Vísir - 19.06.1968, Side 1
/
VISIR
Boðun kirkjunnar
á tækniöld
— aðalmál prestastefnunnar, sem hófst i morgun
Þríggja daga prestastefna var
sett í safnaðarsal Neskirkiii í morg-
un að undangenginni messu i Dóm
kirkjunni. Aðalmál prestastefnunn
ar að þessu sinni er boðun kirkj-
unnar á tækniöld, en annar fram-
sögumaðurinn um það mál er sr.
Emil Björnsson, dagskrárstjóri
frdtta- og fræðsludeildar sjónvarps-
ins.
Mikil hreyfing hefur verið innan
fslenzku kirkjunnar að undan-
fömu til að aðlaga hana breytt-
um tímum og þjóðfélagshátt-
um og er ekki ólíklegt að reynsla
séra Emils BJörnssonar við sjón-
varpiö geti orðiö kirkjunni til
nokkurs góðs í því sambandi.
Á morgun veröur þátttakendum
á prestastefnunni skipt í umræðu
hópa, þar sem PÖalmálið verður
tekið til umræðu. Þess má geta að
leikmenn geta setiö á prestastefn-
unni og hafa þeir tillögurétt.
Nokkrir leikmenn munu flytja er-
indi um ýmis mál.
Flugmennirnir á Reykjavíkurflugvelli í nótt. (Ljósm. Har. Orn Asbjörnsson).
í skólaferðalag á lítilli flug-
vél til Bruxelles
Flugnemar og kennarar komu heim i nótt
úr nýstárlegri utanlandsferð
1 nótt komu til landsins
þreyttir ferðalangar, sem ver
ið hafa á all nýstárlegu ferða-
lagi. Er hér um að ræða Elí-
eser Jónsson flugkennara
sem fór með fjórum nemend-
um sinum, öllum nýútskrif-
uðum, yfir hafið á tveggja
hreyfla Piper Apache flugvél.
Þeir félagar flugu fyrst til
Hornafjarðar, en þaðan flugu
þeir til Prestvfkur. Ferðinni var
sfðan heitið til Briissel, Amster-
dam og Glasgow en þaðan flugu
þeir heim í nótt.
Ferðin gekk mjög vel og voru
þeir mjög ánægðir með ferðina.
Veðurskilyrðin voru hin ákjósan
legustu og Ientu þeir aldrei í
neinum vandræðum. Aðspurður
kvað Elíeser það ekkert hættu-
Iegra að fljúga í slíkri vél en
öðrum tveggja hreyfla vélum.
Lengsta flugleiðin var á milli
Hornafjarðar og Prestvíkur eða
4 tímar. Flugþol vélarinnar er
um 4 tímar og tóku þeir elds-
neyti á öllum viðkomustöðum.
Allir ungu mennimir fengu að
stjóma vélinni og reyndist þetta
vera hið mesta ævintýri fyrir
þá.
Á leið heim úr steinin-
um — stóð þjóf að verki!
■ Varla hafði einn af gistivinum fangavarðanna í Sfðumúla
fyrr gengið út úr fangahúsinu frjáls maður, eftir að hafa gist
þar nótt, en hann snaraðist inn aftur til gestgjafa sinna og í
þetta sinn í hlutverki hins árvökula borgara, sem leitast vlð að
aðstoða laganna verði við löggæzlustörfin.
Fögur sumarnótt við Húnaflóa.
og sýnir ísinn í miðnætursól.
Enn nllmikill ís
við Nordurlnndid
Enn er talsverður 's fyrir Húna-
flóa og allt austur fyrir Flatey.
Þéttastur er fsinn á Óöinsboða
ivæðinu, 5—8/10. Steingrímsfjörö-
ur, Miðfjörður og Húnafjörður eru
greiðfærir, samkvæmt upplýsing-
am Landhelgisgæzlunnar sem fór
i ísflug í gær, en íshaft lokar Hrúta
firði kringum Hrútey og mjótt
ish?ft gengur fyrir Heggstaðanes
ag Vatnsnes. Greiöfært er um
Skagafjörð, en sigling er erfið fyr-
r Skaga. Litlar breytingar hafa
)rðið á ísnum í nótt, en skyggni
:r slæmt víða fyrir norðan. Kált
tetur verið í nótt við norður og
ui.sturströndina, aðeins 2—4 stiga
íí?i og er ekki gert ráð fyrir mikl
tm breytingum þar á næstunni.
íér sunnanlands er bjartviðri og
>—9 stiga hiti.
Myndin er tekin um helgina
Hafði hann á leiðinni frá fanga-
geymslunum veitt því eftirtekt, aö
brotizt hafði verið inn i Ármúla
7, og vildji hann tilkynna lögregl-
unni þetta.
Nú var brugðið viö skjótt og
nokkrir lögregluþjónar sendir á inn
brotsstað. Komu þeir mátulega til
þess að góma innbrotsþjófinn, sem
var önnum kafinn inni í húsinu
við iðju sína og átti sér einskis
ills von.
Ólíkt hefur þeim verið innan-
brjósts, sem þá var fluttur f Síðu-
múla, og þeim, sem þá hélt áleiðis
heim til sín.
Lærbrotnaði
á bifhjóli
Ungur piltur úr Reykjavík sem
staddur var rétt innan viö Laugar-
vatn á sunnudagskvöld, slasaðist
allmikið, þegar hann féll af bifhjóli
sfnu. Kom f Ijós ,að hann hafði lær
brotnað og var hann fluttur á
Landspftalann.
Smávægileg
hækkun á
mjölverði
# Heimsmarkaðsverð á fiski-
mjöli hefur heldur hækkað síð-
ustu daga. Þorskmjöl, sem er
eina mjölið, sem hægt er að
hafa til hliðsjónar nú, hefur
þannig hækkað úr 17 stesrlings-
pundum tonnið eins og það var
yfir vertíðina í 18.3 sterlings-
pund.
Lýsisverð hefur hins vegar
haldizt nokkuö óbreytt í um 43
sterlingspundum tonniö, en það
verð fékkst fyrir nokkurt magn
sem seit var héðan fyrir rúmri
viku. Talið er hæpið að hægt
sé aö fá það verð núna. Lýsis-
verðiö hefur verið frá
40 i 50 sterlingspund undanfarin
tvör ár, en fyrir bann tíma lá
það frá 70 til 80 sterl-
ingspund. Fátt virðist gefa það
til kynna að veröiö muni hækka
á næstunni.
9MM
Hefur Fríðrík þegar unnið Szabo i
y
Úrslit Fiske-mótsins i kvöld
Síðasta umferð alþjóðlega
skákmótsins verður tefld í
kvöld, og er mjög tvísýnt um
úrslitin. Rússarnir Taimanov
og Vasjúkov eru efstir með
tíu vinninga, eftii að Vasjúk-
ov vann biðskák sína við
Andrés í gærkvöldi.
Friðrik hefur 9l/2 vinning
samkvæmt opinberum upplýs-
ingum, en skák hans við Szabo
mun vera lokið þar sem Szabo
þarf að taka þátt i móti í Sol-
ingen i Þýzkalandi, og gengur
sú saga meðal manna, að Frið-
rik hafi unnið og hafi þvj 10l/2
vinning og lokiö öllum sínum
skákum. Þetta hefur ekki feng-
izt staðfest. Sé hins vegar svo,
þurfa Rússarnir að vinna sið-
ustu skákir sínar ti) að verða
fyrir ofan Friðrik. Vasjúkov
stendur betur að vígi, þar sem
hann teflir við Braga í síðustu
umferð, en Tainianov leikur
gegn Byrne, sem væntanlega
reynist þungur í skauti.
Þá biða menn skákar Guð-
mundar og Úhlmanns, sem sker
úr um það, hvort Guðmundur
fær helming þeirra stiga, er
þarf til að hljóta alþjóðlega
meistaratign í skák. Til þess
þarf Guðmundur jafntefli. Guð-
mundur náði í gærmorgun þeim
ágæta árangri að ná jafntefli
við Friðrik i maraþonskák.
Aðrar biðskákir fóru þannig:
Uhlmann vann Jóhann, Byrne
Inga, og Vasjúkov vann bæði
Byrne og Andrés.
Staðan fyrir síðustu umferð
er þessi: 1.—2. Taimanov og
Vasjúkov 10 vinninga. 3. Frið-
rik 9i/2. 4. Byrne 8i/2. 5. Uhl-
mann 8. 6.-7. Szabo og Ostojic 8
7%. 8.—9. Addison og Guð-
mundur 7. 10. Freysteinn 6. 11.
Bragi 5Y2. 12. Ingi 5. 13. Benóný
4. 14. Jóhann 2. 15. Andrés >/..
í kvöld tefla, auk ofannefndra,
Addison og Ostojic, Andrés og
Ingi og Freysteinn og Jóhann.