Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1985, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1985, Blaðsíða 2
20 DV. FÖSTUDAGUR15. MARS1985. Ef þú vilt út að borða VEITINGAHÚS — MEÐ VlNI Arnarhóll, Hverfisgötu 8 — 10, simi 18833. Bixiö, Laugavegi 11, sími 24630. Broadway, Álfabakka 8, sími 77500. Duus hús, v/Fischersund, simi 14446. El Sombrero, Laugavegi 73, sími 23433. Fógetinn, Aðalstræti 10, sími 16380. Gaukur á Stöng, Tryggvagötu 22, simi 11556. Glæsibær/úlver, v/Álfheima, simi 685660. Haukur í horni, Hagamel 67, simi 26070. Grilliö, Hótel Sögu v/Hagatorg, sími 25033. Gullni haninn, Laugavegi 178, sími 34780. Hallargarðurinn, Húsi verslunarinnar, sími 30400. Hellirinn, Tryggvagötu 26, simi 26906. Café Gestur, Laugavegi 28b, sími 18385. Hlóöir/Pöbbinn, Hverfisgötu 46, sími 19011. Hollywood, Ármúla 5, sími 81585. Hornið, Hafnarstræti 15, simi 13340. Hótel Borg, Pósthússtræti 11, simi 11440. Hótel Esja/Esjuberg, Suðurlandsbraut 2, sími 82200. Hótel Hof, Rauðarárstíg 18, sími 28866. Hótel Holt, Bergstaðastræti 37, sími 25700. Hótel Loftleiðir, Reykjavíkurflugvelli, simi 22322. Hótel Óöinsvé (Brauöbær), v/Óðinstorg, sími 25224. Hótel Saga, v/Hagatorg, simi 29900. Hrafninn, Skipholti 37, simi 685670. Í Kvosinni, Austurstræti 22, sími 11340. Keisarinn frá Kína/ölkeldan, Laugavegi 22, sími 13628. Klúbburinn, Borgartúni 32, sími 35355. Kópurinn, Auðbrekku 12, sími 46244. Leikhúskjallarinn, Hverfisgötu, sími 19636. Lækjarbrekka, Bankastræti 2, sími 14430. Naust, Vesturgötu 6—8, sími 17759. Óðal, v/Austurvöll, sími 11630. Rán, Skólavörðustíg 12, sími 10848. Rha, Nýbýlavegi 26, sími 42541. Safari, Skúlagötu 30, sími 11555. Skálkaskjól 2, v/Hringbraut, sími 14789. Skiphóll, Strandgötu 1 —3, sími 52502. Skútan, Dalshrauni 15, sími 51810. Sælkerinn, Austurstræti 22, sími 11633. Torfan, Amtmannsstig 1, sími 13303. Trillan opin f ram á nótt Það hefur löngum veriö erfitt fyrir Reykvíkinga, sem vinna á kvöldin og fram á nótt, að verða sér úti um ódýran mat eöa kaffi á veitingastað. Þá hafa þeir þurft að fara í næsta byggðarlag til þess en í Kópavogi hefur Smiöjukaffi lengi vel haft opið fram eftir nóttu. Nú þurfa Reykvíkingar ekki lengur aö fara út fyrir byggðina til þess að fá sér snarl eöa kaffi á nóttunni, í það minnsta síöari hluta vikunnar og um helgar. Trillan, Ármúla 35, hefur fengið leyfi til að Jón Sigurðsson, nýr eigandi Trillunnar i Ármúla. DV-mynd GVA. hafa opið fram til klukkan þrjú á nóttunni fimmtudags-, föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. önnur kvöld veröur opið þar til klukkan tíu. Staöurinn er opnaður alla daga nema sunnudaga klukkan níu um morguninn, á sunnudags- morgnum er opnað þar klukkan ellefu. Nýr eigandi tók við Trillunni nú um síðustu mánaðamót. Er það Jón Sigurðsson sem er bæði lærður fram- reiöslumaður og matreiðslumaður. Hann hefur þegar breytt staðnum — ekki aðeins afgreiðslutímanum heldur og því sem á boðstólum er. Býður hann nú bæði upp á fisk- og kjötrétti, svo og hamborgara, kaffi og meðlæti og margt annað. 1 há- deginu er þar framreiddur ódýr matur og margir koma þar í hádegis- mat. Jón stefnir að því að stækka eldhúsið í Trillunni á næstunni. Viö það aukast möguleikar hans á að auka úrvalið á veitingastaðnum sín- umnýja. -klp. Matargerðarmaðurinn Marvinsson. Rúnar PLASTGLÖS — það sem koma skal á danshúsunum? Það hefur vakið athygli gesta sem komiö hafa nýlega í veitingahúsið Þórscafé að við barina á neðri hæðinni er farið að afgreiða drykki í plastglösum. Eru sumir gestirnir ósáttir viö þetta. Finnst þeim það óviðeigandi að drekka dýrar veigar úr svona glösum og mótmæltu því margir. Björgvin Ámason, framkvæmda- stjóri Þórscafé, sagði í viðtali við DV að ástæðan fyrir þe'ssu væri sú að í Þórscafé, eins og á öðrum veitinga- stöðum, heföu oröið alvarleg slys vegna glerglasa sem hefðu brotnaö og gestirnir síðan skonð sig á brotunum. Vildu þeir reyna að yemda gesti sína með því að reyna nýja gerð af stórum plastglösum á bömnum á neðri hæðinni. A efri hæðinni yröu glerglösin aftur á móti notuðáfram. „Við erum ekki aö þessu í sparn- aöarskyni heldur til að reyna að koma í veg fyrir þessi slys og óhöpp,” sagði Björgvin. ,,Ef þetta mælist illa fyrir meðal gesta okkar verður hætt við þetta og viö og þeir tökum áfram áhættuna meö gler- glösin,”sagðihann. -klp. Farand- matargeröar- maður — nýtt starf í kokkabransanum Rúnar Marvinsson, meistara- kokkur frá Búðum á Snæfellsnesi, sló heldur betur í gegn á mikilli fiskhá- tíð lionsmanna í Grundarfirði fyrr í þessummánuði. Lionsmenn þar fengu Rúnar til að útbúa fyrir sig sérstaka fiskveislu og lögðu upp í hendurnar á honum allt hráefnið — ýmsar tegundir af fiski sem þeir urðu sér úti um í bátnum og hjá fisk verkendum á staðnum. Rúnar er löngu orðinn kunnur fyrir sína sérstöku fiskrétti á Búöum. Þarna í Grundarfiröi „komst hann í feitt” og gerði svo vel að nú hafa fleiri klúbbar og samtök í sjávar- plássum óskað eftir fisk- hlaöborði hans. Verður hann t.d. í Olafsvík síðar í þessum mánuði með slíkt fiskhlaðborð. Rúnar er ekki lærður matsveinn og hefur því tekið upp nýtt nafn til að styggja ekki þá sem eru með próf í matreiðslu. Kallar hann sig núna matargerðarmann eða farand- matargerðarmann eftir að hann fór að þen jast um landið með list sína. -klp. VEITINGAHUS VIKUNNAR: Eigendur Shanghai, þeir Gilbert Yok Peck Khoo, Joachim Fischer og Steve Cheng Theng Pang, sem er lengst til hægri. SHANGHAI nýr kínverskur veitingastaöur við Laugaveginn I síðasta mánuði var opnaður nýr veitingastaður i Reykjavík. Er það kínverski veitingastaðurinn Shang- hai sem er til húsa að Laugavegi 28. Eigendur hans eru þrír, þeir Gilbert Yok Peck Khoo, Joachim Fischer og Steve Cheng Theng Pang. Þeir Gilbert og Joachim hafa verið hér á íslandi í nokkur ár — eiga einnig verslunina Manila á Klapparstíg 44 — en Steve, sem m.a. hefur veriö matsveinn á kínverskum veitinga- stað í Danmörku, hefur verið skemur hérálandi. Fyrir opnun Shanghai voru hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu tveir kín- verskir veitingastaðir auk Kína- eldhússins. Sýnilega er þó rúm fyrir þennan nýja stað. Hefur verið mikiö að gera í Shanghai síöan opnað var enda kunna Islendingar í auknum mæli að meta hina kínversku matar- gerðarlist. Shanghai er mjög skemmtilega innréttaður. Þar er kínverskur blær á öllu og enginn íburður. Gestirnir kunna vel við sig þar inni og mat- urinn og þjónustan þar hefur fengið mikiö hrós. Salurinn tekur um 40 manns í sæti. Ekki er hægt að panta borö og verða gestimir því að koma og kanna sjáíir hvort eitthvað er laust. Staðurinn er opinn frá kl. 11 til 14.30 og síðan frá 17.30 til 22 aUa daga nema mánudaga en þá er hann alveg lokaður. I Shanghai eru hnífar og gafflar og annaö tilheyrandi á borðum. Þar eru einig prjónar fyrir þá sem vilja spreyta sig á því að boröa kínverskan mat eins og Kínverjar gara það. Eru menn misjafnlega ffinkir við það hér norður á hjara veraldar en flestir gera þó heiðar- lega tilraun tU þess. MatseðiUinn í Shanghai er smekklega gerður og auöskUinn. Þar er allt á íslensku og myndir hafðar við svo auðvelt er að átta sig á hvað er veriö að panta. Shanghai hefur enn ekki fengið vínveitingaleyfi en hægt er að panta ýmsa aðra1 drykki, svo sem kínverskt te, sem er mjög vinsæU drykkur þar. Hátt í 130 réttir eru á matseðUnum. Þar má velja úr einum 11 fiskréttum, 7 réttum úr svínakjöti, öðru eins úr nautakjöti og a.m.k. 6 réttum úr íslensku lambakjöti. Fuglakjöt er einnig á matseðlinum — bæði endur og kjúklingar. Pekingönd er þar vinsæl, svo og steikt önd með bambusspírum og papriku. Hrísgrjónaréttir eru þar margir, svo og núðluréttir og salté, en það er pinnamatur. Fjórir litlir réttir úr svínakjöti, kjúkUngi, nautakjöti og rækjum eru mjög vinsælir í Shanghai og þá ekki síður súpur eins og Wan Tan súpa og krabba- og maíssúpa, -klp. Ef þú vilt út að borða Vifl Sjévarsíðuna, Hamarshúsinu v/Tryggvagötu, sími 15520. Ypsilon, Smiðjuvegi 14d, sími 72177. Zorba, Laugavegi 126, sími 24631. Þórscafé, Brautarholti 20, sími 23333. AKUREYRI: Bautinn, Hafnarstræti 92, simi 21818. H 100, Hafnarstræti 100, sími 25500. Hótel KEA, Hafnarstræti 87 — 89, sími 22200. Laxdalshús, Aðalstræti 11, sími 26680. Smiðjan, Kaupvangsstræti 3, sími 21818. Sjallinn, Geislagötu 14, simi 22970. VESTMANNAEYJAR: Hallarlundur/Mylluhóll v/Vestmannabraut, sími 2233. Skansinn/Gestgjafinn, Heiðarvegi 1, sími 2577. Skútinn, Kirkjuvegi 21, sími 1420. KEFLAVÍK: Glóflin, Hafnargötu 62, sími 4777. KK-húsið, Vesturbraut 17, sími 4040. AKRANES: Hótel Akranes/Béran, Bárugötu, sími 2020. Stillholt, Stillholti 2, sími 2778. SELFOSS: Gjéin, Austurvegi 2, sími 2555. Inghóll, Austurvegi 46, sími 1356 / 2585. Skíðaskélinn, Hveradölum v/Suöurlandsveg, slmi (99) 4414. VEITINGAHÚS — AN VÍNS Askur, Suðurlandsbraut 14, sími 81344. Árberg, Ármúla 21, simi 686022. Fjarkinn, Austurstræti 4, sími 10292. Gafl-lnn, Dalshrauni 13, sími 51857. Hressingarskélinn, Austurstræti 18, sími 15292. Kaffivagninn, Grandagarði, sími 15932. Seoul. Siðumúla 3—5, sími 35708 Kokkhúsið, Lækjargötu 8, sími 10340. Lauga-és, Laugarásvegi 1, sími 31620. Mandarín, Nýbýlavegi 20, sími 46212. Matstofa NLFi, Laugavegi 26, sími 28410 Múlakaffi, v/Hallarmúla, simi 37737. F*Ran, Bergþórugötu 21, simi 13730. Potturinn og pannan, Brautarholti 22, sími 11690. Shanghai, Laugavegi 28, sími 16513. Smiðjukaffi, Smiöjuvegi 14d, simi 72177. Svarta pannan, Hafnarstræti 17, sími 16480. Trillan Ármúla 34, sími 31381. Veitingahöllin, Húsi verslunarinnar, sími 30400.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.