Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1990, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 24, MAR^ 1J990.
Erlend bóksjá
Sagan
í spéspegli
Sumir sjá skemmtilega hliö á
jafnvel alvarlegustu atburöum -
ekki síst ef langt er um liðið.
Finna má ýmis ágæt dæmi um
slíkt í þessu nýja greinasafni þar
sem fjölmargir viðburðir í ver-
aldarsögunni eru sýndir í fremur
óvenjulegu ljósi.
Hér má til dæmis kynnast nýj-
um „samtímafrásögnum“ langt
aftur í aldir af tilkomu fornra
mannvirkja eins og Stonehenge,
Jeríkómúra og turna í Písa, af
sögufrægum persónum, svo sem
Júlíusi Sesar, Kleópötru og
Messalínu, eða þá af einstökum
þekktum atburðum - ekki síst úr
breskri sögu. „Elsta“ frásögnin er
frá því um árið fimmtán þúsund
fyrir Krist þegar forfeður vorir
eru að spá í fánýti hluta á borð
við hjólið. Síðan er haldið gegnum
aldirnar allt fram á vora daga.
Svo sem vænta má tekst höf-
undum, sem eru íjölmargir, mis-
jafnlega að endursegja söguna
með þessum hætti en margt er
hér laglega gert og jafnvel bráö-
fyndið.
THE DOGSBODY PAPERS OR 1066
AND ALL THIS.
Ritstjóri: E.O. Parrott.
Penguin Books, 1989.
í Chile
með leynd
Miguel Littín er kvikmynda-
leikstjóri sem studdi Allende í
Chile og varð því að flýja land
þegar forsetinn var felldur í
valdaráni hersins árið 1973. Littfn
var á lista yfir þá fimm þúsund
útlaga sem herforingjastjórnin
bannaði að kæmu til landsins.
Engu að siður sneri hann aftur
með leynd og í dulargervi árið
1985 og dvaldi í sex vikur í Chile.
Markmiðið var að gera, með að-
stoð andspyrnuhreyfingarinnar,
heimildarkvikmynd um lífið í
landinu undir herforingjastjórn
en hópar kvikrnyndatökumanna
frá ýmsum löndum höfðu komið
þangað opinberlega í allt öðrum
tilgangi og með tifskildum leyfum.
Nóbelsverðlaunaskáldið Garcia
Márques tók ítarleg viðtöl við
Littín árið 1986 um dvölina í Chile
og samdi upp úr því bók þar sem
leikstjórinn segir í fyrstu persónu
frá þessari óvenjulegu lífsreynslu
sinni, athöfnum sínum og hugar-
ástandi og lífi fólks undir her-
stjórn.
Þetta er grípandi frásögn sem
sýnir að viðtalsbækur geta
heppnast vel, t.d. þegar góður
höfundur endursegir 600 síöna
viðtal á innan við 150 síðum, eins
og Garcia Márquez hefur hér
gert.
CLANDESTINE IN CHILE.
Höfundur: Gabriel Garcla Márquez.
Penguln Books, 1990.
Yar brosmildi
páfinn myrtur?
Eftir einungis fjórar atkvæðagreiðsl-
ur á einum og sama deginum, 28.
ágúst árið 1978, var biskupinn í Fen-
eyjum, Aibino Luciani, kjörinn páfi
LRóm. Kjör hans kom mjög á óvart
og sumir töluöu jafnvel um „val
guðs“, þótt aðrir teldu kjörið merki
um andstöðu gegn nafngreindum
kardínálum sem væru „of sterkir".
Luciani vakti almenna athygli og
ávann sér ást kaþólskra manna víða
um heim fyrir barnslega einlægni og
þá áherslu sem hann lagði á einfald-
leika. Hann kvaðst vera hirðir frem-
ur en preláti og tók sér nafnið Jó-
hannes Páll I„ en var kallaður
manna á meðal páfinn brosmildi.
Páfi í 33 daga
Einungis þrjátíu og þremur dögum
eftir kjörið barst sú fregn um heims-
byggðina að páfinn væri látinn. Frá-
sagnir af andláti hans voru óljósar
til að byrja með og að nokkru ósam-
hljóöa. Fljótlega heyrðust fullyröing-
ar um að ekki væri allt með felldu
um dauða páfans. Síðar var hrein-
lega fullyrt að Jóhannes Páll I. hefði
verið myrtur af valdamiklum mönn-
um í Páfagarði.
Miklar samsæriskenningar voru
hafðar á lofti næstu misserin, fyrst i
blöðum og síðar i bókum, þar sem
hið meinta morð var tengt umfangs-
mikilli fjármálaspillingu þar sem
bankastjórar Páfagarðs, ítalska maf-
ían og frímúrarafélagsskapur fé-
sýslumanna, herforingja, stjórn-
málamanna og leyniþjónustumanna
á Ítalíu voru nefnd til sögunnar. Var
fullyrt að nýi páfinn hefði ætlað aö
hreinsa til og losa sig við valdamikla
menn sem ábyrgð bæru á spilling-
unni. Er sú skoðun enn útbreidd aö
Jóhannes Páll I. hafi verið myrtur.
En var hann það?
Rannsókn
tíu árum síðar
John Comwell, sem var um árabil
ritstjóri erlendra frétta hjá breska
blaðinu The Observer, fékk óvenju-
legt tækifæri til þess að fara ofan í
saumana á því máli veturinn 1987-
1988 - tíu árum eftir andlát páfans.
Æðstu menn í Páfagarði, að pólska
páfanum, Jóhannesi Páli II. með-
töldum, samþykktu að hann mætti
ræða við alla þá kirkjunnar menn
sem einhverja vitneskju hefðu um líf
og dauða Luciani. Það loforð stóðst
þótt stundum þyrfti Comwell að hóta
þvi aö hætta rannsókn sinni til þess
að ná fundum tiltekinna manna.
Áður hafði hann safnað aö sér öll-
um tiltækum upplýsingum um and-
lát páfans og um þau fjármála-
hneyksli sem tengd hafa verið Páfa-
garöi. Honum var brátt ljóst að grun-
semdirnar um morð voru einkum til
komnar vegna ósamhljóða frásagna
embættismanna kirkjunnar um at-
riði eins og þessi: Hvenær dó páfinn?
Hver fann líkið og hvenær? Hver var
hin opinbera dánarorsök? Fór krufn-
ing fram með leynd? Voru útfarar-
stjórar kallaðir til áður en líkiö hafði
opinberlega fundist? Hvað hafði páf-
inn haft í höndunum þegar hann
lést? Hvað varð um einkamuni páf-
ans sem voru í svefnherbergi hans?
Hvernig var heilsufari páfans háttað
síðustu mánuðina?
í þessari bók rekur Cornwell þær
ásakanir sem fram hafa komið varð-
andi dauöa páfans og fjármálaspill-
ingu æðstu manna í Páfagarði og leit-
ar svara við fyrrnefndum spurning-
um og mörgum fleiri. Hann lýsir
samhliða leit sinni að staðreyndun-
um um líf og dauða Jóhannesar Páls
I. og viðbrögðum manna í Páfagarði
og víðar. Cornwell leitaði uppi alla
þá sem komu við sögu, í mörgum
löndum, og ræddi við suma þeirra
aftur og aftur. Þetta er því einnig
frásögn af hæfum og einbeittum
blaðamanni á ferö um eitt lokaðasta
stjórnkerfi sem fyrirfinnst.
Hrakinn í dauðann
Jafnframt gefur Cornwell dapur-
lega nærmynd af Luciani, fábrotnum
manni sem vildi ekki verða páfi, var
neyddur til þess en kunni aldrei við
sig í Páfagarði þar sem margir skrif-
ræðiskóngarnir litu á hann með fyr-
irlitningu, ofgerðu honum með papp-
írsflaumi og kerfisvandamálum en
sinntu hvorki um heilsufar hans né
aðbúnað.
Cornwell færir sannfærandi rök
fyrir þeirri niðurstöðu sinni að Jó-
hannes Páll I. hafi að vísu ekki verið
myrtur, heldur hrakinn í dauðann
af kaldranalegu bákni sem átti aö
þjóna honum en varðaði ekkert um
manninn Albino Luciani - en einnig
að hluta til af eigin auðmýkt gagn-
vart almættinu og páfatigninni og
þeirri sérstæðu óbifandi sannfær-
ingu að eftir örskamma páfatíð
myndi guð bænheyra sig og láta „út-
lenda páfann" taka við. Sem og varð.
A THIEF IN THE NIGHT.
Höfundur: John Cornwell.
Penguin Books, 1990.
Metsölubækur
Bretland
Kiljur, skáldsögur:
1. Frederick Forsyth:
THE NEGOTIATOR.
2. Sidney Sheldon:
THE SANDS OF TIME.
3. Anthony Burgess:
ANY OLD IRON.
4. Poul Theroux:
MY SECRET HISTORY.
5. Colln Forbes:
THE GREEK KEY.
6. Isabel Allende:
EVA LUNA.
7. Dlck Francls:
THE EDGE.
8. Bernard Cornwell:
SHARPE’S REVENGE.
9. Jeanette Winterson:
ORANGF.S ARE NOT THE ONLY
FRUIT.
10. Rosamunde Pjlcher:
THE SHELL SEEKERS.
Rít aimenns eðiis:
1. Rosemary Conley:
INCH-LOSS PLAN.
2. Rosemary Conley:
COMPLETE HIP & Thlgh Diet.
3. Barry Lynch:
THE NEW BBC DIET.
4. John Cornwell:
A THIEF IN THE NIGHT.
5. Allsdair Aird:
THE 1990 GOOD PUB GUIDE.
6. Tom Jaine:
THE GOOD FOOD GUIDE 1990.
7. Betty Shine:
MIND TO MÍND.
8. Egon Roney:
GUIDE TO HOTELS & RESTAUR
ANTS.
9. A. Wainwright:
COAST TO COAST WALK.
10. Callan Pinckney:
CALLANETICS.
(Byggt á The Sunday Times)
Bandaríkin
Motsölukiljur:
1. V. C. Andrews:
WEB OF DREAMS.
2. Robin Cook:
MUTATION.
3. Michael Korda:
THE FORTUNE.
4. Stephen King:
THE DRAWING OF THE THREE.
5. Kathryn Lynn Davis:
TOO DEEP FOR TEARS.
6. E. L. Doctorow:
BILLY BATHGATE.
7. Catherine Coulter:
NIGHT STORM.
8. Sidney Sheldon:
THE SANDS OF TIME.
9. Wflliam J. Caunítz:
BLACK SAND.
10. Peter Morwood:
RULES OF ENGAGEMENT.
11. Douglas Adams:
THE LONG DARK TEA-TIME OF
THE SOUL.
12. Tony Hfllerman:
A THIEF OF TIME.
13. Erlc V. Lustbador:
FRENCH KISS.
14. Len Deighton:
SPY HOOK.
15. Stephen Kíng:
THE GUNSLINGER.
16. Margaret Atwood:
CAT’S EYE.
17. Rosamunde Pilcher: i'
THE SHELL SEEKERS.
Rít almenns eöiis:
1. Robert Fulghum:
ALL I REALLY NEED TO KNOW
LEARNED *N KINDERGARTEN.
2. Grace Catalano:
NEW KIDS ON THE BLOCK.
3. Harry N. MacLean:
IN BROAD DAYLIGHT.
4. M. Scott Peck:
THE ROAD LESS TRAVELED.
5. Bernie S. Siegei:
LOVE, MEDICINE & MIRACLES.
6. Ron Kovic:
BORN ON FOURTH OF JULY.
7. Joe McGinniss:
BLIND FAITH.
8. Joseph Campbeli/Bill Moyers:
THE POWER OF MYTH.
9. Joseph Wambaugh:
THE BLOODING.
10. James Gleick:
CHAOS.
(Byggt á New York Times Book Review)
Danmörk
Metsöfukilfur:
1. Johannes Mollehave:
EN FRI MAND.
2. Martha Christensen:
DANSEN MED REGITZE.
3. Martha Chrlstensen:
REBECCAS ROSER.
4. Judith Krantz:
MISTRALS DATTER.
5. Jean M. Auel:
HULEBJ0RNENS KLAN.
6. Isabel Allende:
ANDERNES HUS.
7. Martha Christensen:
TUSINDFRYD.
8. Fay Weldon:
NEDE MELLEM KVINDER.
9. Regine Déforges:
PIGEN MED DEN BLA CYKEL.
10. Jean M. Auel:
MAMMUTJÆGERNE.
(Byggl ó Politlken Sondag)
Umsjón: Elías Snæland Jónsson
ELIZABETH BOWEN
.4 TJLME IN
ROME
& ■,.
Feneyjar og
Rómaborg
Tvímælalaust eru Róm og Fen-
eyjar tvær sögufrægustu borgir
Ítalíu. Önnur var glæsileg höfuð-
borg voldugs heimsveldis og síðar
valdasetur leiðtoga hinnar einu
sönnu trúar vestrænna manna
um aldaskeið. Hin töfrandi hafn-
arborg sem opnaði evrópskum
mönnum leiðir til íjarlægra aust-
rænna landa þaðan sem bárust
fágætar vörur og magnaðar sögur
af ýmsum undrum og dýrindum.
Báðar eru þessar borgir í dag
vinsælar af ferðamönnum sem
þjóta gjarnan á hraðferð í bílum
um stræti eða bátum um sund í
kapphlaupi um að „sjá Evrópu"
á sjö dögum. Og eru litlu nær.
Þessar tvær að ýmsu leyti ólíku
bækur eru vel til þess fallnar að
minna lesendur á að í Róm og
Feneyjum er mikil saga nánast
við hvert fótmál. Þeir gestir, sem
láta sig litlu varða minni hins
liðna, sjá einungis póstkortalegt
yfirborðið og fara mikils á mis.
Elizabeth Bowen, sem andaðist
árið 1973, er ein af kunnari skáld-
sagnahöfundum Breta á þessari
öld. Undir lok sjötta áratugarins
dvaldi hún um hríð í Róm og gaf
sér nægan tíma til að skoða hina
fornu borg innan árelísku
múranna. Hún bendir á að Róm
sé kröfuhöfð á tíma gesta sinna
og valdi þeim gjarnan vonbrigð-
um sem séu að flýta sér.
í þessum ritgjörðum um dagleg-
ar gönguferðir Bowen um borg-
ina eilífu kemur vel í ljós að hún
hefur kynnt sér náiö rómverska
og ítalska sögu. Hún lýsir því sem
fyrir augu ber með orðum skálds-
ins og tengir við hvern stað sögu-
fræga atburði og persónur.
A Time in Rome er engin hefð-
bundin leiðsögubók um Róm,
heldur skipuleg og áhugaverð
frásögn af því hvemig Bowen
sjálf upplifði borgina.
The Venetian Empire eftir ann-
an enskan rithöfund, Jan Morris,
er hins vegar fyrst og fremst
sagnfræði en varpar um leið
skýru ljósi á hinn forna og sögu-
fræga hluta Feneyja. Borgin hef-
ur um margt sérstöðu í ítalskri
sögu. Um sex alda skeiö, frá því
á æskudögum Snorra Sturluson-
ar og allt þar til Napóleon Bona-
parte lagöi undir sig borgina við
lok átjándu aldar, voru Feneyjar
nefnilega auðugt stórveldi sem
byggði umsvif sín á siglingum og
viðskiptum við löndin í austri.
Morris rekur þessa stórveldis-
sögu afar skemmtilega og tengir
menn og viðburði einstökum
stöðum og byggingum sem marg-
ar standa enn í borg fenjanna.
A TIME IN ROME.
Höfundur: Elizabeth Bowen.
Penguin Books, 1989.
THE VENETIAN EMPIRE.
Höfundur: Jan Morris.
Penguin Books, 1990.