Vísir - 27.06.1968, Blaðsíða 5
VÍSIR . Fimmíudagur 27. júní 1968.
5
V '
■llll#
Hér sjáum við nokkrar tegundir af pappaglös um, diskum, skálum og bollum, sem fást f
Silla og Valda í Austurstræti. Á myndinni eru einnig plasthnífapör fyrir útilegur og alú-
mfndiskar.
Pappadiskar
í útileguna
Jþrátt fyrir kuldatíð eru margir
íslendingar famir að hugsa
til sumarleyfa úti á iandsbyggð-
inni í tjöldum eða sumarbústöð-
um. Tjaldferðir eru mjög vinsælar
bæði meðal yngra og eldra fólks
og þó aö áður fyrr hafi fólki þótt
nægjanlegt að dveljast í tjaldi
eina og eina nótt f senn þá hefur
hinn margbreytilegi og þægilegi
ferðaútbúnaður, sem nú er kom-
inn á markaðinn, gert það að verk
um að fólk getur nú dvalizt í
tjöldum vikum saman og búið við
beztu þægindi.
Helztu vandræðin í sambandi
við slíkar útilegur eru jafnan í
sambandi við matartilbúninginn
fyrst og fremst að halda matn
um óskemmdum og hins vegar
að hreinsa mataríiátin, þar sem
uppþvottur úr köldu vatni er
jafnan óþrifalegur og seinlegur.
Fyrra atriðið verður að sjálf-
sögðu ekki leyst til hlítar fyrr
en hægt verður aö koma upp ís-
skáp í tjaldinu, en niöursuöumat
ur og ýmiss konar umbúðir og
ílát sem gerð eru sérstaklega til
að geyma mat f til lengdar, hafa
þó gert það að verkum að þetta
þarf ekki lengur aö vera til telj
andi óþæginda.
Hitt atriöið aftur á móti,
varðandi uppþvottinn hefur ver
ið leyst á þann hátt, að í staö
þess að nota þunga og óþægi-
lega gler- eða postulfnsdiska
með tilheyrandi stálhnífapörum
er nú hægt að fá þægilega
pappa- eða plastdiska og hlið-
stæð hnífapör, sem í flestum til
fellum er aöeins notað einu
sinni og síðan hent. Með þessu
móti er ekki aðeins hægt að
losna við kámuga og fyrirferöar
mikla matardiska, heldur hrein-
lega losna við allan uppþvott.
Hnífapörin má hins vegar nota
oftar en einu sinni, en þau eru
úr hörðu plasti, sem mjög auð-
veit er að þvo, jafnvel þó að
heitt vatn sé ekki fyrir hendi.
Margar íslenzkar matvöru og
pappírsvöruverzlanir hafa til
sölu þessa pappadiska, bolla,
glös og skálar í óteljandi gerð-
um. Bæði er hægt að fá stóra
pakka af einlitum diskum sem
kosta 70—80 krónur og einnig
er hægt að fá skrautlega og fall
ega diska í minni pökkum sem
eru hlutfallslega nokkru dýrari.
Glös meö litlu handfangi fást
einnig og eru þau sérstaklega
gerð fyrir heita drykki og húð-
uð með plasti. Litlar skálar (10
stk. f pakka) sem eru mjög hent
ugar fyrir salöt, ís, ávexti o.fl.
kosta um 25 krónur pakkinn.
15 stykki f pakka af stórum disk
um hólfuðum niður fyrir mis-
munandi mat, kosta um 75 krón
ur.
Glösin eru þó ef til vill vin-
sælust af öllum þessum pappírs
ílátum, þvf aö þau eru mikið
notuð á heimilum, t.d. fyrir
börn. Ef þið þurfið að halda
barnaafmæli á næstunni, þá er
tilvalið að kaupa mislit pappa-
glös, þvi að þá er engin hætta á
að börnin brjóti glösin.
Alumínílát eru líka mjög
æskileg bæði í heimahúsum og
í útilegum því að þau halda
matnum mjög vel köldum. Alu-
míndiskar eru fáanlegir en þeir
eru fremur dýrir, þó að vfsu
megi nota þá oftar en einu sinni.
Ef þið eruö á leið f útilegu áð
ur en langt um líöur, þá ættuð
þið að athuga hvort ekki væri
ráð aö skilja alla þungu diskana
og hnífapörin eftir heima og
losna algerlega við uppþvott
inn með því að nota létta pappa
eða plastdiska.
Húsfreyjan skrifar
um kvenfélög í
nútímaþjóðfélagi
1 nýútkomnu blaði Kvenfélaga
sambands íslands, Húsfreyjunni
er m. a. viötal við Freyju Nor-
dahl, Svövu Jakobsd., rithöfund
og Hallveigu Arnalds, kennara
um þaö hvort kvenfélög eigi
rétt á sér í nútímaþjóöfélagi. Þá
er f blaðinu grein nr. 4 um is-
lenzka þjóöbúninga, mannrétt-
indaþáttur, heimilisþáttur, grein
um hlutverk mæðra, rúmfatnað
og einnig er sagt frá Kvenna-
samtökunum f Kópavogi. Leið-
beiningastöð húsmæðra og
ýmsu öðru. Ritstjóri blaðsins er
Sigríður Thorlacius og er verð
blaðsins í lausasölu 35 krónur.
VEUUM (SLENZKT <H> [SLENZKAN IÐNAÐ
Umbúðasamkeppni
Iðnkynningin 1968 (Félag íslenzkra iðnrek-
enda og Landssamband iðnaðarmanna) býður
til fyrstu íslenzku umbúðasamkeppninnar.
Samkeppnin er fyrir allar gerðir umbúða,
jafnt flutningaumbúðir og sýninga- og neyt-
endaumbúðir. Þátttökuskilmálar eru sem hér
segir:
1. Sérhver íslenzkur umbúðanotandi, um-
búðaframleiðandi eða sérhver sá, sem hef-
ur með höndum gerð eða hönnun umbúða,
getur orðið þátttakandi, en þó verður í öll-
um tilvikum að afla leyfis annarra við-
komandi aðila. Þær umbúðir, sem þátt
taka í samkeppninni, verða að vera hann-
aðar eða framleiddar á íslandi og hafa
komið á markað hér eða erlendis.
2. Allar umbúðir, sem sendar eru til umsagn-
ar, skal afhenda burðargjaldsfrítt í þrem-
ur eintökum, — og skulu, ef unnt er, tvö
þeirra vera með innihaldi en eitt án inni-
halds. Fyrir sérstakar gerðir umbúða er
hægt að veita undanþágu frá þessari
reglu. Umbúðirnar ásamt upplýsingum
samkvæmt lið 3 skal senda til Iðnkynning-
arinnar, Lækjargötu 12, IV. hæð, Reykja-
vík, fyrir 1. september 1968.
3. Eftirfarandi upplýsingar skulu fylgja:
a) Nafn og heimilisfang þátttakenda. b)
Umbúðarframleiðandann. c) Umbúðanot-
andann. d) Þann, sem séð hefur um
hönnun.
Gjald fyrir tilkynningu hverrar umbúðarteg-
undar (eða umbúðarseríu, sem óskast dæmd
sem heild) er kr. 500.00, sem sendar skulu í
ávísun með þátttökutilkynningu.
Þeir sem hug hafa á þátttöku geta fengið ein-
tak af reglum dómnefndar í skrifstofum
Landssambands iðnaðarmanna og Félags ís-
lenzkra iðnrekenda, Iðnaðarbankahúsinu,
Reykjavík.
IÐNEYNNINGIN 1968
Knattspyrnudómarar
Almennur fundur verður haldinn í Tjarnar-
búð, uppi, föstudaginn 26. júní kl. 20.30.
STJÓRN K.D.R.