Vísir - 21.06.1968, Blaðsíða 5
5
VlSIR. Föstudagur 21. jóní 1968.
Fer áhugi á
þjóðbúningn-
um vaxandi?
— Ovanalega margar konur á 'islenzkum bún-
ingum 17. júni — Sýning á islenzkum kven-
búningum fyrirhuguð i Þjóðminjasafninu i haust
jp’ftir þessa síðustu þjóðhátíð
blandast víst engum hugur
um þaö, að áhugi á íslenzka
þjóðbúningnum fer ört vaxandi
meðal íslenzkra kvenna. Lík-
lega hafa aldrei fleiri konur og
stúlkur skartað þjóöbúningi á
þjóðhátíðinni og nú í ár, enda
höfðu gullsmiðir borgarinnar
sagt svo skömmu fyrir þjóö-
hátíöina, aö óvanalega mikil
sala og eftirspurn væri eftir
silfri á íslenzka búninga, eink-
um á upphlut.
Það hefur mikið verið talað
um það á síðustu áratugum að
áhugi á íslenzka þjóöbúningn-
um væri hverfandi, og þá ekki
sízt meðal yngri kvenna. Marg-
ir hafa hins vegar haldið því
fram að nú fari áhuginn mjög
vaxandi. Ungar stúlkur sem
dveljast erlendis fá sér margar
íslenzkan búning, stúlkur eru
giftar í íslenzkum búning og
fyrir sjálfa þjóðhátíðina fá mjög
Brynja Benediktsdóttir var fjallkonan 17. júni í ár og að
sjálfsögðu klæddist hún skautbúning. Frú Helga Weisshappel
á búninginn, sem Brynja notaði og hér sést hún leggja síðustu
hönd á búning fjallkonunnar, áður en hún kemur fram í
Laugardainum. (Ljósm. Haraldur Örn Ásbjarnarson.)
margar konur og stúlkur sér
íslenzkan búning, — upphlut,
skautbúning eða peysuföt. ís-
lenzku búningarnir eru raunar
miklu fleiri, en þessir eru hvaö
algengastir í dag.
Eins og flestum er kunnugt
hefur mikið verið um það rætt
hvort ekki sé ástæða til að
breyta íslenzku þjóðbúningun-
um eitthvað til samræmis við
kröfur nútímakvenna. Hefur m.
a. verið talað um að stytta pils-
in og jafnvel að gera einhverjar
róttækari breytingar, án þess
þó aö fara út fyrir hið uppruna-
lega form búninganna. Hefur
Æskulýðssamband íslands verið
mjög áhugasamt um þetta mál
og var skipuð nefnd í fyrra til
að kanna ýmsar leiðir til að
vekja áhuga á þjóðbúningnum,
og ræða hugsanlegar breyting-
ar á honum. Að sjálfsögðu voru
menn ekki á einu máli um það,
hvort halda skyldi búningnum
óbreyttum, eða breyta honum
eitthvaö, en ákveðið var að
Æskulýðssambandið leitaði til
Þjóðminjasafnsins með að halda
sýningu á íslenzkum kvenbún-
ingum. Veröur sýning þessi hald
in í október n. k. en um skipu-
lagningu sýningarinnar sér frú
Elsa E. Guðjónsson, safnvörður
og verður sýningin á vegum
Þjóðminjasafns Islands.
Eftir þessa sýningu ætti það
að verða betur Ijóst hver er
vilji almennings í þessum efn-
um, og verður málið þá vænt-
anlega tekið upp aftur og end-
anlega ákveðiö hvaða leiðir
skuii valdar til að kynna ís-
lenzkan þjóðbúning, og hvernig
sá búningur skuli vera.
Ef til kemur að ákveöið verði
að gera einhverjar breytingar á
búningnum, er ekki ólíklegt aö
efnt verði til samkeppni um
teikningu á nýjum íslenzkum
þjóðbúningi, en að sjálfsögðu
verða þá gerðar kröfur um aö
sá búningur sé að mestu leyti
byggður á hinum gömlu is-
lenzku búningum.
Án efa skoöa margar konur
þessa sýningu þegar þar að kem
ur, og ætti þá aö verða auð-
veldara fyrir þær að mynda sér
skoöun á þessu máli.
Þaö er ekkert launungarmál
að margar ungar stúlkur f dag
þekkja ekki einu sinni mun á
upphlut og peysufötum. Hinar
ýmsu hefðir í sambandi við notk
un íslenzku búninganna, svo
sem peysufatadagar í skólum
og þjóödansasýningar Þjóð-
dansafélags Reykjavíkur, hafa
þó orðið til þess að vekja áhuga
ungu stúlknanna á þjóðbúningn-
um og hvaða leið sem kann að
verða valin, þá er óhætt að full-
yrða að ungu stúlkumar, ekki
síður en eldri konur, em fúsar
og viljugar að taka upp al-
menna notkun íslenzks þjóðbún-
ings.
Húsgögn — Útsala
Seljum í dag og næstu daga lítið gölluð hús-
gögn, hjónarúm, kommóður, sófaborð og
fleira. — Opið á sunnudag.
B.-Á.-HÚSGÖGN h/f. Brautarholti 6
Símar 10028 og 38555.
NYJUNG 1 TEPPAHREINSUN
ADVANCE
Tryggir að tepp-
i Ohleypur ekki.
Reyniö viOskipt-
in. Uppl verzi-
Axminster, simi
30676 Helma-
sími 42239
Volkswagen '56-'65
Höfum til sölu mikið úrval af nýrri og eldri
gerðum bíla. Bílar sem greiða má með skulda
bréfum, T.d. Austin Gipsy, Rambler, Skoda,
Simca o.fl.
Bílasalinn við Vitatorg.
símar 12500 og 12600
H0SNÆÐISMALAST0FNUN
ríkisins á mmm
Stofnunin er lokuð í dag, föstudag 21. júní,
vegna skemmtiferðar starfsfólks.
húsnæðismá'laSTofnun rikisins
LAUGAVEGI 77,»SllVII 22453
_______________ ■ * •
Fyrir afteins kr. 68.500.oo getið þér fengiö staðlaða
eldhúsinnréttingu I 2 — 4 herbergja ibúðir, meö öllu tll-
heyrandi — passa i flestar blokkaríbýftir,
Innifaliö i veröinu er:
Skrifstofumaður óskast
Ungur maður óskast strax til framtíðarstarfs
við bókhaldsdeild félagsins. Reynsla við skrif-
stofustörf nauðsynleg svo og enskukunnátta.
Umsóknareyðublöðum, sem fást á skrifstof-
um vorum, skal skilað til skrifstofu starfs-
mannahalds fyrir 30. júr’' -
0 eldhúsinnrétting, klædd vönduðu plasti, efri
cg neðri skápar, ásamt kústaskáp (vinnupláss tæpir 4 m).
# ísskápur, hæfilega stór fyrir 5 manna fjölskyldu I
kaupstaö.
^uppþvottavél, (Sink-a-matic) ásamt eldhúsvaski.
Llppþvottavélin þvær upp fyrir 5 manns og að auki má nota
hana til minniháttar tauþvotta. (Nýtt einkaleyfi).
0 eldarvélasamstæða með 3 hellum, tveim
ofnum, grillofni og steikar- og bökunarofni. Timer og önnu'r
nýtlzkú hjálpartaeki.
0 lofthreinsari, sem með nýrri aðferð heldur eld-
húsinu lausu við reyk og lykt. Edginn kanall — Vinnuljós.
Allt þetta fyrir kr. 68.500.oo. (söluskattur
innlfalinn) Ef stöðluð innrétting hentar yður ékki gerum við
yður fast verðtilboð á hlutfallslegu veröi. Gerum ókeypis
Verötilboö f éldhúsinnréttingar I ný og gömul hús.
Höfum einnig fataskápa, staðlaða.
- HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKILMÁLAR -
K 1 R K J U H VOL!
REYKJAVlK
S f M t 2 17 16