Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1984, Blaðsíða 39
.{'8éi !am .e; huoaqhaoua j vn DV. LAUGARDAGUR19. MAI1984. 39 Á hverju ári er í London haldin samkoma sem heitir The Royal Film Performance, en þá bregður einhver meðlimur úr konungsfjölskyldunni sér í bíó með pomp og prakt. Þessi hátíðasýning er að jafnaði nokkuð góð auglýsing fyrir kvik- myndina sem valin er á hana og því þykir talsverðu varða að val á myndinni heppnist sæmilega. Raunar hefur þetta tekist upp og ofan, t.d. hefur ósköp venjuleg afþreyingarmynd eftir sögu Agöthu Christie orðið fyrir valinu, en sú mynd var að vísu skreytt óvenjulegum fans virtra og velþekktra breskra leikara. Ef ég man rétt fékk drottningarmóðirin gamla að sjá Chariots of Fire og það árið voru flestir ánægðir með valið á kongunglegu kvikmyndinni. Sama máli gegnir um myndina í ár, en þá fór drottningin sjálf í bíó og sá The Dresser. uövitað skiptir minnstu máli hvort Elísabet önnur fór aö sjá The Dresser, hitt er öllu mark- verðara að gagnrýnendur beggja vegna Atlantsála hafa keppst við að bera lof á myndina en mest hrós hafa leikararnir að líkindum hlotið, enda engir aukvisar á ferð þar sem þeir eru í aðalhlutverkunum, Tom Court- ney og Albert Finney. The Dresser gerist í Englandi árið 1942 og loftárásir Þjóðverja á breskar borgir eru í hámarki. Grand Theatre í Plymouth er meöal þeirra bygginga sem jafnaðar hafa veriö viö jörðu, en ekki nóg meö það, heldur hafa allir yngri karlleikarar leikhússins verið sendir á'Vígvöllinn. Aldraður leikhússtjórinn, sem kallaður er Sir, er þó ekki á því að gefast upp heldur leggur upp í leikför vítt og breitt um byggðir Englands. Leikflokkur Sirs flytur einvörðungu leikrit eftir konung breskrar leik- ritunar, Shakespeare, og Sir er sjálfur í öllum aöalhlutverkunum. Loftvarnarsírenurnar trufla sýning- arnar á hverju kvöldi en ekkert fær stöðvaö viöleitni leikhússtjórans og samstarfsfólks hans í þá átt að halda á lofti stolti breskrar leikhúsmenn- ingar, sýningum á Lé konungi, Othello og þeirra líkum. ' he Dresser fjallar þó ekki um það sem gerist á sviðinu heldur það sem fram fer að tjaldabaki, nánar tiltekið í búningsherberginu hjá Sir. Albert Finney túlkar leikhús-. stjórann og leikarann sem hefur helgað lif sitt leiklistinni og rekur leikhópinn áfram hvað sem tautar og raular. Þaö eru einkum Sirs nánustu sem goldið hafa einstrengingslega tryggð hans við leikhúsið dýru verði, en nú er hann sjálfur einnig að niður- lotum kominn. Hann er bæði sjúkur á líkama og sál, þurfti að legg jast inn á sjúkrahús, en sá sjálfur um að út-- skrifa sig til að geta staulast aftun upp á sviðið og í augsýn áhorfenda. Mikilvægasti maðurinn í lífi Sirs er Norman, dyggur þjónn sem sér um að klæða húsbónda sinn fyrir hverja sýningu og af honum dregur kvik- myndin nafn sitt. Það er Tom Courtney sém fer með titilhlut- verkiö. I upphafi myndarinnar þvær Norman svart sminkið af Sir eftir að leikhússtjórinn hefur túlkað Othello hinn þeldökka. Meginviðfangsefni Normans er síðan að koma Sir í búninginn og upp á leiksvið í Brad- ford til að túlka Lé konung í 227. sinn. Ibúar Bradford ætla ekki að láta sig vanta í leikhúsið þar sem sýna á sálarkvalir hins aldna konungs og hver einasti miði hefur verið seldur. Kvikmyndiii mEDRESSER segir sögu af lelkara og þjönihans. Þad eru Tom Courtney og Albert Finney sem fara meö aöalhlutverkin og í aukahlutverkum eru ekki ömerkari leikarar en Michael Gough, Eileen Atkins, Edward Fox, Zena Walker og Lockwood West enda f ör svo aö Bretadrottningu var boöiö í bíö Norman ver húsbónda sinn af ákafa þegar aðrir telja þann gamla ófæran um að koma fram. Ofar til hægri: Lafðin, eiginkona Sirs (Zena Walker), og Norman (Tom Courtnay) hjálpa Sir (Albert Finney) ut í sviðsljós- ið. Neðar til hægri: Norman les úr upphafi ævisögunnar ssm Sir er nýbyrjaður á og húsbóndinn hlustar á með velþóknun. Sir hefur ekki kært sig um varamann og því er um tvennt að velja, að leika eöa aflýsa sýningunni. Og Sir fær ekki að velja — Norman sér um þaö. orman skjallar, hótar og dekstrar Sir til aö koma honum fár- sjúkum fram í sviðsljósið. Ef Nor- mans nyti ekki við væri Sir líklega fyrir löngu kominn í gröfina eða á vitlausraspítalann, en nú er sá gamli kominn svo að fótum fram að hann verður tæpast kallaöur fram eftir að sýningunni á Lé lýkur. Sir fær allar tegundir reiðikasta, ’ummæli hans eru oft á tíðum eitruö, hann er farinn að kalka á köflum og sleppir sér í bræði þegar mhinst varir. AUt þetta lætur Norman sér þó lynda og tryggð hans við Sir er óbrigðul þó öllum megi ljóst vera að Sir er sjúklega eigingjarn harðstjóri sem ætlar að ganga af sjálfum sér dauðum vegna þess að hann þráir sviðsljósið meira en allt annað. Og auövitað kemur fleira til. Sir á sínar stóru stundir þegar vottar fyrir snillingum í honum á sviðinu. Spurningin er líka hver kúgar hvorn í sambandi Sirs og Normans því þó sá gamli geri ótrúlega ósanngjarnar kröfur til þjónsins þá hefur Norman líka ýmislegt út úr sambandinu. Hann myndi tæpast geta fundið annan leikhússtjóra sem hann næði jafnmiklu valdi yfir með smjaðrinu og fortölunum einum saman. ISÍ ið þetta bætist svo að Norman er hommi og í rauninni dálítið ástfanginn af gamla durgnum. Honum verður líka um og ó þegar í ljós kemur að sá gamli er ekki slappari en svo aö honum tekst að reyna dálítið við yngsta kven- manninn í leikflokknum. Allt þetta má svo eiginkona Sirs þola. Hún leikur með hópnum og er köliuð Lafði til samræmis við Sör. The Dresser er byggð á leikriti með sama nafni eftir skáldið Ronald Harwood og hann skrifaði einnig handritið að kvikmyndinnL Leikritið hefur hlotið margvísleg verðlaun og verið sýnt við stórkostlega aðsókn bæði í London og á Broadway. Þó verkið f jalli um leikhús og leikara er það fyrst og fremst skrifað fyrir leikara og það kunna þeir að notfæra sér, Tom Courtney og Albert Finney. Finney er löngu viðurkenndur kvik- myndaleikari, hefur leikið í átta myndum síöustu tvö árin, en Tom Courtney hefur hingað til haldiö sig við sviðið og raunar leikið Norman í leikhúsum bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum við mikinn fögnuð viðstaddra. — eter Yates er vel þekktur og virtur leikstjóri og hefur tekist að gera mikið stykki úr The Dresser sem kostaöi í vinnslu litlar fimm milljónir sterlingspunda eöa rúmar tvö hundruð milljónir íslenskra króna. Anda annars flokks leikhúsa á bresku landsbyggðinni nær Yates fram með því að hafa dimmt í kringum leikara og láta linsuna ganga nærri þeim. Gagnrýnendur telja það fæstir nokkurn galla á myndinni að Yates hefur litið breytt út frá sviðsgerð The Dresser og að myndin ber mikinn keim af leikhúsinu. Þegar á allt er litið er nærri fullvíst aö drottningunni hefur ekki þurft að leiðast í bíói þann 19. mars síðastliðinn. -SKJ. Heimildir: Movies and Video, Levende billeder og films.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.