Vísir - 21.06.1968, Síða 10
V í SIR. Föstudagur 2L júní 1968
FöstiHhigsgreftn —
-V 9. síöu.
svo farið, að það gripi í taum-
ana. Stendur sú hótun enn og
má vera að hún sé þaö eina
sem nú hindrar allsherjargyð-
ingaofsóknir í landinu.
"JVú skulum við víkja aö allt-
annarri tegund kommún-
isma, sem einnig hefur komið
í ljós sem andsvar við upp-
reisnar og frelsishug stúdenta.
Atburðirnir í Tékkóslóvakíu
eru nokkru þekktari hér á landi
heldur en það sem var að ger-
ast í Póllandi. Um það skrifaði
ég hér grein á sínum tíma, svo
ég þarf ekki að rekja þaö i
löngu máli. Eftir að uppvist
varð um það, að Novotny hinn
gamli Stalinisti og einræðis-
seggur ætlaði að beita herliði
til að bæla niður frjálsræðiskröf
urnar í kommúnistaflokki lands-
ins, gerðist það, að stúdentar
við háskólann í Prag risu upp
eins og koliegar þeirra í öðr-
um löndum. En sá varð munur-
inn þar, að stúdentamir og
frjálsræðisöflin höfðu þar sigur
og Novotny var steypt frá völd-
um sem yfirlýstum margföld-
um morðingja.
Sá maður í Tékkóslóvakíu,
sem mest hefur borið á í þess-
um atburöum er ungur maður
að nafni Dubcek. Hann fram-
kvæmdi það verk að steypa hin-
um illræmda Novotny og tók
síðan við forustu kommúnista-
flokksins. En Dubcek er þó frem
um millileiðarmaður, er vill fara
varlega og forðast sérstaklega
of geysta uppreisn gegn Rúss-
um. Hér verður því að geta um
annan mann sem hefur orðið
aöalhreyfiaflið og foringi hins
frjálslynda arms tékkneska
kommúnistaflokksins.
Gá heitir Smirkovsky og kom
upphaflega fram í barátt-
unni gegn nasistum í heims-
styrjöldinni. Þá var hann for-
ingi neðanjarðarhreyfingarinn-
ar í Prag sem gerði uppreisn
og náði borginni í sínar hendur
á síðustu dögum stríðsins. Þá
hagaði svo til, að bandarískar
skriðdrekasveitir Pattons voru
á leiftursókn inn f Tékkóslóv-
akíu að vestan og var í lófa
lagið að sækja fram til Prag,
en þá var það Smirkovsky sem
komst í aðstöðu til aö banna
það. Sem sanntrúaður kommún-
isti vildi hann að Rússar fengju
heiðurinn af því að frelsa
Tékkóslóvakíu.
Síðan var hann f foringja-
liði kommúnista, tók þátt f
valdaráninu 1947 og skipaði ráð-
herrasess. En hann var í ann-
arri fylkingu en Novotny og
varð því fyrir því óláni eins
og margir kommúnistar að
lenda f ónáð. Var hann dæmdur
í ævilangt fangelsi fyrir þjóðar-
svik í þeim miklu hreinsunum,
þegar kommúnistaforinginn
Slansky var tekinn af lífi. Hann
var áfram kommúnisti, en fór
mjög að hugsa sitt ráð.
Ávöxturinn af þessari fang-
elsisdvöl hefur crðið það sem
Smirkovsky nú berst fyrir af
miklum móð og kallar „lýðræð-,
islegur kommúnismi". Hann J
krefst þess að raunverulegu |
frjálsu lýðræði verði komið á í
landinu, einokun kommúnista-
flokksins verði afnumin og öör
um flokkum heimilað að bjóða
fram til þings. Þá skuli kosning
ar vera frjálsar og leynilegar.
Á standið f Tékkóslóvakíu er
þannig, að sjálfsagt er tal-
ið að þessi málstaður Smirk-
ovskys ætti sigurinn vísan, ef
ekki kæmu til utanaðkomandi
áhrif. Þar hafa Rússar skorizt
í leikinn eins og í Pólíandi en
þó með öðrum hætti. Sá atburð-
ur hefur sem sé gerzt að Rússar
hafa beitt ósvffinni hervalds-
ógnun til að bæla niöur hinn
„lýðræðislega kommúnisma.“
Rússar höfðu ekkert hemáms
lið í Tékkóslóvakíu, eins og
þeir höfðu í Póllandi. En síð-
ustu vikur hafa verið að gerast
einkennilegir atburðir á þessu
svæði, þó hljótt hafi verið um
þá. Rússar hafa gert hernaðar
lega innrás í Tékkóslóvakíu og
er þaö nú staðreynd, að iandið er
hernumið. Það er ekki nákvæm-
lega vitað, hve fjölmennt her-
námsliðið er, en þess hefur ver-
ið getið til, að það muni vera
um 40 þúsund manns með öll-
um hergögnum skriödrekum,
fallbyssum og eldflaugum.
Þesar aðgerðir hafa farið fram
í kyrrþey og verið kallaðar
„heræfingar" Varsjárbandalags-
ins. En tékkneskum almenningi
er það ljóst, að þetta er her-
nám og valdbeiting og þeir eru
ekki Iausir við það næsta dag.
Valdamenn kommúnista hafa
ekki þorað annað en veita sam-
þykki sitt, því ef þeir gerðu það
ekki, myndi harmleikurinn
frá Ungverjalandi aðeins endur-
taka sig.
Að vísu hafa Rússar lofað
því að láta þetta nýja hernáms-
lið sitt ekki skipta sér af tékkn
eskum innanríkismálum. En
jafnvel það er yfirskin, því að
tilgangurinn er auövitað eng-
inn annar en innanlandsaf-
skipti. Svo mikilvægt telja Rúss
ar það, að „lýðræðislegur komm
únismi“ fái ekki risið upp. En
Tékkar vita hvað klukkan slær,
meðan rússneskt hernámslið
dvelur í landinu, er þeim hollara
að fara varlega.
Þorsteinn Thorarensen.
sé sannkallaður ferðamannabær
þessa dagana.
Á myndinni sem er tekin fyr-
ir fáum dögum eru tvær blóma-
rósir við brjóstmynd frú Mar-
grete Schiöth í Skrúðgarðinum
á Akureyri, en hún gerði öðrum
fremur þann garð frægan.
Blómarósirnar tvær voru
meðal allra fyrstu gesta sem
gistu tjaldsvæði Akureyringa á
þessu vori, en fengu samt heita
og lygna sólskinsdaga eins og
á suðlægari breiddargráðum
væri. Auðvitað var ekki látiö
hjá líða aö heimsækja hinn róm-
aða skrúðgarð Akureyringa þótt
hann enn hafi ekki skartað sínu
fagra sumarskrúði.
Vonandi á Akureyri eftir að
verða meira en hálfdrættingur
á við Mallorca í móttöku ís-
lenzkra feröamanna á þessu
sumri af mörgum ástæðum.
Konur —
SÍS —
-> 16. síðu.
BORGIN
-> 16. síðu.
Roy —
m—> 7. söíu.
það réttarhald, og hann væri
ekki opinber málsaðili í augum
brezkra dómstóla.
Hann vildi ekki skýra frá því,
hver mundi greiða laun hans,
eða hversu há þau væru. Þegar
athygli hans var vakin á því,
að Ray hefði ekki haft mikið fé
í fórum sínum þegar hann var
handtekinn, svaraöi Hanes því.
að hann treysti því að hann
fengi laun sín greidd.
Hanes hefur áður varið þrjá
meðlimi Ku Klux Klan-hreyfing-
arinnar, sem dæmdir voru til
langrar fangelsisvistar f Mont-
gomery í Alabama fyrir morð á
hvítri konu, sem baröist fyrir
mannréttindum.
Akureyri —
1. Síðu.
eftir föngum, og skipulagningin
við talninguna yrði nú með allt
öðrum hætti en var við talningu
atkvæða í alþingiskosningunum í
fyrra.
VlSIR ræddi viö Pétur Guð-
finnsfcn hjá sjónvaipinu í morg-
un. Sagði Pétur, aö sjónvarpið
hefði ákveðið, að nafa einhverja
dagskrá á mánudag eftir kosning-
ar. Mætti ger< ráð fyrir, aö dag-
skráin hæfist kl. 17.00 um daginn.
Þó sagði Pétur, að ef talning at-
kvæða hæfist strax um nóttina eftir
að kjörstööum hefur verið lokað,
yrði ákvörðun sjónvarpsins tekin
til endurskoðunar í samræmi við
það.
veitingar, en sjaldnast væri slíkt
tekið til greina. Taldi hún aö konur
sætu mjög á hakanum er embætti
væru veitt, t.d. eru mjög fáar ís-
lenzkar konur t.d. skólastjórar, þó
að konur í kennarastétt séu mjög
margar.
Flugvirkjar —
l sfðu
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins sagði í stuttu viðtali við
Vísi í morgun, að ekki væri unnt
að skýra frá að svo komnu máli,
hvað hinir nýju samningar hefðu
inni að halda. Sagði Björgvin, að
fundur samninganefndarinnar og
fulltrúa Vinnuveitendasambandsins
hefði hafizt kl. 16.00 í gær, og eins
og fyrr segir heföi samkomulag
verið undirritað kl. 3 f nótt.
Félagsfundur um samningana
verður í Flugvirkjafélagi íslands
kl. 17.00 í dag, og að því er Björg-
vin sagði, verður einnig fundur f
framkvæmdanefnd Vinnuveitenda-
sambandsins f dag og þar fjallað
um samkomulagið og það boriö
undir atkvæði.
Landanír —
-> 1. sfðu
Kosninganóft «—
%--v 16 sfðu
heföi komiö pöntun frá London
fyrir 10 stóra hópa, sem ætla
til Akureyrar í sumar. Mikið er
líka af erlendum ferðamönnum
í bænum, sem ferðast á eigin
vegum, og má segja að Akureyri
inn er ísaður um borð í
bátnum á miðunum og
reyndist hann misjafn-
lega góður til vinnslu.
Fleiri bátar munu nú vera
að leggja upp í veiðiferðir með
línu á Grænlandsmið. Þorsteinn
RE mun vera að búast á veiðar
þangaö, en hann er nýkominn
frá Þýzkalandi, þar sem hann
landaði síld úr Norðursjó.
Þórkatla Grindavík landar í
dag saltfiski og lúðu af Græn-
landsmiöum 40—50 tonnum.
í vikunni lönduðu þessir tog-
arar í Reykjavík: Ingólfur Am-
arson 273 tonnum, Jón Þorláks-
son 296 tonnum, Narfi 350 tonn-
um og Sigurður 150 tonnum af
karfa, en hann hafði losað nokk-
uð af afla sínum úr seinustu
veiðiferð í Vestmannaeyjum.
Virðist afli vera góður hjá tog-
urunum. Mestur hluti hans er
karfi.
Trollbátar hafa fengið reytings
afla. Til dæmis kom Fróði inn
til Reykjavíkur nýverið með 20
tonn, sem hann fékk á einum
sólarhring. Fróði er aðeins 35
lesta bátur.
Suðurnesjabátar hafa einnig
rekið í sæmilegan afla í fiski-
troll, en humarbátar hafa hins
vegar lítið aflað.
verið dregnar saman eða lagðar
niður. Starfsfólki var fækkað
um 145 á árinu.
Erlendur Einarsson benti á
að þrátt fyrir skakkaföllin, sem
íslenzkt atvinnulíf hefði orðið
fyrir, væri samvinnuhreyfingin
fjárhags- og félagslega öflug, en
vegna ástandsins yrði að breyta
um stefnu. Sýna yrði meiri að-
gæzlu í fjármálum en áður,
lánsverzlun væri orðin svo á-
hættusöm, að samvinnufélögin
yrðu nú að stórminnka og í sum
um tilvikum stöðva með öllu
lánsverzlun. Taka yrði upp
sparnað á öllum sviðum.
bJOHUSTA
Reiðhjól. Hef opnað reiðhjóla
verkstæði t Efstasundi 72 Gunnar
Palmersson, Slmi 37205.
Tek að mér að slá bletti með
góðri vél. Uppl. I síma 36417.
Gluggaþvottur — HreinSerningar
Gerum hreina stigaganga og stofn-
anir, einnig gluggahreinsun. Uppl
i síma 21812 og 20597.
Geri við kaldavatnskrana og WC
kassa. Vatnsveita Revkjavíkur.
Húseigendur — garðeigendur! —1
Önnumst alls konar viðgerðir útií
og inni, skiptum um þök, málumJ
einnig. Girðum og steypum plön.i
helluleggjum og lagfærum garða.j
Sími 15928 eftir kl. 7 e.h. i
Slæ garða með orfi. Sími 109231
eftir kl. 4. _ (
Sláum bletti í Vesturbænum. —
Góð vél. Sanngjarnt verð. Óli og
Gummi. Sími 14950.
vmm.
ökukennsla Lærið að aka bíl
þar sem bflaúrvalið er mest. Volks
wagen eða Taunus. þér getið valið
hvort þér viljið karl eða kven-öku-,
kennara Otvega öll gögn varðandi
bílpróf Geir Þormar ökukennan I
Símar 19896. 21772, 84182 og 19015 |
Skilaboð um Gufunesradíó Slmi t
22384.
ÖKIJKENNSLA.
Guðmundur G Pétursson.
slmi 34590
Ramblerbifreiö
Ökukennsla. Vauxhal) Velox bif-
reið Guöjón Jónsson, slmi 36659
Ökukennsla — æfingatimar Simi^
81162. Bjarni Guðmundsson.___
Ökukennsla, kennt á Volkswagen^
æfingatímar. Sími 18531.
Lærið akstur g meðferö bifreiða
hjá löggiltum ökukennara, hæfnis-
vottorð og ökuskóli. G V Sigurðs-
son, ökukennari. Sími 11271.
Ökukennsla. Taunus. Sími 84182.
” aátfiilil
BELLA
„Það er nú samt miklu verra
fyrir mig en yöur að ég skuli hafa
týnt miðanum — nú man ég ekki
hvar ég ætlaði úr vagninum.
niKVNNING
„Litlabíó“
kvikmyndaklúbburinn.
Háskóladagar mínir (Gorkí) eftir
Danskoj (Rússn. 1938).
Sýnd kl. 9.
íslandsmynd frá 1938 o.fl. myndin
Sýnd kl. 6.
Dansk Kvindeklubs sommerud-
flugt til Vestmannaöerne er plan
lagt d. 25. 6., og vi mödes i luft-
havnen kl. 8. I tilfælde af udsætt
else pá grund af dárlig flyvevejr
bedes man tirsdag morgen pr.
telefon have 'orbindelse med
Flugfélag Islands
Bestyrelsen.
Ökukennsla — Æfingatímar. —,
Kenni á Taunus, tímar eftir sam-t
komulagi, útvega öll gögn. Jóel.
B Jakobsson. Símar 30841 og l
14534
Ökukennsla, æfingatímar. Hörð-t
ur Ragnarsson, Imar 35481 og;
17601. — Volkswagenhifreið.
Ökukennsla. Kenni á VW-bif-1
reið. Vardimar Lárusson. Uppl.)
í síma 42123._______________
Ökukennsla. Kennt á VolkswagenJ
Æfingatímar. Sími 18531.
Bæjarfréttir.
Ráðhús bæjarins
er ekki til ennþá, en í gær skip
aði bæjarstjórinn nefnd til þess
að velja heppilegan stað fyrir það.
I nefndína voru kosnir: borgar-
stjóri, forseti og skrifarar borgar
stjórnarinnar.
21.júní 1918.
i/EORIÐ
OAG
Norðaustan
gola, léttskýjað
að mestu. Hiti
11—14 stig I
dag, 6—9 í nótt
WMET
Minnsta ríki >' heimi er Vatíkan
ið á Italíu, sem er aðeins um 44
hektarar aö flatarmáli.