Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 6
6 DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984. VERKAMANIMABUSTAÐIR í REYKJAVÍK SUÐURLANOSBRAUT 30, REYKJAVÍK. SÍMI81240. Fáir vilja veröa skattrann- sóknarmenn —aðeins búið að ráða í tíu stöður af tuttugu sem auglýstar voru í sumar Ula hefur gengiö aö ráöa í stööur þær sem auglýstar voru lausar til umsóknar á skattstofum og skattrann- sóknardeild í sumar. Alls voru auglýst- ar 20 nýjar stöður. Hefur aöeins veriö ráöiö í helming þeirra. Fjölgun stöðugilda á skattstofunum er liöur í aðgerðum gegn skattsvikum. Garöar Valdimarsson skattrann- sóknarstjóri sagöi í viðtali viö DV aðtil heföi staðiö aö ráða fjóra skattrann- sóknarmenn til rannsóknardeildar- innar í Reykjavík. Þá heföi átt aö ráöa sextán manns í samsvarandi störf á skattstofunum. Vel heföi gengið aö fá fólk til starfa á rannsóknardeildinni en aðeins hefðu verið ráönir sex til skatt- stofanna. Sagöi Garöar aö stöðurnar tíu sem enn væri óráöiö í yrðu væntan- lega auglýstar aftur eftir áramót. „Þaö hlýtur aö vera erfitt fyrir hvaöa stofnun sem er aö ráða allt í einu tuttugu manns til starfa,” sagði Garðar aöspurður um hvers vegna svo treglega heföi gengiö aö ráöa í umræddar stööur á skattstofunum. „Þaö er ekki hægt aö kasta höndunum til slíkra mannaráðninga því þama er veriö að ráöa í viðkvæm störf sem krefjast þjálfunar. Þaö er því ekki hægt að ráöa fólk til þess eins aö fylla í stöðurnar.” Garöar sagði ennfremur að laun hjá því opinbera væru þá „ekki eins aölaö- andi” og á einkamarkaöinum. Auglýst heföi verið eftir fólki meö háskóla- menntun í viökomandi greinum eöa meö staögóöa reynslu í bókhaldi og skattskilum. Launamál hefðu þvívafa- laust átt sinn þátt í því aö ekki hefði tekist aö ráöa í allar stööumar á skatt- stofunum. -JSS. SODA STREAM TÍÐINDIEFTIR MÁNAÐAMÓTIN? Hér sést bifreid Sigurðar Daníelssonar kennara í botni gilsins við brúna á Ytri- Laxá enþar féll bifreiðin um 60 metra niður eins og sagði frá íDV ígœr. DV-mynd: Rannveig Sigurðardóttir, Blönduósi. „Lögfræðingur minn er búinn aö senda svar til Verðlagsstofnunar. Eg var búinri að ráðfæra mig viö mina lög- fræöinga áöur en ég byrjaöi aö aug- lýsa. Viö töldum þá og teljum enn aö þetta sé í lagi,” segir Davíö Scheving, forstjóri Sólar hf. Eins og kunnugt er hefur Verðlagsráö fariö þess á leit aö fyrirtækið hætti aö auglýsa gjöf á bíl til Soda Stream eigenda. Auglýsingin brýtur í bága viö 33. gr. laga um verðlagsmál. Þar segir: Oheimilt er í því skyni aö örva sölu á vöra, þjónustu eöa öðru því, sem í té er látið og lög þessi taka til, aö úthluta vinningum meö hlutkesti, í formi verö- launasamkeppni eða á annan hliðstæð- an hátt, þar sem tilviljun ræöur að öllu leyti eöa aö hluta, hver niðurstaöan verður. Utgefendum blaöa og tímarita er þó heimilt aö úthluta vinningum með hlut- kesti í sambandi viö lausn verölauna- samkeppni. Davíð segist ekki skilja hvers vegna þetta f jaöraf ok sé í kringum þessa aug- lýsingu. Þaö séu bunkar af öömm aöil- um sem séu meö svipaöa hluti í boði. Boðið er upp á ókeypis sólarlandaferð- ir og morgunmatarpakkar eru margir fullir af alls kyns drasli til að lokka aö kaupendur. „Þaö getur vel veriö aö mér veröi bannað að auglýsa. En ég er búinn aö lofa aö gefa bílinn og þaö mun ég standa við,” segir Davíð. „Annars er til mjög einföld lausn á þessu máli. Fyrst blaðaútgefendur eru undanþegn- ir þessum lögum ætla ég aö gefa út blað. Ég gef bara út Soda Stream tíð- indi. Ég get fjölritaö þau á ljósritunar- vélina. Fimm eintök ættu aö vera nóg. Þau ættu aö geta komiö út upp úr mán- aðamótum.” Enn hefur ekki veriö tekin nein ákvörðun um hvemig bregöast á viö svari Sólar hf. hjá Verðlagsstofnun. Máliö veröur tekiö til athugunar eftir helgina. APH Umsóknir um íbúðakaup Stjórn Verkamannabústaða i Reykjavik óskar eftir umsóknum um 63 nýjar íbúðir í Ártúnsholti. íbúðir þessar eru tveggja til fjögurra herbergja og verða væntanlega afhentar siðla árs 1985 og fyrri hluta árs 1986. Ennfremur er óskað eftir umsóknum um eldri ibúðir, sem koma til endursölu síðari hluta árs 1985 og fyrri hluta árs 1986. Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara ibúða gilda lög nr. 60/1984. Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu VB Suðurlandsbraut 30, og verða þar einnig veittar allar almennar upplýsingar. Skrifstofan er opin mánudaga — föstudaga kl. 9—12 og 13—16. Umsóknum skal skila eigi síðar en 4. jan. 1985. Vakin er athygli á að eldri umsóknir eru fallnar úr gildi. STJÓRN VERKAMANNABÚSTAÐA í REYKJAVÍK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.