Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1987, Síða 4
22
FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987.
Menningartengsl íslands og Ráöstjórnarríkjanna:
Soveski sendiherrann í opiiuii umræðu
Nýskipaður sendiherra Sovét-
ríkjanna á Islandi, Igor N. Krasa-
vin, verður sérstakur gestur MÍR,
Menningartengsla Islands og Ráð-
stjórnarríkjanna, í opnu húsi
félagsins að Vatnsstíg 10 á laugar-
dag og hefst það klukkan 15.00.
Ræðir sendiherrann þá um við-
horfin í Sovétríkjunum eftir nýaf-
staðinn fund miðstjórnar
Kommúnistaflokksins og þróun
sovéskra félags- og efnahagsmála í
náinni framtíð. Mál sendiherrans
verður túlkað á íslensku og hann
mun svara fyrirspurnum sem fram
kunna að koma.
Að venju verða kaffiveitingar á
boðstólum í opnu húsi MÍR og sagt
verður frá félagsstarfínu framund-
an, meðal annars fvrirhuguðum
hópferðum til Sovétríkjanna á ár-
inu. Aðgangur að Vatnssíg 10 er
öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
Á sunnudag, 15. febrúar kl. 16.00,
verður kvikmyndin 26 dagar í lífi
Dostoévskís sýnd í bíósal MÍR.
Aðgangur að henni er einnig
ókeypis á meðan húsrúm leyfir.
Útskriftartónleikar í Háskólabíói
Sinfóníuhljómsveitm og Tónlistarskólinn
Fjórir nemendur sem Ijúka hluta einleikaraprófs. Frá vinstri: Emil Frið-
finnsson, Helga Bryndís Magnúsdóttir, Bryndis Björgvinsdóttir og Björn
Davið Kristjánsson.
Útskriftartónleikar verða haldnir
í Háskólabíói á morgun, laugardag,
kl. 14.30 með Sinfóníuhljómsveit
íslands og Tónlistarskólanum í
Reykjvík.
Fjórir nemendur skólans Ijúka
hluta einleikaraprófs. Emil Frið-
finnsson leikur Hornkonsert nr. 3
K.447 í Es-dúr eftir W.A. Mozart,
Björn Davíð Kristjánsson leikur
Flautukonsert eftir J. Ibert. Brynd-
ís Björgvinsdóttir leikur Sellókon-
sert nr. 1 í a-moll op. 33 eftir C.
Saint- Saéns og Helga Bryndís
Magnúsdóttir leikur píanókonsert
í G-dúr eftir Moris Ravel. Stjórn-
andi á tónleikunum er Mark
Reedman.
Miðar eru seldir við innganginn.
Verð kr. 300.
Gallerí Svart á hvítu við Óðinstorg:
Olíumálverkasýning Kristins Harðarsonar
í Galleríi Svart á hvítu við Óðin-
storg verður á morgun opnuð
sýning á olíumálverkum Kristins
Harðarsonar.
Kristinn er fæddur 1955 og stund-
aði nám við MHÍ 1973 til 1977. Frá
1977 til 1978 var hann við nám í
De stichting de Virje Academie
voor Beeldende kunsten í Haag í
Hollandi.
Hann hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga hér heima og erlendis.
Af helstu samsýningum hans má
nefna Basel Art Fair 1982, XII Bi-
ennale de Paris 1982 i Musée d’art
Moderne í París, Museum Fodor
Amsterdam 1983, Franklin Furn-
ance New York 1984, Listasafn
íslands 1984 og Malmö Konsthall,
Malmö, 1984.
Þá eru verk eftir Kristin á Kex
(konst fran Island och Norge) sem
er samsýning ungra myndlistar-
manna sem var opnuð í Stokkhólmi
í lok janúar sl. Þetta er farandsýn-
ing sem sett verður upp á öllum
Norðurlöndunum.
Kristinn hefur einnig gefið út
ljóðabókina Eilífir sólargeislar
1986 og unnið fyrir leikhús.
A sýningunni í Svart á hvítu sýn-
ir Kristinn olíumálverk frá árunum
1984 til ’86. Stendur hún til 6. mars
og er opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 14.00 til 18.00.
Nýlistasafhið, Vatnsstíg 3b:
Margvísleg
heildarmyndverk
París á árunum 1977-80 og síðar frá
1983-86, einnig hefur hann dvalið í Aust-
urlöndum fjær og í Mexíkó. í tilefni
sýningarinnar mun listamaðurinn gefa
út 100 síðna bók er nefnist „Dagbókar-
krot 1984-86“ en það eru teikningar frá
þessum árum og mun verða til sölu á
staðnum.
Þetta er 6. einkasýning Halldórs á ís-
landi en hann hefur sýnt víða um heim
undanfarin ár. Sýningin mun standa
fram til 22. febrúar og er opin virka daga
frá kl. 16.00 til 20.00 og um helgar kl.
14.00 til 20.00.
Halldór Ásgeirsson myndlistarmaður
opnar í kvöld klukkan 20 einkasýningu
í sölum Nýlistasafnsins við Vatnsstíg 3b.
Á sýningunni eru 22 myndverk sem unn-
in eru á síðastliðnum tveimur árum.
Flest verkin eru í mörgum hlutum er
mynda heildarmynd. Þau eru gerð í
margvísleg efni, svo sem máluð á léreft
og á pappír, skorin út í tré, málaðir obj-
ektar og vírskúlptúrar svo eitthvað sé
nefnt. Öll þessi myndverk eru hluti af
fjölbreyttu táknmáli Halldórs sem hann
hefur þróað með sér um nokkurt skeið.
Halldór stundaði myndlistarnám í
Flest verk Halldórs Ásgeirssonar eru i mörgum hlutum er mynda síðar heildar-
mynd.
Messur
Árbæjarprestakall
Barnasamkoma í Foldaskóla í Graf-
arvogshverfi laugardag kl. 11 árdeg-
is. Barnasamkoma í safnaðarheimili
Árbæjarsóknar sunnudag kl. 10.30.
Guðsþjónusta i safnaðarheimilinu
kl. 14. Organisti Jón Mýrdal. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
Áskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. Þriðjudagur 17. febr.
kl. 20.30: Aðalfundur safnaðarfélags
Ásprestakall í safnaðarheimili Ás-
kirkju. Venjuleg aðalfundarstörf og
lagabreytingar. Sr. Árni Bergur Sig-
urbjörnsson.
Breiðholtsprestakall
Barnasamkoma í Breiðholtsskóla kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti
Daníel Jónasson. Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja
Barnasamkoma kl. 11. Elín Anna
Antonsdóttir og Guðrún Ebba Ólafs-
dóttir. Guðþjónusta kl. 14. Sr. Ólafur
Jens Sigurðsson messar. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson. Æskulýðs-
félagsfundur þriðjudagskvöld.
Félagsstarf aldraðra miðvikudags-
eftirmiðdag. Sr. Ólafur Skúlason.
Digranesprestakall
Barnasamkoma í safnaðarheimilinu
við Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjón-
usta í Kópavogskirkju kl. 11. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
Dómkirkjan
Laugardag: Barnasamkoma í kirkj-
unni kl. 10.30. Egill og Ólafía. Messa
kl. 11. Sr. Þórir Stephensen. Messa
kl. 14. Fermd verðurSara Gustafsson
frá New York. Sr. Hjalti Guðmunds-
son. Dómkórinn syngur við báðar
messurnar. Organleikari Marteinn
H. Friðriksson.
Landakotsspítali
Guðsþjónusta kl. 13. Organleikari
Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Þórir
Stephensen.
Elliheimilið Grund
Sr. Sigurjón Guðjónsson messar kl.
14. Félag fyrrverandi sóknarpresta.
Fella- og Hólakirkja
Laugardagur: Barnasamkoma í
Hólabrekkuskóla kl. 14. Sunnudag-
ur: Barnaguðsþjónusta - kirkjuskóli
kl. 11. Ragnheiður Sverrisdóttir.
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti
Guðný Margrét Magnúsdóttir.
Fundur i æskulýðsfélaginu mánu-
dagskvöld kl. 20.30. Sr. Hreinn
Hjartarson.
Fríkirkjan í Reykjavík
Guðsþjónusta kl. 14. Ræðuefni: „Að
versla með sitt pund“. Organisti og
söngstjóri Pavel Smid. Á föstunni
verða bænastundir í kirkjunni
þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtu-
daga og föstudaga kl. 18.00. Sr.
Gunnar Björnsson.
Grensáskirkja
Barnasamkoma kl. 11. Messa með
altarisgöngu kl. 14. Organisti Árni
Arinbjarnarson. Miðvikudag: For-
eldrafundur fermingarbarna kl.
20.30. Fimmtudagur: Almenn sam-
koma UFMH kl. 20.30. Sr. Halldór
S. Gröndal.
Hallgrímskirkja
Barnasamkoma og messa kl. 11.
Dómprófastur, sr. Ólafur Skúlason
vígslubiskup, vísiterar kirkju og
söfnuð. Dómprófastur prédikar.
Sóknarprestar þjóna fyrir altari.
Þriðjudagur: Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Landspítalinn
Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Jón Bjar-
man.
Háteigskirkja
Messa kl. 10. Barnaguðsþjónusta kl.
11. Sr. Arngrímur Jónsson. Messa
kl. 14. Sr. Tómas Sveinsson.
Kársnesprestakal)
Barnasamkoma í safnaðarheimilinu
Borgum kl. 11 árdegis. Guðsþjónusta
í Kópavogskirkju kl. 14. Biblíulestur
miðvikudag 18. febr. kl. 20.00 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Sr. Árni
Pálsson.
Langholtskirkj a
Kirkja Guðbrands biskups. Óska-
stund barnanna kl. 11. Söngur -
sögur - myndir. Þórhallur Heimisson
og Jón Stefánsson sjá um stundina.
Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Pjet-
ur Maack. Organisti Jón Stefánsson.
Sóknarnefndin.
Laugarneskirkj a
Laugardagur 14. febr.: Guðsþjónusta
í Hátúni lOb 9. hæð kl. 11. Sunnudag-
ur: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Guðmundur
Óli Ólafsson, sóknarprestur í Skál-
holti, prédikar. Einsöng syngur
Jóhanna Möller. Eftir guðsþjón-
ustuna verður hin árlega kaffisala
Kvenfélags Laugarnessóknar í safn-
aðarheimilinu. Mánudagur: Æsku-
lýðsstarf kl. 18. Þriðjudagur:
Bænaguðsþjónusta kl. 18. Altaris-
ganga.' Sóknarprestur.
Neskirkja
Laugardagur: Félagsstarf aldraðra
kl. 15. Kvöldvökukórinn skemmtir
með upplestri og söng. Sr. Frank
M. Halldórsson. Sunnudagur:
Barnasamkoma kl. 11. Munið kirkju-
bílinn. Messa kl. 14. Orgel- og
kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guð-
mundur Óskar Ólafsson. Mánudag-
ur: Æskulýðsstarf kl. 19.30.
Þriðjudagur og fimmtudagur: Opið
hús fyrir aldraða kl. 13-17. Miðviku-
dagur: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Fimmtudagur: Biblíulestur kl. 18.30.
Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson.
Seljasókn
Barnaguðsþjónusta í Seljaskóla kl.
10.30. Barnaguðsþjónusta í Öldusels-
skóla kl. 10.30. Guðsþjónusta í
Ölduselsskóla kl. 14. Þriðjudagur:
Æskulýðsfélagsfundur í Tindaseli 3
kl. 20.00. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Eirný
og Solveig Lára tala við börnin og
stjórna söng. Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur sr. Solveig Lára Guðmunds-
dóttir. Organisti Sighvatur Jónas-
son. Opið hús fyrir unglingana
mánudagskvöld kl. 20.30. Opið hús
fyrir 10-12 ára þriðjudag kl. 17.30.
Sóknarprestur.
Fríkirkjan í Hafnarfirði
Barnasamkoman fellur niður vegna
útvarpsmessu kl. 11. Organisti Þóra
Guðmundsdóttir. Sr. Einar Eyjólfs-
son.
Kirkja Óháða safnaðarins
Nýmessa kl. 17. Efni nýmessunnar
verður bænin og gestir dagsins verða
frá ungu samfélagi fólks sem nefnist
Norðurljósin. Þ.á m. Helgi S. Guð-
mundsson og sr. Kristinn Á. Frið-
finnsson sem sjá um erindi dagsins
og Þorvaldur Halldórsson sem syng-
ur einsöng. Leikmenn frá samfélag-
inu lesa ritningarlestra og leiða
bænir. Kirkjuskólinn (barnastarí) er
starfrætkur í Kirkjubæ á meðan
messan stendur yfir. Foreldrar eru
því hvattir til að taka börnin með.
Sr. Þórsteinn Ragnarsson.
Keflavíkurkirkja
Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Mál-
fríðar Jóhannsdóttur fóstru og
Ragnars Karlssonar æskulýðsfull-
trúa. Munið skólabílinn. Sóknar-
prestur.
Tilkynningar
Flóamarkaður Lionessu-
klúbbs Reykjavíkur
hionessuklúhbur Reykjavíkur heldur sinn
árlega flóamarkað laugardaginn 14. febrú-
ar kl. 14 í Lionsheimilinu Sigtúni 9,
Reykjavík. Allur ágóði rennur til líknar-
mála.
Leildist
Þjóðleikhúsið
Rympa á ruslahaugnum, barnaleikrit
með söngvum eftir Herdísi Egilsdóttur.
Sýningar á stóra sviðinu á laugardag og
sunnudag kl. 15.
Hallæristenór, gamanleikurinn eftir Ken
Ludwig í þýðingu Flosa Ólafssonar og
leikstjórn Benedikts Árnasonar, verður
sýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins í
kvöld og á fimmtudagskvöld kl. 20.
Aurasálin eftir Moliere í leikstjórn Sveins
FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987.
27
Einarssonar verður sýnd á laugardags-
kvöld og þriðjudagskvöld.
Uppreisn á Isafirði eftir Ragnar Arnalds
í leikstjórn Brynju Benediktsdóttur verð-
ur sýnt á sunnudagskvöld kl. 20.
I smásjá, leikr it Þórunnar Sigurðardótt-
ur, verður sýnt á Litla sviðinu, Lindargötu
7. á laugardagskvöld kl. 20.30.
íslenska Óperan
sýnir hina vinsælu Aidu eftir Verdi í kvöld
kl. 20 og á sunnudagskvöld á sama tíma.
Sú breyting verður nú á hlutverkaskipan
að Eiður Gunnarsson tekur við hlutverki
Konungs af Hjálmari Kjartanssyni. I öðr-
um aðalhlutverkum eru Ólöf Kolbrún
Harðardóttir, Sigríður Ella Magnúsdóttir.
Garðar Cortes, Kristinn Sigmundsson,
Viðar Gunnarsson, Katrín Sigurðardóttir
og Hákon Oddgeirsson.
Leikhúsið i kirkjunni
Kaj Munk. Sýning á sunnudag kl. 16 og
mánudag kl. 20.30.
Kammersveitin Ensemble 4
- með tónleika í Norræna húsinu
Á morgun, 14 febr., kl. 16 heldur
danska kammersveitin Ensemble 4
tónleika í Norræna húsinu.' I
kammersveitinni eru: Inke Kessel-
er, píanó, Atli Sigfússon, fiðla, Finn
Winslov, fiðla og lágfiðla, og Palle
Christensen sem leikur á selló. Þau
stofnuðu kammersveitina 1983 en
öll hafa þau spilað með kammer-
sveitum og sinfóníuhljómsveitum
um árabil, m.a. í sinfóníuhljómsveit
S-Jótlands.
Verkefnaskrá Ensemble 4 er fjöl-
breytt. Þar má finna barokktónlist
og nútímatónlist, kvartetta, tríó,
tvíleiks- og einleiksverk og sónöt-
ur.
Á tónleikunum i Norræna húsinu
leika þau píanókvartett eftir Her-
mann D. Koppel, saminn 1986,
píanókvartett í g-moll eftir W.A.
Mozart og píanókvartett eftir Jo-
hannes Brahms.
Til fróðleiks má geta þess að Atli
Sigfússon en sonarsonur Sigfúsar
Einarssonar tónskálds.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn.
Tónleikar í Norræna húsinu:
Samleikur á selló,
fiðlu og píanó
Nemendaleikhúsið
Helgina 12.-14. febrúar sýnir Nemenda-
leikhúsið í Lindarbæ gamanleikinn
vinsæla, Þrettándakvöld eða H vað sem þið
viljið eftir William Shakespeare í þýðingu
Helga Hálfdánarsonar. Sýningar verða
föstudag, laugardag, mánudag og fimmtu-
dag kl. 20.30. Hægt er að panta miða allan
sólarhringinn í síma 21971.
Leikfélag Reykjavíkur
Dagur Vonar, sýning í kvöld og sunnu-
dagskvöld kl. 20.
Þar sem Djöflaeyjan rís, sýning í Leik-
skemmu L.R. v/Meistarvelli í kvöld og
sunnudagskvöld kl. 20.
Land míns föður. Sýnt í Iðnó á laugar-
dagskvöld kl. 20.30.
Ferðalög
Útivistarferðir
Helgarferðir 13.-15. febr.
1. Tindafjöll í tunglskini. Gist í Tinda-
fjallaseli. Gengið á Tindafjallajökul.
2. Þorraferð í Þórsmörk. Gist í Útivistar-
skálunum Básum. Gönguferðir við allra
hæfi. Tunglskinsferð. Góð færð. Uppl. og
farm. á skrifstofunni. Grófmni 1. símar
14606 og 23732.
Tunglskinsganga og fjörubál á föstu-
dagskvöld kl. 20. Brottför frá BSl. bensín-
sölu. Sjáumst.
Sunnudagur 15. febr.
kl. 13: Hraunssandur-Hrólfsvík. Stór-
straumsfjöruferð og létt ganga austan
Grindavíkur. Margt forvitnilegt að skoða.
Að við Bláa lónið á heimleið. Verð 600
kr.. frítt f. börn með fullorðnum. Brottför
frá BSl. bensinsölu.
Ferðafélag íslands
1. kl. 13 Skarðsmýrarfjall (597 m). Ekið
að Kolviðarhóli og gengið upp Hellisskarð
og þaðan á Skarðsmýrarfjall. Verð kr. 500.
2. kl. 13 Innstidalur - austur fvrir
Skarðsmýrarfjall/skíðaganga. Ekið
austur fyrir Hveradali og gengið á skíðum
milli hrauns og hlíða í Innstadal. Verð 500
kr. Brottfor frá Umferðarmiðstöðinni.
austanmegin. Farmiðar við bíl. Munið
helgarferðina í Borgarfjörð 20. 22. febrú-
ar. Gist á Varmalandi.
Nina G. Flyer selióleikari, Guðný
Guðmundsdóttir konsertmeistari
og Catherine Williams píanóleikari
verða með tónleika í Norræna hús-
inu á sunnudag kl. 17.00. Á efnis-
skrá tónleikanna eru Sónatína
fyrir fiðlu og selló, Allegro, And-
ante, Allegro eftir A. Honegger,
Sónata op. 40 fyrir selló og píanó
Allegro ma non troppo, Allegro,
Largo, Allegro eftir D. Shos-
takovich. Þar verður gert hlé en
að því loknu verða leikin þrjú smá-
lög fyrir selló og píanó, Minuet,
Gavotte, Allegro og að síðustu
verður Trío op. 70 nr. 1 í D-dúr,
Allegro vivace e bon broi, Largo
assai ed espressivo, Presto eftir
Ludwig Van Beethoven. Allar
þessar konur hafa farið víða með
tónlist sína, Nína var 1. sellóleik-
ari sinfóníuhljómsveitarinnar í
Jerúsalem á árunum 1978 til 1984
en síðan þá hefur hún verið búsett
í San Fransisco þar sem hún star-
far aðallega við kammertónlist
ýmiss konar. Catherine Williams
hefur fengist við tónlistariðkun af
ýmsu tagi í Hong Kong. Haustið
1985 fluttist hún til íslands og star-
far við Söngskólann og íslensku
óperuna sem óperuþjálfari. Og síð-
ast en ekki síst Guðný Guðmunds-
dóttir sem þarf vart að kynna. Hún
hefur sem kunnugt er gegnt emb-
ætti konsertmeistara Sinfóníu-
hljómsveitar íslands frá 1975.
Aðrir tónleikar verða haldnir á
mánudaginn 16. febrúar kl. 20.30 í
Gerðubergi í Breiðholti.
Sýningar
Árbæjarsafn
Opið samkvæmt samkomulagi.
Asgrímssafn,
Bergstaðastræti 74
Safnið er opið þriðjudaga, fimmtudaga og
sunnudaga kl. 13.30-16.
Ásmundarsafn
við Sigtún
Opnunartími safnsins er á þriðjudögum.
fimmtudögum, laugardögum og sunnudög-
um frá kl. 14-17.
Gallerí Borg,
Pósthússtræti
Sigrún Harðardóttir sýnir málverk og
pastelmyndir í Gallerí Borg. Sýningin er
opin virka daga kl. 10-18 en frá kl. 14 18
laugardaga og sunnudaga.
Gallerí Grjót,
Skólavörðustíg 4A
Þar stendur vfir sýning á nýjum verkum
eftir þá sem að galleríinu standa en það
eru þau Jónína Guðnadóttir. Magnús
Tómasson. Ófeigur Björnsson. Ragnheiður
•Jónsdóttir. Steinunn Þórarinsdóttir. Þor-
björg Höskuldsdóttirog Örn Þorsteinsson.
Sýningin er opin virka daga kl. 12-18 en
frá kl. 14-18 laugardaga og sunnudaga.
Gallerí Grjót hefur nú starfað í 3 ' ár og
hefur eingöngu verk eftir félagana sem
vinna í mjög mismunandi efni.
Gallerí Hallgerður,
Bókhlöðustíg 2
Anna Þóra Karlsdóttir sýnir myndverk
og skúlptúr úr ull. Anna Þóra stundaði
nám í Myndlista- og handíðaskóla íslands.
einnig við Konstfackskolan í Stokkhólmi
og hefur á umliðnum árum tekið þátt í
ýmsum samsýningum. Sýningin er opin frá
kl. 14-18 daglega til 15. febrúar.
Galleri Svart á hvítu
við Óðinstorg
Á morgun opnar Kristinn Harðarson sýn-
ingu á olíumálverkum. Sýningin stendur
til 6. mars og er opin alla daga nenia mánu-
daga kl. 14-18. Einnig er í Gallerí Svart á
hvítu mikið úrval verka eftir ýmsa lista-
menn í umboðssölu gallerísins.
Nina G. Flyer sellóleikari, Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Cather-
ine Williams píanóleikari halda tónleika í Norræna húsinu á sunnudag
og á mánudag i Gerðubergi.
Óvenjulágt verð
í Fatalandi
og nú eru nýju vörurnar komnar.
Nýjasta
tíska.
Dömupils, hringskorin...........................kr. 890
Dömublússur, vorlitirnir........................kr. 990
Vendipeysur, vorlitirnir................kr. 990-1.290
Barna-jogginggallar, mynda, vorlitirnir..kr. 790-S90
Barna-H-bolir, mynda, vorlitirnir...............kr. 790
Barnapeysur, þykkar, munstraðar..........kr. 490-890
Háskólabolir, í mörgum góðum litum..............kr. 565
Dömubuxur, jarðlitir.......................kr. 1.780
vor-
litirnir.
Að sjálfsögðu eru útsöluvörurnar ennþá í fullum gangi. Úlpur, 1.190-1.990. Barnaúlpur,
1.490-1.690. Stígvél, 290-390.
Opið: Virka daga kl. 10-18
Föstudaga kl. 10-19
Laugardaga kl. 10-16 i ,*x --- Smiðjuvegi 2, Kópavogi, á horni Skemmuvegar.
Póstsendum.