Alþýðublaðið - 26.05.1967, Qupperneq 7
Útgefandi: Sam- í
band ungra Jafnað-
armanna i
Karl Steinar Guðnason, kennari
skipar 5. sætið á framboðslista Al-
þýðuflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi.
Karl Steinar er fæddur 27. maí
1939 í Keflavík og eru foreldrar
hans þau Guðni Jónsson, vélstjóri
og Karólína Kristjánsdóttir, verka
kona. Hann lauk kennaraprófi frá
Kennaraskóla íslands vorið 1960
og hefur stundað kennslu í Kefla-
vík síðan.
Karl Steinar hefur tekið mjög
virkan þátt í félagsstörfum bæði
í Keflavík og í landssamtökum
ungra jafnaðarmanna. Hann hefur
starfað mikið í skátahreyfingunni
og að æskulýðsmálum í heima-
byggð sinni, átti m.a. sæti í æsku-
lýðsráði Keflavíkurkaupstaðar.
Karl Steinar hefur ætíð haft mik-
inn áhuga á málefnum verkalýðs-
hreyfingarinnar og er ritari Verka
lýðs- og sjómannafélags Keflavík-
ur. Formaður FUJ í Keflavík var
hann árin 1958 — 1966 og ritari
stjórnar SUJ frá 1964. Hann hefur
jafnframt átt sæti í stjórn Æsku-
lýðssambands norrænna jafnaðar-
manna (NSU) frá árinu 1963. Karl
Steinar Guðnason hefur tekið virk
an þátt í starfi Alþýðuflokksins og
á setu í flokksstjórn. Frá síðustu
bæjarstjórnarkosningum hefur
hann verið varabæjarfulltrúi Al-
þýðuflokksins í Keflavík og er nú
í fyrsta sinn í framboði til Al-
þingiskosninga. Karl Steinar mun
vera yngsti frambjóðandi á fram-
boðslistum þeim er boðnir hafa
verið fram í Reykjaneskjördæmi
til Alþingiskosninganna nú í vor.
Ritnefnd æskulýðssíðunnar náði
tali af ICarli Steinari Guðnasyni
og ræddi lítillega við hann um
helztu áhugamál hans varðandi
störf og stefnu Alþýðuflokksins á
komandi árum svo og ýmis mál-
efni Reykjaneskjördæmis. Fer það
viðtal hér á eftir í stuttu máli.
Hver telur þú að' eigi að vera
helztu baráttumál Alþýðuflokksins
í náinni framtíð?
,,Sem ungur jafnaðarmaður hlýt
ég að leggja áherzlu á að lífskjör
alls almennings á íslandi verði
sem bezt og jöfnust. Að allir ís-
lendingar njóti fylista félagslegs
öryggis og tryggt sé að enginn
þux-fi að líða skort. Þetta er sá
mælikvarði sem allir jafnaðar-
menn vex'ða að beita er þeir vega
og meta hvert einstakt málefni og
málsmeðferð til sem hagkvæmastr
ar lausnar á þeim vandamálum,
sem við er að stríða hverju sinni.
Því verður ekki á móti mælt, og
það viðurkenna jafnvel andstæð-
ingar okkar jafnaðarmanna, að
öll þýðingarmestu baráttumál Al-
þýðuflokksins frá fyrri árum hafa
náð heil í höfn. Þessi gömlu bar-
áttumál okkar Alþýðuflokksmanna
eru í reynd það velferðarþjóðfé-
lag sem íslendingar búa við nú í
dag. Svo vel hefur til tekizt vegna
harðfylgni og þrautseigju jafnað-
armanna, traustan stuðning al-
Karl Steinar Guðnason
þýðusamtakanna, og síðast en
ekki sízt þá hugsjón jafnaðarstefn
unnar um félagslegt öryggi og
jafnrétti er ætíð hefur verið Al-
þýðuflokknum leiðarljós.
í dag eru aðrir tímar og önnur
vandamál við að glíma en voru
fyrir 50 árum þegar Alþýðuflokk-
urinn hóf baráttu sína fyrir hags
munamálum íslenzkrar alþýðu.
Þessi vandamál krefjast þó engu
að síður raunhæfrar og hagkvæm
rar lausnar. Sú er trú mín að jafn
aðai’stefnan sé þess ein umkomin
að leysa úr vandamálum dagsins
í dag á sama heilbrigða og farsæla
hátt og honum auðnaðist að leysa
þau vandamál er helzt knúðu dyra
hér á árunum áður. Þetta vilja
andstæðingar okkar Alþýðuflokks
manna ekki viðurkenna, þeir segja
að vissulega hafi jafnaðai'stefnan
verið þeim vanda vaxin á fyrri ár
um en við þau skilyrði sem hin
íslenzka þjóð býr að nú í dag séu
aðrar leiðir og aðrar stefnur á-
kjósanlegri, En ég spyr. Fyrst jáfn
aðarstefnunni tókst að berjast til
sigurs, til framfara, frelsis og
jafnréttis í því þjóðfélagi fáfræði,
eymdar og fátæktar sem afturhald
og kapítalismi höfðu búið hmni
íslenzku þjóð og var sú barátta
háð í illvígri andstöðu peninga-
valds og eiginhagsmunasjónar-
miða hversu miklu betur ættu þá
ekki jafnaðarmenn að vera færir
um að leysa úr vandamálum þess
velferðaiTÍkis er þeir sjálfir hafa
upphugsað, barizt fyrir og skap-
að?
Alþýðuflokksmenn um land allt,
ungir sem gamlir, keppa nú að því
að setja fram á ljósan og skýran
hátt hvernig leysa skuli til farsæld
ar þau mál er varðar framtíðar-
hag íslendinga. Ég vil því hvetja
alla kjósendur til þess að kynna
sér sjónarmið Alþýðuflokksins og
styðja flokkinn í baráttunni fyrir
aukinni velferð og hagsæld alls
almennings. Ég vil einkum hvetja
ungt fólk til þess að kynna sér
í'ækilega stefnumál Alþýðuflokks-
ins um íslenzkt þjóðfélag framtíð
arinnar. Iiugsjónir Alþýðuflokks-
ins frá fyrri árum eru staðreyndir
íslenzks þjóðfélags í dag, hugsjón
ir Alþýðuflckksmanna í dag verða
staðreyndir íslenzks þjóðfélags í
náinni framtíð.
Hvað geturðu sagt okkur í fáum
crðum um áhugamal þín vai'ðandi
kjördæmið?
,,Eitt helzta áhugamál mitt
hér ‘heima fyrir er það, að allt
Reykjaneskjöi-dæmi sunnan Hafn-
arfjarðar verði gert eitt lögsagnar
umdæmi. Með slíkri sameiningu
sveitarfélaga tel ég að gera megi
mun stærri átök um sameiginleg
framfaramál þessa byggðarlags.
Með tilkomu hins nýja Keflavíkur
vegar hefur okkur Suðurnesja
mönnum orðið það ljósara en áð-
ur hve mikil nauðsyn er á bygg-
ingu vega með varanlegu slitlagi
til sem flestra byggðarlaga, kaup-
túna og þorpa, hér á Reykjanes-
svæðinu. Þetta er t.d. eitt þeirra
mála sem ég tel að leysa megi
fljótar og öruggar ef sterk hér-
aðsstjórn væri í þessum byggðar-
lögum og íbúar Reykjanesskagans
gætu komið fram sem einn, sterk
ur aðili. Annað mál sem mér ligg-
ur á hjarta er það að ég tel að
öll símaþjónusta við íbúa Suður-
nesja sé illviðunandi. Ég tel að
símanotendur sunnan Hafnarfjarð
ar greiði tiltölulega mun meira
gjald fyrir alla símaþjónustu en
íbúar höfuðstaðarins. Þetta er eitt
þeirra mála er væri valið viðfangs
efni öflugrar héraðsstjórnar
Reykjaneskjördæmis. Fleiri mál
mætti tína hér til en ég tel að
eitt brýnasta hagsmunamál míns
byggðarlags sé þessi stækkun lög
sagnarumdæmis og myndun öfl-
ugrar héraðsstjórnar fyrir svæðin
sunnan Hafnarfjarðar".
Hvað viltu segja um liorfur Al-
þýðuflokksins í Reykjanesi í kom-
andi kosningum?
Ég vil nú engu spá um kosninga
úrslit. Hins vegar tel ég góðan
hljómgrunn meðal kjósenda, eink
um ungs fólks, fyrir störfum og.
stefnu Alþýðuflokksins hér í
Reykjanesi eins og annars staðar
um landið. Má benda á, að þrátt
fyrir illspár og úrtölur vann Al-
þýðuflokkurinn í Keflavík mikinn
sigur í síðustu bæjarstjórnarkosni
ingar. Ég held að fólk almennt
hljóti að átta sig á því og viður-
kenna það að Alþýðuflokkurinn
er það afl sem allir vinstri ménn
eiga að sameinast um. Ef klofn-
ingsaðgerðir og sundrungahjól á-
byrgðar- og atkvæðalítilla manna
bitna á Alþýðuflokknum bitna
þær þó enn harðar á hag launa-
stéttanna og verkalýðsins sem A1
þýðuflokkurinn hefur jafnan bar-
izt fyrir. Vilji vinstri ménn
tryggja framgang hugsjónamála
sinna ber þeim því að snúa til liðs
við Alþýðuflokkinn og veita þeim
stjórnmálasamtökum íslenzkra
jafnaðarmanna brautai'gengi. Al-
þýðuflokksmenn á Reykjanesi!
Hagur flokks ykkar og kjördæmis
ykkar og hugsjóna ykkar er kom-
inn undir því einu iað þið vinnið
ötullega að því að efla fylgi Al-
þýðuflokksins. Stöndum því fast
um flokk okkar ig sækjum fram
til sigurs undir merkjum lýðræðis
jafnaðarstefnunnar ‘á íslandi, —
undir merkjum
ALÞÝÐUFLOKKSINS.
Kópavogur er or'ðinn næststærsti bær á landinu.
26. maí 1967 - ALÞYÐUBLAÐIÐ