Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Blaðsíða 4
4 FÖSTUpAGURJ. FEBjiÚAJ^im Fréttir Nær flörutíu stórmeistarar beijast á íslandi: Stórveldaslagur í skák - sex íslendingar í sveit Noröurlanda Hátt í 40 stórmeistarar í skák munu þyrpast til landsins í byrjun mars en daganna 9. til 15. mars verð- ur haldinn stórveldaslagur í skák. Þá mætast skáklandslið Sovétríkj- anna, Bandaríkjanna, Englands og Norðurlanda þannig að ljóst er að hér er á ferðinni einstæöur skákvið- burður. Verður teílt á 10 borðum - tvöfold umferð. Stöð 2 mun sjón- varpa frá skákmótinu en teílt verður í hinni nýju skákmiðstöð í Faxafeni. í Norðurlandaliðinu tefla 6 íslend- ingar: Helgi Ólafsson, Margeir Pét- ursson, Jóhann Hjartarson, Jón L. Árnason og þá eru þeir Friörik Ólafs- son og Karl Þorsteins varamenn. Sveitimar hafa gefið upp nafnalista sem á reyndar eftir aö fá endanlega staðfestingu • Það er Norðmaðurinn Simen Agde- stein (2600 elo-stig) sem teflir á 1. borði Noröurlanda en stigahæsti Norðurlandabúinn, Ulf Andersson frá Sviþjóð, gefur ekki kost á sér. Helgi Ólafsson (2575) er á 2. borði, Margeir Pétursson (2555) er á 3. borði, F. Hellers (2545) er á 4. borði, Jóhann Hjartarson (2505) er á 5. borði, Jón L. Ámason (2500) er á 6. borði, H. Schiissler (2490) er á 7. borði, J. Yijola (2495) er á 8. borði, Mortensen (2480) er á 9. borði og Wessman (2505) á 10. borði. Helgi Olafsson stórmeistari teflir á öðru borði skáksveitar Norðurlanda. Þeir Friðrik og Karl eru síðan vara- menn. Kasparov og Karpov ekki með Þeir Kasparov og Karpov verða lík- lega ekki með í 1 sovésku sveitinni en enn er ekki útilokað að heims- meistarinn komi. Þrátt fyrir það er sovéska sveitin ótrúlega sterk enda 15 af 30 stigahæstu skákmönnum heims frá Sovétríkjunum (fyrir utan þá sem hafa flúið). í sovésku sveitinni em (elo-stig innan sviga): Ivanchuk (2665), Salov (2645), Beljavsky (2640), Dolmatov (2620), Ehlvest (2620), Gelfand (2615), Yusupov (2615), Ázmayparashvili (2610), Polugaevsky (2610), Vaganjan (2605), Tukmakov (2570), GeÚer (2515). Enska sveitin er einnig feikisterk en þar tefla: Short (2635), Speelman (2610), Nunn (2600), Chandler (2585), Hodgson (2540), Adams (2555), King (2515), Suba (2500), Mestel (2525), Norwood (2520), Kosten (2485). Þá er sveit Bandaríkjanna þannig skipuð: Gulko (2610), Seirawan (2595), DeFirmian (2565), Kudrin (2565), Federowicz (2560), Christian- sen (2560), Browne (2560), Dzindzic- hasvili (2545), Benjamin (2530), Dlugy (2525) ogRohde (2500). -SMJ Óvenjugott fiskverð á eriendum mörkuðum - slæmt veðurfar og lítiö framboð ræður því Óvenjugott fiskverð hefur verið erlendis að undanfömu. Þar hefur ráðið aö mestu slæmt veðurfar og lítið framboð af fiski. í janúar vora seld alls 3.272,062 tonn fyrir 521,5 milljónir króna. Með- alverð var 138,24 kr. kg. Seldur fiskur úr gámum í Bretlandi var í janúar- mánuði alls 2.914.362 kg. Meðalverð 140,90 kr. kg. Af þeim þrjú þúsund tonnum, sem seld vom í Bretiandi, var seldur afli frá skipum 957 tonn og seldist fyrir 125 mflljónir króna. Meðalverð var 131,31 kr. kg. Seldur fiskur úr gámum 5. febrúar var alls 642 lestir er seldust fyrir 97.955.472,77 kr. Meðalverð 152,39 kr. kg. Þriðju- daginn 6. febrúar var fiskur seldur úr gámum afls 401,5 tonn sem seld- ust fyrir 58,2 mifljónir króna. Bv. Sólborg seldi afla sinn í Bret- landi, alls 139 lestir, fyrir 19 milljónir króna. Bv. Bylgjan seldi í Hull 6. fe- brúar, alls 84 lestir, fyrir 11 mflljónir króna. Þetta var eina skipið sem seldi í Bretlandi síðastliðna \dku. Þýskaland Alls var seldur fiskur úr gámum í janúar í Þýskalandi 3.072.629 kg. Aflaverðmæti var 336 mflljónir króna. Meðalverð 109,44 kr. kg. Meg- inhluti aflans var ufsi. Fiskur, seldur úr gámum, var 964 tonn sem seldust fyrir 97 mifljónir króna, meðalverð 100,78 kr. kg. Fiskur, seldur úr skip- um, var alls 2 þúsund tonn sem seld- ust fyrir 239 milljónir króna. Eftirtal- in skip seldu afla sinn í Þýskalandi síðustu viku: Bv. Breki seldi í Brem- erhaven 2. febrúar, alls 294 lestir, fyrir 29,7 milljónir kr„ meðalverö var 104,61 kr. kg. Bv. Vigri seldi í Bremerhaven alls 236 lestir fyrir 27,7 milljónir króna, meðalverð 117,32. Bv. Skafti seldi í Bremerhaven alls 151 lest fyrir 15,7 milljónir króna, meðalverð 103,52 kr. kg. París Um mánaðamótin janúar-febrúar var verðið á þorski hærra en á laxi. Mikil vöntun hefur verið á svoköll- uðum hvítum fiski, s.s. þorski og ýsu. Reyndar var lítið af flestum teg- undum fisks um þetta leyti, svo sem túnfiski, sem seldist á 45 franka kfló- ið eða um 479 krónur. Ufsaveiðin hefur dregist mikiö saman síðustu árin, t.d. var veiðin á ufsanum áriö 1986 alls 57.000 tonn en var 31.000 tonn áriö 1988 sem er 31% minna en árið 1986. Framleiðandi fiskafóðurs, France Piche, segir að þessi minnkun aflans sé dæmigerð ofveiöi. Mjölframleið- endur hafa miklar áhyggjur af þess- ari minnkun veiðanna og telja að þeir verði að snúa sér að því að fá fisk annars staðar frá til að vinnsla verksmiöjanna geti haldið áfram. Þeir em famir að huga að kaupum á alaskaufsa og lýsu frá Suður- Ameríku. Þrátt fyrir vöntun á ufsa hefur verðið á honum nánast staðið í stað og er þaö vegna minnkandi neyslu almennings á ufsa, þó fisk- neysla hafi aukist almennt. Vegna vöntunar á ufsa er búist við að verðið fari hækkandi ef fer sem horfir og þá geti ufsinn nálgast lax- verðið. En búist er við að verðið á laxinum muni falla vegna ofiram- boðs á honum. Það hefur færst í vöxt að fiskkaup- menn séu með kæliborð á Rungis- markaðnum. Þar geta menn keypt tilbúna rétti og er talið aö mikil aukning veröi á sölu tilbúnu rétt- anna. Fólk gefur sér ekki tíma tfl matseldar og kaupir þá tflbúna rétti sem aðeins þarf að hita. Boulogne: Verð á nokkrum tegundum 6.2. 1990 Tegund Þorskur Kr. kr. 147 Meðalstór þorskur 115,50 Smáþorskur 105 Keilá 105/115,50 Steinbítur 126/157 Ufsi, stór 73,50 Meðalstór ufsi 94,50 Smáufsi 126,50 Karfi 112/126 Hlýri 126/136,50 Fiskmarkaður Ingólfur Stefánsson London Eins og annars staöar á fiskmörk- uðunum í Evrópu hefur verð á fiski hækkað verulega og þó að einstaka sala hafi verið lakari hefur verðið verið gott. Á Billingsgate var skortur á ferskmn fiski eins og annars staö- ar. Verðið rauk upp og var hæst 500 kr. kg af þorskflökum en hefur nú farið niður í 340 kr. kg. Allt frá haustmánuöum hafa Norð- menn og Skotar sakað hvorir aðra um undirboð og hafa það aöallega verið Skotar sem bám það á Norð- menn að undirbjóöa verðið á laxin- um. En svo gerðist þaö á Billings- gate-markaðnum að Skotar vom með undirboð frá 5-10 pence á lb. Nú hef- ur orðið samkomulag milli samtaka seljenda í Skotlandi og Noregi um að ræða málin helst vikulega svo ekki upphefjist algjört stríðsástand á mörkuðunum. Verðið á laxinum hefur verið frá 1,30 £ - 2,20 £ eða sem svarar í íslensk- um krónum 286 kr. til 460 kr. kg. Verð á stórlúðu hefur verið allt aö 67,50 £ í 77 £, smálúðu 31,50 £ tfl 56 £ lb„ frosnum laxi 1,70 £ lb„ kola 14 £ lb„ kolaflökum 19,50 £ lb. Tekið úr Fishing News. Viðtal við formann Norsk fiskarlag, Kjell Hastad Fiskaren, blaðam. Torfll Munte Nokkur hækkun hefur verið ákveðin á stórþorski og ýsu. Verðið var hækkað úr 14 n. kr. í 17 n. kr. kflóið og segir formaðurinn að sú hækkun ríði flestum framleiðendum að fullu. Menn leggja mikla áherslu á að framleiða þurrfisk fyrir Ítalíumark- aö og segir formaðurinn að verðið hafi ekki hækkað á Ítalíuskreið frá fyrra ári og þess vegna sé ekki rétt að hækka verðið á blautfiskinum. Gert er ráð fyrir að framleiða 2300 tonn og tfl þess þurfi 10.000 tonn af blautfiski. Ennfremur segir formaðurinn að samkeppnin sé hörð þvi íslendingar framleiði mfltið af skreið og séu með undirboð á markaðnum. Lauslega þýtt og endursagt. Hágæðakavíar framleiddur í Tromsö Ný tegund af kavíar er að koma á markaðinn frá fyrirtækinu Biotec í Tromsö. í þennan kavíar fara hrogn úr eftirtöldum tegundum: laxi, sil- ungi, steinbít og hrognkelsum. Til- raunir hafa staðið yfir í þrjú ár og hafa kostað 4 milljónir norskra króna. Fiskaren Landanir á fiski í nokkrum höfnum í Frakklandi: 1986 1987 1988 1989 Boulogne 24.298 18.486 16.021 15.630 tonn Loreient 24.169 18.606 15.802 11.472 tonn Douarnenez 2.796 2.813 2.750 2.296 tonn Concarneau 3.516 3.620 3.490 3.084 tonn Fiskmarkaðurinn í Bremerhaven. Þar seldi Vigri 236 tonn fyrir 27,7 milljón ir króna. Hafnarbúar skilvísir Júlía Imsland, DV, Höfiv Innheimta fasteignagjalda á Höfn fyrir sl. ár hefur gengið nokkuð vel og hafa 96,8% greitt sín gjöld. Hall- grímur Guömundsson bæjarstjóri segir að síðasta ár hafi komið vel út fjárhagslega, þó hafi togara- kaupin verið nokkur baggi. Veriö er að gera fjárhagsáætlun fyrir árið og er þar stefnan aö greiða nokkuð niður skuldir. Álagning gjalda er sama og sl. ár, 7,2%, og reiknað er með að álagr ing og fasteignagjöld verði 1 _í fallslega svipuð og sl. ár. Þessa dagana er verið að ljúka viö síðustu kaupleiguíbúðimar sem verið hafa í byggingu og verða þær afhentar 15. febrúar. Fljótlega verður hafin bygging 10 kaupleigu- íbúða í viðbót og munu vera komn- ar um 35 umsóknir um þær frá fólki sem er í miklum húsnæðisvanda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.