fer að líða að því, að
borunum ljúki í sumar, og er
sett lok yfir holurnar og þær
vel merktar. Rannsóknir hafa
farið fram á byggingarefni í ná-
grenni við virkjunarstaðinn og
sagði Páll að útlit sé fyrir að
vænta megi góðs árangurs af
þeim.1
í sumar hefur verið unnið að
því að kortleggja stór svæði í
grennd við virkjunina.
Ofangreint sýnir, hversu rann-
sóknirnar eru víðtækar. Veltur
á miklu, að sem mest sé varidað
til þeirra, enda þarf að vera
hægt að byggja útboð á þeim.
800 m. löng jarðgöng.
Einn stærsti liðurinn í þess-
um miklu athugunum er enn ó-
talinn,’ en það eru hin. gríðar-
miklu jarðgöng, sem unnið er
við að bora í gegnum Sám-
staðamúla. Göngin eiga að ná
inn að hinu fyrirhugaða stöðv-
arhúsi, og er ætlunin að nota
þau sem aðkeyrslugöng fyrir
stöðvarhúsið. Göngin eru 1,80 á
breidd og um 2 m. á háeð, en
verða breikkuð og hækkuð, ef
þau verða notuð sem aðkeyrslu-
göng fyrir stöðvarhúsið. Þessar
miklu framkvæmdir hefur Al-
menna byggingarfélagið með
höndum, og verkstjóri með
verkinu er Guðmundur Her-
mannsson.
Okkur finnst varla vera hægt
að kynnast þessum rannsóknum
án þesscað sjá sjálf göngin, og
þeir ^Guðmundtir og Páll veita
ökkur góðfúslega leyfi til að
fara inn — og með hjálm á
höfði höldum við inn ásamt
þeim. Sæmilega bjart er inni og
loftið ágætt. Stuttu eftir að við
erum komnir inn fyrir, heyrum
við ámokstursskóflu skella á
flutningavagni, og innan
skamms mætum við lítilli eim-
reið með tvo vagna í eftirdragi.
Inn eftir göngunum öllum liggja
teinar, sem eimreiðin og vagn-
arnir ganga eftir. Eftir gólfinu
liggja tvær leiðslur og með
veggjunum aðrar tvær. Flytja
þær ferskt loft, vatn, þrýstiloft
og rafmagn. Botninn er allur
þakinn vatnsleðju. Innst inni
hamast tveir menri við að moka
með loftknúinni skóflu í vagn.
Eftir að hafa smellt af nokkrum
myndum, er haldið út aftur, og
Guðmundur fræðir okkur á því
að göngin séu orðin 215 m. löng.
Það er eins fyrir utan og innan,
allt iðar af starfi og striti, það
dynur í loftpressunni, hamars-
höggin falla á járnbrautarspor,
sem verið er að byggja. Alls
vinna um fimmtán menn við
göngin, og það á ekki að hætta,
þó að vetri, heldur vinna af full-
um krafti þar til verki lýkur.
Fjölmennar
kúluvarpskeppnir.'
Næst spyrjumst við fyrir um,
hvað starfsfólkið geri í þeim fáu
hvíldarstundum, sem það hafi.
Fyrst er okkur bent á vegginn í
matsalnum. Þar sjáum við letr-
að stórum stöfum: Úrslit í kúlu-
varpi. Fram hafa farið ein fimm
íþróttamót, og næstum eingöngu
keppt 1 kúluvarpi. Þátttaka hef-
' ur verið mjög góð, og á einu
blaðinu, sem hengt er upp, sjá-
um við skráðan árangur helm-
ings allra skálabúa. Metið á einn
af borurunum, Ólafur Ólafsson,
13,25. Einu sinni hefur farið
fram langstökkskeppni, og þar
^igraði Sveinn Ingólfsson, stökk
4,47 m. Stundum er gripið í
'ÍSIR
spil, annars fer mesti hluti frí-
tímans I að hvíla'sig.
Áður en við kveðjum þetta
dugmikla fólk og þökkum fyrir
góðar veitingar, spyrjum við
hinn sænska verkfræðing um
dvöl hans hér.
— Mér líkar hér vel og ég er
hrifinn af fegurð landsins.
— Telurðu mikla möguleika
á því að þetta mikla mannvirki
komist hér upp?
— Flestar þjóðir þurfa að
kosta mikiu meiru til hvað beizl
un raforkunnar snertir. Náttúr-
an hjálpar ykkur svo mikið og
möguleikarnir eru margir. Það
er ekki hægt að segja annað en
allt hafi gengið hér mjög vel, og
ég get sagt, að náðst hafi góður
árangur af rannsóknum okkar
hérna. Eins og málin standa í
dag, er allt, sem bendir til þess,
að hér geti risið ykkar stærsta
raforkuver.
Helský —
Framhald af bls. 4.
tímaheimildir til um það, þótt
þess sé getið I annálum. En hvað
sem þvl líður, þarf ég austur að
Heklu einhvern tíma fyrir haust-
ið til að ganga úr skugga um
það, hvort þetta gos hafi nokk-
urn tíma átt sér stað eða ekki.
Fyrr en að því loknu get ég
ekki gengið frá handriti mínu til
prentunar.
— Eru nokkur fleiri öskulög,
sem þú ætlar að kanna I ár?
— Já, öskulög á Brúaröræf-
um. Gott fólk hefur lofað að
taka mig þangað í bíl á næst-
unni, og fyrir það er ég mjög
þakklátur. Alltaf gott að eiga
góða að.
Helský yfir Þörsmörk.
— Er viðfangsefnum þínum.
I suroar þar með lokið?
— Það má heita svo. Samt
má geta þess, að ég skrapp ný-
lega austur I Þórsmörk til að
sækja sýnishom af ljósu jarð-
lagi, sem virðist liggja undir
Þórsmörk allri, en kemur hvað
beriegast I ljós I Merkurranan-
um, • Álfakirkjunni og víðar.
Ég fór austur I Þórsmörk I
fyrrasumar til að slæpast og
hvíla mig. Ætlaði mér að gera
ekki neitt, en þá rakst ég á
þetta undarlega berglag, og eftir
það fór mestur tíminn I að elt-
ast við það.
— Hvað er merkilegt við
þetta berglag?
— Það er nú einmitt ráðgát-
an, sem mig langar til að leysa.
Ég býst við að dr. Guðmundur
Sigvaldason taki að sér að rann-
saka þetta með mér og komast
til botns^í því, hvernig á þessu
berglagi stendur. í augnablikinu
tel ég líklegast að það sé mynd-
að úr svokölluðu helskýi eða
logaskýi I sams konar eldgosi
og eyddi borginni St. Pierre á
Martinque árið 1902 og drap þá
alla íbúa borgarinnar, 30 þúsund
að tölu, á fáeinum sekúndum.
Smágos af þessú tagi, en
miklu yngra, hefur átt sér stað
I Landmannalaugum. Það sjást
minjar af því milli laga I Náms-
hrauni svokölluðu, og það er
ekki ólíklegt að það hafi átt sér
stað um það leyti sem ísland
byggðist, enda þótt erfitt sé að
ákveða aidur þess með nokkurri
nákvæmni. En gosið I Þórsmörk
er miklu eldra og ekki síðar en
á síðasta hlýviðrisskeiði ísaldar.
Ekki veit ég hvaða dýra- og
jurtalíf hefur verið á þessum
slóðum þegar þetta gos hófst,
en víst er, að gosið hefur ekki
skilið neitt líf eftir á þvl svæði,
sem helskýið æddi yfir. Þá hef-
ur ekki verið fagurt I Þórsmörk-
‘”%rnojf iJms
Nýkomnir amerískir
vatteraðir
úrval af
hollenzkum greiðslu-
sloppum, sérstaklega
vönduðum.
Marieinn Einapsson & Co.
Fata- & gardínudeild Laugavegi 31 - Sími 12816
I
fjí> V£T?,J£éérf
&o7r éF TéT
KtfPF/JÍ / tC0A////J//F
I-
Prentnemi
Unglingur getur komist að sem nemi í prent-
'iðn. Nafn og heimilisfang sendist Vísi merkt:
„Prentnemi 123‘.
! v ' -
Verkfæri!
Rennibekkur, rafsuðuvél og punktsuðuvél
óskast til kaups. — Uppl. í síma 34691 e. h.
AUGLÝSING
um skoðun reiðhjóla með hjálparvél í lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur.
Aðalskoðun reiðhjóla með hjálparvél fer fram í
bifreiðaeftirliti ríkisins, Borgartúni 7, sem hér segir:
Mánudaginn 24. sept. R-1 til R-100
Þriðjudaginn 25. — R-101 — R-200
Miðvikudaginn 26. — R-201 — R-300
Fimmtudaginn 27. — R-301 — R-400
Föstudaginn 28. — R-401 — R-500
Mánudaginn 1. okt. R-501 — R-600
Mánudaginn 1. okt. R-501 — R-600
Þriðjudaginn 2. — R-601 — R-700
Miðvikudaginn 3. — R-701 — R-800
Fimmtudaginn 4. — R-801 — R-920
Skoðun reiðhjóla með hjálparvél, sem eru í notkun
hér í bænum, en skrásett annars staðar, fer fram 3. og
4. október.
Sýna ber skilríki fyrir því, að lögboðin vátrygging fyrir
hvert reiðhjól sé í gildi. Athygli skal vakin á því, að
vátryggingariðgjald ökumanna ber að greiða við skoðun.
Vanræki einhver að koma reiðhjóli sínu til skoðunar
á réttum degi, verður hann látinn sæta sektum sam-
kvæmt umferðarlögum og reiðhjólið tekið úr umferð,
hvar sem til þess næst.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 21. september 1962.
Vikuyfirlit fyrir kaup-
endur byggingarefnis
FRAMLEIÐUM: Másteina í alla útveggi. Málsteinninn
úr Seyðishólarauðamölinni er vinsælasti, bezti og mest
seldi hleðslusteinninn á markaðnum. Framleiddur eftir
verkfræðilegum fyrirsögnum og útreikningum. Hefur
mjög gott burðar- og brotþol, er einangrandi og jafn-
framt ódýrasti hleðslusteinninn miðað við efnismagn í
hverjum stein. Mátsteinninn hefur 3 lítil holrúm er lok-
ast að neðan þannig að líming er ávallt lögð á sléttan
flöt og jafnframt myndar hver steinn lokaða sellu
í veggnum er tryggir betri einangrun, minna rakaflökt
og jafnframt gefur veggnum meiri styrkleika. Athugið
að mátsteinn í ca. 100 m2 íbúðarhús kostar aðeins ca.
kr. 15.000,00 og i venjulegan bílskúr ca. kr. 4.000,00
Greiðsluskilmálar.
Milliveggjaplötur 5 og 7 og 10 cm þykkar úr Seyðis-
hólarauðamöl eru ódýrustu og jafnframt beztu plötur
sinnar tegundar á markaðnum. Forðist eftirlíkingar.
Milliveggja- og einangrunai-plötur úr Snæfellsvikri eru
dýrari en jafnframt bezta og mest notaða framleiðsla
sinnar tegundar
Loftsteinar og milliveggjaholsteinar fyrirliggjandi. Gang-
stéttarsteinar úr steypu og rauðamöl ca. 20x40x9 cm
á 9,50.
FYRIRLIGGJANDI: Rauðamöl úr Seyðishólum möluð
og ómöluð, vikurmöl, vikursandur, sement, sements-
litir, harðviður, húsgagnaplötur, teakspónn, álmspónn,
askspónn, mahoganyspónn, sænskur þakpappi í stað
járns (EVERS), danskar EXPANKO korngólfflfsar,
amerískar CELOTEX hljóðeinangrunarplötur og lím og
fl. byggingavörur.
JÓN LOFTSSON H.F.
Hringbraut 121 — Sími 10600.