Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1992, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1992, Blaðsíða 3
ÞRIÐJI3DAGURÍ8: SEPTEMBER 1992. 3 Fréttir Vaxtarræktarmálaferli: hafnaði Gyffi Kristjánsaon, DV, Akureyii Lögmaöur Péturs Péturssonar, læknis á Akureyri, hefur hafnað sáttarboöi vaxtarræktarmann- anna sem hann á í málaferlum við. Vaxtarræktarmenn töldu aö Pétur hefði beöist afsökunar á ummælum sínum um þá svo við- unandi væri og buðu því sátt í málinu en því boði var hafnað. Ólafur Sigurgeirsson, lögmaður vaxtarræktarmamianna, segir aö á árshátíð vaxtarræktarmanna á Akureyri hafi Pétur beðist afsök- unar á ummælum sínum. Málið hafi hins vegar snert fleiri vaxt- arræktarmenn en eftir að Pétur hafi í maímánuði í útvarpsþætti beðist afsökunar á ummælum sínum hafi verið boðið að málið yrði látið niður falla en því hafi verið hafnað. „Það kom ekki til greina að falla einhliða frá mál- inu og eiga á hættu á að fá á sig málskostnaðarkröfu, enda telja umbjóðendur minir sig vera meö unnið mál í höndunum," segir Ólafur. Tvö mál eru því enn í gangi gegn Pétri Péturssyni lækni, mál vaxtarræktarmannanna gegn honum og mál sem Ölafur Sigur- geirsson lögmaður höfðaði per- sónulega gegn Pétri vegna um- mæla sem læknirinn viöhafði um Ólaf í sambandi við afskipti hans af fyrra málinu. Margrét Guðnadóttir: unnavmnu „Ég skrifa eingöngu upp á unna vinnu,“ sagði Margrét Guðna- dóttir, forstöðumaður Rannsókn- arstofu Ríkisspítalanna í veiru- fræði, en hluti líffræðinga og meinatækna við rannsóknarstof- una hefur ekki mætt til starfa það sem af er september. Ástæðan er deila um hvort fólk- ið hafi fengið öll sín laun greidd um síðustu mánaðamót eðaekki. Starfsfólkið telur sig hafa gert samning á árinu 1987, samning sem tryggi því 30 tima í óunna yfirvinnu, en fjármálastjórn spít- alans hefur neitað að greiða fyrir þessa tíma og Margrét hefur ekki skrifað upp á vinnuskýrslur með þessum tímum enda segist hún ekki fara með samningsrétt og hafi ekkert með peningamál að gera. -sme Þórður Ólafsson, forstöðumaðul■ Bankaeftirlitslns: Tap bankanna er mikið áhyggjuef ni vafi hvort einstakir bankar uppfylli nýjar kröfur um eiginfjárstöðu „Tap bankanna er mikið áhyggju- efni. í einhverjum tilvikum má sjálf- sagt kenna um aðgæsluleysi hjá stjómendum þeirra en fyrir þessu eru þó margar ástæður. Það hefur gengið illa í ýmsum atvinnugreinum og því hafa ekki alltaf reynst forsend- ur til lánafyrirgreiðslu til þeirra. Það sem veldur manni fyrst og fremst áhyggjum er að þetta hefur orðið til þess að eiginíjárstaða þessara stofn- anna hefur farið versnandi. Þessa þróun verður að stöðva með öllum tiltækum og mögulegum ráðum,“ segir Þórður Ólafsson, forstöðumað- ur Bankaeftirlitsins. Þórður segir fréttir um 8,3 millj- arða tap banka og sparisjóða á und- anfórnum fimm árum ekki koma Bankaeftirlitinu á óvart. í því sam- bandi sé nóg að líta til afdrifa fisk- eldis, loðdýraræktar og ullariðnaðar. Þá hafi versnandi afkoma sjávarút- vegs aukið enn á vandann. Hann seg- ir Bankaeftirlitið, viðskiptaráðu- neytið og bankana vinna að því í sameiningu að draga úr tapinu. í undirbúningi séu nýjar reglur sem taki á afskriftum og útlánatöpum á afdráttarlausari hátt en áður. Um næstu áramót taka gildi ný lög sem fela í sér auknar kröfur um eig- ið fé banka. í stað 5 prósenta eigin- íjárhlutfalls fer hlutfallið upp í 8 pró- sent. Ljóst er að einstaka bankastofn- anir munu eiga í verulegum erfið- leikum með að uppfylla þetta skilyrði vegna þeirra fjármuna sem hafa tap- ast á undanfornum árum. Þannig er til dæmis óvíst hvort Landsbankinn geti uppfyllt þessa kröfu. Að sögn Þórðar er of snemmt að segja til um hvaða bankar komi til með að lenda í erfiðleikum um næstu áramót vegna nýju laganna. Allir DANSSKOLI INNRITUN í SÍMUM: 36645 og 685045 ALLADAGA KENNSLA HEFST 10. sept. 1992 Skírteini afhent í Bolholti 6 Miövikudaginn 9. sept. kl. 14-22 útreikningar bendi þó til þess að vel- flestar peningastofnanir landsins muni uppfylla herta eiginfjárstöðu en á hinn bóginn leiki vafi varðandi aðrar. „Við fylgjumst náttúrlega með tap- inu milli ára og innan hvers árs. Ef staða einstakra stofnana er orðin slík að við teljum að það sé veruleg hætta að hún uppfylli ekki þær kröfur sem löggjafinn gerir til þeirra þá grípum við að sjálfsögðu inn í. Við höfum víðtækar heimildir til þess og höfum gert það í nokkrum tilvikum," segir Þórður. -kaa II JONS PETIIRS ði KORU B0LH0LTI6 REYKJAVIK S. 91-36645 og 685045 Fax 91-683545 IRETTA ATT! RAÐG REIÐSLU R Au&björg Kara jón Pétur Hinrik Samkvæmisdansar: standard og suður-amerískir Gömludansarnir - Tjútt - Swing Barnadansar (yngst 4 ára) Byrjendur - Framhald - Hóptímar - Einkatímar Allir aldurshópar velkomnir: Barnahópar - Unglingahópar - Fuilorðinshópar (einstaklingar, pör og hjón) ► Erlendir gestakennarar ► Kennsla a landsbyggbinni auglýst sföar ► Seljum hina frábæru Supadance dansskó Æfingasalur opinn sjö daga vikunnar FÍD • Félag islenskra danskemta Dl ■ Danstál Islaeds Hjolabretti, FIBER, verð aðeins kr. 790. Hjólabretti, stór, 10", verð frá kr. 1.990. Hjólabretti, stór, með músik, aðeins kr. 1.800 Hjólaskautar, verð aðeins kr. 2.900. Öryggishjálmar, hnéhlifar, úlnliðshlifar og fl. Linuskautar, st. 29-34, verð aðeins kr. 3.900. GAðir barnaskautar með stillanlegri smellu og frönskum rennilás og bremsu. Linuskautar, st. 35-43, verð aðeins kr. 5.900. Vandaðir linuskautar, polyurethan skór á sterku stelli. High-rebound hjól með góðum legum og bremsu. Ármúla 40 símar 35320 og 688860 l/erslumn /M4R Greiðslukort og greiðslusamningár Sendum i póstkröfu Varahlutir og viðgerðir Vandið valið og verslið í Markinu LÍIMUSKAUTAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.