Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1984, Page 36
36
Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál —
Druumurinn
um víkinga-
bálför
DV. LAUGARDAGUR 7. APRIL1984.
Leifarnar eftir bálför Trevors Hale. Hann fékk það sem hann hafði alltaf óskað sér:
Bálför.
Ruth Hale meðan á réttarhöldunum stóð.
. Leslie Wright velti þvi fyrir sér eftir morðið á Hale að grafa hann i þessum
gamla kirkjugarði.
Trevor Hale, hinn 27 ára gamli bíla-
sali, taldi sig náskyldan víkingum for-
tíöarinnar þrátt fyrir að þeir heföu
valdið hinu enska fööurlandi hans
mikilli ógæfu.
Hann taldi sig fæddan á röngum
tíma og hann hegðaði sér líka oft sam-
kvæmt því. Hann var mikill ofbeldis-
seggur, ekki sist þegar hann di akk. Þá
gat runnið á hann berserksgangur sem
var fyllilega sambærilegur við
berserksgang víkinganna sem voru
fyrirmynd hans. Hann var skeytingar-
laus, kaldlyndur og niðurlægði konur.
Trevor Hale lifði lífinu eins og einn
af hinum verstu og villtustu víkingum.
Hinn stóri draumur hans var aö hann
mætti einnig deyja eins og víkingur og
ljúka ævidögum sínum meö bálför.
Hvað þá ósk hans snerti þá átti hún
eftir að rætast.
Þessi ungi og ófyrirleitni bílasali
bar sig að eins og víkingur hvað við-
kom konum. Hann kom ákaflega illa
fram við þær. Ruth Hale, eiginkona
hans gat borið vitni um það. Hið tíu ára
hjónaband hennar hafði þróast út í
sannkallaöa kvöl og pinu.
Hún hafði aðeins veriö sextán ára og
nýbúin í skóla þegar hún hitti Trevor1
Hale. Hann lagöi hana að fótum sér í
fyrsta áhlaupi. Ein af ástæðunum var
sú að hann kom keyrandi á Jagúar en
ekki skeUinöðru eins og hinir vinir
hennar. Það hafði hin jákvæðustu áhrif
á opinn stúlkuhuga Ruthar.
Svarað með höggi og
blótsyrðum
En strax á fyrsta stefnumóti hefði
Ruth átt að geta sagt að lífið með
Trevor Hale gæti orðið erfitt. Hann’
keyröi ekki bara hlæjandi á ofsahraða
frá lögreglubíl sem elti Jagúarinn með
vælandi sírenum. Hann baröi lika
niöur mann á kránni þangaö sem þau
fóru á eftir. Ástæðan var sú aö mannin-
um hafði orðið það á að reka sig utan í
hann þegar hann var að ná sér í drykki
á barnum. Hann var sleginn niður
samstundis af hinum bálreiöa Hale
sem hafði engan áhuga á aö hlusta á
neinar útskýringar.
Ruth var á þessum tíma alveg blind
og heyrnarlaus fyrir ókostum verðandi
manns síns. Hún sagði þegar já þegar
Trevor Haie bað hana að verða konan1
sín. Hún var jafnhrifin af Jagúarnum
og sterkum handlegg jum Trevors.
Það átti brátt eftir að koma í ljós
hvað hún var komin út í. Trevor Hale
var fljótur að sýna sitt rétta andlit
gegnvart ungu konunni sinni, ekki síst
þegar hann var búinn að fá svo sem
tveimur visk í sjússum of mikið. Ef hún
gerði smávægilega athugasemd við
háttalag hans var því svarað með
höggi og blótsyrðum.
Það leit út fyrir að Ruth væri dæmd
til eilífrar tortímingar í ófriðarbáli
hjónabandsins. Hún hafði engan sem
hún gat leitað til til að hjálpa sér. Fjöl-
skylda hennar var langt frá Aylesbury
þar sem hún og Trevor áttu heimili.
Hún þorði ekki að hlaupast aö heiman.
,,Ég dreg þig til baka á hárinu ef þú
gerir það,” sagði víkingurinn, eigin-
maöur hennar. Ruth var viss um að
það voru ekki innantómar hótanir.
Fleiri drykkjutúrar
Ein af fáum ánægjustundum hennar
í lifinu var aö fara út að yfirgefnum
flugvelli í nágrenninu við heimili henn-
ar. Þar tíndi hún blóm og naut kyrrðar-
innar. Þarna hitti hún dag nokkura
hinn 32 ára gamla Leslie Wright sem
bjó í húsvagni á svæðinu.
Þau urðu brátt góðir vinir og hann
trúði henni fyrir leyndarmáli sínu.
Hann var ref sifangi á flótta undan yfir-
völdum. Ruth sagðist þekkja vel
hvernig væri að lifa sem fangi. Hún
sagöi honum frá manni sínum sem
lemdi sig eins og fisk. Spurningin hékk í
loftinu hvort henni myndi einhvem
tíma takast að sleppa úr fangelsi sínu.
Hönd í hönd leiddust þau inn í húsvagn
Leslies.
Hann var greinilega rakin andstæða
Trevors Hale. Hann var blíður og
skilningsríkur og fylltist réttlátri reiði
þegar hann heyrði um allt það sem
Ruth þurfti aö þola i hjónabandinu.
Hann byrjaöi að koma heim tii ást-
meyjar sinnar og eiginmanns hennar.
Trevor Hale virtist ekkert hafa við það
að athuga. Hann taldi sig sjálfan ef til
vill í gegnum það fá aukiö frelsi til aö
fara út í æfleiri og meira drykkjutúra.
Um jólaleytið 1971 virtist leiknum
samt sem áður vera að ljúka. Hale
hafði drukkiö dögum saman til að
halda upp á hátíðina og líka í tilefni
þess að hann hafði verið gripinn fyrir
svindl í bílasölunni. Dag einn gerðist.
hið ófrávíkjanlega þegar svona stóð á.
Hann réðst á Ruth og gaf henni glóöar-
auga og sprengdi vör. Því næst greip
hann viskíflösku og ók út í húsvagn
Leslie Wrights.
„Gleðileg jól,” drafaöi hann. „Eg er
búinn að lemja konuna mina í tilefni
dagsins. Eg gerði plokkfisk úr henni.”
Morð
Á sama augnabliki lagði Wright
niður fyrir sér ráðabrugg sem átti aö
bjarga Ruth frá þjáningum hennar.
„Það er líklega best að þú sofir hér,”
sagði hann. „Þú verður annars bara
tekinn af lögreglunni ef þú ekur í þessu
ástandi... ”
Þetta fannst Hale harla skynsam-
legt. Hann lét sig detta ofan í eina
kojuna í húsvagninum og byrjaði þeg-
araðhrjóta.
Wright sat lengi og virti hann fyrir
sér. Nú var tíminn kominn. Ruth hafði
liðið nóg. Það yrði brátt komið nýtt ár
og ágætt tækifæri að byrja upp á nýtt.
Hann náði í tjakk sem var í húsvagnin-
um og nálgaðist hinn sofandi mann.
Svo lyfti hann tjakknum lét höggið ríöa
hann baröi Hale þrisvar sinnum í höf-
uðið.
Hale reis forviða upp til hálfs. Svo
datt hann aftur niður á fletið stein-
dauður. Wright lagði teppi yfir likið og
velti því fyrir sér hvað hann ætti aö
geranæst.
Hvað átti hann að gera við hinn
dauða? 1 námunda við þennan stað var
lítill kirkjugaröur. Gæti hann grafið
Hale þar? Hann hvarf frá því þegar
honum datt í hug að þeir sem þangað
kæmu mundu samstundis taka eftir
nýrri gröf. Það munaði minnstu aö
hann örvænti. Samt sem áöur tókst
honumaðsofna.
Næsta dag ók hann heim til Ruthar
Hale. Hún reyndi árangurslaust að fela
bólgið andlitið, síðustu kveðjuna frá
Trevor Hale. ,,Hvar er maðurinn
minn?” spurði hún hrædd., ,Hann kom
ekki heim í gærkvöldi... ”
„Og kemur aldrei aftur heim,”
bætti Leslie Wright viö.
„Eg er búinn að drepa hann. Hann á
aldrei eftir að angra þig aftur.”
Fortíðin eltir
Þau settust niður og ræddu um hvað
þau gætu gert við líkið og um hádegis-
bil voru þau búin að koma sér saman
um ráð. Wright ók aftur út aðflugvell-
inum. Tveim tímum síðar var hann
kominn til baka að ná í Ruth.
A flugvellinum hafði hann grafiö
holu i jöröina við hliðina á einni braut-
inni. I holunni lá Trevor Hale og yfir
líkið hafði verið hent gömlum fjölum
og nokkrum sekkjum af rusli. Wright
kastaöi tveimur f jölum í viðbót á bálið,
bætti við bensíni og kveikti í.
Trevor Hale var búinn að fá bálför í
víkingastíl, Ruth og Wright stööu þögul
í tuttugu mínútur og horfðu á eld-
tungumar teygja sig upp. Svo brann
hrúgan og eftir lifðu bara smáglæöur í
öskunni.
Parið ók til baka heim til Ruthar
þar sem Leslie Wright lýsti því yfir aö
nú myndi hann flytja inn. „Frá þessu
augnabliki lítum við svo á að maöurinn
þinn hafi aldrei verið til,” sagði hann.
Það leiö heilt ár án þess að nokkur
saknaði Trevors Hale. Það var ekki
óalgengt að bílasali væri á ferðinni en
einn fagran dag var lögreglunni bland-
að í eitt af gömlu bílabrasksmálum
hans og menn fengu grunsemdir um
málið. Menn veltu því einnig fyrir sér
hver þaö væri sem byggi hjá Ruth
Hale.
„Ég hataði manninn minn"
Menn voru fljótir að komast að því
að Leslie Wright var strokufangi úr
fangelsi. Hann var tekinn höndum og
hann og Ruth voru bæði yfirheyrð. Það
var hún sem brotnaöi niöur á undan og
sagði frá því hvemig Wright hefði
drepið mann sinn. Hún sýndi lög-
reglunni einnig hauginn við flugvöllinn
og leifamar af bálför Trevors Hale.
Það var ekki mikið eftir eftir vind
og veðrun heils árs. En það var nóg til
að bera kennsl á Trevor Hale. Og nóg
til aö standa undir moröákæm á hend-
ur Leslie Wright við landréttinn í
Chelmsford. Þar var ekki mikið eftir
af hlýjum tilfinningum hans til Ruthar
Hale. „Það var hún sem gerði þaö,”
sagði hann. ,,Ég hjálpaöi henni bara
við að koma líkinu fyrir. En hvorki
lögreglan né kviðdómur trúði þessu.
Leslie Wright var dæmdur sekur fyrir
morö og dæmdur í lífstíðarfangelsi.
Tveimur mánuðum eftir réttar-
höldin flutti Ruth Hale hins vegar mál
sitt áhrifamikið fyrir rétti. Hún sagðist
ekki hafa komiö nálægt morðinu. En
bálförin hefði verið hennar hugmynd.
„Eg hataði mann minn,” sagði hún.
„Eg vildi sjá hann brenna í helvíti og
það gerði hann. Já, þetta var mín hug-
mynd.”
Lögreglan fylgdi málinu ekki eftir
þó að vitnsiburður Ruthar Hale hefði
átt að nægja til að dæma hana sam-
seka. Hún er frjáls kona í dag.