Alþýðublaðið - 26.05.1967, Síða 11
|s:R8tsfiórS Örn Eldssori
ENN BÆTTI GUÐMUNDUR
ÍSLANDSMETIÐ • 17,42!
GUÐMUNDUR Ilermannsson,
KR bætti nýsett íslandsmet í
kúluvarpi á EÓP-mótinu í gær-
kvöldi, varpaSi kúlunni 17,42 m.
í fyrstu tilraun við mikil fagmaðar
læti áhorfenda. í næstu tilraun
flaug- kúlan mun lengra, eða ca.
17,60 en því miður var kastið ó-
gilt. Erlendur Valdimarsson, ÍR
varð annar og náði sínum bezta
árangri, 14.79m. Ekki er hægt að
segja, að veður hafi verið hag-
stætt, þvi að kalt var á Melavell-
inum í gærkvöldi.
í öðrurn greinum urðu hplztu
úrslit sem hér segir.
Guðmundur Ilermannsson
Jón Þ. Ólafsson, ÍR sigraði í há-
stökki, stökk 2,05m. og átti góða
tilraun við 2,08m. Valbjörn Þor-
láksscn, KR sigraði í llOm. grinda
hlaupi hljóp á 15,0 sek. og í stang
arstökki, stökk 4,10m. Ólafur Guð
mundsson, KR sigraði í lOOm.
hlaupi, hljóp á 11,0 sek, Björgvin
Hólm, ÍR sigraði í spjótkasti, 56,
84m. og Jón H. Magnússon, ÍR í
sleggjukasti, 51,59m. Þórarinn
Ragnarsson, KR sigraði í 400m.
hlaupi á 51,6 sek. og Ólafur Guð
mundsson varð annar á sama
tíma, Halldór Guðbjörnsson, KR
varð fyrstur í 800m. á 1:57,6 mín.
Karl Stefánsson, KR stökk lengst
í þrístökki, 13,50, Nánar á morgun.
Celtic
vann!
Celtic varð Evrópumeistari í knatt
spyrnu, sigraði Inter í úrslitaleik
í Lissabon í gærkvöldi með 2
mörkurn gegn 1. í leikhlé var stað
an 1:0 fyrir Inter.
Koparpípur og
Rennilokar.
Fittings.
Ofnkranar,
Tengikranar,
Slöngukranar,
Blöndunartæki.
Burstafell
bygglngavöruverzlun
Réttarholtsvegl 3.
Síml 3 88 40.
Frá leik úrvals-
ins og Hearts
íslenzkir knattspyrnumenn
réttu töluvert hlut sinn í
leiknum við Hearts í fyrra-
kvöld eftir ófarir Keflvík-
inga og Vals, en úi-val lands
liðsnefndar gerði jafntefli
við Skotana 3 gegn 3. Mynd
irnar eru frá leiknum, sú
efri sýnir Guðmund Péturs-
son, markvörð verja glæsi-
lega, en hann átti ágætan
leik. Á neðri myndinni skor
ar Elmar Geirsson annað
mark úrvalsins með glæsi-
legri spyrnu. Skozki mark-
vörðurinn er illa staðsettur.
Myndir: GE.
★ BANDARÍKJAMAÐURINN
Tommie Smith setti heimsmet í
400 m. og 440 yds lilaupi um síð-
ustu helgi, hljóp á 44,5 sek. og
44,8.
★ Á FRJÁLSÍÞRÓTTAMÓTI í
Iowa varpaði Neal Steinhauer kúl
unni 20.23 m. Spretthlauparinn
Sophomore sigraði í 100 yds
hlaupi á 9,2 sek, sem er 1/10 lak
ara en heimsmetið. Sophomore er
19 ára gamall og frá Jamaica.
★ EWA KLOBUKOWSKA, Pól-
landi sigraði í lOOm. hlaupi
kvennt á móti í Varsjá, fékk tím
ann 11,3 sek. Irena Kiivenstein
varð önnur á 11,5. Janusz Sidlo
sigraði í spjótkasti, kastaði 80,70
m.
★ FINNLAND og Holland gerðu
jafntefli í undankeppni Olympíu-
leikjanna í Helsingfors í fyrra-
kvöld 0-0.
★ ENGLAND sigraði Spán í
knattspyrnu í London í fyrra-
kvöld með 2 mörkum gegn engu.
Bæði mörkin voru skoruð í síðari
hálfleik.
gegn engu en leikurinn fór fram
í Valencia.
vReal OgTh
★ SVISS sigraði Rúmeníu nieð
7 mörkum gegn 1 í gær. Staðan í
hálfleik var 2:0 og Svisslendingar
komust í 7:0 áður en Rúmenar
skoruðu mark. Leikurinn fór fram
í Ziirich.
Ferguson til
West Ham
West Ham hefur keypt
hinn fræga markvörð Kil-
marnock, Bobby Ferguson
fyrir rúmar 8 milljónir ísl.
króna, sem er metverð fyrir
markvörð.
★ LEEDS sigraði Kilmarnock í
undanúrslitum borgarkeppni Ev-
rópu. Síðari leiknum lauk með
jafntefli 0-0., en Leeds sigraði í
þeim fyrri. Liðið leikur við Ein-
tracht frá Frankfurt eða Dinamo
Zagreb frá Júgóslavíu í úrslitun-
um.
★ REAL Valencia sigraði Notting
ham Forest í gær með 1 marki
Sendum gegn póstkröfu. ,
Fljót afgreiðsla.
Guðm. Þorsteinsson I
gullsmiður ]
Bankastræti 12.
TrúfofunarhrSngar
26. maí 1967 - ALÞYÐUBLAÐIÐ