Þjóðviljinn - 29.08.1945, Side 8
Ámiað þing Alþýðusambands
Austfjarða
Frá fréttaritara Þjóð-
viljans á Norðfirði.
Hinn 25. og 26. ágúst var
annað þing Alþýðusambands
Austfjarða haldið að Nes-
kaupstað í Norðfirði.
Fulltrúar voru mættir frá
verklýðsfélögunum á Horna
firði, Fáskrúðsfirði, Eskifirði,
Neskaupstað, Seyðisfirði og
Vopnafirði. Einnig var mætt-
ur frá miðstjórn Álþýðusam-
bands íslands Jón Rafnsson,
framkvæmdastjóri sambands-
ins.
Fundarstjórar voru Jóhann
Klausen og Sigurjón Ás-
mundsson, en ritarar Magn-
ús Guðmundssor^ og Bragi
Níelsson.
Þrjú félög hafa gengið í
sambandið frá því, er síðasta
þing var háð: Verkamanna-
félag Vopnafjarðar, Verkar
lýðsfélag Stöðvarfjarðar og
Verkalýðsfélag Norðurhéraðs.
Á þessu tímabili milli þinga
hefur kaupgjald algerlega
verið samræmt á öllum Aust-
fjörðum, svo að fullyrða má,
að samræmi sé nú meira á
kaupgjaldi á Austfjörðum
Nýtt verkalýðs-
félag á Héraði
Nýlega gengust þeir Jó-
hannes Stefánsson, erind-
reki Alþýðusambands Aust-
fjaröa og Bjarni Þórðarson
forseti sambandsins, fyrir
stofnun yerkalýðsfélags að
Fossvöllum í Jökulsárhiíð.
Nær umdæmi félagsms yfir
Jökuldal, Jökulsárhlíð og
Hróarstungu. Stofnendur fé
lagsins voru 20. Félaginu
var gefið naínið Verkalýðs-
félag Norðurhéraðs.
í stjórn félagsins voru
kjörnir Sigurður Árnason,
Heiðarseli, Þórður Þórðar-
son, Gauksstöðum og Hall-
grímur Gíslason.
Samþykkt var að sækja
um inngöngu 1 Alþýðusam-
band íslands og Alþýðusam
hand Austfjarða.
heldur en í nokkrum öðrum
fjórðungi landsins.
Á þinginu voru margar á-
lyktanir gerðar um launa-,
atvinnu- og útbreiðslumál.
hingið lýsti ánægju sinni
yfir stefnu ríkisstjórnarinnar
í atvinnumálum og hét full-
um stuðningi verkalýðsfélag-
anna á sambandssvæðinu við
framkvæmd stefnuskrárinn-
ar.
Aðalstjórn sambandsins
var öll endurkjörin, en hana
skipa: Bjarni Þórðarson, for-
seti, Oddur A. Sigurjónsson,
ritari og Sigfinnur Karlsson,
gjaldkeri.
Varastjórn skipa (í sömu
röð): Jóhannes Stefánsson,
Magnús Guðmundsson og
Karl Marteinsson. Á milli
þinga hafa flest félög sam-
bandsins verið heimsótt og
fjölmargir nýir samningar
verið gerðir. Hefur starfsemi
sambandsins yfirleitt verið
9
með ágætum.
Hefur þú skilað?
Flokksmenn eru alvar
lega minntir á að skila
strax eftirtöldum gögn-
um í skrifst. miðstjórnar
eöa félagsins:
Söfnunarlistum frá 8
síðu söfnun Þjóðviljans
(gulir listar með rauðri
fyrirsögn, Söfnunar-
blokkum frá prentsmiðju
söfnun Þjóðviljans og
könnunarlistum þeim,
sem öllum flokksmönn-
voru sendir i pósti fyrir
skömmu
Það er mjög áríðandi
að flokksfélagarnir geri
þá sjálfsögðu skyldu sína
að draga ekki lengur að
skila þessum gögnum og
gera ekki skrifstofum
flokksins erfiðara fyrir
í starfi en þörf er á.
löíramaðurmn og
risinn aftur í
þlÓÐVILIINW
Mikil ólga í Frakklandi vegna breyt-
inga á stjórnarskránni
Mótmælafundir haldnir í París og Toulouse
Mikil ólga er nú í Frakk-
landi út af breytingartil-
lögum stjórnar de Gaulles
við frönsku stjórnarskrána.
Breytingartillögur þessar
stefna í þá átt að auka vald
de Gaulles og fá honum í
hendur svipuð völd og
Bandaríkjaforseti hefur nú,
þ. e. að ríkistjórnin mundi
veröa skipuð af honum og
öðrum þjóðhöfðingjum
franska ríkisins í framtíð-
inni og myndi bera ábyrgð
gagnvart honum en ekki
þinginu.
Síldvdðiskipin
flest hætt eða að
hætta veiðum
í fyrradag voru saltaðar
927 tunnur síldar á Sigíu-
firði og 721 tunna samtals
annars staðar á landinu.
Höfðu þá verið saltaðar
samtals 52 406 tunnur á
landinu þaö sem af er
sumrinu. Um 15 bátar
stunda nú reknetvéiöar frá
Siglufiröi og hafa þeir afl-
að allt aö 100 tunnum á
sólarhring. Er búizt við, aö
fleiri skip muni nú fara á
reknetjaveiðar, þar eð hún
hefur gengiö svo vel til
þessa.
Annars eru flest skipin
hætt eða eru að hætta síld-
veiðum. Munu fá eöa engin
dæmi þess á seinni árum,
að síldveiðin hafi brugðizt
svo hörmulega sem nú.
Reykjavík
Flugmenmrnir
komnir til Seyðis-
f jarðar heilir á
Flugmennirnir af land-
flugvél. Flugfélags íslands,
sem fórst á Grímseyjar-
sundi í fyrradag komu í
gær til Seyðisfjarðar meö
enskum togara. Hafði
sænska skipið ,,Silva“, sem
bjargaði mönnunum, verið
á leiö út og því komið þeim
í þennan enska togara.
Mennirnir voru allir á-
gætlega á sig komnir, og
hafði þeim ekkert orðið
meint af volkinu.
Munu þeir fara frá Seyð-
isfirði í dag með bíl til Ak-
ureyrar.
42 ísL stúlkur
komiiar til
New York
Allar giftar bandarísk-
um hermönnum
42 íslenzkar stúlkur, sem
giftar eru bandarískum her-
mönnum, komu til New
York í gær.
Útvarpsstöð bandariska
útvarpsins í Evrópu skýrði
frá þessu í gærkvöld og
bætti við, aö flestar þeirra
myndu vera með börn með
sér og hefðu allar i hyggju
að setjast að í Bandaríkjun-
um.
Valur Norðdahl, töfra-
maður og Jóhann Svarfdæl-
ingur eru komnir til bæjar-
ins aftur eftir skemmtiför
um Norðurland. Héldu þeir
þrjár skemmtanir á Akur-
eyri og fjórar á Siglufirði
við mikla aðsókn. Auk þess
héldu þeir skemmtanir í
suðurleiðinni 1 Borgarnesi
og á Akránesi, og í gær-
kvöldi brugöu þeir sér til
Keflavíkur og skemmtu þar.
Þeir munu bráðlega fara
til Vestmannaeyja og
skemmta á Selfossi í baka-
leiðinni. Að því loknu munu
þeir sennilega endurtaka
sýningar sínar hér í Keykja
vík.
Þriggja iiiotra
tunglfiskur
veiddur í Vopna-
fjarðarflóa
Skipið „Bjarnarey“ veiddi
í gær 1 tunglfisk á Vopna-
fjarðarflóa með því að
skutla hann. Tunglfiskur
þessi var 3 m. á lengd og
280 kgr. aö þyngd.
Tsetung kotn-
inn til Sjúngking
Bandaríski séndiherrann
í för með fionum
Mao Tsetung, síjárnmála-
íeiðtogi kínversltu kommún-
istanna er nú kominn tii
Sjúngking til viðræðna við
Sjank Kajsjek.
Hurley, hershöfóingi,
sendiherra Bandaríkjanna í
Kína var í för með honum
frá Jenan.
Þeir Sjang Kajsjek munu
aö ölium líkindum ræða um
líkurnar á því, að mynduð
verði þjóðstjóx-n í Kína, þar
sem kommúnistum verði
leyíð þátttaka í stað ein-
ræðisstjórnar Kuomintang-
fiokksins, sem nu er við
vöid.
Fjölmennur mótmæla-
fundur var haldinn í gær
í París á vegum franska
kommúnistaflokksins, og
talaði Maurice Thorez, for-
maður flokksins á peim
fundi. Hann sagði, aö þaö
væri krafa fi'önsku þjóðai'-
innar, að þeir, sem hefðu
æðsta framkvæmdarvald
hennar á hendi, bæru á-
byrgð gagnvart henni, en
ekki neinum einstaklingi,
þó svo að hann væri þjóð-
höfðingi. Fjölmennur mót-
mælafundur var einnig
haldinn í Toulouse í gær og
talaöi Marty, aðalritstjóri
L’Humanite, aöalmálgagns
fi'anska kommúnistaflokks-
ins á þeim fundi.
r
I stuttu máli
Mikill hvirfilvindur hefur
geisað um suðurríki Banda-
ríkjanna undanfarna daga
og valdið tjóni. sem skiptir
milliónum dollara. Ilann er
nú í rénun.
36 japanskir „fðui'lands-
vinir“ fi'ömdu í gær sjálfs-
morð á japanskan hátt,
meö því að í'ista á sér kviö-
inn, vegna ósigui'sins í sti'íð
inu.
Trygve Lie er nú í Lond-
on. Mun hann ræða viö
Bevin utam’íkisráðherra um
ýmis mál, er snerta sam-
búð Noregs og Bretlands.
Umsóknir um skóla-
læknisstöðuna við
Laugarnesskólann
Þau dr. Jóhannes Björns-
son og María Hallgríms-
dóttir, hafa sótt til bæjar-
ráðs um skólalæknisstöð-
una við Laugarnessskólann.
Belssnfangaverð-
: irnir ákærðir um
)
i múgsnorð
1 Málið tekið fyrir í næsta
j mánuði
! Réttarhöldin í máli fanga
varðanna í Belsenfangabúð-
unum munu hefjast í næsta
mánuði.
Þeir eru 46 að tölu, auk
> yfirfangavarðarins, Josefs
| Kramers. Af þeim eru 19
“ konur.
■ Fangaverðirnir eru á-
kæröir fyrir fjöldamorð, og
talið nærri fullvíst, að þeir
muni allir verða dæmdir til
dauöa.
RÉTTARHÖLDIN yfir stríðsglœpamönnunum fara nú að
hefjast. Þeim mun verða refsað þunglega, en réttilega.
Glæpir þeirra eru svo miklir, að enginn þarf að efast
um dauðasök þeirra. Mest hryðjuverk sín unnu þeir þó
á saklausu fólki, konum og börnum. Bandaríski teikn-
arinn, sern teiknaði myndina hér að ofan, nefnir hana
„Þó að engin önnur ákœra væri fyrir“, og á hann þar
við börnin, sem nazistarnir rnyrtu og pindu i hinum
alrœmdu BuchenwaldfangabúöUm.