Vísir - 05.08.1965, Qupperneq 8
V I S I R . Fimmtudagur 5. ágúst 1965.
VISIR
Otgefandi: Blaðaútgáfan VISIR
Ritstjóri: Gunnar G. Schram
Aðstoðarritstjóri: Axe) Thorsteinson
Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson
Þorsteinn ó. Thorarensen
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Askriftargjald er 80 kr. ð mánuði
1 lausasölu 7 kr. eint. — Simi 11660 (5 llnur)
Prentsmiðia Visis - Edda h.f
Með 25 til reiðar
Uppspuni Tímans
Tíminn hefur lagt sig mjög fram við að útbreiða
þau ósannindi, að forustumenn Sjálfstæðisflokksins,
og þá einkum Bjarni Benediktsson forsætisráðherra
reyni að kenna Gunnari Thoroddsen um greiðslu-
hallann 1964. Þetta er tómur uppspuni hjá Tímanum,
eins og svo margt annað, enda hefur blaðið ekki get-
að tilgreint eitt einasta orð eða setningu eftir forsæt-
isráðherra, né úr málgögnum Sjálfstæðisflokksins,
þessum ásökunum til stuðnings. Hins vegar eru
Tímanum tiltæk ummæli, sem ganga í þveröfuga átt,
ef blaðið vildi heldur hafa það sem sannara reyndist.
Orsakir greiðsluhallans 1964 hafa verið rækilega
ræddar og skýrðar í málgögnum ríkisstjórnarinnar,
og ættu því allir, sem nokkurn áhuga hafa á því
máli, áð vita hvernig á greiðsluhallanum stóð. Megin-
ástæðan var sú, að grípa varð til ráðstafana til þess
að draga úr vexti verðbólgunnar. Um þær ráðstaf-
anir og nauðsyn þeirra var enginn ágreiningur í ríkis-
stjórninni. M.a. varð ekki hjá því komizt ,að auka
stórlega niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum, til þess
að koma í veg fyrir mikla hækkun þeirra haustið
1964. Hefði þessi hækkun komið beint inn í verðlag-
ið, mundi það hafa magnað dýrtíðina gífurlega, og
þess vegna reyndist síðar nauðsynlegt að hækka
söluskattinn, til þess að unnt yrði að halda þessum
niðurgreiðslum áfram. Hér var um nauðsynlegar ráð-
stafanir að ræða, sem öll ríkisstjórnin stóð að, og
þess vegna er heimskulegt hjá Tímanum að halda^
því fram, að verið sé að reyna að koma þar „sök“ á
einn eða annan. Sá einn væri sekur, sem ekki hefði
viljað skilja, að hjá þessum aðgerðum varð ekki kom-j
izt.
Áð til að fá heitan sopa í gjóstrínu. Pétur, Haukur, Þorlákur og Margrét.
★ Það var spengilegur hópur
fólks, sem kom akandi til Reykja-
víkur fyrir nokkrum dögum á
gljáandi Volvo Amazon-bifreið.
Lengi í bígerð
— Hvernig stendur á því að þið
lögðuð i þetta óvenjulega ferða-
Bílinn, sem nú til dags er búinn ! iag?, spyrjum við öm
að öðlast nafnbótina „þarfasti
þjónninn" hjá okkur íslendingum,
hafði í mánuð ekki haft stóru hlut
verki að gegna hjá þessum úti-
tekna hópi fólks, þv£ að baki lágu
rúmir 1200 kílómetrar lands, fjöll
og firnindi, straumharðar jökulelf
ur og trítlandi lækjarsprænur, ör-
æfi og torfarið land í misjöfnu
veðri, allt farið ríðandi á hestum.
ic „Þetta verður okkur ógleyman
legt ferðalag“, sagði einn fimm-
menninganna, Öm O. Johnson, for
stjóri Flugfélags íslands, við blaða
mann Vís'is eftir ferðina, en í ferð
inni tóku þátt auk hans, kona hans j
frú Margrét Johnson, 13 ára son-
ur Ólafur Haukur Þorlákur Otte
sen, formaður Hestamannafélags-
ins Fáks og 16 ára piltur, Pétur
Hafstein.
„Þetta er eiginlega búið að velt-
ast lengi í okkur. Fyrst var ætlunin
að fara til Homafjarðar og til
baka sömu leið. Þá langaði okkur
mjög til að koma norður i Víðidal
og þá fannst okkur ekki fráleitt
að fara þá leið sem v'ið svo völd
um, enda lítið eitt lengri leið, lítið
meiri tím'i sem fór í það. Við sjá
um sannarlega ekki eftir því að
hafa valið hana núna eftir á“.
Leiðin
Samir við sig
Þegar afvopnunarráðstefnan í Genf kom saman aft-
ur. eftir 10 mánaða hlé, sem hún gerði á störfum sín
um, lýsti formaður sovézku sendinefndarinnar því
yfir, að útlit væri fyrir stórstyrjöld í Suð-Austur-Asíu
og að Vesturveldin ein bæru þar alla ábyrgð!
Af þessari yfirlýsingu er auðsætt að Rússar eru
enn við sama heygarðshornið. Er því lítil von um að
árangur náist á ráðstefnunni nú fremur en áður. Ekki
er sjáanlegt að nokkurt samkomulag náist um eftir-
lit mpð kjarnorkutilraunum neðanjarðar. Rússar neita
sem fyrr að leyfa slíkt eftirlit í sínu landí. Þeir virð-
ast þá samir við sig.
í sem styztu máli lá leið ferða
langanna þannig um landið: Lagt j
var upp frá Apavatn'i í Grímsnesi
þar sem hestarnir voru í haglendi.
Níu manna hópur lagði upp, en
tvenn hjón, Sveinn Sveinsson í I
Völundi og kona hans og Bergur j
I.fagnússon framkv.stjóri Fáks og j
kona hans gátu ekki farig alla le'ið j
iaa með hópnum og sneru við, þeg '
ar komið var að Kirkjubæjar-;
klaustri, og fóru sunnan jökla til
baka. Farið var um Ske'iðin, upp
Holtin og Landssveit, um Síðu, j
Fijótshverfi, Skeiðarársand, öræfa j
sveit og Breiðamerkursand til j
Homafjarðar þar sem hópurinn j
g'isti i 3 daga. Þá var haldið um
Lón yfir Geithellnadal í Álftafirði j
í Viðidal í Lóni og þaðan norður j
I Fljótsdal, Grímstaði að Detti-
fossi. að Hólmatungu, Hljóðaklett j
um, Ásbyrg'i, Bláskógaveg, að I
Þeistareykjum, Reykjadal, Bárðar ,
dal, síðan Sprengisandsleið að j
Aijnarfelli, en síðast Fjórðungs- j
sand niður í Hreppa.
Þetta er löng leið eins og gjörla
má sjá, ef le'iðin er skoðuð á
landakortinu. Löng leið og víða
erfið yfirreiðar, enda tók hún 30
daga, en 5 daga voru ferðamenn
um kyrrt, fyrst á Hornafirði einn |
í Glúmstaðaseli, sem er fremsti í
bærinn, í Fljótsdal og einn að j
Laugum í Reykjadal.
Fyrsti hestahópurinn rekinn út í eina af Þjórsárkvíslunum.
(Myndirnar tók Örn O. Johnson)