Vísir - 21.06.1968, Page 2
Útihandknattleikurinn i gær:
TVeir beztu ÍR-ingarnir ekki
með — voru á æfingu hj
Eftir öllum sólarmerkjum að dæma verða FH-
ingar engin lömb að leika við í útihandknattleik í
ár. Þeir- virðast ekki ætla að gefa bikarinn eftir
þetta árið, a. m. k. mátti lesa það út úr leik þeirra
í gærkvöldi á malbikuðu skólalóðinni við Melaskól-
ann, þegar þeir unnu Valsmenn með 27:9 í leik þar
sem Hafnfirðingarnir hreinlega léku sér að Val
eins og köttur að mús.
Valsmenn voru hreinlega út-
spilaðir á stuttum tlma og í
hálfleik var staðan orðin 14:3,
Hraði FH var einum of mikill
fyrir Valsmenn og undir lokin
virtust allir leikmenn farnir að
skora, jafnvel Birgir markvörður
menn munu lítið hafa æft, en
FH mætti með topplið sitt, m. a.
skoraði yfir allan völlinn. Vals-
var Einar Sigurðsson aftur með.
Framarar voru ákaflega
,,köflóttir“ í leik sínum. Oft og
tíðum brá fyrir skemmtilegum
leikköflum inn á milli, en siðan
dvínaði leikgleðin og lognmolla
kom inn f leik þeirra. ÍR-ingarn-
ir ungu stóðu fyllilega í Fram
þar til um miðjan seinni hálf-
leik að styrkur íslandsmeistar-
anna kom I ljós. I hálfleik var
staðan 14:13 fyrir Fram, en
leiknum lauk með sigri Fram
29:19.
•
Það var kaldhæðnr örlaganna
að tveir beztu menn ÍR, Ásgeir
Elísson og Vilhjálmur Sigur-
gestsson voru ekki með liði sínu
í gærkvöldi. Ástæðan? Þeir voru
á knattspyrnuæfingu, — hjá
Fram! Þeir félagarnir mættu
rétt eftir að leikurinn hófst, en
of seint, leikskýrslan hafði verið
á Fram!
gerð, og þeirra nöfn voru þar
ekki á meðal, enginn hafði
reiknað með að þeir gætu kom-
izt. Þegar tillit er tekið til þessa
verður frammistaða ÍR að telj-
ast góð.
Óli Ólsen dæmdi þennan leik
og var ákveöinn. Hann hlífði t.
d. tveim helztu mönnum Fram
ekki hætis hót, rak þá Ingólf
og Gunnlaug út af með stuttu
millibili. Björn Kristjánsson
dæmdi fyrri leikinn og gerði
það einkar vel.
í kvennaflokki komu hinar
ungu KR-dömur á óvart. Þær
unnu Vfking með 11:10 í afar
spennandi leik, komust yfir
undir lok leiksins.
idag
■ Handknattleiksmót fslands
heldur áfram viö Melaskólann
I kvöld. Haukar koma nú fram
á sjónarsviðið í sínum fyrsta
leik í þessu móti og leika við
Víking. Fyrri leikurinn í mfl.
karla er milli KR og Ármanns,
en fyrsti leikur kvöldsins er í
kvennaflokki og hefst kl. 19.30
og er á milli Vals og Breiða-
bliks.
TupiÖ vesr sem
köld vatnsgusa
Þess skal getið í sambandi
við fréttina um sigur Vest-
mannaeyinga gegn unglinga-
landsliðinu, að þar var um 2.
flokk ÍBV að ræða, en ekki 1.
deildarliðið.
Var sigur Vestmannaeyinga
því sannarlega sem köld vatns-
gusa yfir unglingalandsliðs-
menn, sem eiga fyrir höndum
leiki hér heima við Norðurlönd-
in og Pólverja.
Æskufólk í Vestmannaeyjum
- fær nýtt félagsheimili
Fyrir nokkru var opnað fé-
lagsheimili fyrir íþróttamenn f
Vestmannaeyjum. Fréttaritari
Vís'j f Eyjum, Alexander Guð-
mundsson hitti að máli bæjar-
stjórann Magnús H. Magnússon
og formann ÍBV, Stefán Runólfs
son við opnunina.
Bæjarstjórinn kvað neðstu hæð
hússins verða fyrir íþróttahreyf-
inguna, og skátasamtökin, en
einnig að 70 manna salur á þessari
hæð, sem félögin geta notað, yröi
jafnframt notaður sem sjómanna-
stofa, þegar mest er um aðkomu-
báta, þ.e. í marz og apríl svo og
begar síldin er mest á haustin við
Eyjar.
Á annarri hæð kvað hann veröa
tómstundaheimili og húsnæði fyrir
myndlistarskóla, sem hefur verið
starfræktur þar f vetur í tveim
herbergjum. Efstu hæðina kvað
Magnús helgaða leiklistarlífi og
tónlist, en þar er salur fyrir um
130 manns.
Vestmannaeyjabær hefur á-
kveöið að verja 2 millj. kr. f ár
til framkvæmdanna. „Þetta er
langþráö takmark", ^agði Stefán
Runólfsson við fréttamann. Hann
kvaö bæinn hafa lagt til efni en
félagsmenn lag* til mikla vinnu.
Hluti íþróttahreyfingarinnar eru
þrjú herbergi og aðgangur að sal
þar sem hægt verður að stunda
fræðslustarfsemi um íþróttir og
hægt veröur að halda stærri fundi
félaganna.
Badminton:
Margir
efnilegir
• Reykjavikurmót í badminton
fyrlr sveina, drengi og unglinga
var haldið f íþróttahúsl Vals 22.
og 23. maf s.I. Badmintondeild
Vals sá um mótið.
Þetta mót sýndi glöggt mikinn
og vaxandi áhuga unga fólksins á
badminton, og komu þama fram
margir efnilegir unglingar.
Úrslit urðu þessi:
1 sveinaflokki, einliöaleik, sigraði
Helgi Benediktsson, Val, Þórhall
Bjömsson, Val, með 11:4 og 11:3,
og f tvíliöaleik sigruðu þeir Helgi
og Þórhallur þá öm Geirsson,
TBR, og Frfmann Jónsson, TBR,
með 15:0 og 15:1.
1 drengjaflokki, einliðaleik, sigr-
aði Jón Gfslason, Val, Sigurð Har-
aldsson, TBR, með 11:6 og 11:3,
og f tvíliðaleik sigruðu þeir Þór
Geirsson, TBR, og Sigurður Har-
aldsson, TBR, þá Jón Gíslason, Val,
og Ragnar Ragnarsson, Val, með
15:2 og 15:12.
í unglingaflokki, einliðaleik, sigr-
aði Haraldur Komelíusson, TBR,
Finnbjörn Finnbjörnsson, TBR, með
16:18, 15:4 og 15:2, og í tvíliðaleik
sigruöu þeir Haraldur og Finnbjörn
þá Jafet Ólafsson, Val, og Snorra
Ásgeirsson, TBR, með 15:4 og* 15:2.
Heimsmet í
lyftingum
Bandaríski lyftingamaðurinn Bob
Bednarskl, 24 ára gamall, setti um
helgina nýtt helmsmet f lyftingum
í þungavigt á móti í York í Penn-
sylvanfu. Hann pressaði 207 kg.,
og snaraði 220.5 kg. Rússinn
Leoníd Sjabotinskij átti fyrri met-
in, 201 kg. og 219,5 kg.
Norska félagið Brann kom sann-
arlega á óvart í gærkvöldi, þegar
liðið sigraði skozka atvlnnuliðið
Dundee United með 3:1 í afmælis-
leik norska félagsins, en leikurinn
fór fram f Bergen á velli Brann.
1 fyrri hálfleik skoruðu þeir
Nýja bílaþjónustan
Lækkið vlðgerðarkostnaðinn —
með því að vinna slálflr að
viðgerð bifreiðarinnar. — Fag-
menn veita aðstoð ef óskað er.
Rúmgóð húsakynni, aðstaða til
þvotta.
Nýja bílaþjónusfan
Hafnarbraut 17. — Sími 42530.
Opið frá kl. 9—23.
Rolf Birger Pedersen eftir 35 mín-
útur og Frode Larsen skoraöi 2:0.
1 seinni hálfleik skoraði Ken
Cameron 1:2 en Rolf Birger skor-
aði 3:1 úr vítaspymu á 10. mín.
sföari hálfleiks.
LOKAÐ
Skrifstofur vorar og afgreiðsla að Lauga-
vegi 114 verða lokaðar mánudaginn 24. júní
vegna skemmtiferðar starfsfólks.
Tryggingastofmin ríkisins.
Lézt af völdum
hnefaleikakeppni
Vestur-þýzki hnefaleikarinn Jupp Else, lézt í gærdag á
sjúkrahúsi í Köln. Hann var atvinnumaður í hnefaleikum
og hlaut meiðslin, sem drógu hann til bana, í keppni um
Evrópumeistaratitilinn í millivigt gegn Italanum Carlos Dur-
an 12. júnf s.l. Þjóðverjinn, sem var 28 ára að aldri missti
meðvitund í keppninni og komst hann aldrei til meðvitund-
ar eftir það.
Brann sigraði
Dundes Utd. 3:1
LÁTIÐ OKKUR I
Þab sparar ydur tima og ójbæg/ncf/
INNHEIMT USK RIFST
Tjarnargötu 10 — III hæd —Vonarstrætismegin — Simi 13175 (3linur)