Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1995, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1995, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUPAGUR 17. JANÚAR 1995 15 Fer Páll með þvaður? í kjallaragrein 2. janúar síðastliö- inn fullyröir Páll Pétursson eftir- farandi: „Eitt alvarlegasta máliö sem við er aö glíma er að mínum dómi hve tekjuskiptingin í þjóöfé- laginu er oröin mikil. Auðæfi hafa á nokkrum árum safnast á fáar hendur og þjóðarauðurinn streym- ir til fárra á meðan þeir fátæku verða sífellt fátækari." Eflaust telja margir að Páll geri sér grein fyrir því hvað þessar setn- ingar merkja og aö þær fullyrðing- ar byggi á staðreyndum. Eg dreg hvoru tveggja í efa. Mikil tekjuskipting? í vetur hafa oft heyrst fullyrðing- ar um að tekjubiliö í þjóðfélaginu hafi aukist, bilið milli ríkra og fá- tækra hafi stækkaö og margt fleira í þeim dúr. Búast má við að stjórn- arandstaðan muni hamra á þessu fram að kosningum. En hvaö merkja þessar fullyrð- ingar? Ég hef lengi leitað svara við því en orðið lítils vísari. Reyndar grunar mig að þeir sem klifa hvað mest á aukinni eða óréttlátri tekju- skiptingu vilji hafa sem óljósast hvað þeir eiga við. Þannig þurfa þeir ekki að hafa áhyggjur af því hvort fótur sé fyrir fullyrðingum þeirra eða ekki. Á íslandi er mikill jöfnuður Fyrir nokkrum vikum birti viku- ritið Vísbending tölur um mun á ráðstöfunartekjum „ríkra“ og „fá- tækra" í nokkrum löndum. í þess- um samanburði teljast þau 20% heimila sem hafa hæstar ráðstöf- unartekjur vera „ríkir“ og þau 20% sem hafa lægstar ráðstöfunartekj- ur vera „fátækir". Við samanburð- inn kom í ljós aö munur á ráðstöf- unartekjum ríkra og fátækra er miklu minni á íslandi en í þeim löndum sem við berum okkur oft- ast saman við, til dæmis annars staðar á Norðurlöndum. Reyndar á þetta líklega við um nær öll lönd heims. Hér er um einn mælikvarða á jöfnuði að ræöa sem gefur vísbend- ingu um ástandið og í framtíðinni má fylgjast meö þróun mála með þessum mælikvarða. Þeir sem telja aðra mælikvarða betri en þennan eru vinsamlegast beðnir um að kynna þá fyrir alþjóð. Að sjálfsögðu segir einn mælikvarði ekki allt sem við viljum vita og æskilegt væri að nota nokkra vel skilgreinda mæh- kvarða til að fylgjast með jöfnuði KjaUarinn Snjólfur Ólafsson dósent í Háskóla íslands eða ójöfnuði á íslandi, bæöi hvern- ig hann þróast með árunum og hvernig við höfum það í saman- burði við aðrar þjóðir. Launamunur Fyrir nokkrum árum var einnig altalað í þjóðfélaginu að launamun- ur hefði aukist. Einu tölurnar sem ég komst þá yfir um ástandið voru niðurstöður úr könnun Félagsvís- indastofnunar Háskólans á laun- um helstu starfsstétta. Niðurstöð- umar sýndu að launamunurinn hafði ekki aukist. í nýlegri skýrslu Þjóðhagsstofn- unar um atvinnutekjur er meðal annars reiknaður svokallaður Gini-stuðull fyrir atvinnutekjur allra framteljenda á aldrinum 26-65 ára, en hann er notaður til að meta tekjumun. í ljós kemur að hann hækkaði (sem svarar til meiri tekjumunar) á tímabilinu 1986 til 1991 (meðan Framsóknarflokkur- inn sat í ríkisstjórn), en er heldur lægri árið 1993 en 1991 þ.e. tekju- munurinn hefur minnkað síðustu tvö árin sem upplýsingar eru til um. Stagl stjórnmálamanna og sumra frammámanna launþega um að minnka þurfi launamun í þjóðfé- laginu er ekki líklegt til að skila þeim lægst launuðu miklu. - Með þessari fullyrðingu er ég ekki að lýsa skoðun minni á því hvort launamunur sé of mikill eða ekki. Hins vegar væri hægur vandi að auka kaupmátt þeirra á annan hátt ef þessir menn væru starfi sínu vaxnir. Um það verður rætt nánar síðar. En í stuttu máli er mun væn- legri leið til að bæta kjör hinna lægst launuðu að auka hagvöxt í landinu og þar með þjóðarfram- leiðsluna. Þannig má auka kaup- mátt allra landsmanna, hvort sem þeir hafa lág eða há laun. Snjólfur Ólafsson Greinarhöfundur segir stagl stjórnmálamanna og sumra frammámanna launþega um að minnka þurfi launa- mun í þjóðfélaginu ekki iíklegt til að skila miklu til hinna lægst launuðu. - Þingað um launakjörin einu sinni sem oftar. „En í stuttu máli er mun vænlegri leið til að bæta kjör hinna lægst launuðu að auka hagvöxt í landinu og þar með þjóðarframleiðsluna. Þannig má auka kaupmátt allra landsmanna, hvort sem þeir hafa lág eða há laun.“ Rannveig - kona í framboð! Kjósendur í Reykjaneskjördæmi fá til þess kærkomið tækifæri 21. til 22. janúar nk. að taka þátt í opnu prófkjöri Alþýðuflokksins - Jafn- aðarmannaflokks íslands. „Fléttulistar" Af sjö frambjóðendum í prófkjör- inu gefa þrjár konur kost á sér. Tólfti landsfundur Sambands al- þýðuflokkskvenna, sem haldinn var í nóvember sl„ ályktaði svo: „Að Alþýðuflokkurinn - Jafnað- armannaflokkur íslands, taki for- ystu í jafnréttisumræðunni í land- inu og geri það að markmiði sínu að eigi síðar en í alþingiskosning- unum 1999 verði bornir fram sk. „fléttulistar" þar sem til skiptis eru kona/karl, karl/kona. Að þessu markmiöi mun Samband alþýðu- flokkskvenna stefna og vinna henni fylgi meðal flokksmanna." Staðreyndir sýna að þar sem eng- ar reglur eru í gildi varðandi skip- an á framboðslista stjórnmála- flokka til kosninga er staða kvenna áberandi lakari en í þeim löndum þar sem slíkar „fléttulistareglur" gilda. Þingkosningar í Svíþjóð á síðasta KjaUariim Helga E. Jónsdóttir leikskólastjóri og formaöur Sambands alþýðu- flokkskvenna ári færa okkur heim sanninn um það að sænskum jafnaðarmönnum varð vel ágengt með sína „fléttu- lista“. Hvergi í heiminum eru jafn- margar konur kjörnar á þing og þar eða 49 %! Þau sannindi verða aldrei endur- tekin nógu oft að þátttaka og áhrif kvenna eru mikilvæg við ákvarð- anatöku á öllum stigum stjórn- mála. Reynsluheimur, væntingar, þekking og staða karla og kvenna er ólík en ekki ósamrýmanleg. Trúverðugir framboðslistar Flestir stjórnmálaflokkar og kjósendur gera sér grein fyrir að framboðslistar eru ekki trúverðug- ir þar sem einlit hjörð kvenna eða karla skipar öll sæti. Dæmi um þaö eru Kvennalistinn og fjórflokkarn- ir sem raöa körlum í sæti sem telj- ast örugg og konumar koma þar á eftir, með örfáum undantekning- um þó. Hlutur karla og kvenna á aö vera jafn - það er jafnrétti! Rannveig-kona í fyrsta sæti Reyknesingar fá til þess tækifæri í prófkjörinu um næstu helgi að velja konu í fyrsta sæti. Rannveig Guðmundsdóttir félagsmálaráð- herra er stjórnmálamaður sem að mínu mati hefur til að bera alla þá kosti sem prýða góðan stjórnmála- mann. Hún er í senn traust, ein- beitt og áreiöanleg. Tryggjum henni þann sess sem henni ber - tryggjum 1. sætið! Það geri ég. Helga E. Jónsdóttir „Flestir stjórnmálaflokkar og kjósend- ur gera sér grein fyrir að framboðslist- ar eru ekki trúverðugir þar sem einlit hjörð kvenna eða karla skipar öll sæti.“ Meðog ámóti Fækkunslysaí kjölfar minnkandi neyslu sterkra drykkja Skýrtengsl Á grund- velli rann- sóknar frá 1986 á tengsl- um umferðar- slvsa og ölv- unaraksturs við neyslu áfengis var því spáð að umferöar- Gy* A,mundS8on slysum fækk- Eáiiræainaur. aði ef gert væri ráð fyrir áfram- haldandi þróun í drykkjuvenjum íslendinga á þann veg aö hlutfall sterkra áfengistegunda minnkaði en heildarneysla ykist þó ekki. Niðurstöður nýrrar rannsókn- ar, sem nær til 1993, sýna að þessi spá hefur gengið eftir. Með auknu hlutfalli léttra áfengistegunda í neyslu landsmanna, einkum eftir tilkomu bjórsins, og samsvarandi minni neyslu sterkra tegunda hefur dregiö úr umferöarslysum, ölvunarakstri og umferðarslys- um tengdum ölvun. Heildar- neyslan er nú svipuð og áður en bjór var leyfður. Að sjálfsögðu má það ljóst vera að fjölmargir aörir þættir en neysla áfengis hafa áhrif á um- ferðina. Það veröur þó ekki geng- ið fram hjá þvi að neysla sterks áfengis helst skýrt í hendur við umferðarslys á þvi 28 ára tima- bili sem hér er um fjallað. Það þarf því ekki að koma á óvart ef gert er ráð fyrir að meiri ölvun og þar af leiðandi meiri slysa- hætta fylgi neyslu sterkra drykkja. Lögleiðing bjórs getur þó ekki átt hlut að fækkun umferðarslysa nema að svo miklu leyti sem hún dregur bæði úr neyslu sterkari drykkja og heildarneyslu áfengis. Óraunhæfur samanburður Að bera saman fylgni milli þess að sala á áfengu öli var leyfð hér á landi fyrir um sex árum og fækkun um- feröarslysa hlýtur að telj- astóraunhæft StArstúlcu islands. með öllu. Þegar litið er til baka vegur það þungt að skráðum öku- tækjum hér hefur fækkað vegna þrenginga í efnahagsmálum og að sama skapi hefur umferðar- fræðsla aukist. Þetta tvennt veg- ur mjög þungt þegar tekiö er miö af heildartölum. Það er því úti- lokaö að segja að tilkoma bjórsins hafi áhrif á fækkun umferðar- slysa, þvert á móti mætti áætla færri slys ef bjórinn heföi ekki komið. Aö sama skapi má merkja greinilega aukningu á alvarleg- um líkamsárásum og öðru ofbeldi sem vart þekktist hér fyrir nokkrum árum. Með þessu er þó ekki hægt að segja að hér sé bjórnum einum um að kenna en þó ber að hafa í huga að heildar- neysla áfengis hefur aukist á þessum tima. Af ofanrituöu má sjá að saman- burður á milli bjórs og umferöar- slysa er útilokaður nema að tekin séu mið af þeim fiölmörgu ástæð- um sem þar koma til og hafa veröur í huga þegar kannanir af þessu tagi eru gerðar. Til dæmis er hægt aö nefha að skuldastaða heimilanna síðustu sex ár hefur verið afar slæm og versnað méð hverju ári sem líöur. Skyldi bjór- inneigaþarhlutaðmáli? -pp

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.