Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Blaðsíða 19
DV. MÁNUDAGUR 20. JUNl 1983. Menning Menning Menning Þá roðnaöi Palli aUur (1983) Eva og Adam í Eden í Hveragerði 1983. Ljósm: GBK. þennan nýja tjáningarmöguleika sem nefiidur hefur verið nýja málverk- ið. En þó svo að Gunnar örn hafi „skipt um skoðun” í málverkinu þá þarf það ekki að vera neikvætt. Gunnar örn er fær Ustamaður og vel kunnugur þessari „lausu og frjálsu” aðferð nýja málverksins. Hann kann að mála gróft, hratt og að snúa út úr klassískum lögmálum. I raun þurfum við aöeins aö kynnast Usta- manninum á ný og hann að skapa persónulegri stöðugieika í mynd- verkin. Myndlist GunnarB. Kvaran Ormurinn Það sem heldur sýningunni saman er þó eflaust temað, þetta samspil milU ormsins og mannsins sem gengur í gegnum sýninguna. Sjálfur segist listamaðurinn hafa kynnst orminum á Þjóöminjasafninu, í mynd þar sem ormurinn er aö éta mann. En ormurinn er einnig þekkt tákn í veraldarsögunni. Ormurinn er skemmtUeg andstæða mannsins, út- limalaus og hárlaus. Það er því oft sagt að ormurinn og maðurinn séu sinn endinn hvor á sama hlutnum. Að ormurinn sé upphafsstigið að löngu ferU sem endi í roanninum. Enn aðrir sjá dýpra og segja aö ormurinn sé hluti af manninum og standi fyrir hina djúpu, myrku sál mannsins, hið óskUjanlega og dularfuUa. En hvað sem líður sUkum pæUngum þá minnir ormurinn í verkum Gunnars okkur óneitanlega á fyrirbærið COBRA, Usthóp sem olU raunverulegri list- byltingu á 5. áratugnum og er vissu- lega líkur en þó fjarskyldur ættingi nýja málverksins. Of miklar breytingar? Sýning Gunnars Amar kemur á óvart, breytingamar eru nánast of miklar fyrir áhorfendur sem skynja lítil tengsl við fyrri verk Ustamanns- ins. Við verðum þó að segja að þetta sé lífleg endumýjun, ný skrift sem „frelsar” listamanninn en gerir listaverkin um leið ópersónuleg. GBK Á aðalfundi Alþýðubankans var samþykkt að styrkja framkvæmdir við Kópavogshæli og Blindrafélag íslands myndar- lega. Myndin er tekin við afhendingu styrkjanna: F.v. Sigurður Þorsteinsson, skólastjóri Þjálfunarskóla ríkisins, Birg- ir Guðmundsson, formaður Foreldra- og vinafélags Kópavogshælis, Stefán M. Gunnarsson bankastjóri, Bjarni Jakobs- son, varaformaður bankaráðs Alþýðubankans, Óskar Guðnason, framkvæmdastjóri Blindrafélags Islands og Halldór Rafnar, formaður Blindrafélagsins. Aðalf undur Alþýðubankans: REKSTRARTEKJUR JUKUST UM 47,5 MILUÓNIR KRÓNA Á síöasta ári jukust rekstrartekjur Alþýöubankans um 47,5 millj. króna frá fyrra ári eða 109,0%. Rekstrar- gjöld, að meðtöldum afskriftum utan skatta til ríkissjóðs, jukust í heild um 45,9millj.krónaeða 109,0%. Ofangreindar upplýsingar komu fram í aðalfundu bankans, sem hald- inn varnúnýlega. Þá varð rekstrarhagnaður sl. árs 1.551 þús. krónur. Otlán jukust um 71,5% frá fyrra ári eða um 63,6 millj. króna. Innlánsaukning nam 57,3% eða 83,8millj.króna. Á aðalfundmum var samþykkt eftirfarandi: 65% hækkun hlutfjár meö útgáfu jöfnunarhlutabréfa«verður þá hlutafé bankans kr. 11.220 þús. Að veitt skyldi 75 þúsundum króna til styrktar sund- laugarbyggingu við Kópavogshæli og sömu upphæð til styrktar byggingu sjónstöðvar Blindrafélags Islands. Að 883.7278,94 kr. tekjuafgangs gengju til varasjóðs bankans. Loks samþykkti fundurinn að bjóða út nýtt hlutafé að fj árhæð 2 milljónir króna. I bankaráð fyrir næsta kjörtímabil voru kosnir: Benedikt Davíðsson, Bjami Jakobsson, Halldór Bjömsson, Teitur Jensson og Þórunn Valdimars- dóttir. -JSS FLATEY JL-húsinu, 2. hæö. Sími 23535 Höfum opnad í JL-húsinu, 2. hœd BÆKUR RITFÖNG LEIKFÖNG BÚSÁHÖLD GJAFAVÖRUR Gjörid svo vel ad líta inn FLATEY, JL-húsinu, 2. hæö. Sími 23535 TVÆRVIKURÍ KAUPMANNAHÖFN FYWR 8.985 KR" Frændur vorir Danir lýsa Kaupmanna- höfn í einu orði „hyggelig". Það má vissulega til sanns vegar færa, því vinsamlegt viðmót og góðan viðgjörn- ing í mat og drykk, geturðu bókað að fá. Vandaðar verslanir, aragrúi veitinga- og skemmtistaða, auk óteijandi mögu- leika á skoðunarferðum hressa enn frekar upp á sálartetrið. Sem sagt, - tilvalinn staður að dvelja á í sumarleyf- inu -. SKRIFSTOFA STÚDENTA Hringbraut, sími 16850 BROTTFARIR:S6 og 15 júlí. FERÐA 'ínnifalið í verði: Flug og gisting.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.