Vísir - 19.06.1968, Síða 2
er það ekkert ósanngjarnt að
fyrir Fram.
mínútu þegar Kári skoraði 1
****■».
Þorbergur Atlason, markvörður Fram grípur vel inn í leikinn, Kári sækir að markinu á miðri
V í SIR. Miðvikudagur 19. júní 1968.
odd□ Fram — aaaa Akureyri 1:1 (1:1)
Akureyringar færðust / uukana
þegar Helgi Númason fór út af
— en enda jbótt sigur þeirra „lægi / loftinu"
tókst Fram að halda j'ófnu út leikinn i
skemmtilegustu viðureign sumarsins
Q Það voru sannarlega ánægðir áhorfendur, sem
fóru heim eftir leik Fram og Akureyrar í gærkvöldi
í Laugardal. Leikurinn var einmitt af þeirri gerðinni,
sem við höfum svo sorglega lítið af. Þarna fengu menn
spennuna, baráttuna, hraðann, marktækifærin og hin-
ar ótrúiegu bjarganir svo að segja á marklínum. Bolt-
inn gekk frá manni til manns og einstaklingar í lið-
unum voru ófeimnir við að leika á einn til tvo andstæð-
inga til að auka verulega á hættuna í sóknunum.
Akureyringar voru e.t.v. öllu
nær þv£ að sigra í þessum leik,
en þegar öllu er á botninn hvolft
og veikti það framlínu Fram
mjög mikið.
Akureyringar jöfnuðu á 15.
að hann er ótrúlega vaxandi
leikmaður og ekki kæmi mér
á óvart þótt hann yrði valinn
i landslið í sumar. Aðeins út-
hlaupin eru nokkuð óörugg enn
þá, en ástæða er til að ætla
aö hann bæti þau.
í seinni hálfleik breyttist
nokkuö jafn leikur £ allmikla
yfirburði Akureyringa í leik, en
Framarar héldu hins vegar upp-
teknum hætti og ógnuðu oft
verulega við Akureyrarmarkiö.
Strax á 5. mín. munaði aðeins
hársbreidd að Elmari tækist að
skora, boltinn hafði runnið und-
ir Samúel markvörð en fór yfir
endamarkalínu ca. fet frá mark-
inu, en Elmar var of seinn á
staöinn. Þá voru Akureyringar
ótrúlega heppnir á 17. mín. í
þvögu, Samúel lá í grasinu og
einmitt í fangið á honum hrökk
boltinn eftir ítrekúð tækifæri
mynd, en varamenn Fram horfa á (Anton, Baldur og Sigurður).
stigunum skyldi þarna skipt
milli þessara tveggja aðila, sem
greinilega eru 2 af beztu lið-
unum i 1. deild og held ég að
það sé engin tilviljun að hvor-
ugt hefur tapað leik.
Framarar sóttu mun meira
fyrstu 15 mínútur leiksins og
strax eftir 6 minútur skora þeir
sitt mark. Ásgeir miðherji var
kominn í gegn, þegar honum
var brugðið illa. Dómarinn,
Róbert Jónsson, dæmdi þegar
í stað og réttilega vitaspymu,
sem Helgi Númason skoraði ör-
ugglega úr. Helgi varð síðar aö
yfirgefa völlinn vegna meiðsla,
Hann skoraði örugglega, þegar
boltinn' kom fyrir mark frá
Þormóði útherja. Framarar voru
annars óheppnir með skot sín,
áttu t.d. stangarskot.
Markverðir beggja fengu að
sýna hvað í þeim bjó undir lok
fyrri hálfleiks og raunar allan
leikinn og stóöu sig með mestu
sæmd. Á 42. mín. flaug Þor-
bergur Atlason t.d. upp £ mark-
hornið eftir þrumuskoti Magn-
úsar Jónatanssonar. Það hefðu
fáir varið þetta skot, hvað þá
að halda boltanum að auki eins
og Þorbergur gerði. Sannaði
Þorbergur það enn einu sinni
Þorbergur var sannarlega í
veginum fyrir framlínu og skot-
mönnum Akureyrar. Hvað eftir
annað varði hann stórkostlega
vel. en Akureyringar héldu á-
Haukar sigra enn
Enn unnu Haukar sigur I 2.
deild og hafa þeir tekið forystuna
í sínum riðli í keppninni, hafa lagt
Þrótt og Víking að velli. Á sunnu-
daginn unnu Haukarnir Víking með
1:0, enda þótt Víkingar hafi átt
mun meira í leiknum.
í markinu stóð handboltakapp-
inn Stefán Jónsson, og í vörninni
Sigurður Jóakimsson og tókst
Haukum að verjast allan leikinn og
varð mark Jóhanns Larsens til
þess aö þeir hirtu bæði stigin úr
þessari viðureign.
Spá margir því nú að það veröi
Akranes og Haukar. sem landi í
úi ’itum keppninnar í ár. Margt
getur þó breytzt enn því aö tvöföld
umferð er í keppninni.
fram að pressa og einhvem
veginn fannst mönnum að mark-
ið hlyti ,,að liggja í ioftinu",
sem þó reyndist ekki vera. En
sannarlega áttu Akureyringar
það skilið fyrir góðan leik sinn
og tækifæri.
Það er ekki að efa að þessi
tvö lið eiga eftir að bítast í
sumar um eitt af efstu sætun-
um, sennilega það efsta, nema
Valsmenn eigi eitthvað í poka-
horninu, sem aldrei er að vita.
Mér fannst sérstaklega skemmti
legt að sjá menn f framlínum
beggja, sem þorðu og gátu
leikið varnarmenn af sér. Elmar
Geirsson, einn af „hvítu koll-
unum“ i ár frá M.R., átti einn
sinn bezta leik, hreinlega tætti
af sér vörn Akureyringa og
ógnaði í hvert skipti sem hann
fékk boltann. Helgi Númason var
góður meðan hans naut við, en
eftir að hann fór út af var eins
og liðið dofnaði, Einar Ólafsson
átti góða spretti. Of mikið
tognaði úr samhengi varnar og
sóknar hjá Fram, en vörnin var
þétt með Anton sem langbezta
mann. Þá var Þorbergur
skemmtilegur í markinu, eins og
áður greinir.
Kári var mest ógnvekjandi i
Akureyrarliðinu. en Steingrím-
ur, sem kom inn seint í fym
hálfleik er líka alltaf hættuleg-
ur leikmaður, Skúli sömuleiðis
Hins vegar mætti Valsteinn vera
fljótari og harðari af sér. Guðni
ÞORBERGUR — hann er nú
örugglega einn okkar bezti
markvörður.
og Magnús stóðu vel fyrir sínu
og vömin með Jón Stefánsson
sem bezta mann varðist vel.
Róbert Jónsson dómari var
góður. Hins vegar var hann
óheppinn í þrjú skipti, þegar
hann varð fyrir boltanum, í
eitt skiptið var um hörkuskot
að ræða frá Magnúsi Jónatans-
syni á markið. Var Róbert þá
11. maðurinn í vöminni hjá
Fram, og kannski mikilvægur
sem slíkur.þvi að skotið var gott.
— jbp —
Sundfólk sent á 0L
Á fundi Olympíunefndar íslands
er haldinn var í gær var samþykkt
aö tilkynna þátttöku íslendinga i
sundi á Olympíuleikunum í Mexikó
1968.
Áöur haföi verið samþykkt þátt-
taka í frjálsum íþróttum.
Á sama fundi vom samþykktir
þeir lágmarksárangrar sem Frjáls-
íþróttasamband íslands og Sund-
samband fslands hafa sett varðandi
þátttöku í Olympíuleikunum.
Samþykkt þessi var gerð án
skuldbindingar um að allir verði
sendir á Olympíuleikana í Mexikó.
er ná þessum lágmarksáröngrum.
Guðmundur og
Erlendur á alþjóð-
legu móti í kvöld
Guðmundur Hermannsson og
Erlendur Valdimarsson- eru meöal
keppenda á stórmóti í A.-Berlín í
kvöld, Olympíudeginum svonefnda.
Guðmundur keppir í kúluvarpi, en
Erlendur i kúluvarpi og kringlu-
kasti. Er hér um mikið mót aö
ræöa og má búast við aö þarna
mæti Guðmundur kúluvörpurum
úr röðum hinna beztu i Evrópu.
Guðmundúr mun halda heim á
leið strax að loknu móti en fer
aftur utan ásamt Jóni Þ. Ólafssyni
undir mánaðamótin og keppir i
Varsiá á miklu móti 29. og 30.
júni. Þá taka við 2—3 mót á
Norðurlöndum, m. a. á Bislet-leik-
vanginpm í Oslo og í Malmö i Sví-
bjóð. Einnig hér ættu þessir íþrótta-
menn okkar að fá harða keppni og
vitanlega ætti þetta að hvetja þá
til frekari dáða.
Akranes í ham
gegn Breiðabliki
Hreinn Elliðason skorabi 4 af 6 m'órkum IA
Akranes vann Breiðablik
stórt umhelgina á Akranesi.
Orslitin urðu 6:0 fyrir Skaga-
menn oe nú tala menn alit
í einu um „gullöldina“, sem
þar stóð fyrir nokkrum árum
og segja: Með framlfnumenn
eins og Matthfas Hallerfms-
son, Hrein Elliffason, Biörn
Lárusson og Guðjón Guð-
mundsson, hvað er ekki hægt
að gera!
Það kom líka á daginn gegn
Breiðibiiki að Hreinn hefur veitt
nýju lífi í framlínu Skaga-
manna, hann skoraði 4 mörk,
þar af 2 gullfalleg gegn hinu
iofandi Breiðabliksliði. Matthías
og Björn skoruðu sitt hvort
markið.
f hálfj^ik var staðan 3:0. Þeir
sem til sáu segjast ekki í vafa
um hvaða lið sigri í 2. deild i
ár. það verði Akranes. Má bvi
vera að þetta „sumarfrí“ Skaga-
manna í 2. deild verði til góðs
Það hefur gerzt að lið hafi fallið
í 2. deild og notað sér það sumar
til að yfirvega og byggja upp
að nýju. Þetta gerði Fram, —
og árangurinn var góður.