Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Blaðsíða 7
DV. MÁNUDAGUR 20. JUNI1983. 7 Neytendur Neytendur Ódýrir og góðir tómatar vekja ósvikna ánægju. Tómatar á sumarútsölu: SUMIR KAUPMENN FARA NIÐUR FYRIR HEILDSÖLUVERÐ Þá eru tómatarnir komnir á langþráða sumarútsölu. Þeir lækkuðuí heildsöluverði núna fyrir helgina úr 70 krónum í 50. Margir kaupmenn hafa hins vegar farið með verðið enn neðar og heyrst hafa auglýsingar í útvarpi frá verslunum sem selja tómata niður í 39 krónur kílóið. Eru kaupmenn þá ugglaust að selja tómata sem eru orðnir þaö vel þroskaðir aö þeir geymast lítið. Er lofsvert þeirra framtak í því að leyfa neytendum að kaupa þessa vöru fremur á ódýru verði enaöhendahenni. Það ætti ekki að vera þörf á því að hvetja menn til þess að úða í sig tóm- ötum á þessu lága verði. Tómatar eru mjög góðir A-vítamíngjafar. Ur 25 grömmum af tómötum fæst dag- skammtur af þessu vítamíni sem stuðlar að heilbrigði vefja og er græð- andi. Augun þurfa einnig A-vítamín. Sömuleiðis er mikið af B-vítamíni í tómötum, að ógleymdu C-vítamíninu sem gnægð er af. Þá er töluvert af kalsíum í þessum góða ávexti. Hitaein- ingar eru fáar, aðeins 14 í 100 grömmum af ferskum tómötum. Hægt er að matreiða tómata á hinn fjölbreytilegasta hátt. Eftir að fólk hefur komist á bragðið finnst því þeir oft hreinlega ómissandi með mat. Niðurskomir i salöt, ofan á brauð, í pottrétti, ofnrétti, grillaðir, bakaðir og steiktir. Einnig sér eða meö öðru. Oft er í uppskriftum mælt með því að hýði tómata sé fjarlægt. Það er best að gera með því að dýfa tómötunum í sjóöandi vatn í 10 sekúndur og svo strax í kalt vatn. Hér á eftir fara nokkrar uppskriftir með tómötum í. Vorsalat Tómatar skomir í báta smátt skorinn laukur Italian garlic dressing eða matarolía edik krydd, aðallega hvítlauksduft Tómatbátarnir settir í skál og lauknum stráö yfir. Olíunni helt yfir og látið standa í 10 mínútur í kæli áöur- en borið er fram. Unaðslegt meö öllum mateöa eittsér. Tómatar au gratin 450 g stórir tómatar 50 g brauðrasp 50 g rifinn ostur 50 g smjör salt og svartur pipar 1 tsk /5 ml sinnepsduft söxuð steinselja Smyrjið ofnfast fat. Afhýðið og sneiðið tómatana. Utbúið til skiptis lög af tómötum, rifnum osti og raspi. Kryddið hvert lag og setjið á það nokkrar smjörklípur. Endið á osti og raspi. Bakið við 190 gráða hita i 40 minútur. Steinselju stráð yfir. Tómata- og eplamauk 500 g þroskaðir tómatar 500 g rauð epU 750gsykur HeUið sjóðandi vatni yfir tómatana og flettið hýðinu af þeim. Afhýðið eplin og skerið kjamann úr. Skerið tómatana og eplin í litla bita og setjið í pott ásamt sykrinum. Ef notaður er minni sykur eða meira af tómötum en gefið er upp í uppskriftinni þarf að nota sultuhleypi. Sjóðið þar tU tómatar og epU eru orðin meyr og lögurinn farinn að þykkna. Fylltir tómatar 9 stórir tómatar 2 laukar 1/4 púrra smjör 1 h vítlauksrif ltsk. oregano ca 1/4 tsk. salt pipar 2 harðsoöin egg ca 2 dl rifinn ostur Saxið laukinn og púrruna fínt. Steikið í smjörinu þar tU laukurinn er mjúkur og guUinn. Bætið saman við hvítlauknum, sem er annaðhvort press- aöur eða skorinn mjög fínt, oreganoi, salti og pipar. Að siöustu eru harðsoðnu eggin, sem hafa verið hökkuð eða stöppuö, sett saman við. Skerið ofan af tómötunum og hoUð þá að innan með teskeið. „Innmatinn” er hægt að nota í salöt. FylUð tómatana með því sem á pönnunni er og leggið lok af rifnum osti ofan á það. Bakiö í ofni við 250 gráða hita í 10—12 mínútur. Berið fram með brauði og köldum drykkjum. Otal aðrir möguleikar err á að fylla tómata. Um 3 stórir tómatar eru ætlaðir á mann eða 4 Utlir. Þessi uppskrift hér að ofan hentar því þrem. DS. Leiðrétting: Standberg skal standa A Neytendasíðunni síðastliðinn um. Nafn fyrirtækisins sagði púkinn þriöjudag var sagt frá vörukynningu að væri Steinavör en átti að vera sex fyrirtækja. Nafn eins fyrútækis- Standberg. Biöja aUú púkar Stand- ins misritaðist. Púkinn hljóp á rit- bergsmenn forláts. vélarborðinu með þessum afleiðing- -sa 301 - PERM OF PERMA PRIMER FLJOTANDI ÁLKLÆÐNING Stór kostur þessarar þakklæðningar er sá að það má bera á gömul pappa- þök, þótt illa séu farin af veðrun eða leka. Þetta efni er vatnsþétt, endur- kastar hita, verndar gegn veðrun og minnkar fokhættu að mun, stenst vel útfjólubláu geisla sólarinnar. Þetta efni er mjög teygjanlegt, sterkt og lin- þornar ekki, en hefur mjög sterkan slitflöt. Þar sem um engin samskeyti er að ræða, þá sparar þetta kostnað- inn við upphitun hússins. Viðhalds- kostnaður er sára litill en gera má ráð fyrir að setja eina umferð af efninu á 10—12 ára fresti sem er ólíkt þeim kostnaði við að þurfa að mála báru- járnið á 3—4 ára fresti. Þetta efni stenst vel alkalí, sýrur og seltu og önnur óhreinindi. Fæst í litum. Höfum 10 ára gamlar þakklæðningar og skrif- legar yfirlýsingar af ástandi þakanna í dag. Hafið samband og kynnið ykk- ur verð og greiðslukjör. Leitið tilboða tímanlega. Gerum tilboð yður að kostn- aðarlausu. Upplýsingar veitir GUNNAR F.E. MAGNÚSSON, MÚRARI í síma 91-20623 kl. 12-14 og eft- ir kl. 18. ^PIast- þakrennur Hvað gerir plastþakkrennurnar frá Nýborg sérstæðar? m % • Samsetning er auðveld í mismunandi veðrum. Engin líming, enginn lóðning eða þörf fyrir sérstök verkfæri o ’ • Sterkur plast-profill úr hörðu P.V.C. 0 • Þær henta vel öllum byggingum, nýjum sem gömlum. Þær koma í stað gömlu zinkþakrennana og passa í gömul rennujárn. LJ • Rennuböndin eru gerð með tilliti til miklis snjóþunga. • Tengihlutarnir eru með gúmmílistum er leyfa þenslu eftir mismunandi hitastigi. • Ekkert viðhald og þarfnast ekki málunar. • Litið við, hringið eða skrifði eftir upþlýsinga- og myndbæklingi. Ávallt eitthvað nýtt í Nýborg Ármúla 23

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.