Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1985, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1985, Blaðsíða 1
Áfram bjórbann — 1 Skálkaskjóli 2? „Ef þú leiöur ert á lífinu / þá labbaöu við hjá vífinu/ í Skálkaskjóli 2.” Svo var sungiö í revíu hér á árum áöur og þeir eru margir sem njóta þessara hollráöa enn í dag. Stúdentakjallarinn undir Félags- stofnun stúdenta viö Hringbraut hefur nefnilega boriö þetta heiti nú um alilangt skeið og veriö öruggur griöastaöur þeim sem vilja njóta léttra veitinga í notalegu umhverfi. Þarna er boðið upp á kaffi, te, brauö og ýmsa smárétti, auk þess sem staöurinn hefur leyfi til aö veita létt- vín. Til skamms tíma fékkst þama líka bjórliki en löggjafinn fetti fingur út í þá þjónustu þar sem hann taldi létt- vínsleyfið ekki heimila sölu á blöndu úr sterkum drykkjum. Forráðamenn staöarins eru aö reyna aö fá þessu banni aflétt, enda var áfengismagn bjórsins minna en léttvínsins sem þarna er selt. -JGH. Café Gestur — nýr staður við Laugaveginn í dag veröur opnaður nýr veitinga- staður aö Laugavegi 28b í Reykjavík, en þar var áöur veitingastaðurinn Hjákokknum. Nýi staöurinn hefur hlotið nafniö Café Gestur. Þar veröur ameríska línan í matargerðarlist — góðar nautasteikur, grænmetisréttir og margt annað. I hádeginu geta gestir fengiö þar ódýran hádegisverö og síðdegis er kaffi og meðlæti á boöstólum. -klp. Tomas Ledin í Broadway Sænski rokktónlistarmaðurinn Tomas Ledin skemmtir í Broadway nú um helgina, föstudags- og laugar- dagskvöld. Tomas Ledin er mjög þekktur og virtur tónlistarmaður í sínu heima- landi og hefur meöal annars veriö fulltrúi Svía í Söngvakeppni Evrópu. Á síðustu árum hefur Tomas sett stefnuna á alþjóöamarkaðinn og hefur tveimur síðustu plötum hans verið dreift um allan heim. Tomas semur öll sín lög sjálfur og einna þekktust hér á landi eru lögin What Are You Doing Tonight og Never Again, en í því lagi syngur Agnetha Faltskog úr Abba með Tom- asi. Tomas Ledin hefur haldið hljóm- leika víöa í Evrópu en þetta er í fyrsta sinn sem hann kemur hingað tillands. Vínarkvöld í Þórscafé Það verður Vínarkvöld í Þórscafé á sunnudagskvöldiö. Feröaskrif- stofan Farandi sér um Vínarkvöldiö og kynnir feröir til Vínarborgar með öilu tilheyrandi. Þar veröa margs konar skemmti- atriöi, m.a. einsöngur Sigurðar Demetz Franzsonar, Þórskabarett, tvísöngur önnu Vilhjálms og Einars Júlíussonar, þrjú bingó og margt fleira. Á matseölinum veröur aö sjálfsögöu vínarsnitsel og ýmislegt fleira — eöa eins og viö á þegar gott Vínarkvöld er haldiö. -klp. Sigurður Demetz Franzson syngur á Vínarkvöldinu i Þórscafé á sunnudagskvöldið. Veitingahúsið Öðinsvé: Indverskt á fimmtudögum I veitingahúsinu Oðinsvé, sem margir þekkja einnig undir nafninu Brauðbær viö Oðinstorg, hefur ind- verskur matur veriö á boöstólum undanfarna fimmtudaga. Hafa margir, semkomist hafa upp á lagiö með aö boröa indverskan mat og þeir sem hafa viljað reyna eitthvað nýtt í matargerö, látiö mjög vel af þessu og er jafnan þéttsetið þama á fimmtudögum. Velja má þá um þrjá indverska kjötrétti, þrjá fiskrétti og tvær tegundir af súpum. Aö sjálfsögöu er þetta allt meö tilheyrandi kryddi. Indverskur matur er mjög bragðmikill eöa „heitur” eins og sumir kalla þaö. Hægt er aö panta réttina misjafnlega sterka (eða „heita”), en krydd er einnig á boröum ef menn vilja bæta viö bragöiö. Hægt er aö panta sitt lítið af hverjum rétti og þá er einnig á boröum jógúrt. Fá menn sér eina teskeið af jógúrt áöur en byrjað er á næsta rétti en jógúrt hreinsar bragökirtlana þannig að bragðið af fyrri réttinum finnst ekki þegar aö þeim síðari kemur. Einnig er borinn fram ferskur mango-ávöxtur meö indverska matnum eins ogviö á og þægileg indversk tónlist er leikin á meðan á borðhaldinu stendur. -klp. Ef þú vilt dansa ÁRTÚN Vagnhöföa 11 Reykjavík, sími 685090. Gömlu dansarnir föstudags- og laugar- dagskvöld, hljómsveitin Drekar ásamt söngkonunni Mattý Jóhanns. BROADWAY Álfabakka 8 Reykjavík, sími 77500. Ríó Trió, Thomas Ledin og J. J. Waller á föstudags- og laugardagskvöld. Á sunnudagskvöld er sýning Herranætur á Naðarskotinu. GLÆSIBÆR v/Alfheima Reykjavík, sími 685660. Hljómsveitin Glaesir leikur fyrir dansi á föstudags- og laugardagskvöld. Ölver opið. HÓTEL BORG Pósthússtræti 10 Reykjavík, sími 11440. Diskótek á föstudags- og laugar- dagskvöld. Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur undir gömlu döns- unum á sunnudagskvöld. HÓTEL ESJA, SKÁLAFELL, Suðurlandsbraut 2 Reykjavik, sími 82200. Á föstudags- og laugardagskvöld leika Haukur Morthens og félagar fyrir dansi. Ástandið og Guðmundur Haukur leika á sunnudagskvöld. Tískusýning öll fimmtudagskvöld. HOLLYWOOD Armúla 5 Reykjavík, simi 81585. J.J. Waller á föstudagskvöld, laug- ardagskvöld og á sunnudagskvöld. Á sunnudag mun hljómsveitin Dúkku- lísurnar einnig koma fram. HÓTEL SAGA v/Hagatorg Reykjavík, sími 20221. Einkasamkvæmi í kvöld. Söguspaug laugardagskvöld. Dúett Andra og Sigurbergs leikur á Mímisbar á laug- ardagskvöld. Grillið opið alla helgina. KLUBBURINN Borgartúni 32 Reykjavík, sími 35355. Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. Danshópurinn Vandamenn sýnir. KÓPURINN Auðbrekku 12 Kópavogi, sími 46244. Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar leikur fyrir dansi á föstudags- og laugar- dagskvöld. Bjórkeppni á laugardags- kvöld. Vinningur: Gala-dinner fyrir tvo á Naustinu. LEIKHÚSKJALLARINN v/Hverfisgötu Reykjavík, sími 17759. Diskótek föstudags- og laugar- dagskvöld. NAUST Vesturgötu 6—8 Reykjavik, sími 17759. Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar leikur fyrir dansi föstudags-, laugar- dags- og sunnudagskvöld. ÓÐAL v/Austurvöll Reykjavík, sími 11630. Diskótek á föstudags- og laugardags- kvöld. RÍÓ Smiðjuvegi 1 Kópavogi, simi 46500. Gömlu dansarnir föstudagskvöld, hljómsveit Jóns Sigurðssonar ásamt Kristbjörgu Löve spilar. Lokað vegna einkasamkvæmis á föstudags- og laug- ardagskvöld. SAFARÍ Skúlagötu 30 Reykja- vík, sími 11555. Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. SIGTÚN v/Suðurlandsbraut Reykjavík, sími 685733. Diskótek á föstudags- og laugardags- kvöld. TRAFFIC Laugavegi 116 Reykjavik, sími 10312. Diskótek fyrir alla 16 ára og eldri á föstudags- og laugardagskvöld. Tisku- sýning laugardagskvöld. YPSILON Smiðjuvegi 14D Kópavogi, sími 72177. Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. ÞÓRSCAFÉ BrautarhoKi 20 Reykjavík, sími 23334. Þórskabarett verður á föstudags- og laugardagskvöld og bæði kvöldin leika hljómsveitirnar Dansband Önnu Vilhjálms og Pónik og Einar fyrir dansi. Á sunnudagskvöld verður Vínarkvöld á- samt Þórskabarettinum. AKUREYRI SJALLINN. Á föstudagskvöld og laugardagskvöld leikur hljómsveit Ingimars Eydals og co. fyrir dansi. H —100 Diskó i gangi á öllum hæðum hússins föstudags-, laugardags- og sunnudags- kvöld. SELFOSS INGHÓLL. Stjörnukvöld, föstudagskvöld. Hjördís Geirsdóttir flytur vinsæl lög frá fyrri árum. Tvíréttuð veisla og skemmtiat- riði. Boröapantanir í síma 99-1356.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.