Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1989. Viðskipti Þau Hilmar og Elín keyptu húsnæði matreiðsluskólans fokhelt og fullklár- uðu það. Sú fjárfesting reyndist þeim um megn. Matreiðsluskólinn OKKAR til sölu: Eini kosturinn sem við eigum - segja eigendumir sem auglýsa einnig húsið sitt „Ástæðan fyrir því að við settum matreiðsluskólann, svo og húsiö okkar í sölu er einfaldlega fjárhags- örðugleikar. Þetta er eini kosturinn sem við eigum til aö lækka skuldir okkar við bankann. Við fórum af stað á erfiðum tíma og þjóðfélagsaðstæð- ur í dag eru allar þannig að erfitt er að standa í slíkum rekstri. En við erum ekkert á því að gefast upp og munum halda áfram á sömu braut.“ Þetta sögðu hjónin Hilmar B. Jóns- son matreiðslumeistari og Elín Kára- dóttir, framkvæmdastjóri Mat- reiðsluskólans OKKAR, er DV ræddi við þau. Þau hafa nú auglýst mat- reiðsluskólann og einbýlishús sitt til sölu. Skólann hafa þau starfrækt í tæp tvö ár en húsnæðið, sem hann er í, keyptu þau á sínum tíma fok- helt og innréttuöu það. „Það hefur reynst okkur þungur baggi, því við verðum að greiða öll lán sem við tók- um vegna þess upp á 3-5 árum,“ sagði Elín. „Það dæmi gengur ekki upp eins og ástandið er í þjóðfélaginu ídai:‘ Þau Hilmar og Elín hafa unnið að ýmsum nýjungum til að efla starf- semi skólans að undanfómu. Til dæmis hafa þau athugað með að fá erlenda hópa hingað til lands á mat- reiðslunámskeið. Það er ekki komið í gegn ennþá, enda þarf slíkt góðan undirbúning. Þá hafa þau í athugun að efna til námskeiða fyrir maka er- lendra ráðstefnugesta og kenna þeim þá íslenska matargerð. Slíkt tíðkast viða erlendis og hefur verið vinsælt. Hin hefðbundnu matreiðglunám- skeið hafa veriö í gangi og hefur að- sókn að þeim verið nokkuð góð þar til nú eftir áramótin, að dregið hefur úr henni. „Þaö tekur tima að koma rekstri sem þessum á skrið," sagði Elín, „en hugmyndir eru óþijótandi og við erum með mörg járn í eldin- um. Til dæmis hefur Islenska sjón- varpsfélagið tekiö upp þijár video- myndir um matreiöslu héma í skól- anum í samvinnu við okkur og er áhugi á aö halda áfram á þeirri braut. Þá höfum við verið með ýmiss konar sýnikennslu, m.a. hefur útflutn- ingsráð komið með erlenda blaða- menn sem hafa fylgst með íslenskri matreiðslu og síðan fengið að bragða á réttunum." „Það getur vel farið svo að húsið seljist á undan skólanum. Þá eigum við hann skuldlausan og munum reka hann áfram. Við erum staðráðin í að halda áfram á þessum nótum, enda reynslunni ríkari," sagði Hilm- ar. ^JSS Hagnaður Olís nam 14,3 milljónum á síðasta ári. DV Rís nýtt hótel í Aðalstræti? - Ólafur Laufdal fékk þrjár lóðir í útborgun fyrir Broadway „Það er engin spuming að það er viss léttir fyrir mig að hafa selt. Bro- adway þar sem kostnaður við Hótel ísland er áætlaður á annan milljarð króna. Það mun auðvelda mér að halda áfram byggingunni,1' segir Ól- afur Laufdal veitingakóngur m.a. í ítarlegu viðtali við helgarblað DV á morgun. Ólafur segir einrúg að Reykjavíkurborg hafi gert mjög góð kaup er hún keypti Broadway og í staðinn hafi hann fengið öruggan og tryggan kaupanda. „Það er m.a. ástæða þess að ég seldi staðinn. Bro- adway er 176 milljóna króna virði en ég sel staðinn á 118 milljónir. Borgin greiðir enga útborgun utan að ég fæ þijár lóðir. Staðurinn er greiddur upp á mjög löngum tíma þannig að allir eru sammála um að hér hafi verið gerð góð kaup,“ segir Ólafur. Lóðimar númer 14 og 16 við Aðal- stræti hafa verið í eigu Ólafs en nú er hann einnig eigandi Aðalstrætis 18 og Túngötu 2 og 4. Ólafur segist ekki hafa ákveðin framtíðarplön með þessar lóðir en viðurkennir að þær séu mjög ákjósanlegar til nýbygg- inga. „Það em margar hugmyndir Salan á Broadway auðveldar áframhaldandi framkvæmdir við Hótel ísland. sem koma til greina. Ef Hótel Borg leggst niður kæmi til greina að reisa nýtt miðbæjarhótel á þessum stað. Ég er þó ekki að segja að ég ætli aö fara að ráðast í það nú enda hef ég nóg með Hótel ísland um þessar mundir. Þetta eru gríðarlega verð- mætar lóðir sem eiga eftir að nýtast vel,“ segir Ólafur Laufdal. -ELA Kaupfélag Árnesinga hefur verið að skera niður deildirnar sem reknar hafa verið með tapi. Kaupfélag Ámeslnga: Leigir útibúið á Eyrarbakka Kaupfélag Árnesinga hefur nú hætt rekstri útibúsins á Eyrarbakka, sem það hefur rekið um árabil. Hefur húsnæðiö verið leigt Hjálmari Gunn- arssyni á Eyrarbakka, sem rak áður Hólabúö, og mun hann halda versl- unarrekstri þar áfram. „Þessar breytingar áttu sér stað um síðustu mánaðarmót," sagöi Sigurð- ur Kristjánsson, kaupfélagsstjóri KÁ, „og þær eru gerðar vegna þess að reksturinn hefur einfaldlega ekki gengið nógu vel. Þessi deild var rek- inn með tapi og því erum við að losa okkur við hana. Við höfum ekki íhugað að leggja fleiri deildir innan kaupfélagsins niður, enda gerist þess ekki þörf.“ Sigurður sagði að KÁ stæði í ýms- um framkvæmdum um þessar mundir. Meðal annars er verið að innrétta nýtt skrifstofuhúsnæði á efri hæð vöruhúss kaupfélagsins. Skrifstofurnar eru nú til húsa í gamla kaupfélagshúsinu, en það hef- ur verið selt Selfosskaupstað og Sam- tökum sunnlenskra sveitarfélaga. Er fyrirhugaö að flytja skrifstofumar með haustinu, en þá á framkvæmd- um við nýja húsnæðið að vera lokið. -JSS Hagnaöur OIí's 14,3 milljónir: Aðgerðir samt nauðsynlegar - segir Landsbankinn Peningamarkaöur INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 14-20 Úb Sparireikningar 3jamán. uppsögn 15-20 Vb,Úb 6mán.uppsögn 16-22 Vb 12mán. uppsögn 18-20 Úb 18mán. uppsögn 30 Ib Tékkareikningar, alm. 3-9 Ab,Sp Sértékkareikningar 4-17 Vb.Ab Innlán verðtryggö Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5-2 Vb 6 mán. uppsögn 2,5-3 Allir Innlán með sérkjörum 27-31 nema Sp Sb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 8-£,75 Ab Sterlingspund 11,75-13 Lb.Bb,- Vestur-þýsk mörk 5,25-6 lb,Vb,- Sb Sb,Ab Danskar krónur 7,75-8,25 Lb.lb,- ÚTLÁNSVEXTIR (%) Vb.Sp lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 32,5-34,5 Bb Viöskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi Almenn skuldabréf 34,25- Bb Viðskiptaskuldabréf(l) 37,25 kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(yfirdr.) 35,5-39 Lb Utlán verðtryggð . Skuldabréf 7-8,25 Lb Utlán til framleiðslu Isl. krónur 27,5-37 Úb SDR 10-10,5 Lb Bandaríkjadalir 11-11,25 Allir Sterlingspund 15,75-16 nema Úb Allir nema Vestur-þýsk mörk 8,25-8,5 Úb Úb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 45,6 MEÐALVEXTIR överötr. júli 89 34,2 Verðtr. júlí 89 7,9 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitalajúli 2557 stig Byggingavísitala júli 465stig Byggingavísitalajúli 145,3stig Húsaleiguvisitala 5%hækkun l.júll VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 4,052 Einingabréf 2 2,245 Einingabréf 3 2,645 Skammtímabréf 1,394 Lífeyrisbréf 2,037 Gengisbréf 1,807 Kjarabréf 4,028 Markbréf 2,145 Tekjubréf 1,743 Skyndibréf 1,222 Fjölþjóöabréf 1,268 Sjóðsbréf 1 1,945 Sjóðsbréf 2 1,557 Sjóðsbréf 3 1,373 Sjóðsbréf 4 1,144 Vaxtasjóðsbréf 1,3733 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 300 kr. Eimskip 368 kr. Flugleiðir 172 kr. Hampiöjan 165 kr. Hlutabréfasjóður 130 kr. lönaðarbankinn 159 kr. Skagstrendingur hf. 212 kr. Otvegsbankinn hf. 135 kr. Verslunarbankinn 146 kr. Tollvörugeymslan hf. 109 kr. „Þaö sem þarna er um að ræða er það að Landsbankinn er aö krefjast þess að vanskilaskuldir verði gerðar upp og aö skuldastaðan veröi bætt. En ég hlýt að benda á aö bankinn fer yfirleitt ekki með slíkri hörku að við- skiptavinum sínum að tilefnis- lausu,“ sagði Stefán Pétursson, að- stoðarbankastjóri í Landsbankan- um, er DV innti hann eftir því hvort bankinn hefði ef til vill gengið of hart að Olís með tilliti til þess að fyr- irtækið hefði skilaö rekstrarhagnaöi á síðasta ári. Samkvæmt rekstrarreikningi Olís nam hagnaðurinn 14,3 milljónum .króna. Eigið fé félagsins í lok ársins nam samtals 807,9 milljónum af 2.528,8 milljón króna heildareignum. -JSS (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og viöskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkaö- inn birtast 1 DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.