Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984. 3 Kristján Ragnarsson um veiðar íslendinga í lögsögu USA: „Ótrúlega mikiö ver- /ð gert úr litlu” „Að mínu mati hefur ótrúlega mikið verið gert úr litlu í þessu máli. Við höfum engar veiðiheimildir feng- ið ennþá,” sagði Kristján Ragnars- son, framkvæmdastjóri LlU, í sam- tali við DV er við inntum hann álits á hugsanlegum veiöum Islendinga í bandarískri lögsögu. I máli hans kom fram að þetta væri hugsað að hluta til sem skaöa- bætur fy rir banniö við hvalveiðum en að hans áliti væru þessar veiðar hé- gómi miðað við hvalveiðarnar. „Það sem rætt er um eru veiðar viö vesturströnd Alaska. Þaö er ljóst að þangaö er langt að fara. Við get- um ekki landað afla okkar í banda- rískum höfnum. Það geta aðeins bandarísk skip samkvæmt lögum. Við yrðum því að sigla sjálfir með okkar afla á aðra markaði eða landa honum í verksmiðjuskip. Við eigum ekkert verksmiðjuskip og sá mögu- leiki að landa í verksmiðjuskip ann- arra þjóða er lítt boðlegur því verðið er svo lágt,” sagði Kristján. Hann sagði að allt þetta mál væri enn sem komið er óljóst. Það skipti okkur máli hvaða fisktegundir okkur byðist að veiða og í hvaöa magni. Ekkert hefur verið ákveðið í þeim efnum. ,,Það er sjálfsagt að kanna þessi mál betur og fá skýrari línur. Mér virðist svo að Bandaríkjamenn vilji með þessu læra af okkur saltfisk- verkun og kynnast sölustarfsemi okkar. Mér finnst það geta verið skaðlegt að kynna þetta fyrir þeim,” sagði hann, -FRI Litlu nemendumir í Tónlistarskóla Akureyrar spila fyrir dýrin i Náttúru- gripasafninu. Vegna plássleysis í Tónlistarskólanum fengu þau að æfa sig í Náttúrugripasafninu sem er . í sama húsi. EH/DV-mynd JBH/AKUREYRI Uppsagnir f ramhaldsskólakennara: VEKJA ATHYGLIÁ VANDA í MENNTAMÁLUM Meirihluti framhaldsskólakennara í HlK (70%) hefur sagt upp störfum frá 1. desember 1984 og taka upp- sagnimar gildi 1. mars 1985. Kennarar grípa til þessara að- geröa m.a. vegna þess að ríkisvaldið hefur brugðist við eðlilegri fjölgun kennara, sem hefur verið í sambandi við aukið námsefni og fjölgun nem- enda, með því að skera niður laun kennara, segir í tilkynningu frá HlK. Kennarar vinna af sér hluta sumars- ins með því að skila 50 stunda vinnu- viku að vetri og auk þess ber þeim að nýta hluta sumarsins til endur- menntunar. Því er vinnutími kenn- ara fyllilega sambærilegur við starfsstundir annarra hópa en laun kennara í engu samræmi við vinnu- álag þeirra. Þá segir í tilkynningu HlK að traust menntun sé forsenda allrar velmegunar en launastefna ríkisins hafi ekki sýnt menntun þá virðingu sem skyldi. Því hafi fjöldi kennara hrakist frá kennslu og því vilji kenn- arar vekja athygli á vanda sínum með uppsögnum nú. Bíll ársins 1984 7 „BNFALDLECA BESTI '• SMÁBÍLL HINGAÐ TIL" Þetta er umsögn breska bílablaösins CAR MAGAZINE um FIAT UNO. Blaöiö geröi samanburð á UNO og fjölda annarra smábíla eins og Metro, Charade, Fiesta, Polo, Vísa Peugot 205 og Nova. Niöurstaöa þeirra var sú aö UNO væri „besti smábíll sem til þessa hefur verid búinn til.” Jafnframt segir í blaöinu aö einungis „besti smábíll hingaö til" heföi getað veriö svona framúrskarandi í þessum hópi afburöabíla. Þaö þarf stórkostlegan bíl til þess. Þennan yfirburöabíl bjóöum viö enn og alltaf á einstöku veröi. . UNO 45 SUPER kr ZÖU.UUU." á götuna með rydvörn og skráningu ARGERÐ '85 Srntöjuvegi 4. Kópavogt. Simar 77200 ■ 77202.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.