Vísir - 19.06.1968, Blaðsíða 13
VÍSIR. Miövikudagur 19. júní 1968.
13
Minning:
Lúðvík M. Jóhannsson
skipamiðlari
gkki kom mér það 1 hug er ég
kvaddi vin minn á sunnudags-
kvöld að það yrðu okkar síðustu
handtök. Að vísu var hann ný-
kominn heim af sjúkrahúsi þar sem
hann hafði verið til rannsóknar og
hressingar nokkum tímd. Og töld-
um við vist að hann yrði kominn
til sinna starfa aftur glaðin- og
hress eftir nokkra daga.
Og svo er það tveimur dægr-
um seinna að hann er allur.
En líklega er það bezt að vita
svona lítið.
Hann andaðist að heimili sínu
aðfaranótt miövikudags 12. þ.m.
Lúðvfk var fæddur á Hellissandi
7. apríl 1912 sonur hjónanna Láru
Lárusdóttur og Jóhanns Jónssonar
útgerðarmanns og dvaldist hann í
foreldrahúsum þar til hann hafði
lokið skólanámi. Einnig mun hann
á unglingsárunum oft hafa verið
heimagangur hjá afa sinum Jóni á
Munaðarhóli. Faðir hans og afi
voru báðir kunnir dugnaðar for-
menn og útgerðarmenn þar vestra
og mun hann því kornungur hafa,
farið að fara á sjóinn með þeim,
þótt það ætti ekki fyrir honum að
liggja að feta í fótspor þeirra með
formennsku og útgerð. Hins vegar
minntist hann oft þeirra stupda
er ..ann var með þeim á sjón-
um, og þótt hann hlyti staðgóða
skólamenntun á sínum ungdómsár
um sem svo varð auðvitað undir
staðan í hans lífsstarfi, þá fór
hann ekkert dult með það, að sjó-
volkið með föður og afa hefðu
fært honum kjarkinn og karl-
mennskuna til að takast á við lff-
ið og verkefnin.
Lúðvfk gekk i i Verzlunar
Lúðvik M. Jóhannsson.
skóla íslands og lauk þaðan
námi 18 ára gamall. Meðan hann
var við nám f Verzlunarskólanum
mun hann hafa notið stuðnings
móðurafa sfns Lárusar Lárussonar
skrifstofustjóra hjá Rafveitu
Reykjavíkur.
Þannig munu báðir afarnir, hver
á sina vísu hafa lagt sitt lóð fram
til að móta þennan unga mann.
Enda minntist hann þeirra oft
með virðingu og aðdáun.
Að loknu skólanámi stundaði
hann skrifstófustörf hér í bæ i all-
mörg ár. Árið 1947 stofnar hann
fyrirtækið Skipamiðlun Lúðvíks
M. Jóhannssonar & Co, sem hann
veitti forstöðu alla tíð og vann þar
lengst af einn öll störf. Og var það
orðið mjög traust fvrirtæki, með
góð sambönd víða erlendis.
Árið 1945 giftist hann eftirlifandi
konu sinni Sigríði Magnúsdóttur
og bjó hún honum traust og gott
heimili, sem gott var að koma til
eftir langan og strangan vinnudag,
því að þar sem hann vann lengst-af
einn við sitt fyrirtæki urðu vinnu-
dagarnir oft ærið langir. Þau eign-
uðust eina dóttur Bryndísi sem nú
er uppkomin og vmnur í banka.
Við vinir hans minnumst margra
ánægjustunda á hinu elskulega
heimili þeirra hjóna, og í öðrum
vinahópi með þeim.
Nú mætir maður ekki oftar þess
um hlýja heimilisföður, þar sem
hann tók á móti gestum sínum í
forstofunni með sínu fasta hand-
taki, og sagði: „Komið þið blessuð
og sæl og verið þið hjartanlega vel-
komin".
En þótt Lúðvík væri hversdags-
lega glaður og léttur i lund þá var
hann líka maður alvörunnar. Hann
var í eðli sínu dulur maður, og
flíkaði ekki tilfinningum sínum við
hvern sem var. En þeir sem kom-
ust inn úr skelinni fundu þar
traustar og ákveðnar skoöanir á
þeim málum er honum voru hug-
leiknust.
Góður drengur er genginn.
Við söknum hans öll. En mestur
er þó söknuðurinn hjá öldruðum
föður, eiginkonu og dóttur.
Megi guð gefa ykkur styrk og
ró.
Oddur Kristjánsson.
VAL
UNGA
FÓLKSINS
„MEÐ UNGU FOLKI
María
Þórir
Fimmtudaginn 20. júní n. k. efnir ungt stuðningsfólk GUNNARS THORODDSENS til glæsi-
legrar kynningarsamkomu í Háskólabíói með ungu fólki. Samkoman hefst kl. 8.30.
ALLT UNGT FÓLK VELKOMIÐ,
DAGSKRÁ:
1. Ámi Gunnarsson, fréttamaður, setur samkomuna.
2. Skemmtiþáttur: Bessi Bjarnason, Hermann Gunnars-
son, Ómar Ragnarsson o. fl.
3. Helga Bachmann les ljóð eftir Matthias Johannes-
sen og Tómas Guðmundsson.
4. „Hljómar“ flytja lag eftir Áma Johnsen við ljóð
Matthíasar.
5. Erindi: Jónas Kristjánsson, ritstjóri flytur erindi um
forsetaembættiö og kosningamar og verða sýndar
myndir (slides-myndir) með erindinu.
6. Ólafur Þ. Jónsson, óperusöngvari, syngur við undir-
leik Ólafs Vignis Albertssonar.
7. Ávarp: Kolbeinn Pálsson og Emilia Kofoed-Han-
sen.
8. „Hljómar" leika immsamin lög.
9. Systkinin Maria og Þórir Baldursson, leika og syngja
með aðstoð „Heiðursmanna“.
10. Dr. GUNNAR THORODDSEN flytur ávarp.
I
Kolbeinn
UNGA FÓLKIÐ
P