Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 24
■ ■ unu myndir - Fyrrum ritstjóri Times velur bestu fréttamyndir breskra Ijósmyndara DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984. Það er auðveldara að muna eftir einni stillimynd heldur en kvikmynd á hreyfingu. Fréttamynd í dagblaði frystir tiltekið augnablik og þröngvar því upp á hugann mun ákveönar en sjónvarpsmynd getur nokkru sinni. • Það er því blekking ein að kvikmynda- og sjónvarpstækni muni koma í stað fréttaljósmynda í framtíðinni eins og ýmsir höföu spáð. Harold Evans er líklega kunnastur fyrir að hafa um tíma ritstýrt bresku stórblöðunum The Sunday Times og síðar The Times, en hann hefur auk þess skrifað mikið um fréttaljós- myndun og raunar gefið út bók um það efni. Hann valdi á sínum tíma sex bestu fréttamyndirnar sem breskir ljósmyndarar hafa tekið og birtast þær hér á opnunni. Evans tekur myndina af því þegar Jack Ruby myrti Lee Harvey Oswald sérstaklega sem dæmi um yfirburði ljósmyndarinnar yfir kvikmyndina. Morð þetta var sýnt í beinni útsendingu í sjónvarpi og síðan endurtekið hvað eftir annaö eftir at- burðinn en engu að síður muna menn betur eftir ljósmynd Bob Jackson heldur en sjónvarpsmyndunum. „Búdda mun skilja þetta" Þá skrifar Harold Evans: „Frá mínum bæjardyrum séð man ég best eftir Víetnam-stríðinu sem þeirri stund þegar Víetcong-maður var tekinn af lífi án dóms og laga á götu úti. Jafnvel Skólastrákar i Eton 1937. Tekin afJames Jimmy Sime. hann lætur lítið yfir hlut sínum í henni. „Eg tók hana bara eftir tilfinning- unni,” segir hann. „Hvaða fífl sem er hef ði getað tekið hana. ” Lögregluforinginn sýndi engin merki þess að ætla að skjóta fangann fyrr en hann lét allt í einu til skarar skríða. „Hann lyfti hendinni með byssunni,” segir Adams, „og um leið lyfti ég myndavélinni en ég bjóst alls ekki við því að hann myndi skjóta.” Tom Hopkinson var síðasti stjórnandi Picture Post, blaðs sem á Bretlandi einbeitti sér að góðum fréttaljósmyndum. Þegar blaðiö fór á hausinn vildu ýmsir kenna um tilkomu sjónvarpsins en Hopkinson neitar því og hann tekur einnig mynd Eddie Adams sem sönnun fyrir áframhald- andi gildi ljósmyndarinnar. „Þessi mynd hefur haft mest áhrif einstakra ljósmynda á síðari árum og áhrifamáttur hennar hefði algerlega glatast í kvikmynd. Það var ná- kvæmlega stillileikinn yfir henni — augnablik frosið í tíma — sem hafði svonamikiláhrif.” Harold Evans bætir því við aö þetta byssuskot hafi ef til vill verið hið af- drifaríkasta í Víetnamstríðinu, ekki vegna þess að þaö heyrðist um heim allan heldur vegna þess að það sást. Blöðin höfðu lítinn áhuga í byrjun Saga fréttaljósmynda er orðin býsna gömul. Teknar voru Daguerromyndir af brunanum mikla í Hamborg áriö 1840, Roger Fenton tók myndir í Krím- stríðinu á sjötta áratug síðustu aldar og þeir Matthew Brady og Alexander Gardner festu á filmu atburöi borgara- styrjaldarinnar í Bandarikjunum. Það var þó ekki fyrr en 1880 sem tæknin var komin á það stig aö unnt var að prenta ljósmyndir í blöðum en þá brá svo undarlega við aö blöðin höfðu afar tak- markaðan áhuga til að byrja með. Nú efast enginn um mátt fréttamyndanna. Jafnvel miðlungsmyndir eru skoöaðar af stórum hluta blaöalesenda og góðar Hindenburg-siysið. Tekin af Murray Becker. þó svo ég hafi myndina ekki fyrir framan mig þá sé ég greinilega í huga mér örvæntinguna í svip fórnarlambs- ins þegar Nguyen Loan, foringi í Saigonlögreglunni, bregður byssu sinni upp að gagnauga þess.” Nguyen Loan hleypti af, sem kunnugt er, og sneri sér síöan að viðstöddum og sagði: „Búdda mun skilja þetta.” Maöurinn sem tók myndina var Eddie Adams hjá Associated Press og Lögreglan skerst ileikinn. Tekin af lan Bradshaw.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.