Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1985, Blaðsíða 11
DV. FÖSTUDAGUR 2. AGUST1985.
11
„Draumurinn um
þann stóra rættist”
—sagði Rögnvaldur Ingólfsson sem veiddi 13 punda
urriða á mánudag í Laxá í Mývatnssveit
Hafa veiðimenn fengið marga stðra svo kom 13 pundarinn. Eg tók
í sumar? hreistursýni af þessum stóra til að fá
„Nei, veiðimenn hafa saknað að fá að vita hvað hann er gamall, 13
ekki „stóra” 7-8—9 punda en sá punda hrygna hlýtur að eiga nokkur
stærsti hingað til í sumar var 6,5 og áraðbaki.” G.Bender
Rögnvaldur Ingólfsson með 13 punda urriöann, þann stœrsta sem
veiðst hefur í Laxá i Mývatnssveit. DV-mynd: Hólmfríður.
LangááMýrum
þriðja besta veiðiáin
„Þaö tók klukkutíma að landa
fiskinum og þetta hefur alltaf verið
draumurinn,” sagði Rögnvaldur
Ingólfsson sem veiddi 13 punda ur-
riða í Laxá í Mývatnssveit á mánu-
daginn. Veiðistaðurinn er Geldinga-
ey og heitir Hagatá, þar koma sam-
an Syðstakvísl og Ystakvísl.
„Fiskurinn stökk aldrei en tók
nokkrar góðar rokur. Ég sá ekki hve
hann var stór fyrr en ég ætlaði að
háfa hann. Draumurinn hefur ræst
um þann stóra en maður hefur misst
þá væna. Fyrir tveimur árum missti
ég vænan fisk. Þessi fiskur tók þing-
eying 2/0 og það var virkilega gaman
aöþessu”.
VEIÐIVON
GuhnarBender
Urriðasvæðið í Laxá í Mývatns-
sveit hefur löngum heillað veiðimenn
og þeir segja þetta skemmtilegasta
veiðisvæði í heimi, fáir rengja þá.
Við fengum smáspjall við Hólm-
fríði Jónsdóttur á Arnarvatni 1 en
hjá henni veiddist sá stóri.
Hvernig hefur veiðin verið í sumar?
„Veiðin í sumar hefur verið góð og
silungurinn feitur og fallegur, og það
sem betra er, mikið af honum.
Veiðitölur
„Heiidarveiðin í júní er 1680 fisk-
ar en til gamans má geta að í allt
fyrrasumar var veiðin 1640 sem var
annaö besta sumarið síðan 1972, er
farið var að fylgjast svona meö veið-
inni. Júlíveiðin er komin í 1035 sil-
unga, þannig að í heildina er þetta
2720 silungar.”
Hefur eitthvað sést af smásilungi?
„Mjög mikiö er af smásilungi í
ánni og lofar það góðu um næstu
sumur.”
Við vorum með Langá á Mýrum í
sjötta sæti í könnun okkar á mánu-
dag, hiö rétta er að Langá átti að
vera í þriðja með 825 alls á öllum
svæðunum. „Þetta hefur gengið
mjög vel í sumar og við erum hressir
með ána,” sagði Ingvi Hrafn Jóns-
son.
FÖSTUDAGSKVÖLD
Wtt
í Jl! HÚSINUI í JIS HÚSINU
OPH> IÖLLUM DEILDUM TIL KL. 21 i KVÖLD
GLÆSILEGT
ÚRVAL
HÚSGAGNA
Á TVEIMUR HÆÐUM
Raftækjadeild 2. hæð
Rafmagnstœki allskonar
Video spólur VHS. -
Hreinsispólur VHS. —
Ferðatœki, ódýrar kessattur. —
Reiðhjól -
JL-hornið í JL-portinu
Grill— grillkol — uppkveikjulögur — spritttöflur
og teinar — kælitöskur — hitabrúsar.
grilltangir
Verslið þar sem
úrvalið er mest
og kjörin best.
Jli
A A A A A A
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
QCDS3 Cli-ir
i_ cj íz ± c -juuuaqij^
■ imniiaiiiitiuiii *ain;
Simi 10600
m LAUSAR STÖÐUR HJÁ
Tr REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eft-
irtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt
kjarasamning um.
i» Forstöðumann við dagh./leiksk. Iðuborg, Iðufelli 16
og leikskólann Álftaborg, Safamýri 32.
• Deildarþroskaþjáifi við sérdeild í Múlaborg við Ár-
múla.
• Fóstrur við dagvistarheimili í ýmsum hverfum.
• Starfsmenn við dagvistarheimili í ýmsum hverfum.
Hlutastörf koma til greina.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjónarfóstrur
á skrifstofu dagvistar í síma 27277.
Umsóknum ber að skila 11 starfsmannahalds Reykjavík-
urborgar, Pósthússtræti 9, ö. hæð, á sérstökum eyðu-
blöðum, sem þar fást, fyrir kl. 16.00, mánudaginn 12.
ágúst1985.
Bækur til sölu
Daglega tökum við fram úr merkum gömlum bókasöfnum forvitnilegar og
fágætar bækur. Nokkurdæmi:
Blað lögmanna, L—4. tbl., komplett, Bóndi, tímarit um landbúnaö, pr. I
Reykjavik 1851, fallega innbundið, Hvor er maðurinn, 1—2, eftir Brynleif
Tobiasson, The Gyr Falcon Adventure, handbók „fálkaáhugamanna"
um islenskar fálkaslóðir, Lilja Eysteins munks, Æfisaga Gísla Konráðs-
sonar, Islands Grammatiske litteratur, útg. Finns Jónssonar, 1 —3,
Vera, fyrsta Ijóðabók Gunnars Dal, Helgakver til Helga Tryggvasonar
bókbindara, Eimskip 40 ára, eftir Jóhannes Kjarval, Grund í Eyjafirði
eftir Klemens landritara, Um frum-parta islenzkrar tungu, Kh. 1846,
eftir Konráð Gíslason, Síðkveld, frumútgáfan, eftir Magnús Asgeirsson,
Sildarsaga íslands eftir Matthías Þóröarson, By Fell and Fjord eftir
E.J. Oswald, merk Islandslýsing, London 1882, Mitteilungen der Island-
freunde 4. —19. árgangur, innbundið, Skólameistarasögur og Biskupa-
sögur Jóns Halldórssonar, Árbækur Espólins, frumútgáfan, prýðisgott
eintak, slæöingur úr Almanökum Jóns Sigurðssonar forseta, Tyrkja-
ránið á íslandi, Leiöarvísir um orðasöfnun eftir Þórberg, Straumrof
eftir Laxness, frumútg. 1934, ób.m.k., Deutscha Islandforschung, 1 —2
bindi, komplett, óbundin, falleg eintök, Jarðnesk Ijóð eftir Vilhjálm frá
Skálholti, Om Værdie-Beregning paa Landsviis eftir Halldór Einarsson,
Kh. 1833, eitt fyrsta hagfræðirit íslenskt, Alaska, eftir Jón Ólafsson skáld,
Washington 1875, Klausturpósturinn, 1,—8. árgangur, prýðisfalleg ein-
tök, Erklæringer, Breve og Forestillinger útg. af H. Stampe riddara,
1. — 6. bindi, heilmargt um islensk málefni, Kh.1793—1807, Mínir
vinir eftir Þorlák Ó. Johnson, Rvík 1879, mikið af eldgömlum dönskum
lögfræðiritum og dómasöfnum, snarfágætum og merkum, bæk-
ur eftir Magnús „frator" Eiriksson i Kaupmannahöfn, Úr djúpunum
(De Profundis) eftir Oscar Wilde, hin fagra þýðing Ingva Jóhannessonar,
Laxamýrarættin eftir Skúla Skúlason, Islenzkir Hafnarstúdentar eftir
Bjarna frá Unnarholti, Dómstólar og réttarfar eftir Einar Arnórsson,
Kuml og haugfó eftir dr. Kristján Eldjárn, tímaritiö Birtingur, Úrfylgsn-
um fyrri aldar, 1—2, Saga Vestmannaeyja 1—2 bindi kplt, Á
íslendingaslóðum i Kaupmannahöfn eftir Björn Th. Björnsson og ótal-
margt annað skemmtilegt.
Við höfum nýlega fengið margt franskra bóka og verk eftir þekkta
erlenda höfunda á ensku og fleiri málum, m.a. bækur frá franska
forlaginu Obelisk Press og Olympisk Press frá 6. áratugnum.
Höfum á lager þúsundir góöra, nýlegra vasabrotsbóka á prýðilegu
sumarleyfisverði.
Gefum reglulega út bóksöluskrár og nýlega er komin út 33. skráin
með rúmlega 1300 titlum. Sendum hana ókeypis til allra sam óska
utan Stór-Raykjavíkursvæðisins.
Kaupum og seljum íslenskar bækur og margvislegar erlendar. Heil
söfn og einstakar bækur. Gömul islensk póstkort og gömul islensk
myndverk og teikningar, gamlan tréskurð og smærri handverkfæri
frá eldri tíð. Enn fremur mjög gömul leikföng (1900—1920) og ýmis-
legt annað smálegt.
Sendum i póstkröfu hvert sem er.
Vinsamlega
hringið,
skrifið
eða lítið inn
Bókavarðan
- Gaml.ir Itækur og nýjar -
Hverfisgötu 52 - Simi 29720.