Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1995, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1995, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 199E Stormur og snjókoma Páll Pétursson. Fer á taugum í undanrásum „Það hlýtur að standa eitthvað illa loftvogin hjá Stefáni og þetta lýsir því helst að hann sé orðinn þreyttur og yfirspenntur. Hann hefur lýst því yfir að hann vilji leiða listann í kjördæminu, en það er ekki gáfulegt að hann fari á taugum strax í undanrásum," segir Páll Pétursson í DV: Einkavæðing er böl mannkynsins ...Þessu vil ég svara á þennan veg. Ég hef verið ríkisrekinn alla ævi eins og Seðlabankinn eða sauðfjárræktarstöðin á Hesti í Borgarfirði. Ég kunni því mæta vel enda er ég hlynntur ríkis- rekstri. Ég léti fyrr drepa mig en Ummæli einkavæða mig þvi ég tel einka- væðingu böl mannkynsins," segir Jón Múli Árnason í Morgunblað- inu. Tökum okkur sjálfa af lífi „Það erum við sjálfir sem erum oftast að taka okkur af lífi í þess- um leik... Ég átti von á því að við kæmumst inn í leikinn í síð- ari hálfleik en þá kom upp það agaleysi sem hefur einkennt Haukaliðið oft og tíðum í vetur,“ segir Einr Þorvarðarson í DV. Er munur á fíl og svíni? „Bleikir fílar hafa verið þekktir í gegnum tíðina en ástandið á fólki hlýtur að vera dálítið alvarlegt þegar fólk heldur að fílar séu svín,“ segir Bogi Jónsson, versl- unarmaður í DV, en Bónus sakar hann um að stæla merki þeirra. Enginn atkvæðaveiðari „Af hveiju var ég erfið í stjómar- samstarfi eins og sagt er? Það er af því að ég vil standa við það sem ég segi við fólkið. Ég vildi ekki láta nota mig til þess að veiða atkvæði," sagði Jóhanna Sigurð- ardóttir á fundi Þjóðvaka. Baráttufund- ur kennara- félaganna Pélög kennara efiia til sameig- inlegs fundar félagsmanna sinna í Reykjavík og Reykjaneskjör- Fimdir dæmi í dag kl. 17.00 í Bíóborg- inni. Á fúndinum flytja ávörp for- menn félaganna, auk þess sem Björk Jónsdóttir, söngkona og kennari, syngur einsöng við und- irleik Bjarna Jónatanssonar. Þá mun Baldvin Halldórsson leikari lesa Ijóð. Kvenfélagið Seltjörn Kvenfélagið Seltjöm heldur al- mennan félagsfund i Félagsheim- ili Seltjamamess í kvöld kl. 20.30. Gestur fundarins er Ásta Krist- rún Ólafsdóttir ráðgjafi, sem mun tala um sjálfsöryggi, kúgun og ofbeldi á heimilum. í dag verður norðaustan hvassviðri eða stormur og snjókoma norðvest- anlands en annars fremur hæg aust- Veðrið í dag læg átt og sums staðar él. Vaxandi norðaustanátt í kvöld, noröaustan hvassviðri eða stormur um allt land þegar líður á nóttina með snjókomu um norðan og austanvert landið. Frost 1-11 stig. Á höfuðborgarsvæð- inu verður austan- og síöar norðaust- ankaldi eða stinningskaldi í dag en allhvöss norðaustanátt í nótt. Dálítil él. Frost 4-6 stig. Sólarlag í Reykjavík: 16.26 Sólarupprás á morgun: 10.48 Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.08 Árdegisflóð ó morgun: 7.23 Heimild: Almanak Háskólans Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri léttskýjað -10 Akumes alskýjað -3 Bergsstaðir léttskýjað -12 Bolungarvik snjókoma -7 Keíla víkurflugvöllur snjók. á síð. klst. -6 Kirkjubæjarklaustur léttskýjað -5 Raufarhöfn hálfskýjað -7 Reykjavík skýjað -7 Stórhöfði skúr -3 Bergen rigning 6 Helsinki alskýjað 1 Kaupmannahöfn heiðskírt 2 Stokkhólmur skýjað 3 Þórshöfn skúr 3 Amsterdam skýjað 3 Berlín heiðskírt 0 Feneyjar heiðskírt -3 Frankfurt þokumóöa -3 Glasgow léttskýjað 3 Hamborg léttskýjað 0 London rigningog súld 8 LosAngeles skýjað 12 Lúxemborg léttskýjað -1 Mallorca léttskýjað 2 Nice léttskýjað 2 Orlando skýjað 11 París skýjað 3 Róm þokumóða 1 Vin léttskýjað -3 Washington skýjað 6 Winnipeg snjókoma -2 Garðar Oddgeirsson, stjómarformaöur Stakksvíkur hf.: Aldrei verið vandamál að láta tímann líða Ægir Már Káraaon, DV, Suöumesjum: „Stakksvík hefur átt við vaxandi erfiðleika í þessum kvótasam- drætti eins og önnur sjávarútvegs- fyrirtæki, en við eigum þó fyrir skuldum. Það sem við erum sátt- astir við i dag er að koma lífi í hús sem við eigum í Keílavík. Viö ein- Maður dagsins settum okkur að koma neðri hæö- inni í gagnið. Þar verður vinna iyr- ir nokkra tugi manns þegar kola- vinnslan mun hefia rekstur þar,“ segir Garðar Oddgeirsson, stjóm- arformaður Stakksvíkur hf., en fyrirtækið á einn togara og 2000 fermetra húsnæöi á tveimur hæð- um i Keflavík. Garðar er deildar- stjóri sjálfsaladeildar verslunar VarnarliðsinS á Keflavíkurflugvelli og hefur það verið aðalstarf hans í mörg ár. Garðar hefur sett svip sinn á bæjarlífið í Kefiavík á undanfórn- Garðar OdJgeirsson. DV-mynd Æglr Már um árum. Hann hefur setið í mörg- um neftidum og ráöum. Hann var bæjarfulltrúi í átta ár samfleytt en gaf ekki kost á sér síöast þegar kosiö var. Hann er einn þeirra sem hafa staöið fast á því að nýja sveit- arfélagiö eigi að heita Keflavik: „í skoðanakönnun sem fór fram voru flestir á því að sveitarfélagið eigi að heita Kefiavík og þaö eru alltaf aö bætast við fleiri og íleiri sem em á þessari skoðun. Það er aftur á móti fámennur minnihlutahópur sem hefur hátt.“ Garðar segir að menn eigi ekki aö vera of lengi bæjarfulltrúar: „Það er nóg aö vera tvö kjörtíma- bO. Þetta var mikil vinna að vera 1 bæjarsfiórn og var ég sáttur við að vera í tvö tímabil. Nú hefég tíma til að gera það sem ég haföi ekki tíma til að gera áöur, en það hefur aldrei verið vandamál hjá mér að láta tímann líða.“ Garðar hefur mörg áhugamál. Hann hefur stundað frímerkjasöfn- un frá því hann var bam, þá stund- ar hann stangveiðina á sumrin og fylgist vel með i íþróttum og var formaður íþróttabandalags Kefla- víkur til margra ára. Hann hefur búið frá sex ára aldri í Keflavík en er fæddur á Þórshöfn á Langanesi. Eiginkona hans er Helga Gunn- laugsdóttir og eiga þau tvö börn. Myndgátan Sterkur á svellinu Myndgátan hér að ofan lýsir málshætti. Valur-Keflavík í bikarkeppninni Þessa dagana erírekar rólegt í innlendum íþróttum enda var nnkiö um að vera um síðustu helgi. Aðalviðburður dagsins er leikur í bikarkeppni kvenna í Iþróttir körfuknattleik, þar eigast við Valur og Kefiavík og hefst leUcur- inn klukkan 20.00 í Valsheimil- inu. Fyrir fram má búast við að keflvísku stúlkurnar séu ofiarlar Valsstúlknanna enda er Keflavík í efsta sæti deUdarinnar, en Valur er á heimaveUi og því aldrei að vita hvemig fer, enda em bikar- leikir ávaUt miklir baráthUeikir. Þáereinnleikurí 1. deUdkvenna. í Grindavík veröur nágranna- slagur þegar heimamenn taka á móti Njarðvíkingum. Hefst leik- urinn kl. 20.00. í handboltanum fer fram einn leikur í 2. deild karla í kvöld á Akureyri. Þar eigast við Þór og Keflavík. Leikurinn hefst kl. 20.30. Skák Þessi staða er úr áskorendaflokki ájók og nýársskákmótinu í Hastings. Ensk; stúlkan Harriet Hunt, sem er aðeins 1' ára gömul, hafði svart og átti leik gegi stórmeistaranum James Plaskett: 32. - Hd7! Nýtir sér leppun drottningar innar og nú er hvítur glataður. 33. Dxbl Hxdl+ 34. Ke2 cxb5 35. Bxb6 Hal 36. b Hxa2 og hvltur gaf nokkrum leikjum síð ar. Jón L. Árnasor Bridge Sum spil geta þróast á furðulegan máta í sögnum á milli tveggja borða í sveita- keppni og menn fá ekki alltaf verðskuld- aöa niðurstöðu fyrir sagnir. Hér er eitt spil sem þróaðist á skrautlegan máta i sveitakeppni yngri spilara í Danmörku á dögunum. Sagnir voru mjög ólíkar á borðunum tveimur, þó aö þær hafi byijað eins. Suður gjafari og allir á hættu: ♦ D2 ¥ 107543 ♦ 54 + 10842 Opinn salur: Suður Vestur Norður Austur 1* 2+ 4+ Pass 4? Pass 44 Pass 54 Pass 54 Pass 7* P/h Fjögur lauf norðurs var „splinter" sagn- venja, lofaði spaðastuðningi og stuttht i laufi og 4 hjörtu var spumarsögn um hjartaö. Fjórir spaðar neituðu ás eða kóng í litnum og 5 tíglar spurðu um ása og fyrirstöðu í tígli. Fimm spaðar lofuðu einum ás og kontróli í tigli og eftir þær upplýsingar lét suður vaða í alslemmuna. Sagrútafa mistókst að finna tíguldrottn- ingtma og fór einn niður. í lokuðum sal gengu sagnir þannig: Suður Vestur Norður Austur 14 2+ 24 Pass 24 Pass Pass 34 34 Pass 44 Pass Pass Dobl p/h Norður var ekki eins bjartsýnn um ágæti spila sinna á þessu borði og passaði jafn- vel niður 2 spaða. Vestur var gripinn bjartsýni og taldi góða möguleika á aö 4 spaðar væm niður en það var ekki beint rökrétt ákvörðun þjá honum því vömin fékk engan slag í þessum samningi. Þaö var 15 impa gróði til NS, en var hann verðskuldaður? ísak Öm Sigurðsson ♦ 65 V ÁKG ♦ D92 + KD765 * Á84 ¥ D986 ♦ K876 + 9 * KG1( V -- ♦ ÁG1( + ÁG3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.