Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Blaðsíða 4
22 DV. FÖSTUDAGUR 23. AGUST1985. Hvað er á seyði um helgina? Messur Guösþjónustur í Reykjavíkurprófasts- dæmi sunnudaginn 25. ágúst 1985. Árbæjarprestakall: Guðsþjónusta í safnaöarheimili Árbæjarsóknar kl. 11.00 árdegis. Organleikari Jón Mýr- dal. Sr. Guömundur Þorsteinsson. Breiðholtsprestakall: Messa kl. 11.00 í Breiðholtsskóla. Sr. Lárus Halldórs- son. Bústaðakirkja: Guösþjónusta kl. 10.00. Prestur sr. Solveig Lára Guðmunds- dóttir. Organleikari Guðni Þ. Guðmundsson. Ath. sumartímann. Sóknarnefndin. Dómkirkjan: Messa í kapellu Há- skólans kl. 11.00. Dómkórinn syngur. Sr. Agnes M. Sigurðardóttir. Elliheimiiið Grund. Messa kl. 10.00. Sr. Árelíus Níelsson. Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl. 11.00. Organisti Guðný Margrét Magnúsdóttir. Sr. Hreinn Hjartarson. Grensáskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.00. — Fyrirbænir. Organisti Árni Arinbjarnarson. Sr. Halldór S. Gröndal. Háteigskirkja: Messa kl. 11.00. Sr. Arngrímur Jónsson. Kópavogskirkja: Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11.00 árdegis. Sr. Árni Pálsson. Langholtskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.00. Prestur Sr. Sigurður Haukur Guöjónsson. Organisti Jón Stefánsson. Sóknarnefndin. Laugarneskirkja: Messa kl. 11.00. Þriðjudag 27. ágúst: Bænaguös- þjónusta kl. 18.00. Sóknarprestur. Frikirkjan í Hafnarfirði: Guösþjón- usta kl. 11.00. Orgel og kórstjórn Þóra Guðmundsdóttir. Sr. Einar Eyjólfsson. Hafnarfjaröar- og Garða- sóknir Guðsþjónusta í Hafnarfjarðarkirkju kl. 11 ár- degis á sunnudag í umsjá Arnar Báröar Jónssonar. Sóknarprestarnir. Eitt af verkum Guðlaugs á sýningunni, Köllunarklettur. Selfoss: Gulli sýnir í Safna- húsinu Á morgun, laugardag, kl. 14.00 opnar Guðlaugur Jón Bjarnason sýningu í Safnahúsinu á Selfossi. Hann sýnir 40 vatnslitamyndir, unn- ar á þessu og síðasta ári. Þetta er fjórða einkasýning Guðlaugs sem þekktur er sem Gulli á Selfossi. Áöur hefur hann haldið einkasýn- ingu í Gallerí SOM 1974, á Selfossi ’77 og í Mývatnssveit ’80. Verk hans eru aöallega lands- lagsmyndir og nokkrar huglægar fantasíur. Flest eru þau gerð á feröalögum og unnin á staðnum, jafnvel í sunnudagsbíltúrum. Guðlaugur stundaði nám viö Myndalista- og handíðaskóla Is- lands á árunum 1968—70 en hyggst taka upp þráöinn aö nýju í haust í sama skóla. Hann er fæddur og uppalinn á Selfossi. Sýningunni lýkur 1. september og er opin kl. 14.00—22.00 um helg- ar og 17.00—22.00 virka daga. Gallerí Salurinn: Gunnar Karlsson opnar um helgina Á morgun, laugardag, kl. 14.00 opnar Gunnar Karlsson sýningu sína í Gallerí Salnum aö Vesturgötu 3. Nefnir hann sýninguna Oöur til Islands og á henni eru olíumálverk og skúlptúr. Opið er frá kl. 13—18 alla daga nema mánudaga, þá er lokað. Opið er lengur á fimmtu- dögumeöa tilkl. 22. Siglufjarðarkirkja Guðsþjónusta verður sunnudaginn 25. ágúst, kirkjudag, kl. 14. Þorvaldur Halldórsson guðfræðinemi predikar og syngur einsöng. Kirkjukaffi eftir guðsþjónustu í safnaðarheimilinu á vegum systrafélags kirkjunnar. Organisti Anthony Raley. Vigfús Þór Árnason. Sýningar Sýning í Galleríi Salnum Laugardaginn 24. ágúst kl. 14. verð- ur opnuö sýning á verkum Gunnars Karlssonar í Gallerí Salnum, Vestur- götu 3, Reykjavík. Á sýningunni verða olíumálverk og skúlptúrar. Verkin hafa veriö unnin hér á landi og erlendis, á þessu og næstliðnu ári. Gunnar lauk námi frá Myndlista- og handíðaskólanum 1979 og stundaði nám við Konunglegu listaakademíuna í Stokkhólmi 1980-1982. Hann hefur tekið þátt í sýningum víðs vegar á Norðurlöndum. Sýningin verður opin daglega milli kl. 13 og 18 og til kl. 22 fimmtudaga, lokaö mánudaga. Sýningin stendur fram til 13. september. Hún stendur við þjóðveginn einog sóreins og hún hafi sprottið upp úr jörðinni, sundlaugin við Súgandafjörð. Hún hefur staðið þarna við heitavatnsuppsprettu eins lengi og elstu unglingar muna, börnin synda frá 2—4 og fullorðna fólkið milli 20 og 22. Annars er hún lokuð. En það vœri reyndar ekkert mál fyrir heila fjölskyldu að aka bíl sinum út af veginum þarna ofan við sundlaugina og enda í henni miðri. Ef einhver hefuráhuga. -EIR./DV-mynd KAE.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.