Bókasafnið


Bókasafnið - 01.03.1990, Síða 45

Bókasafnið - 01.03.1990, Síða 45
Anna Torfadóttir deildarstjóri, Borgarbókasfni Siðfræði í bókasafni Greinin er byggð á erindi sem flutt var á ráðstefnu norrænna bókasafnsfræðinema í október 1989■ Umræðuefni ráðstefnunnar var tvíþætt: Siðfræði bókasafnsfræðinnarog ókeypis þjónusta bókasafna. Þegar ég fór fyrst að rekast á greinar um siðfræði bóka- safnsfræðinnar í erlendum fagtímaritum hugsaði ég með mér: Mikið er gott að vita að það eru til skýjaglópar innan um alla jarðbundnu bókaverðina! Ég hafði sannast sagna ekkert hugsað um siðfræðilegu hliðina á starfinu sérstaklega og má segja að mínar siðfræðilegu vangaveltur í vinnunni hafi falist í því að reyna að vera hlutlaus og hlut- læg í bókvali og upplýsingaþjónustu. Siðfræði og siðareglur (codex ethicus) tengdi ég, eins og flestir, læknum og öðrum heilbrigðisstéttum ásarnt lögfræðingum og prestum. Þessi háfleygu orð voru í mínum huga jafnfjarri bókasafnsfræðingum og t.d. verk- fræðingum og jarðfræðingunr, svo dæmi séu tekin. Æ fleiri bókasafnsfræðingar velta nú fyrir sér siðfræði stétt- arinnar og er þessi ráðstefna merki um aukinn áhuga á Norðurlöndunum fyrir málinu. Siðfræði er raunar ekki bara „í tísku“ innan bókasafnsfræðinnar heldur er ævin- lega verið að fjalla um siðfræði manna á meðal, um sið- fræði stjórnmálamanna, uin siðfræði sérfræðinga og jafn- vel um siðfræði tóbaksreykinga. Þegar fjallað er um siðfræði bókasafnsfræðinnar er oft fjallað um hana í tengslum við „fagmennsku". Lítum því aðeins á hvað felst í orðinu fagmaður. Kristín Indriða- dóttir fjallaði nýlega urn fagvitund bókavarða (Kristín:1989) og notaði skilgreiningu dr. Broddajóhann- essonar, fyrrverandi rektors Kennaraháskóla íslands, á hugtakinu fagmennska „profession" (sem hann kallar „lífsstarf1 eða „skuldbundið lífsstarf1) og ætla ég að leyfa mér að taka þessa ágætu skilgreiningu Brodda aftur upp: „Starfið veltur á viðurkenndum forða sameiginlegrar sér- þekkingar, kunnáttu sem leikni og sameiginlegu siðgæði starfsmanna. Gæta þeir þess sjálfir án ytri íhlutunar og afþví hugarfari, að skyldur þeirra við skjólstæðinga sína séu æðri öðrum skyldum starfsins." (Broddi'.l978, s. 12). Áður fyrr voru svokallaðar fag- eða sérfræðingastéttir fáar en í æ flóknara samfélagi nútímans hefur þeim fjölgað mjög. Alveg ný sérhæfð störf hafa komið fram og önnur störf hafa breyst í tímans rás og orðið sérhæfðari. Dæmi um hið fyrra, þ.e. nýja sérfræðingastétt, eru kerfisfræð- ingar og hið síðara eru bókasafnsfræðingar eða upplýsinga- fræðingar (Lindsey:1985, s. 3) sem koma í stað (eða vinna við hlið) bókavarða sem höfðu (eða hafa) mjög mismun- andi menntun, allt frá skyldunámi til háskólamenntunar. Það er innan hinna ýmsu fagfélaga sem rætt er um sið- fræði og siðareglur eru settar, bæði formlegar og óform- legar, félagsmönnum þeirra til leiðbeiningar. Þessar reglur eru oftast strangari eða smámunasamari en „venju- legar“ siðareglur í samfélaginu (Lindsey:1985, s. 3). Hér á landi velta menn nú nrikið fyrir sér siðfræði stéttar sinnar og má nefna hér þrjú nýleg dæmi: Lyfjafræðingafélag íslands samþykkti siðareglur á aðalfundi þann 18. mars 1989, á aðalfundi Lögfræðingafélags íslands þann 26. okt- óber 1989 var aðalefnið „Lögfræðingar og siðferðileg ábyrgð“ og íjanúar 1990 gaf Læknafélag íslands út sérhefti af Læknablaðinu sem helgað var siðfræði. Áður en lengra er haldið á þessari braut siðfræði og siðareglna er rétt að staldra við. Þótt við séum trúlega sammála um að bókasafnsfræðingar séu fagstétt þá er rétt að spyrja sjálfan sig hér tveggja spurninga: Er í fyrsta lagi nokkur þörf fyrir einhverja sérstaka siðfræði, hvað þá siðareglur í starfi? Þurfum við m.ö.o. öðru vísi siðareglur í starfi en við förum eftir í einkalífi? Stöndum við bóka- safnsfræðingar í öðru lagi nokkurn tíma franmii fyrir sið- fræðilegum vandamálum sem eru sérstök fyrir okkar starfsstétt? Eru þetta ekki allt saman, eins og ég sló fram í upphafi, bara einhverjir hugarórar skýjaglópa? Varðandi fyrri spurninguna, þ.e. hvortnokkurþörfséá sérstökum siðareglum í starfi, hefur verið bent á að sömu siðareglur eigi ekki alltaf við í einkalífi og í starfi. Nærtækt dænri um slíkt er að það sem er talið siðferðilega rétt í einkalífi, eins og að láta sér annt um og jafnvel hygla ætt- ingjum sínum og vinum, er talið siðferðilega rangt í starfi. Varðandi seinni spurninguna, þ.e. hvort bókasafns- fræðingar standi frammi fyrir sérstökum vandamálum, er af mörgu að taka og er nærtækast að byrja á persónulegu dæmi. Þegar ég var að safna heimildum í þessa grein sneri ég mér til bókasafns eins og vera ber. Eitt af þeirn ritum sem ég þurfti var í útláni og var útlánsfresturinn löngu liðinn. Bókavörður sagði að ég þyrfti engu að kvíða því að NN kennari, sem væri með bókina að láni, skilaði alltaf um leið og safnið innkallaði. Þarna sinnti starfsmaður vel þeirri „siðferðilegu" skyldu sinni að afla upplýsinga/heim- ilda fljótt og vel fyrir lánþega en braut aftur þagnarskyldu með því að láta óviðkomandi vita hvaða lánþegi hefði ákveðið rit að láni. í mörgum bókasöfnum hérlendis tíðkast að senda opið bréfspjald til lánþega með tilkynningu um að rit séu komin í vanskil eða að ákveðið rit, sem lánþegi hefur pantað, sé tilbúið til útláns. Nýlega gerðist það í Reykjavík að 14 ára strákur, sem var búinn að lesa allt um sprengjugerð sem hann kom höndum yfir í bókasöfnum hér, vildi láta panta fyrir sig frá útlöndum ítarlegri rit um þetta áhugamál sitt. Bóka- vörður reyndi að draga úr áhuga stráksa með því að segja að hann væri of ungur til að notfæra sér þessa þjónustu. Fékk hann þá fullorðinn mann, sem á við alvarlegan BÓKASAFNIÐ 45

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.