Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1990. 3 dv Viðtalið Fréttir Norðurland: Flugvallaframkvæmdir víða í f ullum gangi Vilsjáskólafyrir yfirmenn iögregl- unnar > . .... i » J Nafn: Svanhvít Ingólfsdóttir Aldur:36ára Starf: Lögregla i Kópavogi og for- maður Lögreglufélags Kópavogs Svanhvít Ingólfsdóttir var kjör- in formaður Lögreglufélags Kópavogs 11. nóvember síðastlið- inn. Er hún fyrsta konan sem er kjörinn formaður lögreglufélags hér á landi. Svanhvít er fædd og uppalin í Kópavogi en er nú bú- sett í Mosfellsbæ ásamt fjöl- skyldu sinni. Hún lauk gagníræðaprófi frá Flensborg í Hafnarfirði 1970 og hóf að því loknu almenn skrif- stofustörf hjá Tímanum í Reykja- vík. Þar vann hun í 7 ár, einkum viö auglýsingar og bókhald. Hún hóf störf hjá Lögreglunni í Kópa- vogi árið 1978 og hefur síðan þá unnið þar ef undan er skilið eitt sumar hjá. Rannsóknarlögregíu ríkisins. Svanhvít lauk prófi frá Lögregluskóla rfkisins 1981. Krefjandi en gefandi starf Svanhvít segist kunna vel við sig í lögreglunni og segir starfið vera bæði fiölbreytt og skemmti- legt. „Það koma vissulega upp atrfk sem taka á ntann og i raun- inni mætir maður í vitmu að morgni í algjörrí óvissu utn hvað von er á síðar um daginn. Á móti vegur vitneskjan um að maður getur orðið einhverjum að gagni, jafnvel bjargað mannslífum. Starfið er því í senn erfitt og gef- andi.“ Að sögn Svanhvitar leggst for- mennska í Lögreglufélagi Kópa- vogs vel í hana. „Mér finnst þetta verkefni spennandi og ber ekki ■ kvíðboga fyrir starfmu enda mik- ill áhugi: meðal félagsmanna á ýmsum hagsmunamálum lög- reglustéttarinnar. Ég tel að lög- gæslumál hér á landi hafi að mörgu leyti þokast í rétta átt en þó þarf að bæta margt, til dæmis launamálin. Einnig vil ég gjaman sjá stofnaðan sérstakan skóla fyr- ir yfirmenn.“ Svanhvít segir Lögregluskól- ann hafa breyst mikið til batnað- ar síðan hún stundaði þar nám. Bæði hefur námskeiðum fiölgað og kennslan batnað. Hún segir aö nú sé til dæmis mun meiri áhersla lögð á sálarfræöí en áður. Hefyndi afúfreiðartúrum Aðspurð kveðst Svanhvít eiga sér mörg áhugamál en að mestu fari þó frítíminn i hestamennsku. Hún á fióra hesta, sem að hennar sögn eru binir mestu gæðingar, og nýverið festi hún kaup á eins vetrar gömlu trippi. „Ég hef haft áhuga á hestum svo lengi sem ég man eftir mér. Fyrir 10 árum lét ég svo eftir mér að hella mér út í þettá ogséekki eftir því. ÖU fiöl- skyldan tekur þátt í þessu með mér og núna erum við að byggja okkur hesthús í Mosfellsbæ. Viö fórum oft öllsaman í útreiöartúra en stundum fer ég bara ein. Mér finnst það unaöslegt að ríða ein úti í náttúrunni í fylgd hundsins míns.“ Svanhvit er gift Júlíusi Armann sem starfar í lögreglunni í Reykjavík og eiga þau þrjú böm, tvo litla stráka og eina stóra stelpu. -kaa Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Flugvallaframkvæmdir á Norður- landi eystra hafa gengið vel í sumar, að sögn Rúnars Sigmundssonar, umdæmisstjóra Flugmálastjórnar, en unnið hefur verið við fram- kvæmdir á sex flugvöllum þar. í Grímsey er enn unnið við leng- ingu flugbrautarinnar þar úr 800 í 1100 metra. Jarðvegsframkvæmdir hófust þar 1988, í fyrra var unnið við sprengingar og í sumar hefur verið keyrð fylling í brautina. Það er fyrir- tækið Istak sem vinnur þetta verk. Efninu í burðarlag brautarinnar er ekið frá höfninni en þar vinnur ístak einmitt við framkvæmdir. Þessu verki á að ljúka næsta sumar og verða þá m.a. sett upp brautarljós. Á Húsavík hefur verið unnið við lengingu flugbrautarinnar úr 1500 metrum í tæplega 2000 metra. Því verður haldið áfram næsta sumar en ekki er áætlað að setja varanlegt slit- lag á þá braut fyrr en eftir 5-6 ár samkvæmt áætlun. í Mývatnssveit hefur verið unnið við öryggissvæði meðfram flugbraut, einnig á Akureyri og Raufarhöfn og á Þórshöfn eru framkvæmdir í *ú!i- um gangi við gerð nýrrar flugbraut- ar. Brautin verður 1200 metra löng og er stefnt að því að hægt verði að taka hana í notkun á næsta ári. GÆÐATÆKI Á GÓÐU VERÐI Þessi glœsilega samstœða býður upp á ótrúlega mikla möguleika, svo sem tölvustýrt upptöku- og klippikerfi. Eftirtalin tæki eru í stæðunni: Magnari 2x35 vött DIN með 6 innstungum fyrir tengitæki, þar á meðal fyrir CD, DAT og Video. Mótordrifin styrkstilling. Innstunga fyrir hljóðnema ásamt hljóðblöndun. Bassa„boost“. Tvöfalt kossettutæki. „Fuil logic“ snertitakkar, Dolby B, ,Auto reverse". CCRS EDIT PRO, Cross Fade tölvustýrð upptöku- og klippitæki við upptöku af geisladiskum. Kerfið skilar alltaf bestu mögulegri upptöku og stillir tækið sjálfvirkt og velur rétta lagalengd miðað við lengd á kassettu. DPSS sjálfvirk lagaleitun. Hröð afritun. Tónjafnari. 7 banda, rafstýrður með 10 minnum og fluorsent ljósum. Geislaspilari af fullkominni gerð með 10 lykla beinu lagavali og 20 laga „random“ minni. Plötuspilari. Reimdrifinn, hálfsjálfvirkur. Útvarp. FM, MB, LB. 30 stöðva minni. Sjálfleitun: „Timer“ kveikir og slekkur á tækinu á fyrirfram ákveðnum tíma. Hótalarar. 2 WHARFEDALE DELTA-30, 75 vatta, 2ja þrepa gæða hátalarar. Fullkomin fjarstýring. KENWOOD M24 CD. HEILDARVERÐ KR. 88.830,- staögreHt. TOEJJUD Ármúla 17, Reykjavík, sími 688840, 685749, 83176

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.