Þjóðviljinn - 29.08.1945, Side 6
ÞJÓÐVIL JINN
Miðvikudagur 29. ág. 1945
Storkurinn
Eyjarnar rísa upp úr vatninu og eru ekkert' annað
en haus á ófreskju. Salamöndrurnar eru gínandi
drekar, sem bíta tærnar af storkunum, þegar þær
ná ekki til að gleypa þá í heilu lagi. Það rignir
svo að mér liggur við drukknun. Sólskinið er svo
brennandi heitt, að mér er ekki við vært. Snák-
arnir eru tíu álnir og gleypa hjört með húð og hári.
Maurarnir éta snákana lifandi. — Nei, nú er mér
nóg boðið. Eg fer heim til Danmerkur undir eins“.
- „Þú kemur of snemma heim til þín- Það er
sjáífsagt vetur í Danfnörku enn“, sagði fíkjutréð.
„Mér er alveg sama. Eg verð hér ekki stund-
inni lengur“.
Storkurinn flaug. Fíkjutréð kallaði á eftir hon-
um, en hann anzaði ekki.
„Hann hefði að minnsta kosti getað þakkað
fyrir sig“, sagði gestrisna fíkjutréð.
En stórkurinn hraðaði sér í norðurátt-
Hann flaug eins langt og sjúkir vængir hans
leyfðu. Svo gekk hann á særðum fætinum — og
flaug á ný.
Hann hugsaði ekki um annað en komast norð-
ur — burt úr þessu heita, skelfilega landi.
ENDIR.
ÞETm
T”úbo'5i var á ferð og
hafði með sér slatta af guðs
orðabókum, sem hann
reyndi mjög til að selja.
Meðal annarra kom hann
til gamals manns, sem legið
hafði mörg ár í rúminu og
var blindur. Fór hann að
ræða við hann um sálu-
hjálp'na og sagði meðal
annars: Þú hefur nú orðið
góðan tíma til að lesa guðs
orð cg varðveita það.
Gan'í maðurinn sag'ði aö
guð yroí þá að gefa blind-
um svn ef hann ætti aö
geta lésið guðs orð.
Þú Vntir látið aðra lesa
fyvív hiv og rætt svo við
guð þ;vn í einrúmi, sagði
trúboð'nn:
Egf h°f aldrei orðið var
við. 3.0 hann væri svo skraf-
ræðinn. sagði sá gamli, og
lauk svo þeirra skiptum.
¥
Fkólastjóri nokkur var að
ræða við nemendur sína um
þörfina fyrir aukið húsnæði
fyrir skólann. „Já, börn,
það verður ekki hjá því
komizt að byggja nýtt skóla
hús,“ sagöi hann, ,,en eng-
inn vafi er á því, að þaö
mun kosta langa baráttu.
En ég er tilbúinn aö heyja
jáfnvel 20 ára baráttu strax
á þessum degi fyrir svo
mikilsverðu máli.
Eg heiti því að lifa í
hundraö ár og liggja dauð-
ur ella.
★
Á frumbýlisárum bifreið-
anna hér á landi bauð ung-
ur strákur ,sem lítiúe.v.
hafði lært með bíl að fa> - ..
onmm sinm með. sér í b;;-
túr út úr bænum. Er þau
nofðu æði'íund ekiö, key.ói
stfákurtnn a símastaur, sv-
að þau hentust bæði út ui
bílnum. Sú gar.^istóð ipj
ósköp róleg, dustaöi moM
af þilsinu sínu og sagði w
sónarsoninn: „Þetta var
bara ansi góður túr. En
hvernig feröu að stoppa þar
sem ekkert tré er?“
¥
Einfeldningur aö austan
hafði flækzt víða vegu og
lifað mest á snöpum. Eitt
sumar var hann á Siglu-
firöi. Sagan segir, að eitt
sinn hafi hann slangrað inn
á skrifstofu Ingvars Guð-
jónssonar og sagt viö skrif-
stofustúlkuna.
„Gætirðu ekki látið mig
hafa einn gamlan fimmkall,
sem þið eruö hætt aö nota?‘
Huröin stóð opin inn á
skrifstofu Ingvars, svo að'
hann heyrði til piltsins.
Snaraðist hann fram og
sagði stúlkunni að láta
hann hafa fimm krónur,
því að hann hefði vel fyrir
þeim unnið.
næsta kvöld var hann enn
orðinn umboðsmannslaus og
herra Harris orðinn konulaus.
Þrem dögum áður en
Midge átti að keppa 10 lotur
við Young Milton í New
York sendi íþróttaritstjófi
The News einn af mönnum
sínum, Joe Morgan, til þess
að skrifa tvö til þrjú þúsund
orða grein um hnefaleika-
kappann, til þess að birta
með myndunum af honum í
sunnudagsblaðinu.
Það var um nónleytið á
föstudag að Joe Morgan leit
inn í æfingastöð Midges
Honum var sagt að því miður
væri hann ekki við, sem
stæði væri hann úti að
i hlaupa. En umboðsmaður
hans Willie Adams var reiðu-
búinn til þess að veita allar
upplýsingar um þennan
mesta bardagamann aldar-
innar.
Jæja, segðu mér það
sem þú veizt, sagði Joe Morg-
an, og svo reyni ég að sjóða
eitthvað saman.
Og Willie steig á töfra-
klæði ímyndunaraflsins og
flaug af stað.
Þetta er unglingur, raun-
vexulegur unglingur, ekta
drengur. Hefurðu náð því?
Hann veit ekki hvað slark er.
Aldrei drukkið vín á ævi sinni
og mundi sennilega verða
veikur ef hann fyndi lykt af
því. Hefurðu náð því? Blátt
áfram og hæv.erskur eins og
skólatelpa. Hann er svo hæg-
látur að maður veit varla
af honum. Og hann mupdi
heldur láta setja sig í stein-
inn en að tala um sjálfan
sig.
Það þarf alls ekkert að
hafa fyrir því að þjálfa hann,!
því hann er alltaf í þjálfun.
Það eina sem við eigum
erfitt með' er að fá ifoann til
þess að berja á bessum vesal-
ingum sem sendir eru í herid-
urnar á horium. Hann er állt-
af með lífið í lúkunum út- af
því að hann muni meiða þá.
Hefurðu náð því? Hann er
mjög spenntur út af bardag-
anum við Milton, því hon-
um hefur verið sagt að Mil-
ton sé harðskeyttur náungi.
En hann gat leikið sér að
báðum mönnunum sem send-
ir voru móti "honum í tvö
seinustu skiptin, og hann hélt
aftur af sér allan tímann af
1 ótta við að slasa þá. Iiefurðu
náð því?
— Et hann giftur? spurði
Joe.
— Þú þyrftir ekki að spyrja
hefðirðu heyrt hann tala
um drengina sína. Fjölskylda
hans er norður í Kanada í
sumarbústaðnum þeirra og
hann er alveg trylltur að
komast til hennar.
Konan og börnin eru hon-
um meira virði en öll heims-
ins auðæfi. Hefurðu náð því?
— Hvað á hann mörg börn?
— Eg veit ekki nákvæm-
lega, fjögur eða fimm, held
ég. Allt drengir, og þeir sjá
ekki sólina fyrir föður sín-
um.
— Er faðir hans lifandi?
— Nei, nei, gamli maður-
inn dó þegar Midge var lítill.
En hann á gamla, góða móð-
ur og bróður í Chigaco. Þau
eru fyrsta hugsun hans að
lokinni keppni, þau og konan
og drengirnir hans. Og hann
gleymir ekki að senda gömlu
konunni þúsund eftir hverja
keppni. Hann ætlar að kaupa
nýtt hús fyrir hana þegar
honum hefur verið goldið fyr
ir þessa keppni.
— Hvernig er þessi bróðir
hans. Stundar hann líka
hnefaleika?
— Svo sannarlega, og Midge
segir að hann muni verða
fræg hetia áður en hann verð
ur tvítugur. Þetta er baráttu-
fjölskylda og gullheiðarleg.
Hefurðu náð því? Náungi,
sem ég má ekki segja þér
hvað heitir, kom einu sinni
til Midge í Milwaukee og
vildi kaupa hann til að tapa
keppni, en Midge tók svo í
hann, þar sem þeir voru á
götunni, að hann þurfti ekki
meira það kvöldið. Þannig er
hann,. Hefurðu náð því?
Joe Morgan slæptist þarna
bangað til Midge og þjálfar-
inn hans komu.
, — Blaðamaður frá The
News, sagði Wallie í kynning
arskyni. Eg hef sagt honum
dálítið um ættfólk þitt..
—- Gaf hann þér góðar upp-
lýsingar, spurði Midge.
— Hann ef bóinlínis sagn-
fræðingur, sagði Joé.
Öllu má rtú rtafn' g?fa-.
sagði Willíe.; Hringdu til ökk-i
ah éf .þig vántar rtteiri urip-
lýsingar og horfða svo á okk-
ur á mánudagskvöldð. Ertu
með?
Þúsundir af dáendum hinn-
ar karlmannlegu íþróttar lásu
greinina um Midge í Sun-
dey News. Iiún var fjörlega
og skemmtilega skrifuð. Eng-
inn fékkst um smávegis óná-
kvæmni, þótt þrír lesend-
anna, auk Wallie Adams óg
Midge Kelly rækju augun
í hana. Þessir þrír lesendur
voru Grace, Tommy Haley og
Jerome Harris, og ummæli
þeirra þegar þau sáu grein-
ina eru því miður ekki prent-
hæf.
Hvorki frú Kelly í Chicago
né frú Kelly í Milwaukee
vissu að til var blað sem hét
New York News. Og þótt þær
hefðu vitað það og þar með
að í því væri tveggja dálka
grein um Midge myndi
hvorki móðirin né konan hafa
keypt það; því The News
kostar krónu á sunnudögum.
Joe Morgan hefði getað skrif-
að réttari frásögn hefði hann
í stað þess að tala við Wallie
Adams átt viðtal við Ellen
Kelly og Connie Kelly,:
Emmu Kelly og Lou Hersch,
Grace og Jerome Harris,
Tommy Haley og Hap Collins
og tvo eða þrjá þjóna í Mil-
waukee.
En íþróttaritstjórinn hefði
aldrei tekið í blaðið grein
sem hefði verið byggð á upp-
lýsingum þessara manna.
— Það má meir en vera að
þú gætir sannað þetta allt sam
an, myndi sá heiðursmaður
hafa sagt. En við fáúm að-
eins tómar skammir fyrir að
birta það. Fólk vill ekkí
hevra neitt illt um hann.
Hann er hnefaleikakappi.
ENDIR.
(" |
Up borgínn!
Næturvörður er í Reykjavíkur
apót^ki.
Næturlæknir pr í læknavarð-
stofunni Austurbæjarskólanum,
simi 5030. I
Ljósatími ökutækja er frá kl.;
21.00 til kl. 4.00.
Líkn. Templarasundi 3. Stöðin
er opin fyrir barnshafandi konur
a ma.iuaogum og miðvikudögum-
kl. 1—2.
Skipafrétti;':
,,Bi'úarfoss“ er sennilega kom-
inn til London. ,,Fjallfoss“ kom
til New York 23. þ. m. „Lagar-
fösfe“' fór ,kl. 223.0 á laugardags-.
kvoldið til Austfjarða og Káupi
mannahafnar. ,,Selfoss“ er á Ak-
úreyri: ,,Reykjáfossii; kom tij
Gautaborgar 20. þ. m. ,,Ye-
masse“ fer væntanlega frá . Nevv
York 29. b. m. ,,Larranagá“ kom
til Reykjavíkur ■ kl. 16.00 í fyrra-
dag. „Eastern Guidé“ kom frá
New York 18. þ. m. „Gyda“ kom
til New York 21. þ. m. ,,Rother“
fór frá Reykjavik 24. þ. m. til
London. ,,Baltara“ fór frá Reykja
vík kl. 14.45 í fyrradag til Eng-
lands. „Ulrik Holm“ fór frá
Reykjavík kl. 11 í gær. ,,Lech“
fer væntanlega frá Leith mjög
bráðlega. „Gyllir“ kom frá Eng-
landi í gær. „Sakara“ fór til
Englands í gær. „íslendingur“
kom í gær af veiðum. ,;Súðin“
fór frá Ingólfsíirði í gærmorgun.
,,Esja“ fór héðan í gærkvöld
í hraðferð austur og norður fyr-
ir land, til Akureyrar.