Dagur - 08.02.1983, Side 1
GULLSMIÐIR
SiGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66.árgangur
Akureyri, þriðjudagur 8 . febrúar 1983
16. tölublað
Óvíst
um ser-
framboð
Vegna orðróms og fréttar i DV
um að framsóknarmenn í Aust-
ur-Húnavatnssýslu hyggi á sér-
framboð í væntanlegum al-
þingiskosningum, leitaði Dag-
ur frétta hjá Hilmari Kristjáns-
syni oddvita á Blönduósi og
varaformanni nýstofnaðs fram-
sóknarfélags þar, en Hilmar
var einn þeirra húnvetninga
sem gengu út af kjördæmis-
þingi flokksins í Miðgarði.
Hilmar sagði að ekki væri neinn
fótur fyrir þessari frétt því menn
væntu þess að eitthvað væri hægt
að gera til að sætta þessi mál.
Jafnframt sagði Hilmar að nokkur
hópur væri harður í afstöðu sinni
og myndi erfitt að ná sættum við
hann. Óvíst væri hinsvegar að um
sérframboð yrði eins og staða
mála væri nú. Ó.J.
Þess má geta að Valdimar Gunn-
arsson formaður félags ungra
framsóknarmanna í A-Húna-
vatnssýslu sagði í samtali við DV í
gær að sérframboð myndi koma
fram og væri það óánægja með Pál
Pétursson í efsta sæti lista Fram-
sóknarflokksins sem væri ástæða
þess.
Óveðurá
Húsavík
Mikið illskuveður gerði á
Húsavík aðfararnótt föstudags
og kyngdi niður snjó. Svo
mikill var djöfulgangurinn í
veðrinu að gamlir innfæddir
menn þurftu að hugsa sig lengi
um til að finn hliðstæðu.
Kannski eru allar samlíkingar
afstæðar en eitt er þó víst, að
veðrið var það slæmt að skóla-
stjóri Gagnfræðaskólans sendi út
tilkynningu í útvarp þar sem hann
aflýsti öllu skólahaldi á föstudag,
og er hann þekktur fyrir ýmislegt
annað en að fella niður kennslu.
Ekki er kunnugt um meirihátt-
ar tjón. p.B.
Samvinnuhreyfingin:
Undirbýr aðgerðir vegna
aðsteðjandi efnahagsvanda
Sambands íslenskra samvinnu-
félaga og kaupfélögin innan
vébanda þess hafa ákveðið að
gripa til aðhaldsaðgerða í
rekstri sínum vegna þeirra
efnahagserfiðleika sem nú
steðja að þjóðarbúinu.
Meðal annars verða hafnar víð-
tækar aðgerðir til sparðnaðar og
hagræðingar í samvinnurekstrin-
um, tekin verður upp útlána-
stefna sem beinist að því að
minnka fjárbindingu í vörubirgð-
um og dregið verður eins og frek-
ast er unnt úr fjárfestingum.
Þetta voru niðurstöður sam-
starfsfundar með kaupfélagsstjór-
um og stjórnarformönnum kaup-
félaganna sem haldinn var í lok
síðastra mánaðar. Par kom fram
að íslenska þjóðin stendur nú
frammi fyrir alvarlegum efna-
hagsvanda og atvinnulífi þjóðar-
innar er nú stefnt í mikla hættu
vegna hins stórfellda samdráttar
þjóðartekna, samfara vaxandi
verðbólgu og hættulegri erlendri
skuldasöfnun.
Nánar er sagt frá
þessu máli á bls. 6-7 í blaðinu í
dag.
33
Umfangsmeira
en álitið
var í fyrstu
„Það er ekkert nýtt að frétta af
rannsókn fjársvikamálsins,“
sagði Hallvarður Einvarðsson,
rannsóknarlögreglustjóri rikis-
ins, í samtali við Dag.
„Það hefur verið unnið ósleiti-
lega að rannsókn málsins síðustu
daga og nú um helgina og rann-
sókn málsins miðar vel áfram. Án
þess að ég gefi þessu máli nokkra
einkunn um umfang á þessu stigi
get ég sagt að það er umfangsmeira
en virtist í upphafi. Það hafa ekki
blandast fleiri aðilar inn í málið en
þeir tveir sem eru í gæsluvarð-
haldi en það hefur orðið að taka
skýrslur af mörgum aðilum og afla
gagna víðsvegar frá.“
Týnda flug-
vélin fundin
— kom í vörpu Harðbaks
Hluti flugvélarinnar TF-MÁR,
sem hvarf lyrir VestQörðum fyrr
í vetur með einn mann innan-
borðs, er nú fundinn. Kom
brak úr flugvélinni í vörpu Ak-
ureyrartogarans Harðbaks sl.
fimmtudag og hafa menn frá
Loftferðaeftirlitinu staðfest að
brakið er úr vélinni.
- Við vorum að veiðum rétt
austan við Víkurálinn og vorum
að byrja að toga er vélin kom í
vörpuna, sagði Sigurður Jóhanns-
son, skipstjóri á Harðbak, í sam-
tali við Dag. Sigurður sagði að
varpan hefði rifnað og því hefði
aðeins hluti af væng, björgunar-
vesti og smærra brak náðst um
borð.
- Það er öruggt að þetta brak
er úr flugvélinni sem hvarf 27.
október sl., sagði Skúli Þór Sig-
urðsson, deildarstjóri frá Loft-
ferðaeftirlitinu, þegar Dagur
ræddi við hann í morgun. Skúli
sagði að það væri ysti hluti af
hægri væng sem hefði fundist en
brakið virtist hafa komið í vörp-
una á mjög svipuðum stað og
skipverjar á vélbátnum Þrym sáu
vélina hverfa út í sortann þennan
örlagaríka dag.
Stór hluti farþeganna varð
að sofa í flugvélinni
„Það er skömm frá því að segja
að við Akureyringar gátum
ekki hýst þessa sextíu farþega
sem voru með vélinni nema að
hluta til“, sagði Sveinn Krist-
insson umdæmisstjóri Flug-
leiða er við spjölluðum við
hann á föstudagsmorgun. Þá
um nóttina hafði Boeing þota
Flugleiða sem var í áætlunar-
flugi frá London til Keflavíkur
orðið að lenda á Akureyrar-
flugvelli þar sem flugvellirnir í
Keflavík og í Reykjavík voru
lokaðir vegna veðurs.
„Við komum ekki nema helm-
ing farþeganna í rúm. Hinir urðu
að sofa hér í flugstöðinni og að
hluta til út í flugvél“, sagði
Sveinn. „Það fór að vísu ekkert
illa um fólkið, en þetta er auðvit-
að ekki sá aðbúnaður sem við
vildum að fólkið fengi.
Það var verið að mála á Hótel
Varðborg, en það breytir ekki því
að hótelmálin hér í bænum eru
orðin pirrandi vandamál. Hvað
hefði gerst ef vélin hefði verið
með 160 farþega í stað 60? Ég vil
helst ekki hugsa þá hugsun til
enda. Það er hrein ogbein skömm
að því fyrir bæjarfélagið að geta
ekki hýst nokkra menn þegar
svona kemur uppá.
En það getur enginn einstakl-
ingur fjármagnað hótelbyggingu í
dag, þó það fé sem yrði lagt í slíka
byggingu myndi skila sér til baka.
Það myndi skapa 150 manns
atvinnu og slíkt hótel yrði stór
neytandi á öllum sviðum".
Af þeim 60 farþegum sem voru
með þotu Flugleiða á Akureyrar-
flugvelli aðfararnótt föstudagsins
voru um helmingurinn útlending-
ar. Þeir voru látnir sitja fyrir með
að komast á hótelin í bænum.
Hinir lögðu sig í flughöfninni og í
flugvélinni eins og áður sagði.
Vélin var kynnt alla nóttina og
fólkinu varð því ekki kalt. Það
fékk smurt brauð og kaffi í flug-
höfninni. „Fólkið tók þessu mjög
vel og margir litu á þetta sem
ævintýri, en ekki við starfsmenn-
irnir hér á vellinum. Hótelmálin
eru í uggvænlegu ástandi, það
hljóta allir að sjá,“ sagði Sveinn.
Á föstudagsmorguninn var haf-
ist handa um að ryðja snjó af vél-
inni og afísa hana. Því verki var
lokið rétt fyrir hádegi. Við af-
ísingu flugvélarinnar nutu flug-
vallarstarfsmennirnir aðstoðar
körfubíla frá slökkviliðinu og
Körfubílaleigu Sæmundar Páls-
sonar.
Flugbrautin hafði þá verið
rudd og bremsuskilyrði á braut-
inni voru mjög góð. „Ef svo hefði
ekki verið hefði vélin ekki komist
héðan strax um morguninn“,
sagði Sveinn Kristinsson.