Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1986, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1986, Blaðsíða 6
6 DV. FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1986. Peningamarkaðurinn Viðskipti Viðskipti Viðskipti Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn- stæður sínar með 9 mánaða fym'vara, 70-74 ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá rífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 10% en 2% bætast við eftir hverja þijá mán- uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið- réttingu. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og 15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt- um. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. 100 ára afmælisreikningur er verðtryggð- ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25% og breytast ekki á meðan reikningurinn verð- ur í gildi. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefúr stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8, 50%, 4 inánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6 mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir 18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6 mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún um hávaxtareikninginn. 18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir •og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum sé hún betri. Samanburður er gerður mánað- arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir sparisjóðs- vextir, 8%, þann mánuð. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. Þá ársfjórðunga, sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni, eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 12,9% eða eins og á verðtiyggðum 6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársQórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf lausir til útborgunar. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með 13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega. 12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél- stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er því einnig 15,5%. 18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri sparisjóðanna eru með innstæðu bundna óverðtryggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn- vöxtum og 15,2% ársávöxtun. Spariskírteini , Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem eru 50 þúsund að nafnverði: Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög- urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur, vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14 ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert. Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð- stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til- tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%. Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í einu lagi við innlausn. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfm eru ýmist verðtryggð eða óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með aflollum og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til einstaklinga 782 þúsundum króna, 2-4 manna fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 391 þúsund krónur til einstakl- ings, annars mest 195 þúsund. 2-4 manna Qölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns- tími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-1000 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15-42 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextirj heilt ár og reiknað- ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextimir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma- bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafnvel orðið neikvæð. Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á 10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft- ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6 mánuðina. A endanum verður innstæðan því 1.102,50 og áreávöxtunin 10,25%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á mánuði eða 27% á ári. Vísitölur Lánskjaravísitala í maí 1986 er 1432 stig en var í mars 1428 stig, í febrúar 1396 og jan- úar 1364 stig. í apríl var hún 1425 stig. Miðað er við gmnninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 2. árefjórðungi 1986 er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924 stig á grunni 100 frá 1975. Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04. en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar sem við hana er miðað sérstaklega í samning- um leigusala og leigjenda. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 01. -10.05. 1986 INNIÁN með sérkjörum sjA sérusta il il iSllÍliilÍHíhi INNLAN óverðtryggð SPARISJÓÐSBÆKUR Otmiulm innstæía 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 10.0 10.25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0 6mánuppsogn 12.5 12.9 12.5 9.5 11.0 10.0 10.0 12.0 10.0 12 mán.uppsogn 14.0 14.9 14.0 11.0 12.6 12.0 SPARNAÐUR - LÁNSRlTTUR Sparaö 3-5 mén. 13.0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0 Sp. 6 mán. og m. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0 TtKKAREIKNINGAR Avltanareiknmgar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0 Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0 INNLÁN VERÐTRYGGD SPARIREIKNINGAR 3jamán uppsögn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 6 mán.uppsógn 3.5 3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0 INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 6.25 7.0 6,25 Sterlingspund 11.5 11.5 9.5 9.0 9.5 10.0 10.0 11.5 9.5 Vestur-þýsk mörk 4,5 4.0 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 Danskar krónur 8.0 9.5 7.0 7.0 7.0 7.5 7.0 7.0 7.0 ÚTLANÓVERÐTRYGGÐ ALMENNIRVlXLAR (lomentir) 15.25 15,25 15.25 15.25 15,25 15.25 15.25 15.25 15.25 VIÐSKIPTAVÍXLAR 3) (ltrrvart.r| kge 19.5 kfla 19,5 kge kge kge ke* ALMENN SKULDABRÉF2) 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 VIÐSKIPTASKULDABRÉF 3) kge 20,0 kge 20.0 kge kge kge kge HLAUPAREIKNINGAR VFIRDRÁTTUR 9.0 9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0 útlAn VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF U21/2iri 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Lengri en2 1/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 ÚTLÁN TIL FRAMLEIÐSLU SJA neðanmAls 1) 1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn- ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,25%, í sterlingspundum 11,5%, í vestur- • þýskum mörkum 6%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskipta- skuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá þeim , bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum. Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki: Nær þrjátíu milljón króna tap 1985 Skaðabótaviðiæður við Bkem Frá Gunnari Guðjónssyni, fréttaritara DV á SauðárkróM: Rekstrarlegt tap Steinullarverk- smiðjunnar hf. nam 29,2 milljónum á síðasta ári. Þar af eru afskriftir um 14 milljónir króna. Þetta kom m.a. fram á aðalfundi félagsins sem haldinn var í fyrradag. Varðandi ofangreindar rekstramið- urstöður ber að hafa í huga að til- raunarekstur verksmiðjunnar frá því í lok júlí sl. er allur kostnaðarfærður en sölutekjur eru eingöngu vegna sið- ustu þriggja mánaða ársins. Kostnað- ur við tilraunareksturinn var eins og áætlun gerði ráð fyrir, að frátöldum þeim viðbótarkostnaði sem skapast hefur vegna ágalla á bræðsluofni þeim er keyptur var af Elkem A/S. Áætlað- ur aukakostnaður og tekjutap af þessum sökum er 10 milljónir króna fram til áramóta. Fyrirhugaðar eru skaðabótaviðræð- ur mili Steinullarverksmiðjunnar og Elkem dagana 21. og 22. maí nk. Eftirfarandi breytingar urðu á stjóm félagsins: Úr stjóm gengu Jafet Ólafs- son, fulltrúi iðnaðarráðuneytisins, og Magnús Pétursson, fulltrúi fjármála- ráðuneytisins. I þeirra stað tóku sæti í stjóminni þau Lára Ragnarsdóttir fyrir fjármálaráðuneytið og Halldór Kristjánsson fyrir iðnaðarráðuneytið. Aðrir í stjóm em Ámi Guðmundsson framkvæmdastjóri, Snorri Egilsson framkvæmdastjóri, Stefán Guðmunds- son alþingismaður, Pentti Ljungquist framkvæmdastjóri og Ólafur Friðriks- son kaupfélagsstjóri. Hlutafjáraukmng sú sem samþykkt var á síðasta aðalfúndi félagsins, að upphæð 22 milljónir króna, kom til umræðu þar sem hlutafjárframlög hafa ekki borist frá öllum hluthöfum. Á fundinum lögðu fulltrúar ríkissjóðs fram bókun þess efhis að ríkissjóður ábyrgðist Steinullarverksmiðjunni hf. greiðslu á sínum hluta viðbótarfram- lags jafhskjótt og greiðsla á hlut Steinullarfélagsins hf. hefur endan- lega verið tryggð. Ríkissjóður mun greiða ofangreint hlutafé jöfhum höndum og hlutafé Steinullarfélagsins er greitt. Enn fremur kemur fram í bókuninni að iðnaðarráðherra og fjár- málaráðherra hafa ákveðið að hlutafé ríkisins verði boðið til kaups á al- mennum markaði á því verði og þeim kjörum sem síðar mun auglýst. Núverandi stjómarformaður Stein- ullarverksmiðjunnar er Árni Guð- mundsson og framkvæmdastjóri er Þórður H. Hilmarsson rekstrarhag- fræðingur. Ríkið hefur ákveðið að bjóða hlutafé sitt í Steinullarverksmiðjunni til kaups á almennum markaði. Flutningsgjöld hafa ekki hækkað - segja talsmenn Sambands íslenskra kaupskipaútgerða Talsmenn Sambands íslenskra kaupskipaútgerða segja að flutnings- gjöld hafi ekki hækkað að undan- förnu. Á aðalfundi sambandsins, sem haldinn var fyrir skömmu, var stað- hæft að íslensku kaupskipaútgerðim- ar hefðu á liðnum árum leitað allra leiða til að auka hagkvæmni í flutn- ingum til og frá landinu. Dæmi væm um verulegar lækkanir á flutnings- gjöldum á ýmsum vörutegundum og hægræðing í útgerð hefði skilað sér til neytenda með lægri flutningsgjöld- um. Þá kom fram á fundinum að afkoma kaupskipaútgerða hér á landi hefði verið slök undanfarin ár og með hhð- sjón af því ættu ásakanir um há flutningsgjöld ekki við rök að styðjast. -EH vel gengur hjá lceland Seafood Rekstur Iceiand Seafood Corpora- tion, fisksölufyrirtækis Sambandsins í Bandaríkjunum, gekk vel á síðasta ári. Heildarsalan nam 136 milljónum dollara eða um 5600 milljónum króna miðað við meðalgengi ársins. Nemur söluaukning 13,5% frá því árinu áður. Sala fiskrétta, sem framleiddir eru í fiskréttaverksmiðju fyrirtækisins í Harrisburg í Pennsylvamu, nam um 70 milljónum dollara. Selur fyrirtækið nú meira af fiskréttum en nokkurt annað fyrirtæki í Bandaríkjunum. Sala á flökum, sem fullunnin eru hér á landi, nam um 53 milljónum dollara. Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Iceland Seafood, sagði á aðalfúndi fyrirtækis- ins, sem haldinn var á Hótel Sögu fyrir skömmu, að sala á flökum hefði getað orðið mun meiri en raun varð á. Skort- ur hefði verið á vissum tegundum eins og til dæmis karfa. Sala á skelfiski, humri og rækju, sem •einnig er fullpakkað á Islandi, nam 9,7 milljónum dollara. þessa miklu söluaukningu má einkum rekja til stóraukinnar sölu á pillaðri rækju sem nú er mjög vinsæl í Bandaríkjunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.