Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Blaðsíða 17
16 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1989. FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1989. 25 Iþróttir Iþróttir IL Frétta- stufar Hollensku meistar- arnir PS V Eindhoven gengu í gær frá kaup- unum á afríska leik- manninum Kalusha Bwaiya frá belgíska félaginu Cercle Brugge. Kaupverðiö nemur um 60 milljónum íslenskra króna. Kalusha, sem er 26 ára að aldri, vakti athygli forvígismanna PSV Eindhoven er hann lék með Zambíumönnum í knatt- spymukeppni ólympíuleik- anna í Seoul í fyrrahaust. Ka- lusha skoraði meðal annars þrjú mörk er Zambíumenn sigruðu ítáli öllum á óvart, 4-0. PSV lætur ekki hér staöar numið því að félagið hefur í hyggju að kaupa fleiri leik- menn fyrir komandi keppnis- tímabil. Opið kvennamót í gotfi á Akranesí Opið kvennamót í golfl veröur haldiö á Akranesi á laugar- daginn. Ræst veröur út frá kl. 10. Leiknar verða 18 holur með og án forgjafar. Fyr- irtækin Akraprjón og Eðal- steinninn gefa vegleg verðlaun til mótsins. Hægt verður að panta rástíma í dag frá kl. 10-22 í síma 93-12347. Golfmóthjá Keili á iaugardaginn Opið golfinót hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfiröi verður á laugardaginn. Leik- inn verður 18 holu högglpikur með og án forgjafar. Sá sem verður svo heppinn að' fara holu í höggi á þremur brautum fær aö launum Peugeot bifreið. Skráning keppenda stendur yílr til kl. 22 á fostudagskvöldið í síma 53360 en ræst verður út frá kl. li á laugardagsmorgun- inn. ÍR ogStJarnan leíka á IR-vellinum Leikur ÍR og Stjörn- unnar í 2. deild ís- landsmótsins í knatt- spymu verður á ÍR- vellinum í Breiðholti, sem er malarvöUur, á laugardaginn kl. 14. Leikurinn átti upphaflega að fara fram á Valbjamarvelli en af því gat ekki orðið vegna þess að á sama tíma fer fram ftjálsíþróttamót á vellinum í Laugardal. Zavarov áfram í herbúðum Juventus Sovétmaðurinn Alexander Zavarov verður áfram í her- búðum Juventus. Um var talið aö Zavarov snúa á nýjan leik til og leika með £ tíma myndi Sovétríkjanna sínu gamla félagi, Dynamo Ki ev. Forráðamenn ítalska liðs- ins hafa hins vegar ákveðið að halda í Zavarov en hann var keyptur tíl liðsins á síðasta keppnistímabih og náði ekki aö vinna sér fast sæti í liðinu. Edberg leikur ekki einliðaleik á Davis Cup j'" Stefan Edberg frá Svíþjóö leikur ekki ' i eirúiðaleik í Davis Cup þegar Svíar leika gegn Júgóslövum. Edberg hef- ur hins vegar ákveðiö að leika í tvenndarleik. Edberg meidd- ist á æfingu í upphafí vikunnar á ökkla og treystir sér ekki af þeim sökum í einliðaleik keppninnar. Sterkir leikmenn júgóslavneska liösins eiga elnnig viö meiösU að stríða. Knattspyma - V-Þýskaland: Hljóp á snærið hjá Saint Pauli - fékk þrjá Austur-Þjóðverja til llðsins Það hljóp heldur betur á snærið hjá v-þýska úrvalsdeUdarUöinu FC St. Pauli nýverið. Þá gengu til liðsins þrír snjalhr knattspymumenn sem flýðu á dög- unum heimcdand sitt, Austur-Þýska- land. Leikmennirnir voru í herbúðum Wismut Aue sem íslendingar þekkja síðan það lið glímdi við Val í Evrópu- keppni. Liðin gerðu -þá jafntefli í tvígang en Aue komst áfram þar sem Aust- ur-Þjóðverjamir gerðu mark á úti- velli. Leikmennimir, sem ganga tíl liðs við St. Pauli, em Jens Konig, Andre Köhler og Thomas Weis. Notuðu þeir tækifærið meðan lið þeirra var í æfingabúðum í Vestur- Evrópu en til stóð að Wismut Aue léki meðal annars við sænska félagið Örgryte í æfingaferð sinni. -JÖG Knattspymuskóli Víkings: Bjöm og Andri leiðbeinendur Knattspymuskóli Víkings fer af stað í næstu viku. Skóhnn er fyrir stelpur og stráka á aldrinum 6-12 ára. Hvert námskeið stendur yfir í tvær vikur og þeim skipt eftir aldri krakkanna. Námskeið- in verða haldin á grassvæði Vík- ings við Hæðargarð og nýja veU- inum í Stjömugróf. Leiðbeinendur verða þeir Andri Marteinsson og Bjöm Bjartmarz en báðir leika þeir með meistara- flokki Víkings. Ýmislegt verður gert tíl gamans á námskeiðunum og má þar nefna knattþrautir og grUlveislu í Víkingsskálanum. Góðir gestir munu Uta í heimsókn til krakkana og margt fleira verð- ur tíl skemmtunar. Námskeiðin verða þrjú, það fyrsta 24. júh tíl 4. ágúst, annað 8.-18. ágúst og það síðasta 21. ágúst til 1. september. Hvert nám- skeið kostar 2500 krónur. AUar nánari upplýsmgar í síma 83245. Innritað verður í byrjun hvers námskeiðs og það skal athugað að þátttakendafjöldi er takmark- aður. -RR Skotinn Alan Mclnally og Júgóslavinn Radomir Mihailovic leika saman í framlínu Bæverja og eru þegar farnir að skora af grimmd. Knattspyma - V-Þýskaland: Bæverjar góðir - Mclnally farinn að skora grimmt Undirbúningur vestur-þýskra knattspymumanna fyrir komandi keppnis- tímabU stendur nú sem hæst, enda hefst keppnin í úrvalsdeUdinni 29. júU. Liðin hafa að undanfomu verið að leiká æfingaleiki víðs vegar um Evrópu. Meistaramir, Bayem Múnchen, hafa staðið sig vel í æfingaleikjunum og mæta greinUega sterkir tU leiks eins og oft áður. Bayem Múnchen lék fyrir helgina gegn franska Uðinu Múlhausen og sigr- aði Bayem í leiknum, 2-A. Nýju leikmennimir sem Bayem keypti fyrir keppn- istímabUið, Aian McInaUy og Radomir MihaUovic, skomðu sitt markið hvor í leiknum. Þeir félagar hafa verið iðnir við kolann í æfingaleikjunum og skorað nokkur mörk. McInaUy kemur eins og kunnugt er frá Aston VUla. Þeir félagar hafa falUð vel inn í leik Uðsins og binda forráðamenn Bayem miklar vonir við þá félaga í deUdinni í vetur. -JKS 6 leikir í kvöld - á íslandsmótinu 1 knattspymu Tveir leUdr verða á Islandsmótinu í knattspymu í kvöld. í 1. deild leika Fylkir og Fram á ÁrbæjarveUi og KA og FH leika á Akureyri. í 2. deUd verða fjórir leikir. ÍBV - Breiðablik í Eyjum, Víðir - Selfoss í Garðinum, Tindastóll - Völsungar á Sauðár- króki og Leiftur og Einherji á Ólafs- firöi. AUir leikimir hefjast kl. 20. -JKS Þessir austur-þýsku knattspyrnumenn flýðu heimaland sitt á dögunum en þeir léku meö Wismut Aue, sem mætti iiði Vals, fyrir í Evrópukeppni á sínum tíma. Þeir eru nú í herbúðum St. Pauli í Vestur-Þýskalandi. Símamynd Reuter Vestmannaeyingar styrkjast í handboltanum: Sigurðw verður áfram í Eyjum - spilar með ÍBV í fyrstu deildhmi 1 vetur X- Sigurður Gunnarsson, lands- liðsmaður í handknattleik, hefur ákveðið að vera um kyrrt í Vestmannaeyjum. Sig- urður tilkynnti forráðamönnum hand- knattleiksdeildar ÍBV þessa ákvörðun í gærmorgun. Þegar fréttist að samningar Sigurðar við spænska hðið Bidasoa heföu farið um þúfur höfðu {jöldamörg 1. deildar Uð hér á landi samband við Sigurð en að vel athuguðu máli ákvað Sigurður að leika áfram með Eyjamönnum. Nokkur erlend félagslið höfðu einnig áhuga á að fá Sigurð í sínar raðir, meðal annars á Spáni, í Frakklandi og Vestur- Þýskalandi. Eyjamenn I sjöunda himni með ákvörðun Sigurðar „Eins og gefur að skilja erum við mjög ánægðir með að Sigurður Gunnarsson skuh verða áfram með okkur í 1. deildar keppninni í vetur. Sigurður sýndi það og sannaði á síðasta vetri að hann styrkir lið- ið óhemju mikiö. Viö Eyjamenn erum ákveðnir í að standa okkur í 1. deild í vet- ur. Á síðasta keppnistímabili lentum við í þriðja neðsta sæti en í vetur stefnum við að því að gera enn betur,“ sagöi Stefán Jónsson í handknattleiksráði ÍBV í samtali við DV í gær. Hilmar og Sigurður sjá um þjálfunina í sameiningu Hilmar Sigurgíslason og Sigurður Gunn- arsson sjá um í þjálfunina í sameiningu en þeir félagar léku saman í mörg ár með Vík- ing og þekkja því vel hvom annan. Enn- fremur hafa þeir leikið saman í íslenska landsliðinu. Hilmar lék með HK á sl. vetri við góðan orðstír og liðið vann sér sæti í 1. deild. Guðmundur Albertsson hefur einnig ákveðið að leika með Eyjamönnum í vetur eins og fram hefur komið í DV en áður lék hann með KR-ingum. Guðmundur mun einnig þjálfa kvennalið Eyjamanna. Eyjamenn mæta sterkir til leiks í vetur Á þessu sést glögglega að Eyjamenn mæta sterkir til leiks í þeirri hörðu keppni sem fram undan er í 1. deild í vetur. -JKS • Sigurður Gunnarsson, landsliðsmaður í handknattleik, verður áfram i Vestmannaeyjum á næsta tímabili. Til stóð að hann héldi utan en samning- ar fóru út um þúfur. Tapið gegn Guernsey tók drauminn um gullið - íslenska karlaliöið í blaki fékk brons á Eyjaleikunum Karlalandslið Islands í blaki keppti á Eyjaleikunum í Færeyjum 6.-12. júlí síðastliðinn. Frammistaða liðs- ins var góð framan af en tækifæri tll að leika um gullið var rækilega kiúðrað í undanúrshtaleik, leik sem hefði svo sannarlega átt að vinnast. Keppnisfyrirkomulag var þannig að leikið var í tveimur riðlum, síðan léku tvö efstu höin úr hvoram riðli í kross og loks léku sigurlið til úr- slita um fyrsta sætið en tapliðin um þriðja sætið. í riðh með íslendingum voru lið Álandseyja, Manar og Fro- yja. í hinum riðlinum vora lið Fær- eyja, Græniands, Wight og Guemsey. Fyrsti leikurinn var gegn liði Fro- ya, sem er lítil eyja undan strönd Noregs. íslenska liðið tók þennan leik alvarlega, enda leikmenn há- vaxnir og miklir á velli en þegar til kastanna kom reyndist tækni þeirra afskaplega bág og sigurinn varð okk- ar mönnum auðveldur. Leikurinn endaði 3-0: 15-4, 15-4, 15-6. Lið Manar reyndist vera skrautleg- ur söfnuður leikmanna á öllum aldri sem áttu fátt annað sameiginlegt en að kunna lítið fyrir sér í blaki. Hrin- urnar urðu aldrei nema þrjár, stig andstæðinganna aldrei nema átta (15-3, 15-0, 15-5) og leiktíminn ein- ungis 26 mínútur. Næstu andstæðingar vora Álands- eyingar. Lið þeirra hafði unnið Eyja- leikana tvö síðustu skipti og því vora íslensku strákarnir ákveðnir í að spila leikinn á fullu. Álandseyingar voru hávaxnir og til alls liklegir. Þeir unnu fyrstu hrinuna nokkuð auðveldlega, 15-7. í annarri hrinu komust okkar menn vel í gang og tókst að vinna, 15-11, með mjög góðri baráttu. Sama var uppi á teningnum í þriðju hrinu, hún vannst 15-12. Álandseyingar tóku nú kipp og unnu fjórðu hrinu öragglega, 15-6. Staðan var nú 2-2, í hrinum talið, og þurfti því úrshtahrinu til. í henni gerðu Álandseyingar slæm mistök í upp- stillingu sem urðu til þess að ísland náði strax góðri forystu (8-1), eftir- leikurinn reyndist okkar mönnum síðan auðveldur og vora lokatölur hrinimnar 15-10 og sigurinn okkar. Allir íslensku leikmannanna áttu góðan dag og börðust vel en fremstur meðal jafningja var þó Bjami Þór- hallsson sem fór hamförum. Nú var staðan þannig að ísland haföi unnið alla leiki sína í riðiinum og skyldi því leika gegn liðinu í öðra sæti hins riðilsins. Það var Uð Guernsey en Færeyingar áttu að mæta Álandseyingum. íslendingam- ir vora þreyttir og slæptir eftir erf- iðan leik gegn Álandseyingum dag- inn áður og geröu í ofanálag þá regin- skyssu að vanmeta Guemseyinga gjörsamlega en ofmeta sjálfa sig. Guemseyingar reyndust vera létt- leikandi og baráttuglaðir. Þeir unnu fyrstu hrinuna, 15-8 (30 mínútur), og vora okkar menn langt frá sínu besta. Aðeins náðu þeir þó að klóra í bakkann í næstu hrinu og sigraðu auðveldiega í henni, 15-5. Þriðja hrinan var ærið sveiflukennd (ís- Gue: 5-1,5-12,14-12,14-14,15-15) en andstæðingamir reyndust sterkari á endasprettinum og sigraðu, 17-15. Eftir þetta áfali var allt loft úr okkar mönnum og þeir veittu litla mót- spymu í fiórðu hrinunni sem tapað- ist, 8-15. Meö þessum ósigri glataðist möguleikinn á að leika úrslitaleikinn sjálfan en leikið skyldi um þriðja sætið. „Það var fyrst og fremst vanmat á andstæðingunum, sem olli þessum ósigri en strákamir vora líka allir farnir að kvarta undan eymslum þegar líða tók á leikinn qg Uðið lék langt xmdir getu,“ sagði Ólafur Árni Traustason, þjáifari íslenska lands- liðsins. Ekkert gekk upp, sókn var slök, vöm var léleg og uppspil óná- kvæmt. Þorvarður Sigfússon lék þó ágætlega en fékk allt of lítið af bolt- um til að vinna úr. Færeyingar unnu Alandseyinga í hörkuundanúrslitaleik. ísland átti því aftur að mæta Alandseyingum, nú í baráttu um bronsið. En það vora tvö vonsvikin hð sem léku tíl úrshta um þriðja sætið, bæði höfðu í upp- hafi sett stefhuna á toppinn en orðið fótaskortur á leiðinni þangað." Álandseyingar, þreyttir og daufir með sinn lykilmann meiddan, sýndu lítinn sigurvilja. íslendingum reynd- ist því frekar auðvelt að vinna 3-0 sigur á þeim, 15-9, 15-9, 15-9 og tryggja sér þannig bronsið. Þeir sem léku fyrir íslands hönd era: Amgrímur Þorgrímsson, ÍS (10); Bjami Þórhallsson, ÍS (11); Jason ívarsson, Þrótti (15); Jón Ámason, Þrótti (34); Karl Sigurðsson, HK (0); Leifúr Harðarson, fyrirhöi, Þrótti (54); Vignir Þröstur Hlöðversson, HK, (6) og Þorvarður Sigfússon, ÍS (16). -gje Doman kærður - Þorgeir Jósefsson kærður til dómaranefndar Þorgeir Jósefsson, knattspymu- dómari af Skaganum, hefúr verið kæröur til knattspyrnuforystunn- ar, dómaraneíndar KSÍ. Ástæöan er sú að í leik ÍA og Stjömunnar nýverið þótti eitt og annað athugavert við framgöngu Þorgeirs, að áliti sfjómenda Stjömuiiðsins og staEbræðra þeirra hjá ÍA. Áliorfendur á leikn- um vom einnig íjölmargir forviða á virmubrögðum dómarans, sér- staklega þar sem um reyndan mann var að ræða en Þorgeir er landsdómari. Þorgeir þótti draga hlut Akumes- inga langt fram úr hófi og fram- koma hans við stjómendur Sfjömuliðsms þótti einnig gagn- rýni verð. Leikurinn var liður í riðlakeppni íslansdmótsins í 3. aldursílokki og gat hann ráðið úrslitum um hvort Stjaman færi í úrslit íslandsmóts- ins eður ei. Leiknum lyktaði 4-6 Nánar verður sagt fiá atviki þessu og farið frekar í saumana á málinu á unglingasíöu DV á morg- un. -Hson íslandsmótið - 3. og 4. deild: Toppliðin töpuðu illa • Grindavík, efsta hðið í A-riðh 3. deildar, tapaði óvænt fyrir Leikni í Breiðholti, 1-2. Ingvi Guðmundsson og Jóhann Viðarsson skomðu fyrir Leikni en Þórarinn Ólafsson skoraði fyrir Grindavík. • Á ísafirði tapaði ÍK fyrir Bad- mintonfélaginu, 1-2. Þeir Stefán Tryggvason og Sævar Ævarsson skomðu fyrir BÍ en áður hafði Reyn- ir Björnsson skorað fyrir ÍK. • Þróttur úr Reykjavík vann á sama tíma mikilvægan sigur, 1-0, á Gróttu á Seltjarnarnesi og gerði Haukur Magnússon sigurmarkið. • Aftxu-elding vann ömggan sigur, 3-0, á Reyni í Sandgerði. Rúnar Sig- urðsson, Friðsteinn Stefánsson og Viktor Viktorsson skoruðu mörk Aftureldingar. • í B-riðhnum unnu Þróttarar 4-1 sigur á Austra á Neskaupstað. Krist- irm Guðmundsson, Þorlákur Ama- son, Þráiim Haraldsson og Ólafur Viggósson gerðu mörk Norðfirðinga en Hjalti Einarsson skoraði eina mark Austra. Stokkseyringar unnu loks • í A-riðli 4. deildar urðu óvænt úr- slit. Stokkseyringar uirnu sinn fyrsta sigur í sumar er þeir lögðu Njarðvík- inga, 1-0. Magnús Amarsson gerði sigurmark Stokkseyringa. í Þorláks- höfn unnu Ægismenn efsta lið A- riðilsins, Skotfélag Reykjavíkur. Ár- marm Einarsson skoraði eina mark leiksins. • í C-riðli vann Ármann Árvakur, 3-2, og komust Ármenningar þar með á toppinn. Amar Halldórsson, Gústaf Alfreðsson og Jón Þór Einars- son gerðu mörk Ármenninga en Ami Guðmundsson skoraði fyrir Árvak- ur. í Borgamesi gerðu Skallagrímur og Hafnamenn 1-1 jafntefli. Valdi- mar Sigurðsson skoraði fyrir Borg- nesinga en Guðmundur Jónasson gerði mark Hafnamanna. Loks unnu Víkingar í Ólafsvík Létti, 7-3, í mikl- um markaleik. Hermann Hermanns- son gerði þrennu fyrir Víking, Hjört- ur Ragnarsson tvö og Guðlaugur Rafnsson og Jón Thorarensen eitt hvor. Ingólfur Proppé gerði tvö af mörkum Léttis og Bjöm Jónsson eitt. TBA er enn efst í D-riðiinum og nú vaim liðið Æskuna, 5-2. Pétur Bjamason og Bragi Sigurðsson gerðu tvö mörk hvor og Hannes Smárason eitt. Gunnar Berg og Sigurður Skarp- héðinsson skoraðu fyrir Æskuna. Þá sigraði SM lið Neistans, 2-0. -RR/KH/MJ/ÆMK/SH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.