Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1988, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1988, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1988. Sandkom Hvað erhann þá? Þaðvaktimikla athygliaðí umræðumá Alþingiísíð- ustuvikusá Guðrún Helga- dóttir.forseti þingsins, sigtil- neyddaaðtil- kynnaþaðað Hjörleifur Guttormsson ílokksbróðir hennarværi ekki utanríkis- mál. Ef einhverjir hafa haldið það þá vita þeir nú hið sanna þ ví Guðrún hlýtur jú að vita þetta. En hvað er Hj örleifur þá? Fyrir nokkrum árum vakti Hjörleifur mikla athygli á þing- inu vegna óstöð vandi löngunar til að tala úr ræðustól og þá varð til orðið „hjörl“. Ef sáldrari Sandkornsí dag man rétt átti þetta orö að mæla þann tíma sem þingmenn eyddu í ræðustól og talað var um að þessi eða hinn þingmaðurmn hefði talað í svo og s vo mörg „hjörl“. En nú hefur forseti sameinaðs þings kveðið upp úr með að Hjörleifur sé ekki utanrikismál, og ætli hann sé þá ekki bara „þjörl“? Ekkiallir með Málmálannai siðustuviku varánefaein- okunarsamn- ingur 1. deildar liöannaíhand- knatdeikvið Stöð2oghurfu önnurmálgjör- samlegaí: skuggann. Svo mikiðlááaö geraþennan samningaðeitt liðannaísam- tökum iiðanna hafði ekki hugmynd um samninginn fyrr en hann haíði verið undirritaður. Þetta er KA á Akureyri og er mikil óánægj a meðal KA-manna vegna samningsins. KA- menn benda á að þeirra fy lgismenn hafi ekki möguleika á að fylgja liði sínu í útileiki og því eigi þeir að geta horft á leiki liðsins í sjón varpi. En þeir eiga ekki allir myndlykil þótt þeir séu í hópi þeirra 95% þjóðarinn- ar sem forráðamenn Stöðvar 2 segj - astnátil. Allterþetta málhiðfurðu- legasta.og kemurtilmeð aðbitnaásam- tökumhand- knattieiksfé- iagaálandinu, HSÍ, þótt liöin í l.deildkarla iáimeirafyrir sjónvarpssend- ingarenáður. Jóni Hjaltalín, semífyrstu lýstiyfiránægju með samninginn, varð þetta þóst enda fór s vo að hann og ritstjómarmenn HSÍ treystu sér ekki til aö mæla með þessum samn- ingi. En félögin ráða í þessu tilfelli, a.m.k. þau þeirra sem málið var bo- rið undir áður en samningurinn var undirritaöur. Údýrtá „Hrafninn" Tsandkomisl. mánudagvar látiðíþaðskína aðHrafhGunn- laugssonværi orðinnyfir- maðurverð- lagstnálahérá landi, a.m.k. hefðihannhaft einnmeðmiða- verðaðgeraá nýjustumynd sina,ískugga hrafnsins. Margir munu hafa bölvað 600 króna miðaveröí í miðasölu Laugarásbíós, en ónefndur „kmmmf' hvíslaði því að undirrituðum að þetta miðaverð væri ósköp eðlilegt. Hefö mun vera fyrir því að miðaverð á innlendar myndir sé helmingi hærra en á er- lendar myndir og þ ví eigi að kosta 600 krónur á mynd Hrafns eða jafn- vel meira þar sem myndin sé lengri en „venjulegar" myndir. Gylfi Krisljánsson Fréttir _____________DV Stjómmálaályktun Sjálfstæðisflokksins: Gengisfelling fram fyrir baráttuna við verðbólgu I stjórnmálaályktun flokksráðs- og formannaráðstefnu Sjálfstæðis- flokksins lýsir flokkurinn andstöðu sinni við þær miklu millifærslur og skattaálögur sem ríkisstjórn Stein- gríms Hermannssonar hefur gripið til. „Ríkisstjórnin heldur uppi röngu gengi íslensku krónunar, færir til fjármagn og tekur erlend lán til að greiða verðbólguna niöur. Þessar bráðabirgðaaðgerðir færa stjórn efn- hagsmála marga áratugi aftur í tím- ann og byggjast á geðþóttaákvörðun- um stjórnvalda. Þær mismuna stór- lega fyrirtækjum og atvinnugreinum og skerða stórlega lifskjör þjóðarinn- ar. Þegar þessum aðgerðum lýkur magnast verðbólga á ný en hún er höfuðmeinsemd íslensk efnhagslífs," segir í ályktuninni. I máli Friðriks Sophussonar, vara- formanns Sjálfstæðisflokksins og formanns stjórnmálanefndar ráð- stefnunar, kom fram að fallið hefði verið frá því að minnast á baráttuna við verðbólguna í þeim hluta álykt- unarinnar sem fjallaði um stefnumál Sjálfstæðisflokksins. Ástæðan var sú að þar er þess krafist að gengi ís- Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, lýsti Framsóknarflokknum sem höfuðandstæðingi sjálfstæðismanna á flokksráðs- og formannaráð- stefnu fiokksins á Hótel Sögu um helgina. DV-mynd KAE Hér heldur Arni Sigfússon, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, á samanpressuðum áldósum sem umhverfismálanefnd lagði fram sem fund- argagn á flokksráös- og formannafundi sjálfstæðismanna á Hótel Sögu um helgina. Á fundinum kom fram að urðun brotajárns mundi kosta um 1.750 j krónur á hvert tonn en ef brotajárninu væri pakkað og selt út væri hægt aö gera það meö um 1.400 króna tapi miðað við hvert tonn. lensku krónunar verði leiðrétt. Gengisfelling hefur áhrif til hækkun- ar verðlags og þar með aukinnar verðbólgu. Það var því mat nefndar- innar að það gæti ekki farið saman að krefjast gengisfellingar og minnk- andi verðbólgu. í ályktuninni eru síðan raktar ýms- ar þær aðgerðir sem Sjálfstæðis- flokkurinn vill að gripið verði til og eru þær nánast þær sömu og fólust í tillögum Þorsteins Pálssonar í síð- ustu ríkisstjórn. Um aðgerðir ríkisstjómarinnar vegna erfiðleika í útflutningsgrein- um segir síðan: „Vinstri stjórn Steingríms Her- mannssonar hyggst nota þessa erfið- leika sem yfirvarp til að koma á opin- berri skömmtunarstjórn og eyða þeim árangri sem náðst hefur að undanfornum árum undir forystu sjálfstæðismanna. Slík stefna hefur hvarvetna leitt af sér stöðnun og aft- urför og er í hróplegri mótsögn við nútíma stjórnarhætti í vestrænum lýðræðisríkjum." -gse Framsóknarflokkurinn er höfuðandstæðingur I máli Þorsteins Pálssonar, form- anns Sjálfstæðisflokksins, á flokksr- áðs- og formannaráðstefnu flokksins kom fram að hann metur ástandið í stjórnmálum svo að Framsóknar- flokkurinn sé nú höfuðandstæðingur Sj álfstæðisflokksins. Þorsteinn sagði ástæðuna vera þá að Framsókn heföi forystu um þá framsókn til fortíðar sem ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar stæði fyrir. Alþýðubandalagið, sem enn væri sá flokkur sem stæði lengst frá grundvallaratriðum Sjálfstæðis- flokksins, ætti nú í umtalsverðum erfiðleikum innanbúðar. Alþýðu- flokkurinn virtist hafa ákveðið að setja lítinn svip á íslensk stjórnmál á næstunni en einbeita sér að því aö koma flokknum undir sama hatt og Alþýðubandalagið. Um hina stjórn- andstööuflokkana sagði Þorsteinn lítið en tók fram að enn væri þíða af hálfu sjálfstæðismanna í sam- skiptum flokksins við Borgaraflokk- inn. -gse Svona á fálkinn í merki Sjálfstæðisflokksins að líta út á næsta ári þegar flokkurinn verður 60 ára. Til hliðar má sjá gamla fálkann. Nýr fálki í til- efni af afmælinu Á flokksráðs- og formannafundi Sjálfstæðisflokksins á Hótel Sögu um helgina var kynnt nýtt merki flokks- ins sem notað verður á næsta ári þegar flokkurinn heldur upp á 60 ára afmæli sitt. Ekki féll öllum fundar- manna merkið jafnvel. Haraldur Blöndal hæstaréttarlögmaður flutti tillögu ásamt öðrum um aö þessu merki yrði hafnað. Tillagan var hins vegar ekki borin undir atkvæði held- ur vísað til miðstjórnar flokksins. í athugasemdum sínum við þessa málsmeðferð sagðist Haraldur fallast á hana en í þeirri trú að miðstjórn beitti ýtrustu íhaldssemi varðandi merki flokksins. Hið nýja merki er stílfærð útfærsla á gamla merkinu og hafa íslensku fánalitirnir verið settir á fuglinn. -gse Kanaríeyjar: Tvö leiguflug felld niður „Það voru felld niöur tvö leiguflug til Kanaríeyja, þann 4. nóvember og 25. nóvember. Farþegarnir, sem áttu bókaö, fóru með áætlunarflugi, svo að enginn varð af neinu,“ sagði Tóm- as Tómasson hjá Samvinnuferðum Landsýn í viötali við DV. Feröirnar umræddu voru farnar í samvinnu Samvinnuferöa, Útsýnar og Flugleiöa. Reyndust bókanir í ferðimar svo fáar að farþegarnir voru sendir með áætlunarflugi. „Þetta er segin saga með fyrstu ferð- irnar á haustin, það detta alltaf ein- hverjar út,“ sagði Tómas. ,-,En svo lifnar þetta fljótlega við og sam- kvæmt bókunum okkar núna á ég alls ekki von á að fleiri ferðir veröi felldar niður.“ Tómas sagöi ennfremur aö bókanir í dýrari ferðir væru á rólegri nótun- um núna. Fólk notfæröi sér hins veg- ar tilboðsferðirnar út í æsar. Þá væri meira um bókanir í dagsferðir og tveggja daga ferðir en verið hefði. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.