Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 17
0*Lrn Þessi frábœri „litii bróðir" BBC tölvunnar sem getur þó fleslallt á aðeins Kr. 8.980,- (staðgreiðsla) eða Kr. 3.000,- úlborgun og eftirstöðvar á 6 mánuðum. DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984. acorriw electron „Ég ákvað strax að gefa KGB aldrei neinar upp- lýsingar sem gætu skaðað samstúdenta mína." öllu aö tapa ef ég færi ekki eftir fyrir- mælum yfirvaldanna. Þar aö auki var mér tjáö aö KGB starfaði einungis til heilla rússnesku þjóöinni. Þess vegna svaraði ég, skjálfandi á beinum: Já, já *> Ashkenazy var þessu næst spurður hvers konar upplýsingar sovéska leyniþjónustan hefði fariö fram á aö hann veitti um erlendu stúdentana. „Æ, alls konar upplýsingar um einkalíf þeirra. Ég var neyddur til þess aö skrifa ítarlegar skýrslur sem ég fékk síðan í hendur KGB en ég ákvaö strax aö skrifa aldrei neitt í þessar skýrslur sem gæti skaðaö samstúdenta mína. Eg gaf aldrei annaö en jákvæö- ar, almennar upplýsingar sem ekkert var hægt aö nota. Þetta var spuming um samvisku mína. Ég fylgdi bara til- finningu minni fyrir því hvaöa upplýs- ingar voru skaölausar en annars er ég hálfgeröur einfeldningur í málum af þessu tagi. Þaö kom líka aö því aö KGB gáfu mig upp á bátinn. Þeir geröu sér grein fyrir því aö eina áhugamál mitt var tónlistin og að ekki væri hægt aö notamigtilannars.” Þaö var, sem kunnugt er, á tónlistar- háskólanum í Moskvu sem Vladimir Ashkenazy kynntist Þórunni Jóhanns- dóttur og gekk aö eiga hana. Eftir að hann sigraöi í hinni merkilegu Tjækovskí-keppni fyrir píanóleikara í Moskvu áriö 1962 fékk hann tækifæri til þess aö ferðast til útlanda. Ari síðar lék hann á tónleikum á Englandi og ákvaö að snúa ekki aftur til Sovétríkj- anna. Hann geröist „tengdasonur íslensku þjóðarinnar” en býr nú í Sviss ásamt f jölskyldu sinni. Ástfanginn átta ára gamall I fyrrnefndu viötali í Politiken segist Ashkenazy nú hafa fundiö hárrétt jafn- vægi milli hljómsveitarstjómar og píanóleiks. Hann stjómar nú hér um bii fimmtíu tónleikum á ári, meöal annars hjá ýmsum frægustu sinfóníu- hljómsveitum heims en einleikur á píanó þrisvar sinnum oftar. „Þaö er til svo mikið af fallegri hljómsveitartónlist að ég stóðst aö lok- um ekki þá freistingu aö fara að stjórna líka,” sagöi Ashkenazy í Kaup- mannahöfn. „Ég get ekki lýst sam- bandi mínu við hljómsveitina ööruvísi en sem gömlu ástarævintýri sem hófst þegar ég var átta ára gamall í Moskvu. Þá heyrði ég í fyrsta skipti í sinfóníu- hljómsveit leika og þaö haföi ógleymanleg áhrif á mig. Og eins og allirvita: Fyrsta ástin erætíðsústerk- asta í lífi manns. Maður gleymir henni aldrei.” Danski blaðamaöurinn lýsti því næst æfingu hjá Utvarpshljómsveitinni undir stjórn Ashkenazys. „Hann virðist enn vera litli átta ára drengurinn sem varö ástfanginn af sin- fóníuhljómsveitinni heima í Moskvu. Hann brosti hamingjusamur meðan tónlistarmennimir léku langa og fall- ega melódíu úr þriöju sinfóníu Brahms. Þaö lýsti af honum langar leiðir, bæöi sem manneskju og lista- manni. Enginn myndi trúa því aö hann heföi nokkru sinni verið í sambandi viö KGB...” Endursagt:-IJ. YIEM MISSTU EKKI VIKU ÚR LÍFI ÞÍNU ASKRIFTARSlMINN ER 27022 FULLKOMIN FRAMTÍÐARTÖLVA FYRIR HEIMILI.SKÓIA LEIKIOG LÆRDÓM Eftir 3 ára sigurgöngu hafa framleiðendur BBC tölvunnar hannað nýja undratölvu, sem gœdd er flestum helslu kostum BBC tölvunnar. ÍSLEIMSK RITVINNSLA ELECTRON TÖLVA FYRIR ALLA! ÚTSÖLUSTAÐIR: m 'samband! TRYGGVAGÖTU • SÍIVII: 19630 Akranesi: Bókaskemman Akureyri: Skrifstofuval Bolungarvík: Einar Guflfinnsson ísafirði: Póllinn Hafnarfirði: Kaupfélag Hafnfirðinga Patreksfirði: Radióstofa Jónasar Þór Keflavik: Stúdeó Vestmannaeyjar: Músik og myndir Reykjavik: Hagkaup TiMABÆR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.