Vísir - 05.08.1965, Síða 6
6
VI S IR . Fimmtudagur 5. ágúst 1965.
Samið —
Framhajd -t bls 1.
vikur, að síldarverksmiðjur í
Eyjum hafa ekki getað tekið
á móti síld og sigldi flotinn um
tíma með aflann til Reykjavík-
ur og Faxaflóahafna.
Síðasti samningafundur um
málið hófst á miðvikudagsmorg
un kl .10,30 og var nú haldinn
í Vestmannaeyjum. Höfðu sátta
semjari Torfi Hjartarson og full
trúar Vinnuveitendasambands
og Alþýðusambands Islands
þeir Barði Friðriksson og
Snorri Jónsson þá komið fljúg-
andi til Eyja. Fundinn sátu auk
þeirra þessir menn. Frá Verka-
lýðsfélagi Vestmannaeyja: Engil
bert Jónsson, Hermann Jónsson
og Ásgeir Benediktsson. Frá
Verkakvennafélaginu Snót Guð
munda Gunnarsdóttir og Anna
Erlendsdóttir. Þá voru þar frá
Vinnuveitendafélagi Vestmanna
eyja þeir Ágúst Matthfasson,
Óskar Gíslason, Einar Sigurjóns
son, Sighvatur Bjarnason og
Þorsteinn Sigurðsson.
Fundurinn stóð allan daginn
og fram á nótt þegar samkomu
lag náðist á þriðja tímanum.
Samið var um sömu kjör og
fólust í Dagsbrúnarsamningun-
um, en lítilsháttar breytingar
aðrar sem stafa af séraðstæðum
í Eyjum m.a. verður leyft að
vinna eftir hádegi á laugardög-
um við að hreinsa tæki i frysti
húsum o.s.frv.
Höfnin —
Frh af bls. 16:
hefur komið að loka einhverjum
af þessum götum alveg, en
endanleg ákvörðun um það hef
ur ekki verið tekin.
Ferðafélag Islands
Ferðafélag Islands ráðgerir eft-
irtaldar ferðir um næstu helgi:
1. Hvítárnes-Karlsdráttur. Farið kl.
20á föstudagskvöld, gist í Hvít
árnesi og farið inn I Karlsdrátt
á laugardag.
Á laugardag kl. 14 hefjast 4 ferð
ir:
2 Hringferð um Borgarfjörð. Ekið
um Þingvöll, Kaldadal, Húsafells
skóg og gist þar í tjöldum. Á i
sunnudag er farið um Hvítársíð!
una í Borgarnes um Dragháls ogj
fyrir Hvalfjörð til Reykjavíkur. ;
3. Þórsmörk.
4. Landmannalaugar
5. Hveravellir og Kerlingarfjöll.
6. Á sunnudag er gönguferð á
Botnssúlur. Farið frá Austurvelli
kl. 9.30.
Upplýsingar og farmiðasala er
á skrifstofu félagsins, Öldugötu 3,
Símar 11789 og 19533.
Ferðafélag Islands ráðgerir eftir-
taldar sumarleyfisferðir í ágúst:
10. ág. er 6 daga ferð um Laka-
gfga og Landmannaleið. Ekið
austur að Kirkjubæjarklaustri,
um Síðuheiðar að eldstöðvun-
um. Síðan farin Landmannaleið
um Eldgjá Jökuldali, Kýlinga og
I Landmannalaugar.
18. ág. er 4 daga ferð um Vatns-
nes og Skaga.
18. ág. er 4 daga ferð til Veiði-
vatna.
Allar nánari uppl. eru veittar á
skrifstofu félagsins Öldugötu 3.
Símar 11798 og 19533.
ÍWrrhm p
>r«nlsml6Ja & gúmmlstlmplagerö
Elnhoitl X - Slral 20940
Eins og kunnugt er af frétt-
um hefur all-mikið verið um
slys í Reykjavíkurhöfn á undan
förnum árum og óþarfa um-
ferð um hafnarsvæðið hefur
færzt í aukanna. Með lokun
hafnarinnar má koma í veg fyr
ir þetta að miklu leyti. Ráðgert
er að hafa opið hlið í Pósthús
stræti um nætur og verða þar
lögregluþjónar og tollgæzlu-
menn til eftirlits.
„Við höfum séð uppdrátt af
þessari fyrirhuguðu lokun og
fögnum þessari ákvörðun Hafn
arstjórnarinnar", sagði Unn-
steinn Beck, tollgæzlustjóri í
stuttu viðtali við Vísi í morgun.
Þessi lokun hefur þá þýðingu
fjTir okkur, sagði Unnsteinn, að
allt eftirlit með mannaferðum
úr skipum, eftir að höfnin á að
vera lokuð er mun auðveldari.
Gera má fastlega ráð fyrir að
tollvakt verði I því hliði eða
hliðum sem opin verða á næt-
urnar. Einnig er það mikil
bót að fá þessi hlið því að
reikna má með að öll óþarfa
umferð að degi til minnki mik
ið, svo þó að hliðin séu opin,
sagði Unnsteinn.
Öryggi —
Frh af bls. 16:
aður sá, sem Ingólfur vann að því
að setja upp hafi nýlega bjargað
Douglas DC-3 flugvél frá varnar
liðinu, þar sem hún var að villast.
Flugturninn í Reykjavík náði sam-
bandi við vél'ina og leiðbeindi
henni til lendingar.
Ingólfur er starfsmaður íslenzku
flugmálastjórnarinnar og hefur
haft bækistöð sína í Nauthólsvík I
gamla flugvallarhótelinu (Hotel
Ritz) þar sem hann hefur unnið
að fjarskiptastöðvum og radio-
stefnuvitum.
Snarnæði —
Framhald af bls. 16.
aðeins búinn að vera í sjónum
stutta stund.
Litli drengurinn var með litlum i
dreng, sem gætti hans, og hafði
hann ekið kerrunni niður á bryggju |
Þar gerðist það, að litli drengur-
inn skreið upp úr kerrupokanum
og steypti sér út úr kerrunni og
beint 1 sjóinn.
Þióðhátíðin — |
Framh f?f bls 16 '
Svæðið er býsna skrautlegt, i
þar er stórt og mikið vfkinga-1
sfcip sem verður flóðlýst, le'ik- j
svið fyrir botni dalsins, þar i
sem áhorfendur raða sér í hring í
uppi í hlíðinn'i, rétt eins og í;
grískum harmleik. í dalnum erj
búið að merkja göturnar, þar;
sem tjöldin standa — þær heita i
ýmsum nöfnum, svo sem Týs-1
gata, Þórsgata og Veltusund.
Ástæðan til síðustu nafngiftar-
innar er sú, að Veltusund
stendur í halla og tjöldin eru
aðeins öðrum megin við götuna. ;
Og þegar góðglaðir menn koma j
heim eru þeir stundum það
valtir á fótum að þe'ir velta inn
í tjöldin.
I gærkvöldi voru trésmiðir
að leggja síðustu hönd á
hljómsveitarpallinn þar sem
Svavar Gests og félagar hafa í
hyggju að halda uppi fjöri og
nokkru utar var búið að reisa
Rondo-tríóinu svipaðan pall fyr-
ir gömlu dansana. Þarna mátti
sjá herbúðir skáta sem starf-
rækja hjálparsveit. læknaþjón-
ustu og munavörzlu, sem er nýj j
ung.
Fréttamaður Vís'is er var á |
ferð í Vestmannaeyjum í gærí
hafði tal af Hermanni Einars-1
syni, formanni undirbúnings-
nefndar knattspymufélagsins
Týs, er sér um hátíðina að þessu
s'inni. ' j
— Það hafa aldrei skapazt
nein vandræði vegna drykkju
héma. sagði Hermann, — það
sést varla einkennisklæddur lög
regluþjónn allan þann tírna sem
hátíðin stendur yfir. Þó að á-
fengisneyzla sé ekk'i bönnuð
vita þeir sem sækja hátíðina ár ,
eftir ár hversu langt þeir mega I
ganga, svo þeir verði ekki j
sjálfum sér til skammar og öðr
um til ama.
— Hvert er viðhorf ykkar til
þeirra utanbæjarmanna sem
sækja hátíðina?
— Þeir eru allir hjartanlega
velkomn'ir. Allir sem koma hing
að til að skemmta sér og haga
sér vel eru teknir sem heima-
menn.
Klukkan tvö í dag flykkjast
eyjaskéggjar inn i Herjólfsdal
til að slá upp tjöldum sínum og
í dag hófst fyrir alvöru straum-
ur aðkomumanna. Flugfélagið
heldur uppi loftbrú til Eyja og
ferðir verða svo tíðar að eng-
inn ætti að þurfa að vera í
vandræðum. Enda tekur það lít
ið lengri tlma að fljúga til Eyja
en að fara einn hring með Voga
strætisvagninum. Þegar í gær ’
flugu fimm vélar þangað sneisa
fullar af fólki og í dag verður
allur vélakostur félagsins gjör-
nýttur. Syrtlingur er í ham og
upplagt fyrir þá sem enn hafa
ekki séð hafgosið fyrir sunnan
Vestmannaeyjar að sjá það úr
flugvél.
Jakob —
-<•1310 at b!s t
mánuði seinna á ferðinni en f
fyrra.
Þetta er sem sagt allt í rétta
átt, en spurningin er þó hver j
áhrif skilyrði hafa á, hve lengi
hún verður á þessum slóðum,
en sjór er nú eðlilega hlýr orð
inn á yfirborðinu, en undir er
þessi ískaldi sjór sem oft hefur |
verður minnzt á.
Fyrir austan þennan kalda!
straum, um 240 mílur ANA frá j
Langanesi fékk einn bátur á- j
gætan afla fyrir nokkru, en !
fleiri bátar reyndu ekki þar j
vegna þess að síldin fór að veið j
ast nær eða 130—150 mílur frá j
landi.
Jakob kvað veðurskilyrði hafa
verið góð á miðunum. Nú væri
þar SA gola.
Víðsýnf —
Framh. af bls. 4
fá einhverja góða vatnamenn
og vatnahesta á innstu bæjum
í Fljótshlíð. Ferðin skyldi að
jafnaði aðeins taka einn dag
og má þá geta nærri að við-
staðan var ekki löng, oftast
aðeins áð í Húsadal til að fá sér
bita.
En nú er öldin önnirr. Nú
gefst ferðamönnum yfirleitt
betra næði og tfmi til að skoða
sig um í Þórsmörkinni, enda
þarf til þess svo að vel sé eina
viku og er þó sagt að aldrei
verði Mörkin fullskoðuð.
y^uðveldasta leiðin þangað
inn úr er með Ferðafélag-
inu sem hefur vikulegar ferðir
þangað og miðstöð ferðalag-
anna verður Skagfjörðsskáli
þess. Hann stendur í unaðsleg-
um grasivöxnum dal, sem kall-
ast Langidalur og framhjá hon-
um rennur tær bæjarlækur. Þar
réði húsum til skamms tíma
sem eftirlitsmaður skáldið Jó-
hannes úr Kötlum en síðustu
tvö ár er eftirlitsmaðurinn Jón
Böðvarsson. Hann lýsti fyrir
mér aðbúð á Þórsmörkinni, í |
húsinu gætu hæglega komizt
fyrir um 60—70 manns en það
væri nokkuð þröngt þegar þar
gistu 100. Kvað Jón mjög á-
nægjulegt og rólegt að búa £
Skagfjörðsskála, gestir væru
þar allt sumarið. Verzlunar-
mannahelgin væri eini óeðlilegi
og þreytandi dagur sumarsins,
því að þá væri ösin alltof mik-
il og úti sá heiðafriður sem
þar ríkti. Þó ríkti kyrrð og
friður við skálann hans £ sam-
anburði við lætin I Húsadal.
'C'rá skálanum gefst kostur
margra ferða. Þar ber
fyrst að telja gönguferð inn
með Krossá austur á bóginn £
áttina inn á Goðaland og ræð-
ur hver um sig hve langt hann
vill fara, margir fara aðeins
inn í Stóraenda, aðrir alla leið
inn að Búðarhamri. Þetta svæði
geymir furðulegasta landslag
Þórsmerkurinnar, þegar farið er
inn með hlíðinni opnast stöð-
ugt nýjar og nýjar gjár og
margar þeirra dalkvosir með
skóglendi £. Hamrarnir taka á
sig alls konar furðumyndir og
fyrir ofan þá ber við himin
furðulegt typpótt og toppótt
fjallaland. Hinum megin Kross-
áraura blasa við stórbrotnir
hamrar norðurhllða Eyjafjalla-
jökuls og skuggarnir undir sól
að sjá marka þá koldökku á-
hrifamiklu svipmóti.
önnur leið er að fara yfir í
Húsadal og þaðan í Hamra-
skóga. Þá er stefnt norður á
bóginn, þar virðist yfir fjall-
lendi að fara, en Langidalurinn
teygist í gegnum hliðarnar f
mörgum bugöum og myndar
eins konar grasivaxið fjalla-
skarð í gegnum móbergsvegg-
inn.
Tjriðja leiðln, sem Jón Böðv-
arsson vfsaði okkur að
fara, var að klífa Valahnúk,
en bezta leiðin upp á hann er
einmitt frá Skagfjörðsskála og
sfðan að norðaustanverðu upp
hliðarnar. En að sunnanverðu
er ófært, þar eru ókleifir þrft-
ugir hamrar og fjöldi berg-
standa sem minna á tröll.
Valahnúk kalla menn þama
bæjarfell Þórsmerkur. Hann er
eitthvað mitt á milli 400 og
500 metrar á hæð, en fjallgang-
an mjög auðveld. í hlíðupum
skiptist á margs konar lands-
lag og gróðurbelti. Og þar má
lesa þá hörðu lífsbaráttu
sem gróðurinn verður að heyja
á slfkum stað. Undirhlíðar
hans eru víða gróðurlitlar,
moldarflákar og börð sem em
að blása upp. Hér sjást um-
merki uppbiástursins og nóg er
af sandinum allt í kring af aur-
um og eyrum til að vinna sitt
eyðandi sverfingarstríð. Ofan á
það hefur bætzt að í Heklugos-
inu 1947 gekk vikur og ösku-
strókurinn f stríðum straumi
þvert yfir Þórsmörkina og má
sjá leifar þessa vikurregns
hvarvetna í hliðunum.
|7n eftir þvf sem ofar dregur
verður fjallið grösugra og
áberandi verða mörg haga-
blóm eins og ljónslöpp, mura
Og jafnvel maríustakkur. Við
förum að nálgast toppinn.
Hann er þakinn grasi, hlíðin í
þýfðum þrepum svo að það
myndar eins konar tröppur
sem hafa verið lagðar þarna
fyrir háttvirt ferðafólk og rétt
þegar síðasta bunga toppsins
er að setja niður birtist hin
glæsilega sýn upp yfir hana til
suðurs, hátt yfir sveit og höfði
björtu svalar, sjálfur konungur
fjallanna Eyjafjallajökull.
Að vfsu dregur það óneitan-1
lega úr sigurgleði fjallgöngu-1
fólksins, að þarna uppi á toppn
um skuli verða fyrir því
gaddavírsgirðing. Ekki veit ég
hvað hún á að verja eða úr
hverri átt hin fjórfætta hætta
steðjar. En hitt er víst, að
þessi heimskulega girðing á
fjallstindinum er hrein móðgun
við íslenzka fjallgöngumenn.
Hugsið ykkur til samanburðar
þá svívirðu ef það fyrsta sem
fyrstu fjallgöngumennirnir á
Mount Everest sáu á tindinum
hefði verið fjárgirðing.
lVú, setjum fjöður yfir girð-
inguna og njótum útsýnis-
ins í allar áttir, suður yfir
Eyjafjallajökul, inn til Goða-
lands með sínum hrikalegu
skriðjöklum, norður yfir Mark-
arfljót, Einhyrning, Torfajökul
og Tindafjallajökul og út yfir
Markarfljótsaura með Dímon í
minni dalsins. Og í nærsýn yfir
allar dásemdir Þórsmerkur,
Húsadalurinn liggur fyrlr fót-
um manns og til hinnar handar
hina stórbrotnu kletta í suður-
hlíð Valahnúks.
Fáir munu þeir útsýnisstað-
ir á fslandi sem geta boðið
ferðafólki svo hrífandi mynd.
Þ. Th.
Prinsessa —
Framh at ols 7
að beygja sig. Konungsfjölskyld
an stóð öll með henni og Júlíana
móðir hennar bað um samþykki
þings og ríkisstjórnar fyrlr ráða
hagnum. Þau stóðu öll saman
óhvikul eins og ldettur,
<x nú varð Claus von Ams-
berg að gangast undir
þungt próf.
Fyrir 10 til 15 árum hafði
hapn farið að starfa sem ný-
græðingur í þýzka utanríkisráðu
neytinu. Nú varð hann að láta
kynna sig fyrir fjölda þing-
manna og ráðherra, sem horfðu
á hann eins og þeir væru að
virða og meta einhvem stór-
grip. Og loks varð hann að
vinna sigur í stríðinu sem háð
var um almenningsálitið, en
sum blöðin voru þegar orðin
honum þung £ skauti.
Klaus greip til þess ráðs að
hann fékk að koma fram í
hollenzka sjónvarpinu og þar
las hann upp smá ræðustúf á
hollenzku og hafði þekktur
málakennari æft hann í að tala
málið. Þetta ráð hreif, ræða
hans vakti athygli og vann
hylii margra. þar með hafði
hann hlotið viðurkenningu, svo
að fjötrar fordóma leystust. Þar
með er ekki sagt að allri and-
úð sé rutt úr vegi. Hann má
vissulega gæta sín. En Beatrix
krómprinsessa hefur fengið að
ráða. Hún hefur sjálf fengið
að velja sér eiginmann.
Hestaferð —
•Hmh af bls. 9.
Viil fara aftur
„Ég vildi helzt fara strax aftur",
sagði yngsti maðurinn í hópnum,
Ólafur Haukur aðeins 13 ára gam-
all. Hann hafði áður farið lengst
í ferð um Hreppana inn í Þjórsár-
dal og um Grímsnes'ið. „Þetta var
allt eitt ævintýri", sagði hann. Ólaf
ur Haukur á hest, sem heitir raun
ar Haukur, en hann var ekki með
í ferðinni, er norður í Skagafirði
um þessar mundir.
Næstu daga fer fjölskyldan aft
ur í ferðalag. Nú á að sækja hest
ana. þar sem þeir eru á Gröf í
Hrunamannahreppi. Það verður
ekki eins mikið ferðalag og það
sem nú er nýlega á enda. Það er
samt alltaf gaman af verunni
með hestunum. -j-