Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Blaðsíða 16
16 DV. MÁNUDAGUR20. JUNI1983. Spurningin Fyndist þér að herða ætti eftirlit með ferðum erlendra ferðamanna um ísland? Erlendur Magnússon, skemmdar- verkamaður: Eg held aöþaö þurfi. Viö fáum ekki aö fara um hálendi annarra landa nema undir eftirliti og viö þurf- um að varðveita okkar land út i ystu æsar. Islendingar kunna ekki að ganga um landiö sitt. Hinrlk Þórisson, atvinnulaus: Eigum viö ekki bara aö leyfa þeim aö vera villtir? Dfana Ágústsdóttir, starfsmaður Álafoss: Já, ég myndi ætla þaö. Þaö hefur veríð talað um þaö undanfaríö og ég er hlynnt því. Svanhvít Ingjaldsdóttir húsmóöir, Akureyri: Já, mér fyndist að ætti að setja einhverjar takmarkanir á feröir þeirra. Skúli Magnússon, atvinnulaus: Já, mér finnst þaö. Islensk náttúra er of dýr til aö eyðileggja hana. William Thomas Mölier, fuiltrúi lög- reglustjóra: Já, vegna spjalla á nátt- úru landsins. Umferð um hálendiö hef- ur aukist og öræfanáttúran er mjög viðkvæm. Leiftursóknin hef- ur þegar brugðist Ragnar A. Þórsson skrifar: I kosningabaráttunni í vor voru kjósendur alvarlega varaðir við valdatöku íhaldsins í landinu. Sú aö- vörun dugöi skammt og hægriflokk- amir náðu þingmeirihluta þótt naumur væri. Þegar stjómarmyndunarviöræður Steingríms og Geirs stóðu yfir varð flestum ljóst að kaupránsstjóm var í fæöingu. Berorðar yfirlýsingar for- ystumanna hægriflokkanna og mál- gagna þeirra voru vísbendingar um þaö sem koma skyldi. Undir leiösögn Jóhannesar Nordal og Jóns Sigurðssonar undirbjuggu framsókn og íhaldiö stjómarsátt- mála sem á sér engan líka í sögu ís- lenskalýðveldisins. Þær efnahagsaö- geröir sem fylgdu í kjölfarið eiga sér enga hliðstæðu í nútíma lýöræöisríki. Ríkisstjómin skeröir kaupmátt alls launafólks í landinu stórlega án þess aö nokkuð komi í staðinn. Samn- ings- og verkfallsréttur er numinn úr gildi og veröbætur á laun bannaöar á meðan verölag hækkar stööugt. Bráöabirgöalög ríkisstjórnarinnar standast hvorki lög né hefðir fr jálsra þjóða. Lítil vinna Afleiðingar kreppuáætlunar ríkis- stjórnarinnar hafa nú þegar litiö dagsins ljós. Kaupmáttur verkafólks er nú lakari en um langt árabil og at- vinnuleysi færist í aukana. Verð- bólgan veöur áfram og þrátt fyrir gífurlegar kjaraskerðingar hækkar verö á öllum vörum og opinberri þjónustu stööugt. Astandið í efnahagsmálum þjóðar- innar fer nú ört versnandi og efna- hagsaögeröir ríkisstjórnarinnar flýta fyrir þeirri þróun. Bráða- birgöalögin munu kalla fram mikinn samdrátt hjá innlendum iönaöi og verktökum. Jóhannes Nordal og Jón Sigurös- son em helstu hugmyndafræðingar ríkisstjórnarinnar í efnahags- og launamálum og munu þeir væntan- lega svara fyrir sig þegar efnahags- smu. lífið er komiö í rúst og heildsölumar standa einar eftir upp úr kreppunni aö Seölabankanum meötöldum aö sjálfsögðu. Sjálfskipaðir hagfræðingar Vinnu- veitendasambandsins, Verslunar- ráösins og SlS hafa fengið tækifæri til aö spreyta sig á efnahagsvanda þjóðarinnar. Þaö tók þá eina viku aö sanna að þeir væru ekki færir um aö stjórna þjóðinni frekar en sínum eigin fyrirtækjum. Heildsölukóngar, braskaralýöur og stórkaupmenn stjóma fjármála- og efnahagsstefnu þjóðarinnar. Erindrekar NATO og Alusuisse fara meö utanríkis- og iðnaðarmál. Áhrif Framsóknarflokksins em tak- mörkuö en munu væntanlega nægja honum til áframhaldandi vafasamra stöðuveitinga h já hinu opinbera. Leiftursóknin sem Framsókn baröist gegn og ihaldiö þóttist ekki kannast viö í kosningabaráttunni í vor er nú komin til framkvæmda. Leiftursóknin inniheidur ekkert annaö en kauprán og aftur kauprán. Sú ríkisstjórn sem nú fer með völd ógnar öllu því sem áunnist hefur á sviöi félags- og heilbrigöismála undanfama áratugi. Frjálsa verkalýðs- hreyfingu Þær s.k. efnahagsaögeröir sem nú hafa verið gerðar munu valda 30— 40% kaupmáttarskeröingu á næstu vikum. Eftir nokkra mánuöi hafa öll skerðingarákvæði bráðabirgðalag- anna komið til framkvæmda. Verkalýðshreyfingin getur ekki fallist á þessar aðfarir nema hún vilji fóma sjálfstæði sínu og frelsi. Kaup og kjör hafa verið skert áður með bráðabirgðalögum en aldrei umfram samdrátt þjóðartekna og aldrei án mildandi aðgerða vegna þeirra sem verst em settir. Núna er afkoma fjölda fólks í mikilli hættu. Eignahrun blasir viö hjá fjöiskyldum sem eru aö koma sér upp húsnæöi eöa fjárfesta í öðm. Bráöabirgðalög ríkisstjórnarinnar munu reynast mörgum heimilum of- viða. Einungis verkalýðshreyfingin getur stöðvað framgang bráöa- birgðalaganna. Svar launafólks og hagsmunasamtaka þeirra nlýtur því að vera, „samningana í gildi”. Við verðum að neyða vinnuveitendur að samningaborðinu strax, með verk- f öllum ef þörf kref ur. „Jóhannes Nordal og Jón Sigurðsson eru helstu hugmyndafræðingar ríkis- stjómarinnar í efnahags- og launamálum,” segir Ragnar A. Þórsson í bréfi Rauðvínsleikhús í Félagsstofnun Ásgeir R. Helgason skrifar: . Stúdentaleikhúsið hefur nú lifaö 'lengur en nokkur þorði að vona. Sýn- ingar leikhópanna em hver annarri betri. Síðasta uppfærsla Stúdentaleik- hússins á tilbrigðum úr verkum Jökuls heitins Jakobssonar var listilega vel unnin. Það er gaman að sjá hve núver- andi meölimum Stúdentaleikhússins tekst vel að nýta þá möguleika sem „kaffileikhús” eða öllu heldur rauð- vínsleikhús býður upp á. Lifandi upp- færslan, sem gerðist út um allan sal, reykjarlyktin og rauðvínskeimurinn hentaöi vel því efni sem leikhópurinn bauð upp á aö þessu sinni. Uppfærslan á verkum Bertolt Brecht féll einnig einkar vel inn í þennan ramma og tókst að mínum dómi betur að því leytinu til að andrúmsloftið í salnum var öllu“ léttara og frjálsleiki rauðvínsleikhúss- ins nýttist að fullu. Eins og gefur að skiija er það forsenda þess að áhorf- | endur njóti þess frjálsræðis sem rauð- I vínsleikhús býður upp á aö leikurinn sé I ekki það viðkvæmur að laumulegir skreppitúrar blöörufullra gesta trufli ró leikendanna. í þessu jafnvægi felst einmitt listin að reka rauðvínsleikhús. Undirritaður þurfti því miöur að bregöa sér frá í tvígang meðan á sýn- ingu stóö enda búinn að innbyrða tvo bjóra áður en á hólminn var komið og rauðvínsflaskan góða, sem fékkst á leikhúsbarnum (fýrir lítið), rann ljúf- lega niður undir taktföstum „feil- nótum” Jökuls heitins. Undirritaður gætti ýtrustu kurteisi og varkámi þegar náttúran kallaöi og tiplaöi á tánum milli atriða þegar engar hömlur héldu lengur. Það kom því nokkuð flatt upp á strák þegar, aö lokinni afbragðs- góðri sýningu, ungur og ábúðarfullur starfsmaöur Stúdentaleikhússins vindur sér að honum og biður hann náðarsamlegast og í fuUri vinsemd að vera ekki að þessu rápi meöan á sýn- ingu standi. I fyrsta lagi bar undirrit- aður sig mjög hæverkslega að eins og áður segir og í ööru lagi er þetta sú hætta sem rauövínsleikhús býöur heim. I þriðja lagi var nokkuö seint í rassinn gripið þar eð sýningin var búin, nema starfsmaður hafi tekið eftir augljósri hrifningu undirritaðs og talið víst að hann myndi sjá sýninguna a.m.k. tvisvar. Hér væri nær að byrgja brunninn áður en byttan er dottin ofan í og hreinlega banna gestum að taka með sér rauðvínskúta inn á sýningu a.m.k. þeim sem verður fljótt brátt í brók. Hitt kann þó að reynast heiUa- vænlegra að miða sýningar við þaö form sem rauðvínsleikhús er, ef verið er aö púkka upp á slíkt form á annað borð. Þetta krefst þess að vísu að áhorfendur sýni fyllstu tiUitssemi og bregði sér ekki frá nema fuUa nauðsyn beri tU og þá svo að h'tið beri á. Slíktt frjálsræði og gagnkvæm tUlitssemi er það sem gerir rauðvínsieikhús að þeim heUlandi heimi sem það er. Að lokum vil ég þakka mjög góða sýningu og það var samdóma álit allra kunningja minna sem voru á þessari frumsýninguá „JökuU og við” aötæp- lega hefði nokkurt atvinnuleikhús stað- ið sig betur en Stúdentaleikhúsið gerði þetta kvöld. Lifi Stúdentaleikhúsiö. Rúnar Guðbrandsson, Kolbeinn Bjarnason og félagar þeirra í Stúdcntaleikhúsinu fá í senn lof og last frá Ásgeiri R. Helgasyni. Bubbi! Fáðu Megas með á aðra plötu 4420—2301 skrifar: Mig langar til að vekja athygli á þessari plötu hans Bubba. Sérstaklega finnst mér honum tak- ast vel upp þar sem hann fær Megas (þann mikla Ustamann) í lið meö sér. Þar eru tveir góðir saman! Bubbi! Reyndu aö fá Megas meö þér á aöra plötu því við eigum ekki marga eins góða listamenn og hann meðal okkar Islendinga. Hafðu þökk fyrir góða plötu. m-----------------------► Megas er einn af mestu listamönnum þjóðarinnar, segir bréfritari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.