Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1989. Útlönd Þingkosnlngar í Japan á sunnudag: Stjórnar- flokknum spáð ósigri Sosuke Uno, forsætisráöherra Japans, og eiginkona Chyio. Flestir búast við afsögn forsætisráðherrans fijótlega eftir kosningarnar til hluta sæta efri deildar japanska þingsins sem fram fara á sunnudag. Símamynd Reuter Samkvæmt niðurstöðum skoðana- kannana tapar stjórnarílokkurinn í Japan, Frjálslyndi lýðræðisílokkur- inn, meirihluta sínum í efri deild þingsins í kosningunum sem fram fara á sunnudag. Til að halda meiri- hiutanum í hinni 252 sæta efri deild þarf flokkurinn að ná 54 af þeim 126 sætum sem kosið er um. Kannanir benda aftúr á móti til að flokkurinn nái einungis 35 sætum. Frjálslyndi iýðræðisflokkurinn, sem verið hefur við stjórnvölinn í Japan síöan árið 1955, er í molum. Segja fréttaskýrendur að flokksfor- ystan hafi þegar gert ráö fyrir tapi í kosningunum á sunnudag og að ákvörðun hafi verið tekin um að beina kröftunum í að sigra í næstu kosningum. Líklega verður gengið til kosninga til hinnar valdamiklu neðri deildar í september. Þar hefur flokk- urinn meirihluta og myndi það nægja honum til að halda ríkisstjórn- inni saman. Flokkur í molum Frjálslynda flokknum hefur á einu ári tekist að gera flesta japanska kjósendur fráhverfa sér. Það fór sér- staklega fyrir brjóstiö á Japönum þegar nýr söluskattur var lagður á í aprfi síöastliðnum. Og síðast en ekki síst hefur hvert hneykslið rekið ann- að. Recruit-fjármálahneykslið kom illa við flokksforystu Frjálslynda lýð- ræðisflokksins og leiddi af sér hálf- gert stjórnleysi. í kjölfar þess var Sosuke Uno fenginn tfi að taka aö sér forsætisráðherraembættiö. En fljót- lega syrti í álinn hjá forsætisráð- herranum. Fréttir af framhjáhaldi hans og ástarævintýrum með geisj- um hafa ekki farið framhjá mörgum, hvorki innaniands né utan. Sumir sérfræðingar telja að sá kjarni sem flokkurinn hefur byggt stuðning sinn á sé að hruni kominn. Ráðamenn geta ekki reitt sig á stuðn- ing bænda og verslanaeigenda að sama mati og áöur. Jafnvel stóru fyr- irtækin virðast telja ástæðu til að endurskoöa hvort fjárframlög tfi flokksins borgi sig. Einn kaupsýslumaður lét hafa eftir sér á miðvikudag að tapi stjómar- flokkurinn á sunnudag geti það haft alvarlegar efnahagslegar afleiðingar. Á verðbréfamörkuðum virðast margir þegar gera ráð fyrir tapi flokksins á sunnudag þó að markað- urinn bíði niðurstöðunnar. „Spurn- ingin er hversu stórt flokkurinn tap- ar,“ sagði Makoto Omori, varafram- kvæmdastjóri Ábyrgðarbankans í Tokýo. Kaupsýslumenn óttast að ef stjóm- arflokkurinn tapar á sunnudag fylgi tap í kosningum til neðri deildar. En þrátt fyrir tap Fijálslynda lýðræðis- flokksins eru litlar líkur á að miklar efnahagslegar breytingar séu í nánd i Japan. Formaður Sósialistaflokks Japans, Takako Doi. Sósíalistar virðast sigur- stranglegastir stjórnarandstæðinga í Japan í kosningunum sem fram fara á sunnudag. Símamynd Reuter Klofin stjórnarandstaða Stjórnarandstöðuflokkar í Japan, sérstaklega sósíalistaflokkurinn, vonast til að geta nýtt sér ástandið og komist tíl valda. Sósíalistar, sem án efa græða mest á ringulreiðinni meðal Frjálslyndra, geta ekki komiö saman stjóm nema með samstarfi við aðra stjómarandstöðuflokka. En margir fréttaskýrendur telja að stjórnarandstaðan sé of klofin til að ná saman í samstæða heOd gegn stjórnarflokknum. Alvarlegasta málið, sem frétta- skýrendur telja aö blasi við flokkn- um nú, er sú tilfinning í Japan að tími breytinga sé runninn upp. „Fólk vill breytingu," sagði Hajime Shino- hara, prófessor í stjórnmálafræði við Seikei háskóla. Enginn arftaki Unos í augsýn Uno er af mörgum talinn dragbítur á vinsældir flokksins. Flestir búast við að hann segi af sér strax í kjölfar kosninganna á sunnudag til að veita flokknum tækifæri til að ná sér á strik fyrir kosningamar til neðri deildar. En hver á þá að taka við af forsætisráðherranum? „Ringulreiðin sem nú ríkir innan Frjálslynda lýðræðisflokksins á sér ekki hliðstæðu," sagði Shinohara. „Enginn arftaki Unos virðist í aug- sýn og þungamiðja flokksins virðist vera hrunin.“ Frjálslyndir leita nú fyrir sér með einhvers konar samstarf við flokk sósíaldemókrata sem er íhaldsam- astur stjómarandstööuflokka. Sós- íaldemókrataflokkurinn er þriðji stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn og hefur gagnrýnt mjög stefnu sós- íalistaflokksins. En hann hefur aftur á móti hafnað samstarfi. Flestir fréttaskýrendur telja ólík- legt að stjórnarflokkurinn tapi í kosningum til neðri deOdar. En í fyrsta sinn í áraraðir telja fréttaskýr- endur sig sjá vísi mikilla breytinga í stjórnmálum í Japan. „Við stöndum nú á krossgötum," sagði Takeshi Sasaki, prófessor í stjórnmálafræði VÍðTokýoháskÓla. Reuter Er Khasoggi of ríkur? Adnan Khasoggi, saudi-arabíski vopnasalinn sem framseldur var frá Sviss tíl Bandaríkjanna, situr nú bak við lás og slá rétt eins og hver annar fangi. Auðæfi Khasoggis vom einu sinni talin nema fjómm mOljörðum dollara en nú segir sagan að hann eigi bara fjömtíu núlljónir doOara eftir. Maðurinn sem eitt sinn var meö þjón á hverjum fingri þarf nú að búa um rúmið sitt sjálfur og þrífa gólfið í fangaklefa í New York. Khasoggi, sem talinn er eiga tólf hús víðs vegar um heiminn, þarf nú að búa í fanga- klefa með öðrum manni. Já, það er af sem áður var. Khasoggi situr inni á meðan banda- rískur dómari tekur ákvörðun um tryggingarfé. Verið getur að Kha- soggi sé of ríkur tíl að hægt sé að láta hann lausan þar tíl réttarhöldin yfir honum hefjast. Khasoggi hjálp- aði Ferdinand og Imeldu Marcos við að svíkja rúmar eitt hundrað mOljón- ir dollara út úr fjárhirslum Filipps- eyja þegar þau hjónin flýðu þaðan með því að ljúga því að hann ætti fjóra skýjakljúfa í New York sem í raun vora eign Marcosar. Þá telja bandarískir bankamenn sig eiga sitt- hvað hjá Khasoggi. Þeir segja hann hafa svikið rúma 160 milljónir dollar út úr bandarískum bönkum. Saksóknari er andvígur því að Khasoggi verði sleppt úr fangelsi gegn tryggingu þar til réttarhöldin yfir honum hefjast. Segir hann að ekki sé hægt að treysta því að hann yfirgefi ekki Bandaríkin veröi hann látinn laus úr prísundinni. Jafnvel dómarinn sem dæmir í málinu, John Keenan, velti fyrir sér í gær hvort Khasoggi væri svo ríkur að hann myndi stinga af og láta tryggingarféð lönd og leið. Dómarinn úrskurðaði aö Khasoggi skyldi haldiö í fangelsi þar til lög- fræðingamir í máhnu hafa lokið málaflutningi varðandi tryggingar- féö. Lögfræðingur Khasoggis, Robert MorviOo, sagði í gær að allt að fimm mOljóna dollara trygging skipti í raun litlu fyrir skjólstæöing sinn. ? - ? Khasoggi ásamt eiginkonu og dóttur þegar betur áraði. Khasoggi er nú i fangelsi í Bandaríkjunum. Símamynd Reuter Samstarfsmenn Khasoggis segjast laus af ákæmnum. Þeir hafa þó viö- að segja fyrir viðskipti Khasoggis, þess fullvissir aö hann reynist sak- urkennt að fangavistin hafi haft sitt vopnasölu fll þróunarlanda. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.