Alþýðublaðið - 26.05.1967, Page 2
Blóðug vika
í Vietnam
SAICON, 25. mai (NTB-Reuter)
— Mannfall Bandaríkjamanna í
Vietnam í síðustu viku var meira
cn í nokkurri annarri viku stríðs-
ins. Nú hafa alls rúmlega 10.000
Bandaríkjamenn fallið í styrjöld-
inni. 33 7 Bandaríkjamenn féllu í
síðustu viku og 2.282 særðust, en
áður hafa aldrei fallið meira en
264 Bandaríkjamenn á einni viku.
Orsök þessa mikla mannfalls
voru hinir blóSugu bardagar á
vopnlausa svæðinu milli Norður-
og Suður-Vietnam. Þessum aðgerð-
um lauk í dag þegar Bandaríkja-
menn og bandamenn þeirra héldu
tmrtu af suðurhluta svæðisins og
skildu eftir sig sviðna jörð og
brennd sveitaþorp. Um 9.600 bænd
ur hafa verið fluttir af suðurhluta
svæðisins svo að gera megi misk-
unnarlausar sprengjuárásir á her-
sveitir kommúnista, en tilgangur-
inn er að koma í veg fyrir að þeir
noti vopnlausa svæðið fyrir griða-
Stað.
AÐALFUNDI S.H.
LAUK í GÆRKVELDI
Aðalfundur Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna hófst í gær-
tnargun að Hótel Sögu í Reykjct-
vik. Fundarstjóri var kjörinn Hux-
ley Ólafsson, framkvæmdastjóri,
Keflavík, og til vara Björn Guð-
Viu ndsson, framkvæmdastjóri,
Vestmannaeyjum. Ritari var kjör-
$nn Helgi Inghnundarsoíi,
skiptafræðingur, Reykjavík.
í upphafi fundarins lagði for-
viaðúr S.H., Gunnar Guðjónsson,
forstjóri, fram skýrslu stjórnar
fíyrir starfsárið 1966. Fundinum
lauk í gærkveldi og var stjóm sam
takarina endurkjörin.
í ræðu formanns kom meðal
annafs fram: Heildarframleiðsla
liraðfrystra sjávarafurða hjá frysti
húsum innan SH á árinu 1966 var
60.848 smálestir, eða 11.511 smá-
lestum minni en árið 1965. Fram-
leiðsla frystra fiskflaka (einnig
fiskblokkir) var 31. 385 smál eða
10,8% minni en árið 1965. Fram-
leiðsla frystrar síldar var 18.161
smál. samanborið við 24.289 smál.
1965 eða 25,3% minni en 1966.
Heilfrysting á flatfislá jókst
nokkuð, en að öðru leyti var fram
leiðslusamdráttur í flestöllum af-
urðaflokkum.
Framleiðsluhæstu frystihúsin
innan SH eru Vinnslustöðin hf. í
Vestmannaeyjum, 4.095 tonn, ís-
björninn hf., Reykjavík, 3.619
tonn, Hraðfrystihúsið á' Kirkju-
sandi hf. 3.107 tonn, Hraðfrysti-
stöð Vestmannaeyja 3.068 tonn,
Fiskiðjuver Bæjarútgerðar Reykja
víkur 2.682.
í útflutningi þjóðarinnar árið
Sovétbrúður og
dráttarvélar
íf vörusýningadeild Sovétríkj-
amla í íþróttahöllinni í Laugar-
rlal; eru vörur frá nokkrum út-
flutningsfyrirtækjum. Þar eru
sýndir bílar, landbúnaðarvélar,
brffcíur, hljóðfæri, bækur, logsuðu
tæki og teppi svo að nokkuð sé
nefnt.
Útflutningsfyrirtækið Avtoex-
port sýnir fimm manna Volgubif-
reið, Moskvíts-bíl og 10 manna
rútubíl. Traktoroexport sýnir 2
dráttarvélar og ýmis önnur land-
búnaðarverkfæri. Verzlunarfyrir-
tækið Stankoimport sýnir ýmis
Framhald á 15. síðu.
1966 skipuðu hraðfrystar sjávar-
afurðir enn sem fyrr fyrsta sess.
Voru þær 26,6% af heildarútflutn
ingsverðmæti eða samtals 1612
Framhald á 15. síðu.
Hornakórallinn hlaut
ágætar undirtektir
Þjóöleikhúsið frumsýndi í Gíslason og Sigríður Þorvalds
fyrrakvöld nýtt íslenzkt leikrit dóttir. Vegna fjarveru Ieikhús
Hornakóralin eftir Odd Björns gagnrýnenda Alþýðublaðsins,
son, Kristján Árnason og Leif Ólafs Jónssonar, mun eitthvað
Þórarinsson. Leikurinn hlaut dragast að blaðið birti dóm
mjög góðar undirtektir áhorf- um sýninguna, en þessi mynd
enda, en með aðalhlutverk þar er af einu atriðanna úr leikn-
fara Þóra Friðriksdóttir, Ró- um. (Ljósm.: Bjl.)
bert Arnfinnsson, Erlingur
Norðmenn minnast 60 ára gamals slyss:
REISA MINNISVARÐA
SAUDANESKIRKJUGARDI
í sumar verður afhjúpaður í
kirkj u garðinum á Sauðanesi á
Langanesi minnisvarði um 15
norska sjómenn, sem fórust með
norska selfangaranum Fridtjof
við Langanes fyrir réttum sextíu
árum. Samtök skipstjóra í Tromsö
standa fyrir því, að þessi minnis-
varði verði reistur, en selfangar-
inn var einmitt frá þeim bæ.
í Seyðisfjarðarblaðinu Austra
er sagt frá slysinu í stuttri frétt
12. október 1907. Þar segir svo
frá tildrögum slyssins:
„Gufuskipið „Fridtjof" frá
Tromsö .skipstjóri Johan Larsen,
fórst við Langanes 5. þ.m. og
drukknuðu þar 15 skipverjar, en
aðeins einn komsl' lífs af, véla-
meistari Eiias Samueisen, skolaði
honum á land á flaki. Skipið fór
frá Tromsö 24. sept. sl. til sel-
veiða norður í höf, lenti það norð-
ur að eyjunni Jan Mayen og tók
þar þrjá skipbrotsmenn, en er
skipið hélt þaðan aftur laskaðist
það svo í ísnum, að skipstjóri af-
réð að leita fyrstu hafnar á ís-
landi. En er þeir komu upp undir
Langanes, þann 5. þ.m. skall á
ofsastórhríðarveður og fórst skip-
ið norðan við nesið skammt frá
bænum Skálum, og þangað heim
komst' vélmeistarinn og lá' þar, er
siðast fréttist, töluvert veikur.
Þann 7. október voru 7 lík rekin á
land.
Útgjöi-ðarmaður skipsins, Gjæ-
ver að nafni, á heima í Tromsö.
2 26. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ